Þjóðviljinn - 22.09.1964, Side 12
KOSNINGARNAR TIL ALÞÝÐUSAMBANDSÞINGS:
Sjálfkjörið í Iðju á Akureyri —
Sékn kaus fulltrúa sína á fundi
D Á laugardag og sunnudag voru kjörnir fulltrúar til
Alþýðusambandsþings í fimm verkalýðsfélögum: Starfs-
stúlknafélaginu Sókn, Reykjavik; Iðju, félagi verksmiðju-
fólks á Akureyri; Verkalýðsfélaginu Bjarma á Stokkseyri;
Verkalýðsfélagi Húsavíkur og Verkalýðsfélagi Patreksfjarð-
ar. Sjálfkjörið var í Iðju, Bjarma og Verkalýðsfélagi Húsa-
•víkur en í hinum tveim félögunum fór kósning fram á
fundum í félögunum.
Sókn
Starfstúlknafclagið Sókn kaus
fulltrúa á Alþýðusambandsþing
á fundi í fyrrakvöld, og voru
þessir kjömir, samkvæmt tillögu
stjórnar og trúnaðarmannaráðs
félagsins.
Margrét Auðunsdóttir, Hclga
Þorgcirsdóttir, Sigriður Friðriks-
dóttir, Björg Jóhannsdóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir, Ragna
Stefánsdóttir, Viktoría Guð-
mundsdóttir, Inga Thorarcnsen,
Ása Björnsdóttir.
Varafuiltrúar: Soffía Jónsdótt-
ir, Kristín Sigurðardóttir, Jón-
ína Magnúsdóttir, Lovísa Lofts-
dóttir, Sigurveig Pálsdóttir, Þór-
unn Guðmundsdóttir, Kristín
Sigurðardóttir, Hólmfríður Jó-
hannsdóttir og Ingunn Ölafs-
dóttir.
Iðja
Kl. 6 síðdegis á laugardag
rann út frestur til þess að skila
framboðslistum til fulltrúakjðrs
á Alþýðusambandsþing í Iðju,
félagi verksmiðjufólks á Akur-
eyri. Aðeins einn listi barst, bor-
inn fram af stjórn og trúnaðar-
ráði félagsins og varð hann því
sjálfkjörinn.
Aðalfulltrúar Iðju á ATþýðU'
sambandsþing verða þessir
menn:
Jón Ingimarsson, Hallgrímur
Jónsson, Þorbjörg Brynjólfsdótt-
ir, Guðmundur Hjaltason, Sig-
urður Karlsson, Gestur Jóhann-
esson, Kjartan Sumarliðason og
Hreiðar Pálsson.
Varamenn: Helgi Haraldsson,
Páll Ólafsson, Jósteinn Broddi
Helgason, Friðþjófur Guðlaugs-
son, Hjörleifur Hafliðason, Ad-
am Ingólfsson, Skúli Sigurgeirs-
son og Ámi Ingólfsson.
Vlf. Húsavíkur
Ilúsavík 21/9 — Sjálfkjörið
varð í Verkalýðsfélagi Húsavíll-
ur til 29. þings Alþýðusambands
Islands. Listi stjórnar og trún-
aðarráðs verkalýðsfélagsins var
þannig skipaður. Aðalmenn:
Sveinn Júlíusson, Guðrún Sig-
fúsdóttir, Gunnar Jónsson og
Arnór Kristjánsson. Varamenn:
Ólafur Aðalsteinsson, Lára Sig-
urðardóttir, Jónas Benediktsson
og Magnús Andrésson. — A.K.
Vlf. Patreksfjarðar
Verkalýðsfélag Patreksfjarðar
kaus fulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing á sunnudaginn. Kosið
var á fundi og hlutu þessir
kosningu:
Bjarni Hermann Finnbogason,
Framhald á 8. síðu.
DIOBVH
iÞriðjudagur 22. september — 1964 — 29. árgangur — 214. tölublað.
