Þjóðviljinn - 11.09.1964, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 11.09.1964, Qupperneq 10
Hæstu viimingar í Happdrætti HJ Finjmtudaginn 10. september 1964 var dregið í 9. flokki Happ- dnættis Háskóla íslands. Dregn- ir voru 2.300 vinningar að fjár- hæð 4.120,000 krónur. Hæsti vinningurinn. 200,000 kr. kom á hálfmiða númer 6689, sem seldir voru í þessum umboðum: Akranesi, Borgarnesi. Elís Jóns- syni, Kirkjuteig 5, og Jóni St. Amórssyni, Bankastræti 11. 100.000 krónur komu á hálf- miða númer 3552. sem seldir voru á Norðfirði og hjá Am- dísi Þorvaldsdóttur, Vesturgötu 10. \ 10.000 krónur:. 3934 4172 4788 8773 12651 14471 15627 19452 21906 23351 25165 26050 27323 29560 31326 32186 37775 40652 43050 48155 50732 55144 55959 57235 57782 59562 — (Birt án ábyrgðar). 26. Iðnþing Is- lendinga háð á Akureyri í fyrradag var 26. Iðnþing Is- lendinga sett í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri og sitja á annað hundrað manns þingið. Þingið stendur til 12. sept- ember og er haldið í höfuðstað Norðurlands vegna 60 ára af- mælis Iðnaðarmannafélagsins þar. Guðmundur Halldórsson. for- maður landssambandsins setti þingið og kvað aðalmál þingsins verða endurskoðun á iðnaðar- fræðslunni í landinu. Þá er fjallað um tæknimenntun, lána- mál iðnaðarins, vinnuhagræð- ingu og útflutningsmál. Forseti þingsins var kjörinn Jón G. Þorvaldsson, en hann er formaður Iðnaðarmannafélags Akureyrar. m B W Kjarnorkuráð- stefnu lokið GENF 10/9 — Á þriðju ráð- stefnu um kjamorku til friðar- þarfa, sem lauk í Genf í gær voru allir á einu máli um það að kjamorkan er eina svarið við orkuvandamálum mannkyns Forseti ráðstefnunnar sovézki Framhald á 3. síðu. DANSKIR BÍTLAR í REYKJAVÍK 1 fyrrakvöld kom hingað til Reykjavíkur með flugvél frá Kaupmannahöfn danska bítlahljómsveitin The Telstar ásamt tveim söngkonum, Lecíu og Lucienne og efndu þau til hljómleika í Austurbæjar- bíói kl. 11.15 í gærkvöld. Var uppselt á hljómleikana í gær og er ekki að efa að það hefur verið líf í tuskunum ef marka má þær undirtektir sem kvikmyndin með hinum „ekta” brezku bítlum hefur hlotið hjá reykvískum aðdáendum þessarar tónlistar. (Ljósm. Bj. Bj.). Neyðarástandi lýst í Malasíusambandinu KUALA LUMPUR 10/9 — Þjóð- þingið í Malasíu . samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lýsa yfir neyðarástandi í land- inu. Tunku Abdul Rahman forsæt- isráðherra sagði á þingfundinum, að um 2500 ungir menn. flestir af kínverskum ættum en einn- ig Malajar hefðu haldið til Indó- nesíu, þar sem þeir hefðu fengið þjálfun í neðanjarðarstarfsemi og skæruhemaði. Forsætisráðherrann ákærði nokkra stjómmálaflokka í land- inu fyrir það, að þeir störfuðu ósleitilega í samvinnu við Indó- nesa til þess að brjóta Malasíu- sambandið niður. Hann skýrði frá því að til 31. júlí í ár hefðu brezk-malajskar öryggissveitir fellt 206 indónes- íska skæruliða, tekið 150 fanga og 50 hefðu gefið sig fram. ör- yggissveitimar kvað hann hafa misst 45 manns og 80 særða. Hrynur Malasíusambandið? Þjóðþingið samþykkti einnig lagafrumvarp sem veitir ríkis- stjórninni vald til þess að