Þjóðviljinn - 30.08.1964, Side 12
30. ágúst
tölublað.
r
Agætur fundur hernámsund-
stæSingu á Se/fossi i fyrrud.
■ Hernámsandstæðingar úr flestum hreppum Árnessýslu
voru saman komnir á héraðsráðstefnu á Selfossi á miðviku-
dag. Upp undir 50 manns sóttu ráðstefnuna og var kjör-
in héraðsnefnd fyrir sýsluna alla svo og 18 manna trún-
aðarmannaráð, skipað hernámsandstæðingum úr öllum
hreppum sýslunnar.
Séö yfir samkomusalinn nýja í Lindarbæ. Kristján Jóhannsson krýpur við verk sitt á sviðinu, sem Þjóðleikhúsið mun nota næstu
r . mánuði a.m.k. sem tilraunalei ksvið. (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
LiTAZT UM í LINDARBÆ
^etta er orðinn mikill bú-
skapur niðri á Lindargötu,
þar sem hús Dagsbrúnar og
Sjómannafélagsins stendur.
Á kjallarahæð hússins er
verið að vinna að innréttingu
allmikils samkomusalar. Það
er búið að ganga frá gólfi
og lofti og sýrubrennd fura
hafði klætt stóra veggfleti.
Og í salnum var þetta hlý-
lega andrúmsloft, mettað af
margvíslegri angan, sem fylg-
ir timbri og timburvinnu.
Kristján Jóhannsson stjórn-
ar þessu verki sem og öðrum
breytingum á húsinu. Og var
heldur hress yfir ástandinu.
— Við vonum, segir hann,
að okkur takist að afhenda
salinn fyrsta október, eins og
áætlað var. Það hefur verið
nokkuð bagalegt, að staðið
hefur á ýmsu, sem þurfti að
panta frá útlöndum. Og það
var einnig töluverður höfuð-
verkur að gera stóla, sem
hæfðu þessum sal. Þeir
þurftu bæði að vera leikhús-
stólar, ganga sæmilega að
veitingaborðum og þar að
auki léttir í meðförum, svo
auðvelt væri að stafla þeim
upp. En nú hefur Þorvaldur
Kristmundsson teiknað slíka
stóla og það er verið að
smíða þá.
— En það var Sigvaldi
Thordarson sem gekk frá inn-
réttingunum — og það var
reyndar hans síðasta verk.
í áhorfendasal verða sæti
fyrir 119 manns, og á veit-
ingapalli til hliðar við hann
geta setið rúmlega fjörutíu
manns. Og eins og þegar hef-
ur verið um skrifað, þá hef-
ur Þjóðleikhúsið gert tölu-
vert strandhögg inn á þessar
lendur — í vetur mun leik-
skóli þess hafa afnot af saln-
um á daginn, en sýna þar 3
kvöld í viku smærri verk og
viðaminni.
V,
ið göngum einnig upp a
loft, en þar eru nú fullgerðir
nokkrir prýðilegir salir og
einstaklega bjartir og sér
þaðan um víða veröld. Þar
vantar nú ekkert nema hús-
gögn. Þar er sjötiíu manng
samkomusalur, húsnæði fyrir
bókasafn Dagsbrúnar, lestrar-
salur eða tómstundaiðju ann-
arrar.
Kristján leit yfir það sem
hafði verið gert. Hann
sagði, að enn væri margt
óljóst um það, hvemig
allir þessir salir, efra og
neðra, yrðu nýttir í þágu
þróttmikils félagslífs. En svo
mikið væri að minnsta kosti
víst, að nú væri ekki lengur
hægt að hafa þá afsökun fyr-
ir dauflegu félagslífi, að skil-
yrði væru léleg eða engin.
Já, það verður - ekki sagt
lengur.
Hitt er svo - annað mál,
sagði hann, að það verður
máske ekki auðvelt að fá
fólk til þess að hagnýta sér
þessa möguleika. Til þess
liggja ýmsar ástæður — en
þó fyrst og fremst þessi langi
vinnutími, sem við höfum bú-
ið við í allmörg ár. Hann
hefur gert það að verkum, að
fólkið hefur vanizt af því að
nota frístundir sínar, gera
eitthvað úr þeim. Það vantar
í félagsstarfið samhengi,
tengslin eru rofin — það eru
varla ýkjur að segja, að nú
verði að byrja upp á nýtt.
