Þjóðviljinn - 15.09.1964, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.09.1964, Blaðsíða 3
I Þriðjudagur 15. september 1964 HÓÐVILIINN SlÐA 3 Kosningabarátta STOKKHÖLMI - 14/9 — Kosningabaráttan í kosning- unum til neðri deildar sænska þingsins (Rigsdagen) sem verða haldnar á sunnudaginn kemur færist nú mjög í auk- ana. Fyrst og fremst er barizt um atkvæði þeirra kjósenda sem eru enn tvístígandi og samkvæmt skoðanakönnun sem var birt um helgina voru 16% kjósenda ekki enn bún- ir að ákveða • í ágústlok. hvernig þeir ætluðu að kjósa í kosningunum innan þriggja vikna. San Marino SAN MARINO 14/9 — Kristilegir Demókratar og Sósíaldemókratar, sem hafa síðari ár setið við völd í elzta lýðveldi heims, sem jafnframt er það minnsta San Marino á Ítalíuskaga styrkt- ust enn í sessi í kosningunum sem þar voru haldnar í gær. í kosningunum höfðu konur í fyrsta skipti kosningarétt í 1600 ára sögu lýðveldisins. Úrslit kosninganna urðu þau að Kristilegir Demókrat- ar hlutu 29 þingmenn og hafa bætt við sig tveim þingsæt- um síðan 1959. Sósíaldemó- kratar fengu 10 höfðu áður 9. Kommúnistar töpuðu tveim og hafa nú 14 og vinstri sósíalistar einnig tveim hafa nú 6. Nýr flokkur Frelsis- flokkurinn fékk einn þing- mann. Pugwash PRAG 14/9 — 13. Pugwash ráðstefnan tekur til starfa í Karlovy Vary í Tékkósló- vakíu í dag og talið er Iík- legt að tillögurnar um sam- eiginlegan kjarnorkuflota NATO verði höfuðumræðu- efni á ráffstefnunni. Ráffstefnan var sett í gær. þegar um 90 vísindamenn m.a. frá Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Bretlandi héldu með sér fund til að ganga frá dagskrá. Meffal annarra mála scm tekin verða fyrir, eru almenn afvopnunarmál, öryggi landa- mæra í Mið-Evrópu og þýzk- ur friðarsamningur. Fréttamenn telja að flestir bátttakendur munu lítt hrifn- ir af fyrirhuguðum Nato- flota. Pugwash-ráðstefnan heitir eftir þorpi í Nova Scotia, þar sem hún var haldin í fyrsta skipti. Tito og Kadar BUDAPEST 14/9 — Tito forseti Júgóslavíu og Janos Kadar forsætisráðherra Ung- verjalands urðu á fundi á sunnudag sammála um öll atriði. sem þeir ræddu um viðskipti ianda sinna, en hafa mismunandi skoffanir um klofningn í röffum komm- únista. Tito, sem er í opinberri heimsókn i Ungverjalandi sat á sunnudag í tvo og hálfan tíma á einkafundi með Kad- ar. Þeir urðu sammála um allt, sem lýtur að efnahags- legri þróun landanna bcggja, en Tito staðfesti aff hann væri andvígur alþjóðlegri ráðstefnu kommúnista, sem yrði aðeins til þess að kljúf* hreyfinguna enn frekar. Janos Kadar lýsti aftur S móti fullu samþykki sinu viff tillögur Krústjoffs forsætis- ráffherra um fundinn í Moskvu. MISHEPPNUÐ UPPREISN- ARTILRAUN í S-VÍETNAM SAIGON 14/9 — Khanh hershöfðirigi er aftur kominn til Saigon og tekinn til við að stjórna á ný eftir að uppreisn- artilraun sem hófst gegn honum aðfararnótt sunnudags fór gjörsamlega út um þúfur. I Saigon er talið að helzta mark- r/iið uppreisnarinnar hafi verið að veita hershöfðingjum meiri völd á kostnað stjórnmálamanna. Næstum allir hers- höfðingjarnir sem tóku þátt í uppreisnartilrauninni hafi nýlega misst stöður sínar vegna kröfugerða Búddista og stúdenta. Fréttamenn í London telia þessa uppreisnartil- raun alvarlegt áfall fýrir tilburði Bandaríkjanna til þess að halda styrkri stjórn í landinu. Jafnframt er bent á að engin stjórn geti setið við núverandi. aðstæður í Suður- Víetnam án þess að Bandaríkin