Þjóðviljinn - 08.09.1964, Síða 4

Þjóðviljinn - 08.09.1964, Síða 4
/ 4 SIÐA ÞTónviniwN Þriðjudagur 8. september 1964 Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. .Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason. Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsia, auglýsmgar, prentsmiðja, Skólavörðust 19. Sími 17-500 (5 linur) Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði #■ Eru Islendingar afkrístnaðir? yj^tla mætti að nú sé búið að sanna það fyrir ís- lendingum svo ekki verði um villzt að Lút- herstrúarmenn séu víðar til en á íslandi, en hér hefur því verið haldið fram að hægt sé með ör- uggri vissu að telja eina konu hérlenda Lúthers- trúar. Og Morgunblaðið hefur í leiðara boðað lærdóm sem villryráfandi íslendingar gætu haft af visiterandi erlendum Lútherstrúarmönnum um baráftuna gegn kommúnismanum. Nú ey Morgun- blaðið vant því að kalla flesta stjórnmálaandstæð- inga íhaldsins kommúnista þegar mikið liggur við, að minnsta kosti alla fylgjendur Sósíalistaflokks- ins og Alþýðubandalagsins. Og nú vill blaðið í nafni hins lútherska heimssambands vara alvar- lega við guðleysi þessa íslenzka kommúnistagrúa, alveg sérstaklega verði kirkjan og yfirvöldin að vera á verði hér eftir gegn því skaðræði að menn af því sauðahúsi stundi nám í guðfræðideild Há- skólans og séu meira. að segja vígðir til prests- embætta. En hér slær raunar út í fyrir leiðarahöf- undi Morgunblaðsins, svo hann virðist álíta að á íslandi gildi nýfasistísk lög um skoðanakúgun eins og í Bandaríkjunum og-Vestur-Þýzkalandi, og skal í góðu minntur á, að allir íslenzkir þegn- ar hafa sama rétt til náms í guðfræðideild og til prestsembætta, svo og til allra annarra opinberra starfa og embæ'tta ú landinu, hverjar svo sem stjórnmálaskoðanir þeirra eru. Þar á menntun þeirra og hæfni að ráða ein. jyú vill svo til að þennan sama dag gefur annar ritstjóri við Morgunblaðið, Sigurður A. Magn- ússon, nánari skýringu á því hvers vegna trúar- ástandinu á íslandi sé illa komið. Hann segir m.a.: „íslendingar eru án alls efa fjarlægastir kirkju og kristnum dómi allra þeirra þjóða sem kenna sig við Krist, . . . En það kynni vel að vera að trúarástand þjóðarinnar sé að verulegu leyti sök kirkjunnar sjálfrar, sem áratugum sam- an hefur gengið með krabbamein alls kyns ann- arlegra 'trúarbragða og frumstæðingsskapar í lík- ama sínum, að ekki sé talað um beint trúleysi fjölda presta. Kirkja sem svo er sundruð og átta- villt að yfir helmingur þjóna hennar telur játn- ingar hennar og arftekinn boðskap óþarfakredd- ur og jafnvel hégiljur — hvers er hún megnug? Sennilega hafa nýguðfræði, spíritismi, guðspeki, Bakkusardýrkun, Ásatrú og annað fleira engri kirkju á jarðríki tröllriðið sem þeirri íslenzku — og merkin sýna verkin: á einum tveim manns- öldrum hefur þjóðin svo að segja verið afkristn- uð.“ Greinarhöfundur telur að íslenzkum prest- um hafi „hnykkt við“ þegar hinir erlendu gestir stigu í stólinn í íslenzkum kirkj- um og tóku að boða ómengaða Lúthers- trú í stað þess að tala um tíðarfarið, heyskap- inn, gæftirnar eða síðustu fréttir af Gíslínu miðli“. Sé hér rétt farið með, virðist heimatrú- boð Lútherstrúarmanna á íslandi eigi mikið verk fyrir höndum, svo vandséð verði hvenær þeir fá tóm til að snúa sér að því að kristna kommúnist- ana og þeirra lið. — s. KEFLVIKINGAR £RU NÆR 0RUGG- IR SIGURVEGARAR í 1. DEILD □ Þeir unnu Val 5:1, en KR gerði jafntefli við Þrótt 2:2. ★ KR verður að vinna Akúr- nesínga. og Keflvíkinga tvíveg- is. til að halda Islandsmeistara- titlinum. ★ Þróttur veriur að vinna Fram tvívegis til að halda sæti í 1. deild. ( Keflvíkingar voru aðeins tíu náestum allan siðari hálfleik, en með hraða og krafti brutu beir niður vörn Vals og er langt síðan ís- lenzkt lið hefur svnt eins skemmtilegan sóknarleik, og mörkin sem þeir skor- u ðu voru hvert öðru fal- legra. Islandsmeistaratitiil- inn blasir nú við Keflvík- ingum og virðast þeir sann- arlega vel að honum komn- ir. Það spillti þó mjöe léiknum á lausardag, að framan við mörkin þurftu léikmenn að vaða sandinn upp fyrir skóvörp. Fyrsta markskotið kom á 10. mín.. Rúnar gaf fyrir til Einars en boltinn fór yfir þver- slá. Upp