Þjóðviljinn - 10.09.1964, Page 10
mál verkalýðsflokkanna
Bandaríkin:
Kosningabaráttan
dýrtíöarflóði, sem nú dynur
yfir þjóðina í ne vaxandi
mæli.
★ 1 gær litu þó nokkrir inn
til okkar og gerðu upp sinn
hluta og kemur það sér mjög
vel fyrir okkur því í mörg
horn er að líta hjá okkur
þessa dagana eins og reyndar
öllum almenningi. en minnug
þess að margt smátt gerir
eitt stórt og samtökin eru
fyrir öllu, vonum við að all-
ir sem miða hafa fengið
reyni að standa við sinn hlut
og geri upp við okkur næstu
daga.
★ Við höfum opið að Týs-
götu 3 alla virka daga frá
kl. 9—12 f.h. og 1—6 e.h. Við
birtum hér í dag mynd af
framkvæmdunum á Skóla-
vörðustíg 19 eins og þær
standa nú og við munum á
næstu dögum lofa ykfcur að
sjá fledri myndir af þeim og
lofa ykkur að fylgjast með
hvemig þeim miðar áfram.
Þeim mun betur sem happ-
drættíð gengttr, þeim mun
betur gengur okkur. Lftið
inn til okkar strax í dag.
★ 1 gær og í dag höfum við
verið að senda út 3. flokk af
happdrættismiðum Þjóðvilj-
ans í Reykjavík og nágrenni
og á morgun munum við
ljúka við að senda miðana út
á landið. Að þessu sinni höf-
um við Trabant station-bif-
reið eins og í síðasta flokki
og verður nýja módelið vinn-
ingur en það er mjög frá-
brugðið fyrri módelum, auk
þess höfum við 51 vinning
sem er vöruúttekt fyrir 2 og
1 þúsund krónur og ætti það
að verða búbót fyrir þá sem
hafa heppnina með í þessu
Lokið er nú við að rífa rishæðina á húsi Þjóðviljans við Skólavörðustíg og er næsta verkefni að slá upp fyrir veggjunum og
reisa grindina að inndregnu hæðinni sem á að byggja ofan á húsið. Er myndia tekin í gær og sýnir hún smift að störfum við
bygginguna. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
EINAR OLGEIRSSON segir frá viSrœSunum i Moskvu:
Rædd sameíginleg áhuga
Fimmtudagur 10, seotember 1964 — 29. árgangur — 204. tölublað.
■ Þjóðviljinn sneri sér í gær til Einars Olgeirssonar, formanns Sósíal-
istaflokksins, og innti hann nánar eftir efni viðræðna þeirra er fram fóru
í Moskvu nýverið milli fulltrúanefndar miðstjómar Sósíalistaflokksins og
forystumanna í Kommúnistaflokki Sovétríkjanna og varð hann góðfuslega
við þeim tilmælum að skýra í örstuttu máli frá því sem þar bar á góma.
Fara svör hans við spurningum blaðsins hér á eftir.
— Hvenær og hvar áttu þess-
ar viðræður sér stað?
— ViðræSurnar fóru fram 2.
september s.l. í höfuðstöðvum
Kommúnistaflokks Sovétríkjanna
í Moskvu og eins og Þjóðviljinn
hefur þegar skýrt frá tókum við
Lúðvík Jósepsson, GuSmundur
Hjartarson, Brynjólfur Bjarna-
son og Sigurður Thóroddsen þátt
í þeim af hálfu Sósíalistaflokks-
ins en L. I. Bresnev og A. S.
Beljakov voru fulltrúar Komm-
únistaflokks Sovétríkjanna.
— Um hvað snerust þessar
viðræður í höfuðatriðum?
Gagnrýíii á framkvæmd
hinna nýju vegalaga
Aðalfundur Gatnagerðarinnar
s.f. var haldinn í Reykjavík
laugardaginn 5. þessa mánaðar.
Fundinn sóttu fulltrúar frá 12
af nítján kaupstöðum og kaup-
túnum, sem aðild eiga að félag-
inu.
Fyrir fundinn var lögð ítar-
leg skýrsla um starfsemi félags-
ins á liðnu ári og það, sem af
er þessu ári, gerð af fráfar-
andi formanni félagsins. Segir
þar að lítil verkefni hafi verið
fyrir tæki félagsins á árinu 1963
og enn minni á þessu ári, og
hafi stjórn félagsins því ákveðið
ÆF.H.