V,
ið gengum inn í sal þar
sem verið er að koma fyrir
bókasafni Dagsbrúnar. Þar
lágu bækur og blöð og tima-
rit í skemmtilegri, skipulagðri
ringulreið á hillum, glugga-
kistum, á gólfi. Það var á-
kaflega freistandi að setjast
á gólfið og grípa í einhvern
bunkann.
— Hér er margt skemmti-
legt, sagði Kristján, gekk að
borði, tók af því tvær litlar
bækur sem lágu þar efstar,
rétti mér, og spurði: Hefurðu
nokkurntíma séð þetta?
Þetta voru tvö stafrófskver
frá miðri nítjándu öld. Sjald-
gæfar menningarheimildir frá
nítjándu öld. Og merkar.
Annað kverið hét „Stafrófs-
kver handa minhi manna
börnum“. Hitt hét „Stafrófs-
kver handa heldri manna
börnum“.
Og sólin og sagan glottu að
þessum litlu bókum inn um
glugga í húsi tveggja verka-
lýðsfélaga.
Á. B.
Óskar Jónsson, fyrrv. alþm.
setti ráðstefnuna með ræðu, og
ávörp fluttu Ragnar Arnalds,
alþm.. Páll Lýðsson, form. fél.
ungra framsóknarmanna í Ár-
nessýslu og Rögnvaldur Hann-
esson, stud. jur. Síðan hófust
almennar umræður um undir-
búning landsfundarins við Mý-
vatn og skipulagsmál. Samþykkt
var að kjósa 5 manna héraðs-
nefnd fyrir sýsluna alla og er
hún þannig skipuð:
Ólöf österby, Selfossi (form ),
Páll Lýðsson, Littu Sandvík,
Óskar Jónsson, Selfossi, Sigurð-
ur Björgvinsson, Neistastöðum
og Friðbjöm Gunnlaugsson.
Stokkseyri. Til vara: Bergþór
Finnbogason, Selfossi og Björg-
vin Sigurðsson, Stokkseyri. Einn-
ig var kjörið 18 manna trúnað-
arráð skipað hemámsandstæð-
ingum úr öllum hreþpum sýsl-
unnar.
1 fyrrakvöld var héraðsráð-
Skrifstofan í
Mjóstræti 3
Skrifstofa hernámsandstæðinga
í. Mjóstræti 3 er opin í dag kl.
14—19 og á morgun kl. 10—19.
Allir hemámsand$tæðingar í
Reykjavík sem hafa hug á að
koma á landsfundinn við Mý-
vatn verða tafarlaust að hafa
samband við skrifstofuna í Mjó-
stræti 3, sími 24701.
Einnig er mjög áríðandi að
menn styrki. samtökin fjárhags-
lega með því að kaupa happ-
drættismiða strax í dag því mik-
ill kostnaður er við undirbún-
ing fundarins.
stefna í Borgamesi. Eftir
helgina verða boðaðar ráðstefn-
ur á Héraði og í Eyjafirði.
Kópuvogur -
biuðburður
Þjóðviljann vantar unglinga til
blaðburðar í austurbænum. —
Hringið í síma 40319.
BúiS aS seija 270 Trabanta
hérlendis, ný árgerS komin
,
■ í gær var blaðamönnum boðið að skoða Trabantbíl af
árgerðinni 1965. Trabantinn hefur nú þegar náð mjög mikl-
um vinsældum hér á landi og alls munu 270 bílar af
gerðinni vera komnir á göturnar hér nú þegar. Innflutn-
ingur á bílunum hófst í marz ’ síðastliðinn og eins og um-
boðsmaðurinn, Ingyar Helgason, sagði í gær „hefur bíllinn
unnið sér vinsældir hér á landi svo að ævintýri er líkast“.
Helztu einkenni hinnar nýju
árgerðar Trabantsins eru að
bflnum fylgja tvö sólskyggni,
vatnsúðun á rúðunum, hljóðein-
angrun með trefjaspottum. teppi
á gólfinu, vélarhlífin er nú lá-
rétt. lengra þak, sem veitir
skugga að aftan, farþegarýmið
er stærra. miðstöðvarkerfið er
betra, gefur 50% meiri hita en
áður, farangursgeymsla 12%i
stærri.
Eins og útlit og gæði bílsins
er nú má segja að hann sé jafn-
gildi 130 þús. króna bíls.
