Þjóðviljinn - 22.09.1964, Side 3
Þriðjudagur 22. september 1964
ÞTðÐVHIINN
SlÐA 3
Mikill sigur kommúnista í
sænsku þingkosningunum
— jók atkvæðamagn sitt um 30 þúsund
STOKKHÓLMI 21/9 — Það er nú ljóst orðið, að
Kommúnistaflokkur Svíþjóðar hefur unnið mik-
inn sigur í þingkosningunum, sem fram fóru í
gær. Flokkurinn hefur aukið um 30 þúsund at-
kvæðum við fylgi sitt og fær nú að öílum líkind-
um átta þingmenn í stað fimm áður. Allir flokk-
ar aðrir tapa atkvæðum vegna minnkajndi kosn-
ingaþátttöku, og er langmest fylgistapið hjá Hægri
'flokknum. Sósíaldemókratar tapa nokkru at-
kvæðamagni en halda þó stöðu sinni.
Ekki er enn lokið talningu ut-
ankjörstaðaatkvæða þegar síð-
ast fréttist. Norska fréttastofan
NTB telur þó, að sú talning sé
ekki líkleg til þess að breyta
þeirri niðurstöðu, sem nú sé
fengin, kommúnistar muni enn
sem fyrr verða í úrslitaaðstöðu
í neðri deild þingsins. Telur
fréttastofan, að líklegast sé að
þingsæti skiptist þannig í deild-
inni, að Sósíaldemókratar fái
114, borgaraflokkamir 113 en
kommúnistar fimm.
Straumur til vinstri
Þetta hefur það í för með sér,
að Sósíaldemókratar fara enn
með stjórn í Svíþjóð um fjög-
urra ára skeið. Stjómmálafrétta-
ritarar í Stokkhólmi ræða það
nú mjög, að þessi kosningaúr-
slit kunni að auka áhrif komm-
únista á stjórnarstefnu Sósíal-
demókrata, enda séu kosningarn-
ar greinilegur vottur um vinstri'
straum í sænskum stjórnmál-
um. Kosningar fara fram í Dan-
mörku á þriðjudag og velta
fréttaritarar því einnig fyrir sér,
hvaða afleiðingar þetta sænska
fordæmi kunni að hafa. Þrátt
fyrir nokkuð minnkandi at-
kvæðamagn, héldu Sósíaldemó-
kratar þó greinilega velli, og
forystumenn danskra flokks-
bræðra þeirra benda löndum sín-
um að sjá til þess að hið sama
gerist í Danmörku. Hinsvegar
hafa nokkrir forystumenn borg-
araflokkanna lýst áhyggjum
sínum yfir því, að gengi þeirra
kunni að vera minnkandi á
Norðurlöndum.
Ný kynslóð
Þá leiða sænsk borgarablöð
ýmsum getum að því, hver sé
orsök þessa sigurs kommúnista,
en þetta er fyrsti ko:sningasigur
flokksins í nær tuttugu ár. Er
hinum nýja formanni flokksins,
Carl Hermannsson, mjög þakk-
að eða kennt, hvernig farið hafi,
hann hafi lagt áherzlu á sjálf-
stæði flokksins og fylgt frjáls-
legri stefnu en fyrirrennari hans,
Hilding Hagberg. Þá er þess og
getið, að yngri kynslóðin sé nú
að taka við í flokknum og fyrir
hans hönd hafi komið fram í
sjónvarps- og útvarpsumræðum
ungir, þjálfaðir menn, sem gert
hafi stóraukna dýrtíð í Svíþjóð
að helzta kosningamáli flokks-
ins.
Engin nafnbreyting
Aðspurður eftir kosningarnar
kvað Carl Hermannsson ekki
mikinn mun vera á sænska
kommúnistaflokknum og Sosial-
istisk Folkeparti í Noregi og
Danmörku. Hann neitaði því ein-
dregið, að flokkurinn hyggðist
breyta um nafn og bætti við: Ég
held ekki að kjósendur gerist
okkur fráhverfir vegna orðsins
kommúnismi. Hann kvað ann-
ars flokkinn mundu reyna að
beina sænskum stjórnmálum
meir til vinstri en verið hefði,
og kvað vonast til þess að
sænska stjómin drægi nokkra
lærdóma af úrslitum kosning-
anna. Nauðsynleg væri harðari
stefna í skatta- og dýrtíðarmál-
um.
