Þjóðviljinn - 30.08.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.08.1964, Blaðsíða 6
SlÐA HðÐVILIlNN Sunnudagur 30. ágúst 1964 Xony Richardson er sá enskur leikstjóri, sem cinna bczit hefur tekizt aO vinna úr bókmenntaverkum þannig 3ð úr verði full- gild kvikmyndaverk. Hér sést hann stjórna ,,Einmana sigri“, sem gerð var eftir sögu Sillitoes og Háskólabió sýndi hér fyrir skömmu. Heiðarkg mynd um kynþáttafordóma Ungur bandarískur kvik- myndastjóri, Larry Peerce. hefur bætzt i hóp þeirra, sem glíma við kynþáttavandamál á tjaldinu. Og þó myndin sé sögð hafa ýmsa listræna og tækni- lega galla. sem rekja má til reynsluskorts, þá sé hún svo heiðarleg og einlæg, að áhorf- andinn eigi næsta auðvelt með að gieyma göllunum. Peerce er sagður búa yfir þekkingu og heiðarleik sem tryggir, að hann reynir hvergi að einfalda sér hlutina. Hann eýnir til að mynda fordóma i.hjá báðum aðilum". Myndin lýsir blönduðu hjónabandi — hún hvít, hann þeldökkur, og átökin skapast af andstöðu hinnar eldri kynslóðar negra gegn slíkri sambúð — og ekki bætir það úr skák, að fyrri maður konunnar. hvítur, birt- ist eftir fjögurra ára fjarveru og krefst réttar til „síns“ bams, er hann hefur allt í einu komizt að raun um að móðir bamsins hefur gifzt „niggara" • eftir skilnaðinn við hann. Myndin er hlutlæg í jákvæð- um skilningi — og ekki þann- ig að afstaðan „annarsvegar og hinsvegar" verði afsökun, fyrir því að engin afstaða er tekin. Hún varpar ljósi á harmleik sem gerist dag hvern þar sem kynþáitamisrétti er til, og gerir þaö á þann hátt. að hún dýpkar þekkingu manna á málinu og skýrir þannig þá baráttu sem nauð- synleg er til að kynþátta- vandamál verði leyst. Soraya leikur / s&g* um Karenar Blixen Slúðurdálkar hafa um langa hríð oftlega birt tiðindi af á- formum Sorayu. fyrrum keis- aradrottningar. um að leika í kvikmyndum. Er hún komst í samband við hinn þekkta fram- leiðanda di Laurentiis, héldu menn að málið væri leyst. Þessi fagra frú átti að koma fyrst fram i mynd. sem gerð væri eftir sögu Henry James „Ameríkaninn", sem skyldi látin gerast nú á dögunum. En sífellt komu upp nýjar og nýj- ar hindranir. Það reyndist tii dæmis erfitt að fá sæmilegan mann til að leika á móti Soraya. því Cary Grant, Ro-_ bert Mitchum. Burt Lancaster Kirk Douglas og Paul New- man, afþökkuðu hver af öðr- um tilboð um að leika á móti uppgjafadrotningunni. En nú eru uppi ný áform hjá di Laurentiis um hagnýt- ingu frægðar Sorgya og feg- urðar. Sagt er að hún eigi að leika i kvikmyndum nokkurra smásagna dönsku skáldkonun- #r Karen Blixen. og eigi mynd- in að heita „Þrjú andlit kon- unnar“. Soraya á að leika þrjár ólík- ar kvengerðir í myndinni. Og leikstjórarnir verða einnig þrír — hver stjórnar einní sögu. Það fylgir þessum orðrómi. að Antonioni og Alberto Lattuada hafi samþykkt að taka að sér sinn hlutann hvor, og reynt sé að fá Orson Welles til að Karen Blixen. glíma við þann þriðja. Reynd- ar gengur mönnum erfiðlega að trúa þvf. að Antonioni hafi gefið samþykki sitt, en hann er ákaflega kröfuharður leik- stjóri, og undirbýr ákaflega vandlega allt sem hann ræðst í. — Sem þessar línur eru skrif- aðar berast ný blöð inn úr| dyrunum, og segir þar frá því. að taka myndarinnar sé hafin j Feneyjum og Bolognini sé leikstjóri. Þar - kom það slys fyrir. að þungur ljóskastari féll ofan á meðleikara Sorayu. Richard Harris, og hlaut hann slæman áverka af. Leið