Þjóðviljinn - 02.09.1964, Side 5

Þjóðviljinn - 02.09.1964, Side 5
MiðvíTcudagur 2. september 3964 ÞJðÐVILIINN SÍÐA 5 Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur: elmsstyrjöldin síðari herforingjaráði sínu, að þýzki herinn yrði, áður en stríðinu væri lokið við England, að gjörsigra Rússkind í leiftur- sókn. Undirbúningi þessa stríðs skyldi lokið fyrir 15. maí 1941. Rússneska ríkinu skyldi steypt og veldi þess hrakið austur að mörkum Asíúlanda hérumbil eftir linu frá Volgu til Arkang- elsk. Það koma hér íram sem Síðari grein Griðasáttmáli Sovétríkjanna og Þýzkalands olli mikilli for- virringu meðal manna, jafnt fjandmanna kommúnismans sem vina. kannski var beiskjan samt einna mest meðal hinna síðamefndu. Árum saman höfðu þessir menn fylkt sér undir merki andfasismans. nú vissu margir þeirra ekki hvað- an á sig stóð veðrið. En reið- astir voru þó þeir pólitÍ6kir valdhafar vestræns lýðræðis, er höfðu vonað og vænzt þess sýknt og heilagt, að Hitler léti nú loks hendur standa fram úr ermum og reiddi sinn góða germanska brand að höfði hins bolsjevíska dreka. Chamb- erlain tuskan brá Hitler um svik. Það var líka orð að sönnu. Hitler hafði svikið hann — um stund. Hann treysti sér ekki að svo búnu að ráðast inn í Pólland og eiga von á að mæta fjandsamlegum Rauðum her í landinu miðju. Því Rússar hefðu ekki setið hjá í slíkri innrás. þeir hefðu þegar í stað haldið í vestur og tekið hin úkraínsku héruð, sem þeir höfðu misst 1919 í hendur Pól- verjum. Nú fengu þeir þessi héruð með samkomulagi við Hitler. Þeir sömu menn sem höfðu fómað hverju þjóðrík- inu á fætur öðru í greipar Hitlers ráku nú upp mikið vein og sögðu allt pólitískt siðlæti tröllum gefið. En enn var það Churchill, sem skildi eðli máls- ins. Hann sagði í enska þing- inu. að Rauði herinn hefði heft sókn Hitlers austur um Evrópu og kvaðst vona að hann stæði sem fastast á settum mörkum. Eins og framvindu málanna var komið áttu Rússar blátt áfram ekki annarra kosta völ en ganga áð þeim griðasátt- mála, sem Hitler hafði boðið þeim af svo mikilli skyndingu. Hvorki pólska stjómin né vest- urveldin höfðu viljað taka neinum sönsum meðan kostur var á að stöðva Hitler — nú urðu þessir herrar að súpa seyðið úr soðkatli sínum. En hvað gerðu hinir nýút- skrifuðu bandamenn Pólverja. Bretar og Frakkar, þegar naz- istaherirnir geystust inn í Pól- land og lögðu her þess að velli á fáum dögum? Þeir gerðu ekki neitt. Hinn óvígi her Frakka hafði andspænis sér þessa daga aðeins 26 þýzk her- fylki, en hann sat aðgerðarlaus í stálbentum virkjum sínum. Brezkar flugvélar vörpuðu á- róðursseðlum yfir þýzkar borg- ir. Þetta var öll hjálpin. Sá maður. sem gerzt mátti þekkja landa sína í stjórn og her Frakklands, de Gaulle hers- höfðingi. skrifaði síðar í end- urminningum sínum: „Þegar franska stjórnin í september 1939 tók að sér að fordæmi brezku stjórnárinnar að sker- ast í þann leik. sem þegar var hafinn í Póllandi, var ég ekki í neinum vafa um að hún gekk út frá því. að þrátt fyrir styrjaldarástand mundi ekki verða barizt í fullri alvöru ” Eftir hrun Póllands var allt kyrrt enn sem fyrr á vestur- vígstöðvunum. Vetur gekk í garð og veturinn leið. en ekki var hleypt af skoti. Almenning- ur á Bretlandi og á Frakklandi kallaði þetta „skrítna stríðið”, og það var orð að sönnu. Það ''Virðist alls ekki hafa verið ætlun hinnar brezku og frönsku stjórnar að heyja neitt stríð við Þjóðverja. Hins vegar voru þessar stjómir ólmar i að fara í stríð við Rússland! Þessa mánuði stóð vetrar- stríð Rússa og Finna. Finnland var bundið Þýzkalandi leynilegum hernaðarsamningi. Landamæri Finnlands lágu tæpa 40 km frá Leningrad. annarri höfuðborg Rússlands, miðstöð Eystrasaltsflotans og mikilli stóriðjuborg. Sovét- stjómin fór fram á það við Finnland, að það færði landa- mæri sín 20—30 km frá Lenin- grad, en fengi í staðinn stór landsvæði í hinni sovézku Karelíu. 