Þjóðviljinn - 02.09.1964, Side 7
Miðvikudagur 2. september 1964
HOÐVIUINN
SIÐA 7
Heimsstyrjöldin síðari
Pramhald af 5. síðu.
Rússland: ,.Þegar við sjáum,
að Rússum gengur betur, eig-
um við að hjálpa Þjóðverjum,
þegar við sjáum, að Þjóðverj-
um gengur betur skulum við
hjálpa Rússum. og með þeim
hætti mega þeir drepa hverir
aðra svo sem mest má verða”.
Höfundur þessara hugleiðinga
hét Harry Truman, síðar for-
seti.
Hemaðarsérfræðingar Banda-
neskri grund. Þeir áttu eftir að
bíða marga og stærri ósigra á
rússneskri grund áður en lauk.
Degi síðar en gagnsókn
Rússa hófst, 7. desember. gerð-
ust þau tíðindi, að japanski
loftflotinn réðst á flotastöð
Bandaríkjanna Pearl Harbour
sökkti miklum hluta Kyrra-
hafsflota þeirra. Á örskömm-
um tíma flæddi japanski her-
inn yfir Indónesíu. Xndókína,
Thailand, Hongkong. Singápur,
upp í hlíðar Kákasusfjalla, og
hjá Stalíngrad stungu þeir nið-'
ur fótum á Volgubökkum. Enn
var Hitter sannfærður um. að *
rússneski herinn væri kominn
að fótum fram. En 6. her Þjóð-
verja var umkringdur í geysi-
legri tangarsókn og varð að
gefast upp snemma á árinu
1943. Þýzki herinn missti 31
herfylki í þessari sókn sinni
og orustan hjá Stalíngrad olli
algerum þáttaskilum í styrj-
Adolf Hitler við matborðið í hópi nokkurra herforingja sinna.
manna voru flestir á einu máli
um það, að stríðinu í Rússlandi
yrði skjótt lokið. Stimson her-
málaráðherra Bandaríkjanna
sagði Roosevelt það 22. júní, að
Þjóðverjar mundu sigra Rússa
að minnsta kosti á einum mán-
uði; þó gæti það dregizt um
þrjá. Og að sjálfsögðu var sig-
urvissan ekki minni hjá Þjóð-
verjum. Halder. herráðsforingi
Hitlers, trúði dagbók sinni fyr-
ir því 3. júlí, að ekki væri of-
sagt að herförinni í Rússland
yrði lokið á hálfum máhuði.
Sigrar Þjóðverja voru miklir
og glæsilegir. Á hinum fyrstu
vikum urðu rússnesku herimir
að hörfa undan til Leningrad,
Moskvu og Rostov hjá Dori. En
þegar hinn 11. ágúst varð
Halder að játa 1 dagbók sinni,
að .,við höfum vanmetið ris-
ann Rússland. Þessu gegnir
bæði um skipulagsöfl landsins,
atvinnuleg öfl þess, en þó sér-
staklega hemaðarlegan mátt
þess”. Og Rundstedt marskálkur
játar að loknu stríði: „Ég
komst brátt að raun um eftir
að sóknin var hafin. að það
var allt eintóm lygi, sem skrif-
að hafði verið um Rússland.”
Fram til þessa höfðu hinir
þýzku herir farið að nokkru
leyti að alþjóðalögum í þeim
orustum, sem þeir höfðu háð
víðs vegar um Evrópu. En 1
Rússlandi var þeim beinlínis '
skipað að láta allt velsæmi nið-
ur falla. Þeir voru komnir til
að útrýma •' framandi þjóð-
flokki, án náðar og miskunnar.
Þegar þýzku herirnir höfðu
umkringt Leningrad skipaði
Hitler herforingjum sínum að
jafna borgina við jörðu f bók-
staflegum skilningi. Hér var
styrjöld háð, þar sem grið voru
ekki gefin.