Vonbrigði Sósíaldemókrata
Tage Erlander, forsætisráð-
herra, reyndi ekki að leyna von-
Upplausnin í Suður-Víetnam
vaxandi með degi hverjum
SAIGON 21/9 — Ringulreiðin og upplausnin í
Suður-Víetnam eykst nú að sögn fréttamanna með
degi hverjum. Saigon, höfuðborg landsins, var all-
an mánudaginn sem lömuð af verkfalli um 60 þús.
verkamanna, sem mótmæltu herlögum stjórnar-
innar, en samkvæmt þeim eru verkföll bönnuð
með öllu. Á mánudagskvöld var svo verkfallinu
aflétt, eftir að mörg þúsund verkamenn höfðu
gengið gegnum götur Saigon og fulltrúar þeirra
átt viðræður við Khanh forsætisráðherra. Ekki er
vitað, að hvaða niðurstöðu verkfallsmenn og
Khanh komust áður en verkfallinu var hætt.
Hvaðanæva úr landinu berast
ella fregnir af upplausn og ring-
ulreið. Á sunnudag gerðu her-
xnenn. sem eru af fjallaættflokk
einum, innrás í bæ nokkum ca.
250 km norðaustur af Saigon og
tóku útvarpsstöðina þar á sitt
vald, Þeir voru þó taldir á að
hverfa á brott. Kynflokkur þessi
er gjörólíkur öðrum íbúum Suð-
ur-Víetnam og hefur á þeim
sterka andúð.
Tveir pilíer
Framhald af 1. síðu.
I gær var einnig lýst eftir
öðrum 13 ára dreng, er farið
hafði í leitir á Mosfellsheiði.
Varð, hann viðskila við sam-
ferðamenn sína og er hann kom j
ekki til baka á tilteknum tíma,
var þegar í stað hafin leit að
honum.
Hjálparsveit skáta lagði af
stað kl. 8 frá Reykjavík en kl.
9 var tilkynnt að pilturinn væri
kominn fram á Þingvöllum. En
það fylgdi einnig fregninni. að
pilturinn hefði snúið aftur á
heðinni og hyggðist halda heim
á leið. Þegar síðast fréttist í
gærkvöld var hjálparsveitin far-
in til móts við piltnn.
Fjallabúar krefjast sjálfstæðis
I fréttum NTB segir, að her-
menn þessir hafi borið rauðan
fána með þrem gulum stjömum,
en það er fáni sjálfstæðishreyf-
ingar kynflokksins. Fjallaher-
menn þessir hafi verið þjálfaöir
af Bandaríkjamönnum til bar-
áttu gegn skæruliðum Víetkong
og hafi farið vel á með þeim.
Undanfarið hafi hinsvegar frétt-
ir borizt af því, að kommúnistar
reyni að vinna gegn þessu starfi
Bandaríkjamanna og meðal ann-
ars með þvi að færa sér í nyt
ýmigust fjallabúanna á yfirvöld-
unum í Saigon.
Stjórnarsigur
Af stríðinu í Suður-Víetnam
er annars það helzt að frétta, að
stjómarherinn kveðst hafa unn-
ið nokkum sigur á skæruliðum
Víetkong. Á þetta að hafa átt
sér stað um helgina og hafi tvö
herfylki skæruliða verið hrakin
á flótta. Segir stjómarherinn,
að til herfylkjanna hafi sézt er
þau héldu yfir landamæri Norð-
ur og Suður-Víetnam. Þar hafi
þau verið leidd í gildm með
þeim afleiðingum, að 64 skæru-
liðar hafi fallið, en 13 verið
teknir til fanga. Talsmenn Sai-
gonstjórnarinnar segja auk þess,
að fréttir af orustunni bendi til
þess. að hér hafi verið að verki
menn frá Norður-Víetnam.
Hernaðaryfirvöld í Saigon leggja
áherzlu á það, að mjög hafi auk-
izt í síðustu viku hemaðarað-
gerðir skæmliða. Þá viku hafi
236 manns fallið af stjómar-
hemum en 270 af skæruliðum.