Félagsfundur verður hald-
inn'í kvöld, fimmtudag, kl.
8,30 í Góðtemplarahúsinu
(uppi).
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga
2. Kosning fulltrúa á þing
Æ. F.
3. Önnur mál.
Áríðandi að allir félagsmenn
mæti.
að selja malbikunarsamstæðu fé-
lagsins ásamt öllum búnaði
hennar bæjarstjórn ísafjarðar-
kaupstaðar. Verulegrar gagnrýni
gætir í skýrslunni á framkvæmd
hinna nýju vegalaga að því er
snertir vegi í kaupstöðum og
kauptúnum.
Aðalfundurinn samþykkti til-
lögu stjórnarinnar um sölu
gatnagerðartækjanna, og var
hinni nýju félagsstjóm falið að
gera tillögur um framtíðarverk-
efni félagsins vegna hinna
breyttu viðhorfa, sem skapazt
hafa, og að leggja tillögur sínar
fyrir næsta aðalfund félagsins.
Jónas Guðmundsson, sem ver-
ið hefur formaður félagsins frá
stofnun þess, baðst undan end-
urkosningu af heilsufarsástæð-
um. f hans stað var kosinn í
stjómina Hjálmar Ólafsson, bæj-
arstjóri í Kópavogi. Aðrir í
stjóminni voru endurkosnir, en
þeir eru Magnús E. Guðjóns-
son, bæjarstjóri Akureyri; Hálf-
dán Sveinsson, bæjarfulltrúi
Akranesi; Sigurður I. Sigurðs-
son, oddviti Selfossi, og Haf-
steinn Baldvinsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, og er hann for-
maður hinnar nýju stjórnar.
Jónasi Guðmundssyni vom
þökkuð störf hans í þágu fé-
lagsins.
— Viðræðumar fjöUuðu fyrst
og fremst um tvö aðalmál. Ann-
ars vegar um það áhugamál
Sósíalistaflokksins aö tryggja af-
komu íslenzkra útflutningsat-
vinnuvega, en þeim þætti við-
ræðnanna verða gerð. nánari
skil í Þjóðviljanum á morgun
og mun ég því ekki ræða það
mál frekar nú.
— Hvert var hitt aðalmálið
sem þið rædduð?
— Auk viðskiptamála Islands
og Sovétríkjanna ræddum við
ýmis sameiginleg áhugamál þess-
ara tveggja flokka og í raun og
veru allra verkalýðsflokka heims
hvort heldur sem það eru
kommúnistaflokkar. sósíalista-
flokkar eða sósíaldemókrata-
flokkar, mál sem varða vöxt og
viðgang verkalýðshreyfingarinn-
ar í heiminum og hagsmunamál
verkalýðs allra landa.
Á síðustu árum hefur komizt
á meiri og betri samvinna en
áður var milli hinna tveggja
höfuðafla innan verkalýðshreyf-
ingar Evrópu, kommúnistaflokk-
anna og sósíaldemókrataflokk-
anna. Er þar sérstaklega áber-
andi að sósíaldemókrataflokkar
Bretlands og Frakklands hafa
báðir sent stórar sendinefndir
til Moskvu til viðræðna við full-
trúa Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna um sameiginleg áhuga-
mál þessara flokka. Var Harold
Wilson leiðtogi Verkamanna-
flokksins brezka fyrir sendinefnd
flokksins og hefur hann sótt sér
efni í kosningabaráttuna í Bret-
-landi í þessar viðræður. Einnig
má benda á sem dæmi um þessi
breyttu viðhorf að Guy M-ollet
foringi franskra sósíaldemókrata
sem talinn hefur verið mjög
andvígur kommúnistum hafði
forustu fyrir sendinefnd franskra
Sósíaldemókrataflokksins sem
tók þátt í viðræðunum í Moskvu.
Hafa þessar viðræður s,kapað
betra samstarf verkalýðsflokk-
anna, bæði innbyrðis í viðkom-
harinar enn
Einar Olgeirsson
andi löndum og einnig við
verkalýðsflokka annarra landa.