sprauti daglega hálfri ann- arri milión dollara inn í efnahagslíf landsins og herkostnað. Aðfaranótt sunnudags héldu hersvcitir og brynvarðir vagnar inn í Saigon og tóku hernaðar- Icga mikilvæga staði án nokk- urra blóðsúthellinga. Herforingjakiíka sú sem stóð að uppreisnartilrauninni voru flestir kaþólskir og margir hafa verið sviptir stöðum sínum ný- Iega. Foringi þeirra var Lam Van Phat hershöfðingi sem Khanh rak nýlega úr stöðu innanrfkis- ráðherra og sagði hann í út- varpsávarpi í Saigon á súnnu- dagsmorgun, að uppreisnin hefði verið gerð vegna almennrar óá- nægju með stefnu stjórnarinnar sérstaklega þó samvinnu hennar við Búddista. Lam Van Phat skýrði frá því að handtökutilskipun hefði ver- ið gefin út á Khanh því upp- uppreisnarmenn hefðu tekið völdin vegna þess að stjórn Khanh hefði stefnt öllu í voða og ástandið væri orðið, slíkt að landið hefði lent í höndum kommúnista innan nokkurra daga. Klianh tai&ði til þjóðafinnar í útvarp í Dalat og skoraði á hana að styðja sig og stjórn sína. Sérstaklega ávarpaði hann herinn og skírskotaði til heil- brigðrar skjmsemi og kvaðst treysta því að herinn stæði með honum. Herinn klofinn Það kom brátt í ljós að her- inn var klofinn í afstöðunni til uppreisnarmanna og var meiri- hluti flaighersins og sjóhersins á bandi lýhanh. Fulltrui uppreisnarmanna flaug á sunnudag til Dalat þar sem Khanh dvaldist til viðræðna við hann. Allt var með kyrrum kjörum í Saigon á súnnudag. en hers- höfðingjar hlynntir Khanh báru saman ráð sín og boðuðu blaða- mannafund á mánudagsmorgun. Ky styður Khanh Seint í gærkvöld kom Khanh hershöfðingi til Saigon og átti viðræður við hershöfðingja í höfuðstöðvum flughersins oghélt síðan aftur frá Saigon með Van Minh hershöfðingja. Yfirmaður flughersins Ky hershöfðingi varaði uppreisnar- menn við frekari aðgerðum og alla nóttina voru flugvélar á sveimi yfir Saigon og köstuðu Ijóssprengjum til að fylgjast með ferðum uppreisnarmanna. Ky sagði f útvarpsávarpi að menn sfnir væru með stjóminni og reiðubúnir að láta til sín taka. Um sama leyti gáfu leið- togar uppreisnarmanna, hluta af liðssveiium sínum skipun um að draga sig ti.1 baka úr höfuðborg- inni. Yfirmaður flughersins stjóm- aði öllum trj'ggum hersveitum í Saigon og snemma f dag var skýrt frá því í útvarpinu í Sai gon að hensveitir stjómarinnar hefðu öll ráð í landinu og hefðu þegar tekið útvarpsstöðina aftur ír höndum uppreisnarmanna. Uppreisninni gegn Khanh var síðan alveg lokið þegar yfirmað- ur uppreisnarmanna gekk f lið með þeim hershöfðingjum sem styðja Khanh og lýsti yfirstuðn- ingi sínum við ríkisstjómina. I yfirlýsingu sem var útvarpað snemma í dag í Saigon er sagt að vissir andbyltingarsinnaðir hershöfðingjar hefðu gert upp- reisn í þeim tilgangi einum að breiða yfir eigin mistök og hindra byltinguna og endurreisn lýðræðisins. Þessar aðgerðir þeirra, sem var stefnt gegn þjóð- inni og föðurlandinu yæru óaf- sakanlegar. Herinn hefur ákveðið að út- rýma þeim, sem hafa svívirt hann. segir í yfirlýsingunni. 1 Saigon er sagt frá því að þeir sem skrifuðu undir yfirlýs- inguna séu sömu hershöfðingj- amir sem útvarpið í Saigon sagði í gær, er það var í hönd- um uppreisnarmanna, að styddu uppreisnina. 