Stúdentauppreisn
Þá em stúdentar í Suður-Víet-
nam ekki af baki dottnir. 1
bænum Qui Nhon í miðhluta
landsins hafa þeir tekið völd,
lagt hald á útvarpsstöðina og
hafið útvarpssendingar. Munu
stúdentar krefjast þess, að kom-
ið verði á fót í hverju fylki
svokölluðum þjóðnefndum til
björgunar landinu. Þá segia síð-
ari fréttir, að fjallakynflokkur
sá. sem áðu- er getið, hafi tekið
af lífi 31 mann frá Suður-Víet-
nam, og hálshöggvið suma
þeirra. Þetta hefur þó ekki feng-
ið staðfestingu hemaðaryfirvalda
í landinu. Alls mun það vera
um ein miljón manns, sem
krefst sjálfstjómar í fjallahémð-
um Suður-Víetnam.
Ekkert nýtt um Tonkin-málið
Frá Washington berast þser
fréttir, að Johnson forseti hafi
á fundi með fréttamönnurn á
mánudag sagzt hafa forðazt óyf-
irvegaðar aðgerðir f sambandi
við atburði þá, sem eiga að hafa
átt sér stað á Tonkinflóa síðast-
liðinn föstudag. Hann kvaðst
ekkert geta fremur um málið
sagt en það. sem komið hefði
fram í yfirlýsingum bandarískra
stjórnarvalda. Ennfremur lagði
hann áherzlu á það, að þetta
hefði átt sér stað í myrkri og
undir slíkum kringumstæðum
yrðu Bandaríkjastjóm að rann-
saka málið vandlega áður en
gripið væri til aðgerða, sem haft
gætu hinar alvarlegustu afleið-
ingar.
Fyrír góða frammistöðu
Guðmunda Sumarliðadóttir afhendir Hafsteini Guðmundssyni.
formanni fþróttabandalags Keflavíkur, 5 þús. kr. ávísun að gjöf
frá henni og manni hennar Gunnlaugi Karlssyni skipstjóra. Sögðu
þau að gjöf þessi væri smá þakklætisvottur til styrktar knatt-
spyrnuflokknum sem unnið hefði byggðarlagi sínu mikinn sóma
með frammistöðu sinni í sumar. __ (Ljósm. Bj. Bj.).
------------------------------^
brf^um sfnum yör þvf að Sðs-
íaldemókratar skyldu ekki viima
á við kosningarnar, en úrslit
sveitastjómarkosninga í landinu
fjrrir tveim árum vöktu þeim
vonir í þá átt. Hann kyaðst
fagna því,. að tekizt hefði að
stöðva baráttu hægrimanna gegn
alm. eftirlaunum. Kommúnistum
kvað hann hafa tekizt að efna
til klofnings með áðurgreindum
árangri.
— og Hægriflokksins
Hægri flokkurinn tapaði mest
í kosningunum, en Fólkaflokkur-
inn hefur styrkt aðstöðu sína
sem stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn. Gunnar Heckscher,
foringi hægrimanna. sagði eftir
kosningarnar, að það bæri að
harma að Sósíaldemókratar
fengju nú tækfæri til þess að
halda áfram þjóðnýtingu, sem
þeir smygluðu inn á fólkið með
gjöldum til almennra eftirlauna.
Einnig harmaði hann það, að
Kristilegi * Lýðræðisflokkurinn
hefð dregið atkvæði frá borg-
araflokkunum og að kjósendur
gleymdu því. að kommúnistar
væru enginn lýðræðisflokkur.
Atkvæðatölurnar
Atkvæðatölur, þær sem kunn-
ar voru áður en utankjörstaðar-
atkvæði voru talin, eru sem hér
segir og eru tölumar síðustu
kosninga innan sviga: Sósíal-
demókratar 1.953.844 (1.969.781),
Fólkaflokkurinn 682.346 700.329).
Miðflokkurinn 558.933 (567.761).
Hægriflokkurinn 535.137 (639.103)
Kommúnistar 217.336 (187.128).