1 fyrstu virtust Finn- ar þessu ekki afhuga, en sner- ist hugur fyrir erlend áhrif og steíðið hófst í lok nóvember- mánaðar 1939. Brezka og franska stjómin ákváðu þá að hefja sjálfar það stríð við Rússa. sem vininum Hitler láð- ist að heyja þessa stundina. 150 þúsundir brezkra og franskra hermanna skyldu sendir á finnsku vígstöðvarnar. 1 sama mund höfðu Frakkar 150 þús- und manna her á Sýrlandi undir stjórn Weygands hers- höfðingja, sem halda skyldi gegn Kákasíulöndum Rússa og ákveðið var að varpa spreng.i- um á Bakú. Bretland og Frakkland voru sem sagt kom- in á fremsta hlunn með að fara í styrjöld við Rússland. Finn- ar björguðu vesturveldunum úr voðanum með því að semja frið við Rússa í marz 1940. Þau ættu að hafa ástæðu til að muna Finnum lengi þetta vinarbragð. En allt þetta at- ferli stjórnarherra vesturveld- anna bar vott um einhvern fábjánaskap, sem leitun er að í allri sögu þeirra. En nú rann upp sú stund. er „skrítna stríðinu” var lokið. I apríl tók þýzki herinn Dan- mörku og Noreg. í maí sótti hann í vesturátt og 22. júní gafst franska stjórnin upp, leiðangursher Breta og nokkr- um frönskum herstyrk tókst með herkjum að komast yfir Ermasund, og nú . hófust hinar voðalegu loftárásir Þjóðverja á England., Churchill. hin aldna stríðshetja. Vók við stjómar- taumunum úr gemaknennis- höndum Chamberlains. Loft- árásií- Þjóðverja ollu gífurlegu tjóni, en fengu ekki bugað þjóðina og ( október linnti þeim að mestu. England varð ekki unnið úr lofti. öll Evrópa meginlandsins lá nú óvíg fyrir fótum Hitlers lið.-. þjálfa, frá Ermasundi austur á Balkan, England var lasnað og gat lítt aðhafzt annað en tóra Hitler var þessa stundina óum- deilanlega voldugasti herstjóri Evrópusögu. Erfðafjandinn Frakkland var fallinn, en Hitl- er hafði ekki gleymt sinni æskuhugsjón: að leggja heims- kommúnismann að velli. Þegar í ágúst 1940 var hann farinn að senda herfylki austur á bóg- inn, og 18. deaember tjáði hann oftar í ljós söguleg örlaga- tengsl milli Engjands og Rúss- lands. Bæði eru þessi lönd út- jaðraríki Evrópu. eyveldi og landveldi. Þegar stórveldi í Vesturevrópu ógnar öðiu þess- ara ríkja, er hitt í hættu. Það kemur ekki til mája, að Rúss- land hefði þolað Hitler að leggja undir sig England og bæta svo við ríki sitt hinu mikla sjóveldi. Það hefði án alls vafa orðið að skerast í leikirm. Og sama máli gegnir um dæmið, ef það er sett upp á hinn veginn. Þess vegna gerðu þessi ríki bandalag með sér á dögum Napóleons. og sagan endurtók sig í tveimur. heimsstyrjöldum vorra tíma. Hitler fann það glögglega, að hann hafði ekki svigrúm til að leggja undir sig England með- an Rússland stóð að baki hon- um með sinn óvíga óþreytta her og ótakmarkaðar auðupp- sprettulindir. Það var ekki að- eins hatur á heimsbolsjevism- anum, sem olli því að Hitler hélt á austurslóðir. A bak við 1 upphafi innrásar Þjóðverja í Pólland. Þýzkir hermemi brjóta niður vegarhlið á landamær- unum og ryöjast inn á pólska grund. ákvörðun hans lágu herstöðu- leg og söguleg rök. En áður en Hitler gæti at- hafnað sig á rússnesku sléttun- um var honum nauðugur einn kostur að tryggja veldi sitt í Suðausturevrópu og á öllum Balkanskaga. Ungverjaland, Rúmenía og Búlgaría gengu í bandalag við hann, en Júgó- slavíu og Grikkland varð hann að taka með hervaldi. 