Þjóðviljinn - 22.09.1964, Síða 5

Þjóðviljinn - 22.09.1964, Síða 5
Þriðjudagur 22. &c<atenaft«ni 1964 --------------------—--------------------------- — -------------------------------------- ÞJÖÐVILJINN SÍSA 5 Keflvíkingum reyndist ekki þung þraut að ná því eina stigi sem á vantaði til að íslandsmeistaratignin félli í þeirra.hlut en ekki KR að þessu sinni. Keflvíkingar eru vel að sigri komnir í mótinu, og verður bikarinn vafalaust torsóttur í hendur þeirra aftur, því að liðið er ungt og á framtíðina fyrir sér. Þá nýtur það stuðnings og hvatningar allra bæjarbúa sem eru að vonum stoltir af frammistöðu piltanna — Þetta er styrkur sem Reyk'ja-^ víkurfélögi^i fara ævinlega á mis við en er ótrúlega mikils virði hverju liði, eflir samheldnina og eykur bar- áttugleðina. Þetta er önnur íslandsmeistaratignin sem Keflvíkingar vinna í ár, en eins og menn muna varð ungur Keflvíkingur íslandsmeistari í skák fyrr á þessu ári. Jóhannsson gat ekki verið með vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Val um dag- inn. Framlínan lék of þröngt og einhliða, t.d. var hægri út- herji altof lítið með í leiknum og of sjaldan að nann fékk boltann. í lið KR vantaði Gunnar Guðmannsson og sást það bezt í þessum leik ^að þá vantar liðið mikið. KR-ingar sóttu sig nokkuð er á leikinn leið en vantaði samt þann kraft sem maður hefði búizt við að sjá Framhal’d á 8. síðu. Óli B. og Iæknirinn stumra yfir Rúnari sem meidðist á íaeti í leiknum. — (Ljósm. Bj. Bjk Mikill mannfjöldi lagði leið sína á knattspyrnuvöllinn til að sjá þennan úrslitaleik í ís- landsmótinu, og mun yfir 4 þús manns hafa verið þar sam- an kominn, meiri mannfjöldi en nokkru sinni hefur sést þar áður og aldrei fyrr hefur um- ferðarlögreglan þar haft svo miklu að sinná, því að bílaum- ferð var geysileg. Annars er tæplega hægt að nefna þennan leik úrslitaleik, til þess voru KR-ingar of von- lausir um sigur, og var leik- urinn því heldur daufur og lít- ið skemmtilegur. Það var ekki fyrr en rétt síðast í leiknum að KR-ingar virtust átta sig á því að þeir yrðu að sigra í þessum leik til að hafa von um að halda titlinum. Heldur erfitt er að lýsa leiknum svo að gagn sé að, kemur þar tvennt til: leikurinn gaf heldur fá tilefni til frá- sagnar og svo hinsvegar að íþróttafréttariturum er engin aðstaða búin við völlinn, svo að í slikum mannfjölda vilja höfuðin skyggja á og ekki er gott að treysta á að geta not- að axlir áhorfenda sem skrif- borð til að punkta niður. Þessu verður að kippa i lag fyrir næsta sumar, því að búast má við að þá verði margt þar suð- urfrá um stórleiki. Keflvíkingar byrjuðu vel og áttu meir í leiknum í fyrri hálfleik, áttu þeir margar snarpar sóknarlotur en herzlu- mnninn vantaðli, hefur þar kannski munað miklu að Jón Þróttur tapaði fyrir Fram og fellur niður í 2. deild | | Á laugardagskvöldið fór fram úrslitaleikur um það hvaða lið félli niður í aðra deild að þessu sinni. Þróttur vann sem kunnugt er Fram um fyrri helgi og urðu lið- in að leika aftur. Var mikil eftirvænting um það hvem- ig leikar mundu fara, og almennt munu menn hafa ver- ið mjög óráðnir um spár sínar fyrir leikinn. Ef til vilt mundi heppni ráða hvor bæri sigur af hólmi. Tækist Þrótti vel upp í byrjun hefðu þeir meiri möguleika, en ef svo færi að á móti blési fyrir þeim í upphafi mundi Fram sigurstranglegra. Þetta fór nokkuð eftir. Þróttur tapaði hlutkestinum DmsskéH Hermanns Ragnars Kennsla hefst 5. október n,k. KENNT VERÐUR: Barnadansar fyrir byrjendur og framhald. Nýir og gamlir samkvæmisdansar. Hinir tíu dansar sem eru í hinu vinsæla Heimskerfi. Upplýsingarit liggur frammi í bókabúðum. Innritun daglega frá kl. 9—12 og 1—6 í síma 33222 og 38324. ATH: Sama gjaldskrá og var síðastliðinn vetur. og lék Fram undan norðan- stinningskalda í fyrri hálfleik, og eftir 8 mínútur fékk Þrótt- ur á sig fyrsta markið sem var heldur „ódýrt“. Þórður virtist ekki vel fyrir kallaður og missir knött til Ásgeirs sem stendur fyrir opnu ma-rki og skorar óverjandi. Með þessu voru í rauninni örlög Þróttar ráðin. Með vindinn í bakið hafði Fram ailt frá byrjun haldið uppi