Hinn 3. október sagði Hitler
þýzku þjóðinni, að „þessi
fjandmaður hefur verið brot-
inn á bak aftur og mun aldrei
framar rísa uppréttur.” Tveim-
ur mánuðum síðar, 6. desem-
ber 1941 hóf rússneski herinn
sókn hjá Moskvu og hrakti
Þjóðverja vestur á bóginn og
þýzka herstjórnin varð að gefa
út þá stuttorðu yfirlýsingu, að
þýzki herinn hefði nú lagað
sig að aðstæðum vetrarhemað-
ar. Þetta var upphaf að enda-
lokunum. Þetta var fyrsti ósig-
ur þýzka hersins ( síðari
heim«,'’”’iö',-,’>-ini. Þjnðverjar
biðu 'þennan ósigur á rúss-
Malaja, Birma, Filipseyjar og
mikinn hluta Kína. Þetta voru
alls 4 miljónir ferkílómetra
lands. Japanar voru komnir
vel á veg með að framkvææma
hina gömlu Tanakaáætlun. én
þeir hikuðu við að ráðagt á
Rússland í þessari lotu. Á sömu
stundu voru Bandaríkin orðin
aðili að síðari heimsstyrjöld-
inni.
Sumarið 1941 voru 90°/(,
þýzka hersins á austurvfgstöðv-
unum, 147 herfylki þýzk tóku
þar þátt í orustum. Sumarið
1942 gengu 179 þýzk herfylki
þar til atlögu og sumarið 1943
voru þau 212 að tölu. Hér eru
ekki taldar með ungverskar.
rúmenskar, og ítalskar her-
sveitir, né heldur „Bláa her-
sveitin”, sem vinurinn Franco
hafði sent.
Hinn 18. júlí 1941 krafðist
Stalín þess í bréfi til Churc-
hills, að komið yrði á vígstöðv-
um á Frakklandi til þess að
neyða þýzku herstjómina að
senda lið frá austurvígstöðvun-
um. Hinn 12. júní 1942 var því
lýst yfir sameiginlega af Bret-
um og Rússum, að aðrar víg-
stöðvar yrðu reistar á því ári.
Þegar Churchill kom til
Moskvu í ágúst sama ár sagði
hann að áætluninni um aðrar
vígstöðvar hefði verið frestað
til vorsins 1943. Þessu næst
var nýjum vígstöðvum frestað
til haustsins 1943. Að lokum
var sóknin inn á meginlandið
að vestan ákveðin að vori 1944.
í þrjú löng ár varð Rússland
að bera eitt saman meginsókn-
arþunga þýzka hersins. Vestur-
veldin, einkum Bandaríkin,
sendu Rússum hergögn. mat-
væli og hemaðarhráefni. Þetta
var mikilvæg hjálp og miklar
fómir voru (Arðar í manns-
lífum og skipum til að koma
þessum vamingi til Rússlands.
En þessi hjálp gat ekki komið
í staðinn fyrir vesturvíg-
stöðvar, sem hefðu létt á vörn-
um Rússa.
Vesturveldin flýttu sér ekki
að koma upp vesturvígstöðv-
um, sem táknuðu sókn inn á
meginlandið. í þessari tregðu
kom fram dulin viðleitni vest-
urveldanna að þjarma að Rúss-
um, létta þeim ekki alltof mik-
ið okið.
Sumarið 1942 hóf þýzki her-
inn mikla sókn á suðurvíg-
sföðvunum. Þjóðverjar æddu
yfir Úkraínu og komust allt
öldinni, enda einhver mesta or-
usta hernaðarsögunnar.
Eftir, Stalíngradorustuna náði
þýzki herinn aldrei afturfrum-
kvæði sínu í styrjöldinni. En
þessi orusta breytti einnig
styrkleikahlutföllum stríðsað-
ilanna. Einn af háttsettum
starfsmönnum í utanríkisráðu-
neyti Breta, Sir Robert Bruce
Lockhart, hefur ságt frá þvi,
að eftir Stalíngradorustuna hafi
vaknað sá uggur hjá brezku
og bandarísku stjóminni. að
Rússland mundi ef til vill
vinna sigur í styrjöldinni án
þeirra hjálpar. Hemaðarmátt-
ur vesturveldanna hafði nú
aukizt mjög. Þau höfðu um
þetta leyti, 1942. unnið sigur
á Þjóðverjum í orustunni um
Atlanzhafið og þau höfðu i
nóvember sama ár gersigrað
Þjóðverja og ítali í hinnií>
miklu orustu hjá E1 Alamein.
1 júlí 1943 stigu herir vestur-
veldanna á land á Sikiley.