Þingsæti í neðri deild þingsins
skiptast þannig samkvæmt þess-
um úrsltum: Sósialdemókratar
117 (114), Fólkaflokkurinn 40
(40), Miðflokkurinn 37 (34),
Hægriflokkurinn 28 (39) og
Kommúnistaflokkurinn 8 (5).
Eitt vanda-
mál á vikul
WASHINGTON 21/9 — Barry
Goldwater, öldungadeildarþing-
maður, sakaði í gær Lyndon B.
Johnson forseta um utanríkis-
stefnu, sem virtist hafa þá eina
meginreglu að flækjast inn í
eitt vandamál á viku!
Leikurinn milli Keflvíkinga
og KR sl. sunnudag var vart
lokið er keflvísku knatt-
spymumönnunum barst fyrsta
skeytið þar sem þeim var
óskað til hamingju með sig-
urinn í Islandsmótinu. Það
voru félagar þeirra knatt-
spymumennimir af Akranesi
sem sendu þetta fyrsta skeyti
en mörg áttu eftir að fylgja
úr öllum áttum. Mikill fjöldi
skeyta barst frá áhöfnum
sfldveiðibáta úr Keflavík sem
staddir voru fyrir austan
land.
Flugvélar í hrakningum
Framhald af 12. síðu.
vildi það honum til happs, að
honum tókst að miða upp radíó-
merki frá Bushmill stöðinni í
Norður írlandi. Vélin hafði þá
verið rúmar 15 klukkustundir á
lofti. Hann lagði aftur upp ó-
trauður á vél sinni í gærmorg-
un og ættaði að fljúga í einum
áfanga til Toulouse í Suður
Frakklandi.
Önnur flugivélin nauðlenti á
hafinu suður af Grindavík kl.
15.54 á sunnudag. Var benzín-
forðinn búinn og hafði þá vélin
verið á lofti rúmar tuttugu klst.
Þar var kominn bandaríski flug-
maðurinn Moody og var honum
bjargað skömmu síðar úr gúmmí-
björgunarbát á reki frá flugvél-
inni af helikopter björgunarvél
af Keflavíkurflugvelli.
Liggur hann á sjúkrahúsi á
Velíinum eftir volkið. Síldveiði-
skipið Ögri fann flugvélina
mannlausa á reki og innbirti
hana og kom með hana til
Feykiavíkur á þriðja tímanum
á mánudagsnótt. Er á öðrum stað
í blaðinu lýst aðkomunni og
björguninni.
Til þriðju flugvélarinnar hef-
ur ekkert spurzt og var síðast
haft samband við hana í skýja-
þykkni skammt undan Ný-
fundnalandi.
í fyrradag var gerð víðtæk
leit að þessari flugvél og einnig
í gærdag af flugvélum frá Ný-
fundnalandi á stóru svæði á haf-
inu frá Nýfundnalandi til Græn-
lands og norður yfir Grænlands-
jökuL
Flugmaðurinn um borð í þess-
ari flugvél er Bandaríkjamaður
að nafni WalL
Kosta tæpa miljón kr.
Flugvélategundin Mooney
Mark 21 eru vinsælustu einka-
flugvélar á markaði í Banda-
ríikjunum í dag og eru óðum að
vinra markaði í Evrópu sem
hentugar vélar fyrir bissness-
menn.
Þær eru smíðaðar í bænum
Kerville í Texas og er fram-
leiðslan um 700 stk. á ári. Þær
eru með 200 hestafla mótor og
fljú ;a með 300 km. hraða á
klukkustund. Stykkið mun kosta
í kringum 20 húsund dollara eða
um 900 þúsund Henzkar krónur.
Umræddar flugvélar höfðu
verið seldar til Evrópu og var
ætlunin að fljúga þeim til kaup-
enda þar. Ein flugvélin átti að
fara til Frakklands og stýrði
henni söluumboðsmaður Mooney
í Frakklandi.
: Það er Jean Paul' Weíss. Önrí-
úr flugvélin hafði verið seld
til Þýzkalands og hafði einkenn-
isstafina D - ENHI. Það var sú
sem nauðlenti á hafinu hjá
Grindavik. Týnda flugvélin hafði
verið seld til Finnlands og hafði
einkennisstafina O - HMOC.
