Þjóðviljinn - 13.09.1964, Síða 10

Þjóðviljinn - 13.09.1964, Síða 10
★ Með Þjóðviljanum í dag fylgja Sunnudagur og Oskastundin. ■jlri Af efni Sunnudags má nefna viðtal við Gunnar Ólafsson fóðurfræðing um nýjustu rannsóknir á fóð- urjurtum. Á grasafjalli nefnist þriðji hluti frá- sagnar Halldórs Péturs- sonar um sumardvöl á Kili. Deila sovézkra og kínverskra um menning- armál heitir sunnudags- pistill Á.B. að þessu sinni. Þá er þýdd grein er nefn- ist Fólk sem gengur í svefni og ennfremur eru í blaðinu bridgeþáttur. krosskáta, verðlaunaget- raun, Bidstrupteikning og fleira smærra efni. •Jc Óskastundin flytur að vanda fjölbreytt efni fyrir bömin. sögur, Ijóð, mynd- ir, teikningar og ýmsar þrautir till að glíma við um helgina. Sluppu með skrámur Stolinni bifreið var ekið með ofsahraða eftir Strandgötunni í Hafnarfirði í fyrrinótt og að sögn eins farþegans með 160 km hraða á klukkustund. Á þessum hraða óku þeir bíln- um á steinvegg og molnaði hann niður á átta metra kafla og kastaðist síðan bíllinn 'öfugur frá og gjörónýtur að framan. Þrír menn voru í bifreiðinni og lögðu þegar tveir á flótta lítið skrámaðir og voru hand- teknir í gærmorgun. Einn farþeganna var hand- tekinn á staðnum lítið meiddur. Bifreiðinni var stolið héðan úr Reykjavík j fyrrinótt, en bif- reiðareigandinn er búsettur í Kópavogi. Bœtt kjör Framhald af 1. síðu. Lítið eftir af kaupinu Vakin var athygli á því á fundinum, að enda þótt ein- staklingar væru bezt settir af félagsmönnum að ýmsu leyti, væru árslaun þeirra, miðað við hæsta launaskala Sóknar, um 60 þúsund krónur, og athugun hefði sýnt að af þeim tekjum þyrftu félagsmenn nú að greiða um 10 þúsund krónur í opinber gjöld. Það gerði í flestum til- fellum meira en 1000 krónur á máriuði það sem eftir væri þessa árs a.m.k. flestir myndu þurfa að greiða einar 1500 krónur í húsnæði, og mánaðarfæði á Rík- isspítölunum sem þætti ódýrt kostaði 1200 krónur á mánuði. Þessi útgjöld gerðu samanlagt um 3700 kr. á mánuði, og þá væri ekki eftir nema um 2300 krónur af kaupi í hæsta Sóknar- skala. Mættu allir sjá að ekki yrði lifað neinu sældarlífi af slíkum tekium. HODVIUINN Sunnudagur 13. septemtær 1964 — 29. árgangur — 207. tölublað. Cengii / búiir.. .* Fréttamaður og ljósmyndari hjá Þjóðviljanum brá sér í gönguferð um borgina í góða veðrinu einn daginn fyrir helgina til þess að skoða bæjarlífið. 'Margt manna var á ferli á götunum og bar þar sérstaklega mikið á kven- fólkinu, húsmæðrum ungum og gömlum, sem notuðu góð- viðrið til þess að skoða í búðarglugga og reka ýmiskon- \ar verzlunarerindi fyrir sín heimili. Niðri á Lækjart. var fullt af fólki. Flest mun það hafa verið að bíða eftir strætis- vögriunum. Þarna stóð líka einn andríkur predikari og þrumaði yfir lýðnum með biblíuna og refsivöndinn á lofti en heldur virtist hann tala fyrir daufum eyrum. Þó lögðu einstaka unglingar við á Lækjartorgi minnti okkur óneitanlega talsvert á hale- lújakór dagblaðanna í Rvik þessa dagana sem undir ör- uggri