Italska stjómin samdi um
vopnahlé og þá hemámu Þjóð-
verjar Italíu og herir Banda-
manna urðu að þumlunga sig
norður eftir skaganum í hörð-
um orustum. Það var að visu
mikill ávinningur þegar Italía
var dæmd úr leik, en þetta
jafngilti ekki þeim nýju víg-
stöðvum, sem Rússar höfðu
jafnan krafizt. Aðeins 10%
hins þýzka liðsafla var stadd-
ur á ítalíu og í Norðurafríku.
I nóvember 1943 hittust þeir
þrír Ipiðtogamir. Roosevelt,
Churchill og Stalín í Teheran
og þar ákváðu þeir allsherjar
sókn inn á meginlandið um
vorið 1944. En nú tók þegar að
bera á ágreiningi milli þessara
bandamanna um skipan mála i
Evrópu að lokinni styrjöld.
Einkum spunnust harðar deilur
um ríkisstjóm Póllands: Stalín
gerði það að ófrávíkjanlegu
skilyrði, að í Póllandi ríkti
stjóm vinsamleg Sovétríkjun-
um.
Þegar hin mikla sókn Banda-
manna hófst inn á meginland
Evrópu í júni 1944 urðu Þjóð-
verjar að senda þriðjung her-
fylkja sinna ‘á vesturvígstöðv-
amar og eftir því sem lengra
var sótt inn í Þýzkaland úr
vestri og austri jukust viðsjár
með stríðsaðilum, ekki sízt
vegna þess, að Þjóðverjar
beittu öllum brögðum til að
kljúfa þá og raddir voru uppi
um að semja sérfrið við vest-
urveldin. en verjast af öllum
mætti á vígstöðvum Rússa. En
enn voru vesturveldin, þrátt
fyrir hemaðarmátt sinn á
meginlandinu, háð sókn Rússa.
I byrjun árs 1945 hóf Rund-
stedt mikla sókn í Ardenna-
fjöllum og'olli tvístringi í liði
vesturveldanna. Churchill sendi
þá Stalín skeyti 6. janúar og
grátbað hann að hraða sókn-
inni að austan. Þegar Stalín
varð við þessu sendi brezki
forsætisráðherrann , honum svo-
látandi þakkarskeyti: „1
nafni ríkisstjórnar Hans Há-
tignar og af hjartans grunni
þakka ég yður og samfagna
yður með hina geysilegu sókn-
arlotu. sem þér hafið byrjað á
austurvígstö3vunum“. En Churc-
hill gerði bæði sárt og klæja
vegna framsóknar Rauða hers-
ins. Hann vildi fyrir hvem
mun láta heri vesturveldanna
sækja fram til Berlínar og
taka hana á undan Rússum, en
fékk því ekki ráðið. Eftir því
sem leið nær stríðslokunum
vaknáði í Churchill hið foma
bolsjevikahatur frá þeim tíma,
er hann ungur stjómmálamað-
ur hafði unnið að því öllum
árum að „kyrkja bolsjevismann
í vöggunni”. Hann fann æ
sárar til þeirrar illu nauðsynj-
ar. er meinleg söguleg örlög
höfðu gert hann að banda-
manni bolsjevismans iil að
bjarga hinu kæra gamla Stóra-
bretlandi úr bráðum háska.
Hinn 8. maí 1945 gafst þýzki
herinn upp skilyrðislaust. En
enn var styrjöldinni ekki lokið á
Kyrrahafi 1 ágústmánuði réðst
Rauði herinn á Kvantungsveit-
ir Japana í Mandsjúríu og gjör-
sigraði þær á tíu dögum. En
þrem dögum áður, 6. ágúst
vörpuðu Bandaríkjamenn fyrri
kjamorkusprengju sinni yfir
Hirosima og þremur dögum
síðar, 9. ágúst, hinni annarri
kjarnorkusprengju yfir Naga-
saki. Og þannig lauk manft
skæðustu styrjöld veraldarsög-
unnar. Hún hafði tekið með
sér í gröfina 50 miljónir
mannslífa. Henni lauk með
nýju vopni, sem breytti öllu
eðli styrjalda. Það er hald
fróðra manna. að kjamorku-
sprengjunum hafi ekki verið
varpað úr háloftunum til að
knýja Japana til að gefast upp.