drottn- ingarinnar fyrrverandi inn í kvikmyndirnar virðist ekfíi beinlínis rósum stráð. Eru bókmenntaverk kvik- myndamönnum fjöturum fót? John Arfagh gerir í nýlegum pistli grein fyrir sérstæðn þróun í enskri kvikmyndagerð. Hann bendir á það, að ólikt þvf sem gerzt hefur á megin- landinu (Fellini. Antonioni á Ifalíu, Bergmann í Sviþjóð. nýja bylgjan franska) — þá séu allar þær enskar kvik- myndir, sem að hefur kveðið á síðustu árum. byggðar á skáldsögum eða leikritum. En þessi hlutföll séu nú að breyt- ast fyrir tilverknað þeirra mörgu nýju hæfileikamanna sem nú eru að koma fram f enskrf kvikmyndagerð. Þannig er til að mynda John Schles- inger (þekktur m.a. fyrir ,.Lyg- arann Billy”), tekinn til við mynd sem nefnist ,.Darling“ og er byggð á handriti sem bein- línis er fyrir hann samið af Frederic Raphael. Myndin er byggð upp sem mjög raunsæ lýsing á siðferðilegri og and- legri kreppu yfirstéltarstúlku. Schlesinger og Raphael álíta mjög eindregið, að nú sé mikil þörf fyrir eiginleg kvik- myndahandrit. samin að öUu leyti beint fyrir kvikmynda- iðnaðinn — því annars geti kvikmyndin ekki verið sjálf- stæður miðlari persónulegrar listrænnar tjáningar — á svip-* aðan hátt og t.d. skáldsagan er. Þeir álíta, að slík handrit séu enn svo fá vegna þess. að þeir. sem yfir fjármagn- inu ráða, háfa helzt kosið að styðja verk sem þegar hafa sýnt að þaU 'eiga sér aðdrátt- arafl í öðrum formum. Og einnig stafi þetta af því, að mjög fáir enskir rithöfundar hafi freistazt til að vinna beint fyrir kvikmyndir. Einn hinna nýju kvikmynda- stjóra, Clice Donner, tekur mjög í sama streng. Hann seg- ir meðal annars: ..Mér finnst ég miklu frjálsari er ég vinn að eiginlegum kvikmyndahand- ritum. Þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af ýmsum þeim eig- leikum skáldsögu eða leikrits, sem eru kvikmyndinni óvið- komandi. Það að auki bjóða frumsamin kvikmyndaverk upp á meiri möguleika fyrir nýja hæfileikamenn, því það er svo dýrt að kaupa yétt til að kvik- mynda metsölubók, að ungir og upprennandi menn hafa ekki ráð á því“. Ekki eru samt allir kvik- myndastjórar á sömu skoð- um og Schlesinger og Donner. Karle Reisz. sem gerði ,.Laug- ardagskvöld — Sunnudags- morgun“ eftir sögu Sillitoes, kemst svo að orði um þetta mál: Ég fæ ekki skilið að hér sé um neitt höfuðvandamál að ræða. Mörg hinna beztu verka hafa upphaflegá ekki verið samin fyrir k ’ myndaiðnað- inn — „Jules og Jim“ var til dæmis gerð eftir skáldsögu. Ef að leikstjórinn vinnur rækilega að verkefninu. þá tekst hon- um að fá það til að lifa nýju lífi á tjaldinu. Lindsey Anderson er á svip- aðri skoðun og Reisz. (Hann lagði skáldsögu Storeys ,.Þetta íþróttalíf" til grundvallar fyrstu mynd sinni, og er nú að kvikmynda sígilda skáld- sögu Emiliy Bronte, „Fýkur yf- ir hæðir“) — ..Gagnrýnendur, segir hann. láta oft frá sér fara athugasemdir um þessa hluti, — en án beinna tilvís- ana. Og ég fæ ekki séð, hvers vegna mynd, sem byggð er á ákveðnum bókmenntalegum texta, þarf að vera árangur lé- legra sköpunarstarfs en önnur kvikmyndaverk. Og Tony Ric- hardson er auðvitað á sömu Iínu. enda hefur hann með frábærum árangri glímt við bókmenntaverk forn og ný. Hann álítur það geti ekki vér- ið neitt athugavert við að nota gamalt efni. þótt leikhúsverk geti stundum orðið nokkuð þvingaridi kvikmyndamanni. Demy syngur enn Það er ákaflega algeng saga, að hafi kvikmynd tekizt vel. þá