1 dag kom Nguyen Khanh hershöfðingi aftur til Saigon og gegnir störfum forsætisráðherra áfram. Áður en hann kom til Saigon ræddi hann lengi við sendiherra Bandaríkjanna Max- well.Taylor og eftir komuna hélt hann fund með hóp yngri liðs- foringja. Gert er ráð fyrir að þeir hafi beðið hann að styrkja stjórnina og taka hart á uppistandi trú- flokka. Á blaðamannafundi i Saigon í dag hét Khanh hershöfðingi að l.iúka ætlunarverki sínu. Bandaríkjastjóm hefur lýst því yfir, að henni hafi létt mjög og sé ánægð með það að upp- reisnartilraunin í Saigon fór út um þúfur. Málgagn Kommúnistaflokks Norður-Vfetnam dagblaðið Nhan Dan sagði i dag. að leppstjóm Bandaríkjanna í Saigon leystist upp í endalausum óskapnaði og væri sunnudagsuppreisnin ekki sú síðasta sem gerð yrði. Vaxandi stríðsótti í höfuðborg Malasíu NEW YORK OG KUALA LUMPUR 14/9 — Malasíu-sam- bandið hefur kært Indónesíu fyrir ábirgðarlausar og heims- valdasinnaðar árásir á sam- bandsríkið og hélt því einnig fram á nýjum fundi Öryggis- ráðs SÞ í kvöld um Malasíu- deiluna. að fyrri miðvikudag hefðu Indónesar sett nýjar skæruliðasveitir á land á Malas- íuskaga. Innanríkis- og dómsmálaráð- herra Maralsíu Dato Ismail sem er fulltrúi ríkisins á fundinum gaf engar frekari upplýsingar um þessa skæruliða, en lagði á- herzlu á það. að fulltrúi Indó- nesa hefði opinberlega játað. að indónesískar sveitir hefðu verið settar á land í Suður-Malasíu. Hann sagði einnig að Malasíu- sambandið hefði engar árásará- ætlanir í huga þó það tryggði sér brezka hemaðaraðstoð. Á laugardaginn gerðu brezkar flugvélar hvað eftir annað árás- ir á indónesíska fallhlífaliða og stöðvar þeirra á Malakkaskaga BlaðafréHir í Bretlandi og Bandaríkjunum þess efnis, að Bretar hafi i hyggju að ráðast á indónesískar herstöðvar hafa enn aukið á spennu í Kuala, en þar er óttast að stríð brjótist út. Vamarmálaráðherra Malasíu Tum Abdul Razak ræddi þessar fréttir við yfirmenn brezka hers- ins í landinu á laugardagskvöld. Hann sagði að Malasía áskyldi sér rétt til þess að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að verja sig og stöðva árásaraðila, ef öryggisráðinu takizt ekki að stöðva innrás Indónesa. FERÐIZT MEÐ LANDSÝN • Seljum farseðla með flugvélum og skipum Greiðsluskilmálar Loftleiða: • FLOGIÐ STRAX - FARGJÁLD GREITT SÍÐAR • Skipuleggjum hópferðir og ein- staídingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN L/\ N □ SVM Ir TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÖC. UMBOÐ LOFTLEIÐA. Bifreiðar til sö/u Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla eru til sýnis og sölu Ford Station 1955, tveggja dyra, og Willys jeppi 1954. Upplýsingar á staðnum. Tilboð sendist Skúla Sveirissyni, varðstjóra, fyrir 20. þ.m. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 14. september 1964. CONSUL CORTiNA bllalelga magnúsat* skipholti 21 símar: 21190-21185 eflaukur ^u&mundóóOK \ HEIMASÍMI 21037 Skrifstofur vorar % verða lokaðar í dag frá kl. 12 til kl. 15.30. H/F EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. SKRIFSTOFUSTÚLKA óskast til ýmissa starfa, þar með vélritunar. Skipaútgerð ríkisins. Vegna jarðarfarar forse’tafrúar Dóru Þór- hallsdóttur verður skrifstofum vorum og fyrirtækjum í Reykjavík lokað í dag kl. 13 til 15.30. SAMBAND ÍSLENZKRA SAM- VINNUFÉLAGA. Vegna útfarar forsetafrúarinnar verða bankarnir lokaðir frá kl. 12 á há- degi, þriðjudaginn 15. september. SEÐLABANKI ÍSLANDS LANDSBANKI ÍSLANDS BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS h/f VERZLUNARBANKI fSLANDS h/f SAMVINNUBANKI ÍSLANDS h/f t .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.