Þeir voru þegar albúnir til að
gefast upp. Þeim var varpað
til þess að sýna Rússum í tvo
heimana. Alla stund síðan hef-
ur mannkynið lifað undir hin-
um dimma skugga kjamorku-
sprengjunnar-. En ef henni
verður varpað aftur eru litlar
líkur til að saga hinnar þriðju
heimsstyrjaldar verði nokkum-
tíma skrifuð. Bæði sögunni og
sagnfræðinni verður búin sama
gröf.
Kínveriar eru
bölsýnir
PEKING 31/8. — Á sunnudag
var opinberlega birt bréf frá
kínverskum kommúnistum til
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna og segir þar, að 15. des-
embers, en þann dag á undir-
búningsráðstefna 25 kommún-
istaflokka að hefjast í Moskvu,
muni minnzt í sögunni sem dags
hins mikla klofnings alþjóða-
hreyfingar kommúnista.
Áannað hundrað
íbuðir og einbýl-
ishús
Við höfum alltaf til sölu mik-
ið úrval af íbúðum og ein-
býlishúsum af öllum stærð-
um. Ennfremur bújarðir og
sumamústaði.
Talið við okkur og látið vita
hvað ykkur vantar.
MílflvInlnfljskrlf»*of«:
Þofvaríur K. borsfeirisíorV
MUdubríuf 74. •,
.Fá.V<*|l0navlSiklptÍi
Guðrpundur TrYS9va*ðr'
£>Iml ÚhO.
TIL SÖLU
3ja herb. íbúðir við Hraun-
teig, Njálsgötu, Laugaveg.
Hverfisgötu. Grettisgötu.
Nesveg. Kaplaskiólsveg,
— Blönduhlíð Miklu-
braut, — Karlagötu og
víðar.
3ja herb. íbúðir við Hring-
braut Lindargötu Ljós-
heima. Hverfisgötu,
Skúlagðtu. Melgerði
Efstasund, Skipasund.
Sörlaskjól. — Mávahlíð.
Þórsgötu og víðar-
4ra herb íbúðir við Mela-
braut Sólheima. Silfur-
teig. öldugötu Leifsgötu.
Eiríksgötu, Kleppsveg.
Hringbraut. Seljaveg
Löngufit, Melgerði.
Laugaveg, Karfavog og
víðar.
5 herb ibúðir við Máva-
hlíð. Sólheima. Rauða-
læk Grænuhlíð Klepps-
veg Asgarð, Hvassaleiti.
óðinsgötu. Guðrúnargötu,
og víðar.
Ibúðir í smíðum við Fells-
múla Granaskjól 1 Háa-
leitl Ljósheima, Nýfcýla-
veg Alfhólsveg. Þinghóls-
braut og víðar.
Einbýlishús á ýmsum stöð-
um, stór og lítil.
Fasteirnasalan
Tjamargötu 14.
Símar: 80196 — 80625.
AIMENNA
FASTEIGNASfllAN
HNDARGATA 9 SÍMI 71150
LÁRUS Þ. VAIPIMARSSON
ÍBÚÐIR ÓSKAST:
8-Ú3 hérb. íbúð 1 úthverfi
borgarinnar eða í Kópa-
vogi. með góðum bílskúr.
8—5 herb. íbúðir og hæð-
jr ! borginni og Kópa-
vogi. Góðar útborganir.
TIE SÖLTJ:
3 herb. íbúð á hæð f timb-
urhúsi f Vesturborginni
hítaveita útb. kr. 150
þús., laus strax.
3 herb nýstandsett hæð
við Hverfisgötu, sér
inngangur. sér hitaveita.
laus strax.
4 fcerh hæð við Hringbraut
með rb. o. fl f kjaR-
ara. sér inngangur sér
hitaveita. ffóð kjör.
4 fcerb. nýleg hæð á
fallegum stað f Kópa-
vogi. sér bvottahús 5
hæðinni, suðursvalir.
sér hiti. bllskúr, mjög
góð kjör
5 fcerfc. vönduð fbúð 135
ferm. á hæð við Ásgarð
ásamt herb. f fcjallara,
svalir, teppi.
5 fcerb. ný og glæsileff f-
' búð f háhýsi við Sól-
heima, teppalögð og full-
frágengin. laus strax.