Iíður ekki á löngu áður en höfundar hennar köma með aðra mynd. skylda hinni fyrri, og reyna þannig að þurrausa þennan brunn sinnar vel- gengni. Jacques Demy. sem fékk fyrstu verðlaun í Cann- es fyrir ..Regnhlífarnar í Cher- bourg“, glaðlega mynd sem öU er sungin, — Demy þessi er engin undantekning. Hann er að undirbúa nýja „syngjandi mynd“, og Michel Legrand á að semja tónlistina. eins og í hínni fyrri. Heiti hennar verður „Syngjum og dðnsum’’ og Demy segir að hún eigi að fjalla um gleðina. Visconti kvikmyndar leikrit Miliers? Sovézk mynd um Hemingway Það hlýtur að vera Banda- ríkjamönnum nokkur þymir í augum, að heimili HemingT (’ ways — og nú eftir dauða hans * — safnið sem við hann er kennt, er einmitt á því erfiða og óþæga Iandi, Kúbu. Ekki bætir það heldur úr skák, að nú er sovézkur leikstjóri. Semj- on Skolnikof, að vinna að heimildarkvikmynd um Hem- ingway. Skölnikof fékk hug- mynd að þessari mynd einmitt á Kúbu, sem harin heimsótti fyrir skömmu — af grein í blaðinu Revolucion sem segir frá hirini árlegu keppni um Hemingway-verðlaunin. I myndinni verða m.a. nokkriar fróðlegar senur, sem Skolnikof hefur fengið lánaðar hjá kúbönskum starfsbræðr- um sínum: þær sýna Heming- way er hann afhendir verð- launin sigurvegaranum í keppninni árið 1960 — Fid- el Castro. Rith. Konstantín Símonof skrifar textann að myndinni. En hann og Hemingway voru bomir saman stundum hér áð- ur fyrr, og reyndar hafði Hem- ingway boðið kollega sínum til Bandaríkjanna árið 1946, en af því gat því miður ekki orð- ið. En frá þeim tíma er til langt bréf frá Hemingway til Símonofs, sem margir kannast við nú orðið. Nú mun hafinn undirbún- ingur að því, að kvikmynda síðasta leikrit Arthurs Millers .,Eftir syndafallið". En eins og menn rekur minni til, var verk þetta frumsýnt síðastlið- inn vetur í New York og vakti ákafar deilur, eirikum vegna þess. að mönnum þótti höfundurinn hafa með vafa- sömum rétti dregið fram í leik- ritinu ýmis atriði úr einkalífi hans og Marilyn Monroe. Myndin skal gerð á ítalíu, og það er Annie Girardot, sem á að fara með þetta umdeilda kvenhlutverk en hún er eink- um þekkt fýrir leik sinn í ..Rocco og bræður hans“. En undirbúningur að þessari mynd vekur ekki hvað sízt forvitni vegna þess hver er. leikstjórinn — Það er Visconti sjálfur sem tekur verkið að sér, höfundur meistaraverka eins og „Rocco" og ,.Hlébarðinn“. Miller ætlar að verða einn þeirra höfunda sem geta ver- ið ánægðir yfir samskiptum sínum við kvikmyndirnar — þannig voru bæði í Bandaríkj- unum og Sovétríkjunum gerð- ar mjög þokkalegar myndir eftir leikritinu ..Sölumaður deyr“. Áður hafa að vísu borizt fregnir af því, að réttur til að kvikmynda leikritið hafi ■Á! -‘=*íy Miller og Monroe. verið seldur til Hollywood. Máske eru fréttir af áformum Visconti orðum auknar, en svo mikið er víst. að hann mun fljótlega stjórna Parísarfrum- sýningu á leikritinu. Oönsk ástarsaga frá 1864 Danir hafa nýlokið við kvikmynd, sem gcrð er eftir skáldsögu ílcrmans Bang og lýsir ýms- um átakanlegum atburðum sem gerast í striðinu við Prússa og Austurríkismenn árið 1864. Hér er greint frá ógæfusamrí ástarsögu kornungrar stúlku er Tine nefnist og Bergs skógar- varðar, en Ifona hans hefur flúið til Kaupmannahafnar vegna styrjaldarinnar. Myndin sýn- ir Jörgen Reenberg og Lone Hertz í hlutverkum skógarvarðarins og Tine; I I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.