Þjóðviljinn - 08.09.1964, Blaðsíða 2
2 SlÐA
ÞJÖÐVILIINN
Þrriðjudagur 8. september 1964
FISKIMÁL — Eftir Jóhann J. E.Kuld
ísland vantar verzlunar-
erindreka í Vestur-Afríku
Margar þjóðir, sérstaklega
þær sem framleiða fiskafurð-
ir, leggja nú mikla áherzlu á,
að tryggja sér framtíðarmark-
aði í Vestur-Afríku. Hvert rík-
ið af öðru í þessum heimshluta
hefur annað hvort nýlega öðl-
azt fullveldi eða mun öðlast
það á næstunni. Þama er mik-
ill skortur á eggjahvítuefni í
fæðunni, og öruggasta og bezta
leiðin til að fullnaegja þessari
þörf er að auka neyzlu fisk-
afurða. Danir hafa nýlega sent
til Vestur-Afríku verzlunar-
sendinefnd sem ætlað er það
hlutverk að kynna þar dansk-
ar fiskafurðir, og flestar þjóð-
ír sem eru aflögufærar á sviði
fisakfurða vekja nú á sér at-
hygli í þessum heimshluta.
Við íslendingar höfum um
langt árabil átt mikil viðskipti
við Nígeríu sem er eitt þeirra
ríkja Vestur-Afríku, sem fékk
fullt sjálfstæði fyrir fáum ár-
um, og er í miklum uppgangi,
enda er nú utanríkisverzlun
þessarar þjóðar óðfluga að
faerast yfir á þarlendar hend-
ur. Samkvæmt Hagtíðindum er
útflutt héðan til Nigeríu sl.
ár fyrir 143 miljónir 466 þús.
krónur, Þetta mun eingöngu
vera skreið. En í þessari tölu
er ekki sú skreið sem íslenzk
verzlunarfyrirtæki hafa keypt
hér. en síðan selt áfram til
Nigeríu, svo raunverulega er
útflutningur okkar til Nigeríu
allmiklu hærri, en talan hér að
framan bendir til. Ég hygg að
flestir geti verið mér sammála
um, að skreiðarmarkaðurinn í
Nigeríu hafi á undangengnum
árum veríð okkur hagkvæmur
markaður.
Það má segja að kynni okk-
ar af þessu mikla markaðs-
landi séu harla lítil enda hef-
ur hreint ekkert verið gert af
opinberri hálfu hér til að auka
þau kynni, Og svo mikill yar
spamaður íslenzkrar utanrík-
isþjónustu gagnvart Nígeríu að
enginn opinber fulltrúi mætti
héðan við hátíðahöldin þegar
hún öðlaðist sjálfstæði fyrir
fáum árum. Mér er þó kunn-
ugt um að skreiðarútflytjend-
um var það talsvert áhugamál
að héðan mætti opinber full-
trúi, en því var bara ekki
sinnt.
Norðmenn höfðu meiri skiln-
ing á að vekja á sér athygli
við þetta tækifæri, þvx þeir
sendu þá til Nigeríu opinbera
sendinefnd tuttugu til þrjátíu
manna.
Fyrir fámenna þjóð eins og
okkur fslendinga þá væri það
eðlilegast að stór hluti af
kostnaði við utanríkisþjónust-
una gengi tit þess að afla
nýrra markaða og vekja at-
hygli á fiskafurðaframleiðslu
okkar, en þessu virðist nú bara
ekki vera þannig varið hjá
okkur í reyndinni og er það
illa farið.
Innflufnmtrur okkar
frá Nígeríu
Hagtíðindi segja frá því að
innflutningur okkar frá Niegr-
íu á sl. ári hafi numið 595
þús. krónum. En á sama tíma
fluttum við inn frá Suður-
Afríku fyrir 6 miljónir og 302
þús. krónur, en seldum á sama
tíma vörur þangað .fyrir, segj-
um og skrifum 2 þúsund krón-
ur Það má segja að hér sé
á ferðinni dálítið skrítin verzl-
unarpólitík. En það var ekki
þetta sem ég ætla sérstaklega
að ræða, hér, heldur ætla ég
að benda á þá miklu mögu-
leika serr' ^afp !°gjð ónotaðir
frá okkar hendi gagnvart inn-
flutningi frá Nígeríu hingað. í
Vestur-Afríku og þá ekki hvað
sízt í Nigeríu vaxa margvís-
legar harðviðartegundir, og
hvergi í heiminum er verð sagt
jafn hagstætt til trjáviðarkaupa
sem einmitt þar, miðað við
gæði. Þaðan að sunnan getum
við flutt inn margs konar
gæðavið til húsgagnafram-
leiðslu. Og ef við viljum ger-
ast útflytjendur húsgagna,
verðum við að kaupa trjávið-
inn þaðan sem hann er beztur
og verðið hagkvæmast.