sókn á hendur Þrótti, sem þeim tókst aldrei veru- lega að hrista af sér. öftustu vöm Þrótt-ar tókst aldrei að ná taki á sóknarmönnum'Fram. og hvað eftir annað var sem hún ©pnaðist óeðliiega, þanmg að Framarar gátu lifað og leik- ið sér um hættusvæði Þrótt- ar. Sóknarlotur Framara hornu oft skyndilega, og með all- góðum hraða, en sérst-aklega framverðir Þróttar voru ekki nógu fljóti-r að koiaa öftustu vörninni til aðsteðar. Það var eins og allur leikur Þróttar væri lausari í reipum en vana- lega, og Framarar notuðu sér það fyTlilega og réðu mestu um gang leiksins. Á 20. mín. verja Þróttarar tvisvar á línu, og tveim mín- útum síðar kemur svo annað mark Fram. Baldur Scheving sendir vel fyrir til Helga Númasonar sem óhindraður getur athaínað sig og sneitt knöttinn í markið af stuttu færi, mjög laglega. Aðeins 3 mín. síðar gera Framarar skyndiáhlaup þar sem knött- urinn gengur milli fjögra manna. en Helgi Númason endar moð þrumuskoti sem Þórður fær ekkert ráðið við. Þarna virtist vöm Þróttar helöur stöð. Þrótti tókst aldrei að ógna marki Fram að neinu ráði all- an fyrri háifleik og það var óheppni að Fram skyldi ekki skora fleiri. Þannig varði Jón Björgvinsson á línu, og þegar 5 mín. voru eftir var Holgl Númason fyrir opnu marki en skotið fór fyrir ofan. Þróttur skorar I síðari hálfleik þegar Þrótt- ur hafði vindinn í bakið héldu þeir «ppi allmilsla sókn, ®g á 8. mínútu tekst þeim að skora, var það Jens Karlsson sem það gerði, eftir að knötturinn hafði gengið á miJii fjögra Þróttara moð hraöa, <sg var að- dragandinn að morki þessu molíkuð skemnj'tilegur, þannig leikur Ölafur Bi-ynjólfsson það að hoppa yfir knöttinn sem síðan hélt áfram til Jens. Á 23. mínúutu á Axei mjög gott skot en það fór aðeins framhíá. Þó Þróttarar héldu uppi sókn. svöruðu Framarar við og við með áhlaupum og á 25. mín. einleikur Baldur Schev- ing fram hægra megin nokk- uð inn á velli, Grétar fer nú og fser knöttinn upp að enda- mörkum, sendir hann fyrir til Guðjóns sem skallar innaná stöngina og skorar fjórða markið. Eftir það færðist nokk- ur deyfð yfir leikinn. Þrótt- arar eiga nokkuð góð skot, en þau hittu íæst á markið, og þeim tókst efcki að sameinast um virkan leik sem gat ógn- að Fram. Nokkru fyrir leikslok komst Helgi Númason inn fyrir, en Þórður kemur út og reynir að ioka, og skotið fer í stðng og út á völlinn aftur og mæt- ir Þórði á leið sinni í markið. Þar við sat. Fram vann verð- skuldaðan sigur. Fram tókst þó ekki að sýna neitt sérstakt, og munar ef til vill mestu að Þróttur lék langt undir því sem þeir geta og hafa gert í leikjum sínum undanfarið. Baráttuvilji var í liðinu, og fyrir brá snotrum samieik. Vömin var nokkuð þétt með Sigurð Friðriksson sem bezta mann. I framlínunni voru beztir þeir innherjamir Guðjón Jónsson og Helgi Nómason. Þróttarliðið hefur ekki enn öðlazt það öryggi í erfiðum st«ndum, sem er nauðsynlegt hverju liði sem ætlar sér að dvelja í fyrstu deild. Það tek- ur oft langan tíma, og krefst mikúlar alvöru af þeim sem skipa liðið hverju sinni. St-und- um finnst manni eins og þessa alvöru vanti, jafnvel þegar hennar er mest þörf. Þrótti tókst ekki að sam- einast um þetta alvarlega verk- efni að berjast um það að halda sér i fyrstu deildinni. Þeim tókst ekki að fá fram það sem liðið getur, og þó er mun- ur liðanna Fram og Þróttar þegar báðir ná sínu bezta lít- ill eða enginn. Þeir sem sluppu einna bezt í liði Þróttar voru Axel, Ómar og Jón Björgvins- son. Dómari var Haukur Óskars- son. Áhorfendur voru margir. — Frímann. ísiandsmeistarar ÍBK 1964 — eftir röð talij frá vinstri: Geirmundur Kristinsson, Gísli Ellerup, Hólmhert Friðjónsson, Sistirður AI- bertsson, Grétar Magnússon, Einar Magnússon, Magnús Torfason, Jón Ólafur Jónsson, Magnús Hara.iidsson og öli B. Jónsson þjálfari liðsins. Neðri röð talið frá vinstri: Rúnar Júlíusson, Karl Hermannsson, Gottskálk Ólafsson, Kjartan Sigtryggsson, Ólafur Marteinsson, Jón Jóhannesson og Högni Gunnlaugsson fyrirliði. — (Ljósm. Bj. Bj.). Keflvíkingar urðu Is- landsmeistarar 1964

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.