HAFNARFJÖRÐTTR:
3 fcerfc hæð f smíðum Á
fallegum stað, sér irm-
gangur. sér hitaveita, frá-
gengnar. Sanngiöm út-
borgun. kr. 200 bús lán-
aöar tjl 10 ára. 7% árs-
vextir.
Einhvlishás við Hverffs-
gotu. 4. herb nýleffar
innréttingnr. tpnpalagt
bflskúr. eignarlóð
5 herb ný og glæsileg hæð
við Hringbraut, stért
vinnuherberffi f kiaflara
ailt sér. Glærileg lóð
Laus strax
«4RBðmiRi»prR:
Við Lðngufit 3 herh fcæð.
fcomin undir tréverk og
fofcheld rishæð ea. 80
ferm. Góð ðhvhandi lán.
sanngjamt verð
Kvöldsími: 33687.
HÖFUM KAUPENDUR AÐ:
2 herbergja nýlegri ibúð.
Til mála kemur tilbúið
.undir tréverk. Stað-
greiðsla.
4 herbergja íbúð í sambýl-
ishúsi. >
3 herbergja nýlegri íbúð í
sambýlishúsi í Háaleit-
ishverfi, eða Hlíðahverfi.
Mikil útborgun.
TIL SÖLU:
3 herbergja íbúð í Ljós-
heimum. Nýleg.
3 herbergja kjallaraibúð 1
Vogunum. Tveggja íbúða
hús. Allt sér. þar á með-
al þvottahús. Bflskúrs-
réttur, skíptur garður, ef.
þess er éskað.
3 herbergja vönduð íbúð á
glæsilegum stað í nýj-
asta hluta Hlíðahverfis.
Harðviðarmnréttingar 2.
hæð. Lóð frágengin, og
gata malbikuð.
4 herbergja íbúð í nýlegu
sambýlishúsi í Vestur-
bænum.
5 herbergja íbúð með sér-
inngangi í 10 ára gömlu
húsi 1 Vesturbænum. 1.
hæð.
5 herbergja glæsileg enda-
íbúð í sambýlishúsi við
Kringlumýrarbraut. Sér
hitaveita. íbúðin seist
fuilgerð til afhendingar
1. október næstkomandi.
3—4 svefnherbergi. Harð-
viðarinnréttingar, tvenn-
ar svalir og bílskúrsrétt-
ur. Aðeins 8 fbúða hús.
Stórt lán til langs tíma
og með lágum vðxtum
getur fylgt.
4 herbergja ca. 120 ferm.
fbúð á 2. hœð í nýlegu
steinhúsi við Kvísthaga.
Tvennar svalir, hitaveita.
Stór bílskúr af vönduð-
ustu gerð fylgir.
6 herbergja fullgerð fbúð f
tvíbýlishúsi á Seltjamar-
nesi. Övenju glæsileg efri
hæð. Góður staður.
Tir, SÖLU I SMfBUM:
810 fermetra einbýlishús í
borginni er til sölu. Selst
uppsteypt Aiit á eijmi
hasð. Glæsilegt umhverfi.
snjöll teikning eftir
kunnan arkitekt.
150 fermetra lúxusíbúöir.
Tvær í sama húsi S hita-
veitusvæðinu f Vestur-
bænum. Seljast fokheld-
ar. Tveggja íbúða hús.
150 fermetra fokheldar
hæðir í Kópavogi og á
Seltjamarnesi.
5 herbergja hæðir á faileg-
um stað á Nesinu. Sjáv-
arsýn. Bílskúr 6 jarðhæð.
Allt sér 3 íbúða hús.
8 herbergja fokheldar hæð-
ir f austurborginní.
3 herbergja fokheldar hæð-
ir á Seltjamarnesi
4 herfcergja fokheldar hæð-
ir á Seltiamamesi.
4 herfcergja íbúð tiibúin
undir tréverk og máln-
ingu í Heimunum.
6 herbergja lúxusfbúð f
Heimunum. Selst tilbúin
undir tréverk oe máln-
ingu með fullgerðri sam-
eign. Til afhendingar nú
begar.
180 fermetra hæð f húsi
við Borgargerði. Selst
fokheld. Óvenju glæsi-
leg hæð.
Áskriftarsíminn er
17-500
i