WASHINGTON 9/9 — í gær
harðnaði enn kosningabaráttan
í bandarísku forsetakosningun-
um. Barry Goldwater öldunga-
deildarþingmaður frá Arizona
og forsetaefni repúblikana lýsti
því þá yfir, að verði hann Itjör-
inn muni hann hefja það sem
hann nefndi forystuhlutverk
Bandaríkjanna til vegs og virð-
ingar á ný.
Að sjálfsöfðu eru demókratar
lítt hrifnjr af þessum ummælum,
og William Fulbright, öldunga-
deildarþingmaður úr flokki
demókrata lýsti því yfir. að
stefna Goldwaters leiði út í ó-
göngur einar. Goldwater lagði í
dag upp í 7.000 km langa fyrir-
lestrarferð og fór með flugvél
frá Phoenix í Arizona til borg-
arinnar San Diego í Kalifomíu.
Á flugvellinum í San Diego hélt
Goldwater ræðu og lýsti þar
þeim eiginleikum, er hann taldi
Bandaríkjaforseta þurfa að hafa
til brunns að bera en virtist
telja Lyndon B. Johnson skorta
með öllu. Þeldökkir menn reyndu
hvað eftir annað að trufla ræðu
Goldwaters og kölluðu hann lyg-
ara er hann lýsti því, að það
væru repúblikanar en ekki demó-
kratar, sem væru hinir raun-
verulegu málsvarar raunverulega
mannréttinda.
Vaxandi þörf á skipulögðu
æskulýisstarfi í landinu
B 14. sambandsráðsfundur Ungmennafélags íslands var
haldinn í Haukadal dagana 5. og 6- september.
■ Fundurinn samþykkti meðal annars að fela sambands-
stjóm: Að athuga möguleika á utanför íþróttamanna að
loknu landsmótinu 1965. Að vinna að aukinni samvinnu
ungmennafélaga á Norðurlöndum. Að beita sér fyrir les-
hringum og spurningakeppni úr þ'jóðlegum fræðum milli
héraðssambandanna.
■ Að ljúka sem fyrst við framkvæmdir, sem unnið er
að í Þrastarskógi, leikvallargerð og byggingu veitingaskála-
Fundurin-n hvatti héraðssam-
böndin til þess að koma á æf-
infastöðvum og leiðbeiningar-
námskeiðum í samvinnu við í-
þróttakennaraskóla íslands, UM
FÍ og ÍSÍ.
Ennfremur voru samþykktar
eftirfarandi tillögur:
Sambandsráðsfundurinn bein-
ir því til sambandsfélaga um
land allt að undirbúa sem bezt
þátttöku sína í 12. landsmóti
UMFÍ sem haldið verður að
Laugarvatni dagana 3. og 4.
júlí 1965. Jafnframt leggur fund-
urinn ríka áherzlu á það að
mótsgestir allir taki sem virk-
astan þátt í mótinu með prúð-
mannlegri framkomu og reglu-
semi og sameinist um það að
gera þessa íþróttahátíð sem
glæsilegasta svo hún verði æsk-
unni til uppörfunar og samtök-
unum og þjóðinni allri til heilla
og farsældar.
Samhandsráðsfundurinn vænt-
ir mikils af störfum þeirrar
nefndar sem nú vinnur að samn-
ingu frumvarps til laga um
æskulýðsmál og telur mikilvægt
að bún hraði störfum sínum.
Ennfremur minnir sambands-
ráðsfundur UMFÍ á hina miklu
og vaxandi þörf á auknu heil-
brigðu og skipulögðu æskulýðs-
starfi í landinu. Fundurinn vek-
ur athygli á mikilli starfsemi
ungmennafélaganna á þessu
sviði sem æskilegt væri að yk-
ist enn að miklum mun. Raun-
hæft spor í þá átt væri að auka
fjárhagsaðstoð til UMFÍ svo
hægt væri að ráða erindreka
sem skipulegði aukið æskulýðs-
starf samtakanna og ferðaðist
milli héraðssambandanna og
ungmennafélaga um land allt.
Fundinum lauk um hádegi á
sunnudag með ræðu Sigurðar
Greipssonar. Síðan skoðuðu
fundarmenn skógræktina í
Haukadal og heimsóttu því
næst Laugarvatn og skoðuðu
staðinn. Einnig var farið í Þrast-
arskóg. Um kvöldið var hóf í
Félagslundi í Gaulverjabæ.