1 júní 1941 var öll Evrópa á valdi hans og brynvarðar sveitir hans stóðu óþolinmóðar á mörkum Rússlands og biðu skipunarinnar. Hernaðaráætl- unin Rauðskeggur var tilbúin. Hitler valdi 22. júní til innrás- arinnar. Á þeim degi hafði Napóleon mikli farið með stór- her sinn inn í Rússland 1812. Það spáði kannski ekki góðu. en Hitler hefur þótzt vera þess megnugur að ögra örlögunum, nú er hann stóð á hátindi valds síns. Það er ein af furðúlegustu ráðgátum styrjaldarinnar hve andvaralaus sovétstjómin var þessar vikur. sem á undan fóru innrásinni. Hafi einhver rúss- nesk leyniþjónusta verið til, þá vissi hún ekki það, sem talað var um á húsaþökunum að Hitler undirbyggi innrás í Rússland. í marz og apríl komu Bretar og Bandaríkja- menn þeim boðum til rúss- nesku stjórnarinnar. að innrás væri í aðsigi. En tortryggni Stalíns var slík. að hann hélt þetta brellu einna til að etja saman Þjóðverjum og Rússum. Síðari tima sagnfræðingar rússneskir. kenna Stalín ein- um um fyrstu ófarir stríðsins, en jafnvel þótt það væri fétt, þá sýnir þetta ekkert annað en pólitíska úrkynjun hins rúss- neska stjórnarfars. er einum manni hafði verið veitt slíkt vald til að meta ástandið óháð- ur öllum öðrum En hvað sem því líður. þá var landamæra- lið Rússa sýnilega óviðbúið innrás óvígr%a herja. sem höfðu hrannað sig meðfram öllum vesturlandamærum Rússaveld- is. ,-j Sama dag og innrásin var gerð lýsti Churchill fullum stuðn- ingi Stórabretlands við Rúss- land og tveim dögum síðar sagðist Roosevelt mundu styrkja Rússland með vopna- og vörusendingum. Hið lang- þráða bandalag gegn nazism- anum var um síðir orðið að veruleika Þó voru til þeir menn, sem túlkuðu þetta bandalag með sérstæðum hætti. Bandarískur stjórnmálamaður skrifar í stórblað eitt í Ame- ríku eftirfarandi orð tveim dögum eftir innrás nazista í Framhald á 7. síðu. áiViiiiiiirii'i 54. DAGUR. ,,Þeir segja að þaö mundi mest happ hans er hann hafði rekið á flótta marga af Dönum.” Sá sami svarar: „Meira happ var það er hann gaf líí Sveini konungi." Einhver svaraði honum: „Það muntu eigi vita er þú segir”. Hann svarar: ,,Þetta veit ég allgjörla, því að sá sagði mér sjálfur er konung flutti til lands.” En þá var sem oft er mælt, að mörg eru konungs eyru. Var konungi þetta sagt og jafnskjótt lét konungur þegar taka marga hesta og reið þegar um nóttina með tvö hundruð manna. Reið hann alla þá nótt og eftir um daginn. Þá riðu í mót þeim menn þeir er fóru til bæjar með mjöl og malt. Maður hét Gamall er í för var með konungi. Hann reið að einum bóndanum. Sá var kunningi hans. Þeir mæltu einmæli. Segir Gamall: ,,Ég vil kaupa af þér að þú ríðir sem ákafleg- ast launstigu þá er þú veizt skemmsta og komnir til Hákonar jarls. Seg honum að konungur vilji drepa hann því að kon- ungur veit nú að jarl hefur skotið Sveini konungi á landi fyrir Nizi.” Kaupa þeir saman. Reið sá bóndi og kom til jarls, sat hann þá og drakk og var eigi sofa genginn. i 1 á * i t é

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.