Þá telja sérfræðingar á sviði
tréskipasmíða erlendis að bezt-
an efnivið og mest úrval tJl
þeirra hluta sé nú hægt að fá
frá Vestur-Afríku. f því sam-
bandi er talað um þeirra góða
og harða „mahogny“ sem ágæt-
is efni í tréskip, og er talið
ódýrt þar miðað við gæði. Það
hefur komið til tals að Norð-
menn flyttu inn slíkt efni til
skipasmíða og búa þeir þó ekki
í viðarlausu' landi. Hér mun
þetta efni lítið hafa sézt á
markaði, þó eru til úr því
nokkrar skilrúmsfjalir í lest-
um sumra togaranna, keyptar
í Bretlandi.
En skilyrðin til þess að hag-
stæðari verzlunarviðskiþti geti
myndazt milli íslands og Vest-
ur-Afríkulanda eru þau að
sendur verði duglegur verzlun-
arerindreki þangað og síðan
yrðu teknar upp beinar skipa-
ferðir sem flyttu fiskafurðir
þangað en kæmu heim aftur
með trjávið í heilum förmum
til húsgagnaframleiðslu og til
skipasmíða. Það er varla nokk-
ur vafi á því, að slík trjá-
viðarinnkaup, án allra milli-
liða, gætu orðið mikil lyfti-
stöng fyrir báðar þessar þýð-
ingarmiklu iðngreinar okkar
íslendinga.
Fréttir af Græn-
lancLsmiðum
Aflamagn var mikið á mið-
unum við Vestur-Grænland nú
í vor og gengu línuveiðar
norskra og færeyskra skipa
þar yfirleitt mjög vel. Sama
má segja um togveiðar fram-
an af sumri. En i júlímánuði
brá svo við þama á miðunum,
að jogveiðamar gengu frekarv
illa, ekki þó sökum þess að
fiskmagnið væri lítið á miðun-
um, heldur vegna hins, að fisk-
urinn hélt sig þá ekki við botn,
heldur var hann upp um allan
sjó. Þetta kom harðast niður á
togurunum sem þarna voru þá
að veiðum, en línuveiðararnir
voru margir að losa saltfisk-
farma ýmist i Noregi eða í
Esbjérg i Danmörku.
Saltfiskverð á fiski af Græn-
landsmiðum var alveg fast í
Noregi í júlímánuði kr. 13,20
íál. fyrir kg. upp úr skipi, fyrir
málsfisk og undirmálsfisk upp
til hópa.
Nokkrir norskir línuveiðarar
eru nú að byrja haustvertíð á
miðunum við Vestur-Grænland
og er búizt vlð'mikilli þátttöku
norskra línuveiðara í þeim
veiðum i ár.
Þetta er j stórum dráttum
það sem er að frétta af út-
hafsveiðinni við Vestur-Græn-
land í sumar. En þótt úthafs-
veiðamar hafi yfirleitt gengið
vel þá er ekki sömu sögu að
segja frá veiðinni á grunnmið-
um. Þar hefur afli báta fram-
an af sumri verið frekar rýr
sökum stöðugra ógæfta og ill-
viðra, en fiskimagn í sjó talið
mikið. Þessar veiðar eru mest
stundaðaT af litlum dekkbát-
um og trillum. X byrjun ágúst-
mánaðar, þegar ég fékk siðast
fréttix að vestan voru komin
góð veður við ströndína og
afli sagður góður.
I júlímánuði meðan fiskur-
inn hélt sig mest uppi i sjó
á djúpmiðunum við Vestur-
Grænland - sendu Norðmenn
þangað vestur tilraunaskip
með þorskanót og krafblökk. en
fréttir af þeirri tilraun lágu
ekki fyrir síðast þegar ég frétti
en margir voru spenntir að
vita árangur þeirrar ferðar. Að
síðustu vil ég geta þess, að
norskir handfærabátar hafa
verið í sumar á miðum austur
af Hvarfi á Grænlandi og eru
sagðir hafa fengið þar dágóð-
an afla.