leiðsögn Eykons á Mogg- anum hafa kyrjað fjálgum rómi Moskvusálminn gamla fullum hálsi. Og mikið mega predikararnir á Lækjartorgi öfunda Eykon og söfnuð hans af því brennandi Natóofstæki sem lýsir sér í því fádæma einsýni að sjá aðeins Moskvu- þjónkun í aðgerðum ís- lenzkra sósíalista til þess að reyna að afla íslenzkum út- flutningsafurðum örugga markaði í því skyni að efla fiskiðnaðinn, auka verðmæti framleiðslunnar og skapa at- vinnulausu verkafólki í norð- lenzku síldarbæjunum vinnu sér til lífsframfæris. Hvers vegna skjóta Varðbergsmenn :..og predikað á torgum hlustirnar í von um eitthvað skemmtilegt og jafnvel önn- um kafnir erindrekar æðstu menningarstofnana þjóðarinn- ar, eins og Jón Eyjólfsson hjá Þjóðleikhúsinu dokuðu við andartak tii þéss að fylgj- ast með því sem fram fór. Þessi heilagsandapredikun ekki saman í kassa handa Eykoni til þess að predika af á Lækjartorgi svo hann megi útbreiða þar fagnaðarboðskap Nató og frelsa oss frá Moskvu. Kannski mundi Jón Eyjólfsson líka stanza við kassann hans þótt önnum kafinn sé? rr Kjörbúðarvagninn kemur aftur «« Mikil andúðaralda er nú að rísa í Kópavogi gegn fyrir- mælum bæjarfógeta um lokun kjörbúðarvagnsins í fyrra- dag og á hún eftir að rísa hærra næstu daga. Þ’jóðviljinn sneri sér í gær til Ólafs Jónssonar, bœjar- fulltrúa í Kópavogi og fórust honum meðal annars svo orð: Það er fjarri mér að ætla að bæjarfógeti sé með aðgerðum sínum gegn kjörbúðarvagninum að þjóna kaupmannasamtökun- •um, eins og fram hefur komið í blöðum. Til slíkra þjónustu- verka er hann ekki líklegur. En þrátt fyrir það er afstaða hans og aðgerðir aldeilis fráleitar. Með þvi að neita þeirri stað- reynd að, kjörbúðarvagninn er sölubúð og flokka starfrækslu hans undir torgsölu er auðvelt að firina ákvæði í lögreglusam- þykktinni, og fleiri reglugerð- um, sem banna slíka starfsemi. FL UGS ÝN hf. Bóklegi-skóiinn veturinn 1964—1965 Námskeið fyrir einkaflugmenn (A-próf), hefst 1. október. Kennsla fer fram á kvöldin í skólanum á Reykj av-íkurflugvelli. Skóli fyrir atvinnuflugmenn (B-próf) hefst 5. janúar 1965, og verður dagskóli. Bókleg kennsla fyrir blindflugs-réttindi, hefst 15. október. Siglingafræði-námskeið verður haldið í vetur. Nánar auglýst síðar. Námskeið fyrir flugstjóra-efni (ALTP), svo og kennsla fyrir þá sem vilja öðlast réttindi á 2ja-hreyfla flugvélar (typerating)’ hefst 1. nóvember. Þátttaka tilkynnist sem fyrst- Upplýsingar í símum 1-84-10 og 18823, eða í skólanum á Reykjavíkur-flugvelli. SKÓLASTJÓRI, Hér er hinsvegar um algera nýjung að ræða hér á landi og því engin rök fyrir því að flokka rekstur kjörbúðarvagna undir ainhver úrelt ákvæði gamaUa reglugerða sem samdar voru við allt aðrar aðstæður. Þannig held ég að bæjarfulltrú- ar hafi litið á málin þegar þeir veittu öll leyfi fyrir rekstri búð- arinnar. Með afstöðu sinni og ofstækisfullum aðgerðum er bæjarfógeti að valda mörgum bæjarbúum miklum óþægindum, einkum húsmæðrum. og tefja fyrir nýjungum í starfsemi