stjóma með tiilskipunum. Þessi sénstöku völd eru fengin stjóminni til þess að styrkja vamir landsins og tryggja ör- yggi. Samkvæmt þeim er hægt að fangelsa fólk vegna „öryggis ríkisins” og reyndar væri einn- ig hœgt að hengja mann fyrir að stela kjúkling. Flokkur vinstri sósíalista greiddi einn atkvæði gegn frum- varpinu. Formaður hans Ghia Thye Poh s.agði að það væri öllum Ijóst að Malasíusambandið væri að hruni komið. Hann sagði að þetta gerviríki sem Bretar hefðu stofnað. gæti ekki staðizt vegna þess. að fólk- ið kærði sig ekkert um það. Orffrómur. Dean Rusk utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í Washing- ton í dag, að það væri mjög al- varlegt mál að Indónesar hefðu sent fallhlífalið til Malasíu og enginn gæti sagt til hvers það gæti leitt, ef þeir héldu svo fram. Fréttir hafa borizt af því, að Framhald á 7. síðu. Föstudagur 11. saoíember 1964 — 29. árgangur — 205. tölubiað. jT Avarp landsf undar hernáms- andstæiinga 1964 Landsfuncfor hernámsandstæð- inga, haldinn 5.-6. september 1964 að Skjólhrekku við Mývatn vekur aíhygli íslenzku þjóðarinnar á eft- irfarandi atriðnm: DSamtökin hafa frá fyrstu tíð haft að markmiði brott- flutning hins erlenda herliðs úr landinu og unnið að því með öllum þeim aðferðum, sem tiltækilegar þóttu. I £V\ Fundurinn telur að þrátt fyrir það að hinn erlendi her sitji hér enn þá hafi störf samtakanna haft þau áhrif, að stórum munaði til hins verra, ef þeirra hefði ekki notið við. Má benda á, að þeirra vegna hefur almenningur í land- inu aldrei litið á hersetuna sem sjálfsagðan hlut, en samtökm hins vegar haldið hugum landsmanna vakandi til andstöðu við það ástand sem hér er ríkjandi og næmari fyrir hverju því gerræði, sem í þessum málum hefur verið framið gegn menningararfleifð og sjálfræði þjóðarinnar. Q\ Fundurinn viU sérstaklega benda á þann stórhættulega gjörning stjómarvaldanna að leyfa hér rekstur her- mannasjónvarps, sem nær nú til meirihluta landsmanna, en þeir geta þó engu um ráðið hversu beitt ér. Getur fundurinn ekki látið hjá líða í þessu sambandi að minnast ávarps hinna 60 menntamanna til alþingis viðkomandi þessum atburði og telur þau vinnuþrögð mikilsverðan stuðning við málstað sam- takanna. Væntir fundurinn þess, að þeir ágætu menn geri allt sem í þeirra valdi stendur til að fylgja fram sannfæringu sinni. A \ Samtök hernámsandstæðinga telja sér skylt að berjast * af fremsta megni gegn allri þeirri fjármála- og siðferð- isspillingu sem nú flæðir yfir þjóðfélagið og sannanlega á upp- haf sitt og viðgang í því óheillafyrirþæri sem er seta erlends Framrald á 7. síðu. VINNINGAR Trabantbifreið (station- gerð) verðmæti 82.000 • 20 vinn- ingar vöruútekt á kr. 2.000 hver verð- mæti 40.000 • 31 vinningur vöruút- tekt á 1.000 kr. hver að verðmæti 31.000 krónur Afgreiðsla happdrættisins er á Týs- götu 3. Sími 17514. Opið 9-12 og 1-6 • takmarkið er að selja alla miðana • styðjið ykkar eigið málgágn • ger- ið skil sem fyrst Dregiö 5. október 3. FLOKKUR HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVI LJANS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.