Síðustu fréttir af
Grænlandsmiðum
Samkvæmt skeytum sem bár-
ust til Noregs frá norska fiski-
skipaflotanum við Vestur-
Grænland 25. ágúst sl. þá var
þar ágætur afli Veðrið í ág-
úst mánuði var mjög gott á
miðunum bæði djúpt og
grunnt. Afli þá, hjá Grænlend-
ingum á grunnmiðum var
sagður góður. Sérstaklega var
getið um mikinn afla suður
undir Hvarfi.
Verksmiðjutogarinn Longva
sem var á Vestur-Grænlands-
miðum í þriðju veiðiferðinni á
árinu, sendi skeyti heim til
Álasunds 25. ágúst og var þá
búinn að fá 135 tonn af fisk-
flökum á stuttum tíma. Sagði
skipstjórinn að þeir hefðu
fengig að meðaltali 6 tonn af
flökum á dag þá að undan-
fömu.
Þennan dag lauíc togarinn
Longva áætlun sinni um afla
fyrir árið 1964 og var skeytið
sent heim til útgerðarmanns-
ins af þvi tilefni, Það ætti því
að vera tryggt að útgerðin á
verksmiðjutogaranum Longva
skili arði þetta árið, þar sem
ársáætlun togarans var miðuð
við þann afla sem skiláði arði
og þessari áætlun er lokið og
Framhald á 7. síðu.
SKIPATRYGGINGAR
Tryggingar
á vörum í flutningi
á eígum skipverja *
Heimistrygging hentar yður
Veiðarfa
Aflatryggingar
TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIRS
IINDARGATA 9 REYKJAVÍK SlMI 2 1 260 SlMNEFNI t SURETY
Almannatryggingar í
Gullbríngu- og Kjósarsýslu
t
Útborgun bóta almannatrygginganna í Gullbringu- og
Kjósarsýslu fert fram sem hér segir:
Þriðjud. 8. sept. kl. 2—4 í Kjalameshreppi
Miðvikud. 9. sept. — 2—5 í Mosfellshreppi
Miðvikud. 16. sept. — 1—5 í Seltjamarneshreppi
Föstud. 18. sept. — 9—12 í Gripdavík
Föstud. 18. sept. — 2—5 í Njarðvík
Föstud. 18. sept. — 2—5 í Gerðáhreppi
Ménud. 21. sept. — 2—5 í Miðneshreppi.
Á öðrum stöðum fara greiðslur fram eins og venju-
lega.
Athygli skal sérstakiega vakin á því, að fyrirfram-
greiðslur upp í þinggjöld ársins 1964 eru fallnar í gjald-
daga og verða innheimtar um leið.
Sýslumaðurinn í GuIIbringu- og Kjósarsýslu.
Hvers vegna kaupa bíl fyrir 130*40 þúsund krónur þegar hœgt er að
fó nýjan Trabant '65 ntódel fyrir 80 þúsund kr.
TRABANT ’65 módel er nú fyrirliggjandi með FJÖLMÖRGUM endurbótum og GERBREYTTU útliti.
Bíllinn er til sölu og sýnis hjá Bílavali, Laugavegi 90. Sími 19092.
— Leitið upplýsinga.
Einkaumboð: Ingvar Helgason, Tryggvagötu 4 — Reykjavík.
Umboðsmenn úti á landi eru:
Bifreiðaþjónustan Akranesi, — Gunnar Ámason Akureyri — Elís
H. Guðnason Eskifirði —* Tryggvi Guðmundsson Vfcstmannaeyjum.
Meðal helztu endurbóta má telja:
/1. 26% stærri rúður.
2. 50% betri hitagjöf frá miðstöð.
3. Rúðusprautur.
4. Hljóðeinangrun með trefjamottum.
5. Gerbreytt útlit, þak lárétt með skyggni að aftan.
\
6. Nýir glæsilegir litir.
7. Stuðari að aftan.
8. Tvö sólskyggni.
9. Fatasnagar og þrír öskubakkar.
10. 2 útispeglar og einn tvöfaldur innispegill.
11. Afturhluti bílsins lengdur. afturliós innibyggð.
12. Upphalarar á stórum hliðarrúðum
13. Þægilegri sæti, og rúmbetra aftursæti.
14. Kistulok læst með lykli.
15. Húnar á hurðum gerbreyttir.
16. Stærri rafgeymir.
17. Míklu býðari á vondum vegi.
18. Auk óteljandi annarra breytinga og endurbóta.
19. Hefur einnig alla kosti Trabant 600. á vél. brems-
um og gírkassa. sem reynzt hefur afburða vel hér
6