kaupfélaganna. Gagnvart bæjar- stjóm eru aðgerðir bæjarfógeta hinsvegar grófar og dónalegar móðganir, Hann ætlar sér með þessum aðförum að lítillækka níu réttkjöma bæjarfulltrúa Kópavogskaupstaðar og ómerkja einróma samþykktir þeirra. Bæjarráð samþykkti eimóma að leyfa rekstur kjörbúðarbíls i bænum. Bæjarstjórn staðfesti það leyfi á fundi sínum í júlí, einnig einróma. Meirih'luti heil- brigðisnefndar mælti einnig með rekstri kjörbúðarvagnsins, með nánari tilteknum skilyrðum, sem öUum var fullnægt. Héraðslækn- irinn, sem í fyrstu hafði samúð með afstöðu bæjarfógetans treysti sér ekki til að standa með hon- um þegar á reyndi. Bæjarfóget- inn einn var á móti, eins og Knattspyrnukappleikur háður á skeiðvellil Sauðárkróki. — Sl. miðviku- dag hófst hér Norðurlandsmót í knattspyrnu. Þeir komu hing- að bæði frá Ólafsfirði og Siglu- firði til að keppa gegn okkur Skagfirðingum.' Það má teljast óvenjulegt við þetta mót að ekki var keppt á knattspyrnuvelli eins og venjulegast er, heldur á skeiðveUinum sem hesta- mennirnir eiga hér og heitir völlurinn Fluguskeið. Leiftur heitir knattspjrrnufé- lag þeirra Ólafsfirðinga og er því óhætt að segja að þeir hafi farið með leifturhraða eftir fluguskeiði, enda sigruðu þeir okkar menn þótt knáir séu með því að skora fimm mörk gegn fjórum okkar, og heitir þetta víst á íþróttamáli að þeir hafi rétt marið okkur. Svo komu Siglfirðingar daginn eftir og gerðu meira en að merja, þeir skoruðu fimm mörk og brutu eitt nef, en okkar menn skoruðu ekkert mark og brutu ekkert neí, svo að Siglfirðingar unnu með yfirburðum eins og sagt er. Er nú knattspyrnu lokið hér í hi 'i en menn bíða þess með til- hlökkun, að næstu kappreiðar verði á knattspyrnuvellinum. H.S. náttröll. sem dagað hefur uppi. Nú beitir hann því valdi, sem hann einn ræður yfir — lögregl- unni — til þess að ómerkja samþykktir okkar allra. Samvinnumenn og aðra borgara í Kópavogi, sem nú verða fyrir óþægindum af þess- um nýstárlegu tiltækjum fóget- ans, vil ég að lokum minna á það að allar nýjungar og end- urbætur á verzlunarháttum, sem kaupfélögin hafa beitt sér fyrir, hafa á einhverju skeiði rekið sig á slíkt aftui’hald og kyrr- stöðumenn. Fyrst danska ein- okunarkaupmenn eða drembiláta embættismenn og síðan íslenzka arftaka þeirra, en slíkt afturhald hefur alltaf orðið að víkja fyrir samtökum fólksins og svo mun enn fara. Kjörbúðarvagninn kemur aftur. Leiðréttingar Tvær leiðinlegar villur urðu hér í blaðinu í gær og má skrifa a.m.k. aðra þeirra á reikning prentvillupúkans. í niðurlagi Er- lendra tíðinda ruglaðist ein setn- ing. Rétt er hún þannig: „Ný tæknibylting gengur yfir iðnað- arlöndin en bylting vaknandi vona geysar í vanþróuðu hlut- um heims.” Þá var það missagt að Ólafur Jensson væri forseti bæjarstjómar Kópavogs, hann er bæjarfulltrúi en hefur látið af störfum sem forseti bæjar- stjórnar. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þesum mistökum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.