úr markspyrnunni nær Valur sókn, allt upp und- ir mark en Keflvíkingar bjarga í hom. A 13. mín. er Jón Ólafur með boltann rétt utan markteigs Vals og skaut á mark en yfir markið. Þrem mín. síðar var Rúnar í góðu færi eftir góða sendingu frá ékríi eri' skot'ð var laust og Gylfi varði auðveldlega. Næstu mín. eiga Valsmenn góðar sóknartotur, hægri útherjí ein- lék upp völlinn og h. innh fékk boltann í allgóðu færi en skotið geigaði, og tveim mín. síðar er sami maður enn í dauðafæri við markið en allt rann út í sandinn í orðs- ' ins fyllstu merkingu. Fram að þessu hafði leik- urinn verið nokkuð jafn, en . nú fara Keflvíkingar að láta meir til sin taka og áttu Vals- menn fá marktækifæri það sem eftir var hálfleiksins. Á 22. mín. lagði Jón Jóhannsson boltann fyrir Karl sem skaut föstu skoti yfir. Á næstu mín. varð enn hætta við Valsmark- ið. boltinn stefndi út fyrir endamörk er Einar tók á sprett og náði honum og var þá einn fyrir innan vörnina en mis- tókst markskotið. Það er sjald- Sveinn Jónsson, scm sést lengst til hægri á myndinni, skorar fyrra mark Ieiknum gegn Þrótti á sunnudag. (Ljósm. Bjarnleifur). Vegna þrengsla í blaðinu í dag verðurj frásögn af leik KR og Þróttar að bíða til morguns. gæft orðið að sjá slíka spretti eftir boltanum og minnti helzt á Ríkharð er hann var upp á sitt bezta, margt markið setti hann með því að hlaupa uppi knöttmn er aðrir töldu vonlaust að hlaupa á eftir hon- um. Á 28. mín. eru Keflvík- ingar komnir fast upp að Valsmarkinu vinstra megin er vamarmaður slær til knattar- ins og dómari flautar og still- ir knettinum upp í sandhrúg- una miðja. Högni tók vita- spymuna en skaut svo til beint á markmann, minnstu munaði þó, að Keflvíkingum tækist að skora er boltinn hrökk af markverði. Nú snúa Valsmenn vörn upp í sókn, hægri innherji nær að skjóta en framhjá og skömmu síðar er þvaga við Keflavíkurmark- ið, en Kjartan markvörður grípur inn í. Á 33. mín. er Rúnar fyrir opnu marki, en Valsmenn bjarga í hom. Á 35. mín. var Jón Jóhannsson í góðu færi upp við mark en boltinn þvældist^ fyrir honum í sandinum. Tveim mín. síðár lagði Jón boltann mjög vel fyrir Karl en hann lyfti yfir markið. Á 40. mín. bjargaði Gylfi vel með réttu úthlaupi. Lauk svo fyrri hálfleik að ekkert mark var skorað. Síðari hálflcikur. Strax í upphafi síðari hálf- leiks var auðséð að Keflvík- ingar ætluðu ekki að láta sér nægja jafntefli í þessum leik, þeir léku af auknum hraða og þess var ekki langt að bíða að það bæri árangur. Á 8. min. kom fyrsta markið. Ámi Njáls- son hafði hindrað Rúnar ó- löglega, svo að fríspark var dæmt utan vítateigs til hliðar við markið. Rúnar skaut að markinu og tókst Einari að^ skalla knöttinn inn 5 minút- um síðar varð Jón Jóhannsson að yfirgefa völlinn eftir að hann lenti í návígi við Áma Njálsson, hann mun þó ekki hafa meiðzt alvariega. Eftir þetta léku Keflvíkingar aðeins tíu á vellinum. Á 22. mín. settu Keflvíking- ar annað mark sitt heldur ó- vænt. Homspyma var tekin frá hægri og smaug knöttur- inn með marksúlunni og í fang Gylfa markvarðar sem stóð á marklinu, einn og ó- hindraður, en boltinn hrökk af brjósti hans og inn. Þetta mark verður að skrifast á reikning Gylfa og kannski öllu fijemur á bakvörðinn, sem átti að standa við súluna. Það sem eftir var leiksins voru Kefl- víkingar í svo til látlausri sókn og vamarmenn Vals fengu ekki ráðið við hraða þeima og kraft. Þriðja markið skoraði Magn- ús Torfason hægri framvörð- ur mjög laglega. Hann fékk knöttinn utan vítateigs hægra megin og skaut efst í blá- hom marksins fjær, óverj- andi fyrir Gylfa. Jón Ólafur skoraði fjórða markið tveim Framhald á 7. síðu. Staðan L U J T Mörk Stig Keflavík 9 6 2 1 24:12 14 KR 8 4 2 2 14:10 10 Akranes 9 5 0 4 23:20 10 Valur 10 3 2 5 19:24 8 Fram 9 2 3 4 15:18 7 Þróttur 9 13 5 12:23 5 OTRULEGA LÁGT VCRD ÚTSALA Á SKÓFATNAÐI HEFST í FYRRAMÁLIÐ. Seljum m.a. karlmannaskó úr leðri. Fjölmargar gerðir. — Kvenskófatnað ýmiskonar, þar á meðal kuldaskó úr leðri fyrir kr. 198,00. Kuldaskó úr Leðri fyrir drengi, stærðir 35—40 fyr- ír kr. 198,00 og margt, margt fleira. Skóbúð Austurbœjar Laugavegi 100 l 1 I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.