Viðgerðarþjónusta verður stöð-
ugt betri og í október er von
á sérfræðingi frá verksmiðjun-
um, sem mun dveljast hér í tvo
mánuði og ferðast um landið,
einkum á Austfirðina og Siglu-
fjörð. þar sem Trabantbilum
fjölgar stöðugt.
Eins og kunnugt er eru Tra-
bantbílamir framioiddir í Zwic-
au i Austnr T ' ' ’->->di Fram-
leiðsla og sala á Trabantbílum
hófst fyrst árið 1959 og er út-
breiðsla þeirra þegar gífurleg.
Einkum er fjöldi þeirra orðinn
mikill á Norðurlöndum, sérstak-,
lega í Finnlandi, og einnig í
HoUandi, Belgiu, Frakklandi og
Vestur-Þýzkalandi.
Verðið á Trabantbfluryum 1964
var 67 og 79 þúsund, en nýja
árgerðin 1965 er á 80 þúsund.
Þessi gífurlegi verðmismunur
Trabantbílanna og annarra bíla
er fólginn í hversu einföld öll
bygging þeirra er. engu er of-
aukið en þó allt það, sem hafa
þarf.
Þannig Iítur nýi TÍabantinn
út: lítill bíll og snotur — og
ódýr miðað við söluverð á
öðrum bifreiöum.
Neptánus til
hufnur
Framhald af 1. síðu.
borðsmeginn og magnaðist óð-
fluga. Tveir olíugeymar eru þar
með tvö hundruð tonn af olíu
og léku logatungumar um ann-
an geyminn, þegar hann yfir-
gaf vélarúmið og einnig var
sprengingarhætta af tveim gas-
hylkjum í vélarrúminu. Eldur-
inn náði þó aldrei að breiðast
út fyrir vélarúmið.
Biðu tvo tíma í hafi
Þeir voru búnir að kasta
einu sinni vörpunni og fara
eina togferð þama á miðunum
norðvestur af Garðskaga. þeg-
ar eldurinn brauzt út, og sendu
þeir þegar neyðarskeyti út í
loftið. Eftir þrjú korter yfirgáfu
þeir skipið á tveim, björgunaj;-
bátum og biðu tvo tíma á haf-
inu skammt frá togaranum áð-
ur en varðskipin Albert og, Þór
komu samtímis á vettvang. Voru
þeir teknir um borð í Albert
og skömmu síðar fóru sjö af á-
höfninni um borð f togarann
aftur.
Togararnir Júpíter og Marz
voru þá komnir á vettvang og
festu þeir dráttartaug frá Júpi-
ter við hið brennandi skip og
dró Júpíter það til hafnar. Eftir
að dráttartaugin hafði verið fest
fóru hinir sjö skipverjar um
borð í Júpiter.
Farsælt fiskiskip
Togarinn Neptúnus er smíð-
aður í Aberdeen árið 1947, 684
brúttólestir að stærð. Þegar hann
var fimmtán mánaða gamall.
kom upp eldur í honum, er
hann var staddur í Grimsby.
Alla tíð hefur Neptúnus verið
meðal aflahæstu togara íslenzka
fiskiskipaflotans undir farsælli
skipstjóm Bjarna Ingimarssonar.
Árið 1948 setti hann sölumet f
Bretlandi með ísvarinn fisk og
stóð það óhnekkt í þrettán ár.
Neptúnus hefur undanfarið
verið í svokallaðri sextán ára
flokkunarviðgerð hér í Reykja-
víkurhöfn og mun hún kosta um
2'/? miljón króna. Erfitt er enn-
þá að meta skemmdirskipsinsog
er það vátryggt hjá Vátrygging-
armiðstöðinni h.f.
7 Ækranesbátar
með 4600 mál og
tunnur síldar
Akranesi, 29/8 — Góð sfld-
veiði var hjá Akran<_sbátum í
nótt þriggja til þriggja og hálfs
tíma siglingu norðvestur frá
Akranesi. Afli bátanna var sem
hér segir: Sigurður 1200, Sigrún
900, Hffraldur 800, Höfrungur n.
600, Sólfari 500 Höfrungur III.
450 og Skímir 125 mál og tunn-
ur. Síldin fór mest í bræðslu
en sum: af henni var tekið til
vinns’ í frystihúsinu.