Flugmennirnir voru ekki kunn-
ugir hver öðrum, en töldu ör-
yggi í þvi að fljúga saman yfir
hafið. Þeir lögðu af stað frá
Boston snemma á laugardags-
morgun og lentu eftir fimm
stunda flug á St. Pierre.
Missa sambandið við
þá finnsku
Flugvöllurinn á St. Pierre er
þekktur að því að legjga ekki
neinar hömlur á flug smávéla
yfir Attantshafið og er mikið
notaður af þeim sökum, þar sem
kanadiskir flugvellir banna yfir-
leitt litlum flugvélum að leggja
út á hafið, ekki sízt á þessum
árstíma.
Þær lögðu samtímis upn og
flugu oddaflug og höfðu fyrir-
mæli um að setja sig í samband
við flugstöðina á Gander og
beiðast þar leyfis um að fljúga
áfram. Þegar þær flugu yfir
Gander höfðu þær samband við
flugstöðina, en báðu ekki um
flugleyfið.
Þær fengu fyrirmæli um að
halda sig fyrir neðan 5500 m
hæð, en það er fyrir neðan
stj órnsvæði flugumferðastj órnar.
Þegar þeir eru komnir um
300 mílum frá Gander út á haf-
inu lentu þeir í skýjaþykkni
með ísingu og urðu þá viðskila
við finnsku flugvélina. Þeir voru
þá í 3500 metra hæð. Þeir gerðu
tilraun til þess að hafa samband
við vélina og hafa þessar vélar
tvöföld radíósett. Þótti þeim
undarlegt að ná ekki slíku sam-
bandi við vélina.
Telja þeir að radíósettið hafi
þá þegar verið bilað í vélinni.
Þeir gáfu sér ekki tíma til
að skyggnast um eftir vélinni,
því að ekki er um annað að
ræða en halda áfram á svo litt-
um vélum.
Missir samband við
þá þýzku
Þeir héldu áfram og flugu yf-
ir veðurskipið Alfa, sem er á
miðju Davissundi og áfram norð-
ur undir Hvarf á Grænlandi.
Þar missir svo franski flug-
maðurinn samband við Banda-
ríkjamanninn á þýzku vélinni.
Var það vegna radíótruflana
sem stöfuðu af segulstormum.
Einnig verkuðu ekki radíókomp-
ásar vegna útvarpstruflana.
Frakkanum tókst þannig ekki að
notast við miðunarstöðvarnar á
Grænlandi, en þá varð það hon-
um til happs að ná miðun við
radíóvita í Bushmills í Norður
írlandi á bylgjulengd, sem ekki
var trufluð. Bandarísku flug-
mennirnir virðast ekki hafa ver-
ið eins heppnir og lentu þar af
leiðandi í villum.
Reykjavík nær sam-
bandi við þá þýzku
Á sunnudag kl. 14.15 náði flug-
umferðarstjórnin í Reykjavík
radíósambandi við þýzku vélina.
Kvaðst hann þá vera £ 2500 feta
hæð og stefna í norðaustur. Um
staðsetningu vissi hann ekkert.
Flugumferðarstjórnin ráðlagði
honum þá að hafa samband við
hátíðni radíóvitann á Keflavík-
urflugvelli. Skömmu síðar hafði
hann miðað sig inn á þennan
vita og gat þá loksins upplýst,
að hann væri á línu 135 gráður
frá radíóvitanum. Þarna var
fundinn fastur púnktur í stað-
setningu hans. Hann var ein-
hversstaðar á þessari línu, en
um fjarlægð var ekki vitað.
Orustuþota af Keflavíkurflug-
velli lagði nú upp og einnig
hljóðhraðavél -i gerðinni Delta
Dagger og fylgdu tilgreindum
geisla í von um að finna hina
týndu vél. Á eftir fylgdi björg-
unarvélin.
Fannst nú þýzka vélin og var
nú komin að þrotum vegna ben-
zínskorts og horfðu flugvélarnar
á vélina lenda í sjónum.
Mikil fífldirfska þykir vera
á bak við þetta fluf* á litlum
vélum yfir Atlantshafið á þess-
um árstíma.
t
*
\
4