Kvenfélag sósíalista
Fyrsti fundur vetrarins verður að Tjamargötu 20,
miðvíkudagirm 23. sepéember og hefst kl. 20,30.
D A G S K R Á :
L Fulltrúar félagsins á kvexmaráðstefnu Eystra-
saltsvikunnar á sL sumri, Guðrun Gísladóttir og
Sígríður Ólafsdóttír, skýra frá starfi ráðstefn-
unnar.
2. Margrét Sigurðardóttir segir frá starfsemi dag-
heimilis vangefinna að Lyngási.
3. Vetrarstarfið.
4. Kaffidrykkja.
Stjórnin .
Sjálfstæði fagnað:
MIKLAR RÓSTUR
Á MÖLTU í GÆR
VALETTA 21/9 — Á miðnætti
hlaut eyjan Malta sjálfstæði sitt
og var mikið um dýrðir í höf-
uðborginni, er enski fáninn var
dreginn niður en hinn rauðhvíti
fáni eyjarinnar blakti við hún.
Filipus hertogi af Edinborg var
Ögri kcihur tii ReýkjaVikur með flugvélina á þilfari.
Þrjá einshreyfilsvélar á hrakningum:
Eln náði til Rvíkur, önnur
nauðlenti, sú þriðja týnd
Það mun ekki hafa gerzt áður að íslenzkur fiski-
bátur hafi komið að landi með flugvél á þilfari,
sem hann hafði fiskað upp úr sjónum á heimleið
frá síldveiðum. En þetta gerðist í fyrrinótt þegar
Ögri lagði að bryggju 1 Reykjavík.
★1 Snemma á sunnudagsmorgun
var þriggja einshrcyfils flugvéla
af gerðinni Mooney Mark saknað
á flugi einhverssaðar yfir Atl-
antshafi og var þá iýst yfir
neyðarástandi á svæðinu frá Ný-
fundnalandi til íslands af við-
komandi í'lugumferðastjórnum.
^ri Fjöldi leitarflugvéla beggja
megin hafsins hófu sig á Ioft til
/eitar a'ð hinum týndu flugvél
um. Afdrif vélanna urðu þau, a‘ð
ein lenti á Reykjavíkurflugvelli,
önnur nau'ðlcnti á liafinu þrjátíu
og fjórum sjómílun, suður af
Grindavík.
* Af þriðju vélinni hafa engar
fréttir horizt og hefur hún senni-
lega farizt. Einn bandarískur
flugmaður var þar um borð.
Þrjár einshreyfils flugvélar af
Mooney Marlc gerð lögðu upp
á laugardag frá flugvelli á eyj-
unni St. Pierre við Nýfundna-
land og ætluðu að fljúga hóp-
flug yfir Atlantshafið með við-
komu á Reykj avíkurflugvelli.
Einn flugmaður var í hverri
vél, sem taka annars fjóra í
sæti. Einn franskur og tveir
Bandaríkj amenn.
Þeir lögðu upp kl. 17.49 á
laugardag og áttu áætlun kl. 5.
54 á sunnudagsmorgun á Reykja-
víkurflugvelli.
Snemma á sunnudagsmorgun
var vélanna saknað og var þá
vitað að þær höfðu villzt i hafi.
Var þá lýst yfir neyðarástandi
á öllu svæðinu frá Nýfundna-
landi til íslands af viðkomandi
flugumferðastjórnum og mikill
fjöldi leitarflugvéla beggja meg-
in hafsins hófu sig á loft til
leitar að hinum týndu flugvél-
Afdrif vélanna
Á áttunda tímanum á sunnu-
dagsmorgun birtist svo ein flug-
vélin hér yfir Reykjavík og l'enti
skömmu síðar á Reykjavíkur-
flugvelli.
Var þar kominn franski flug-
maðurinn Jean Paul Weiss og
Framhald á 3. síðu.
Herlögum lýst í
Bólivíu um helgina
LA PAZ 21/9 — Ríkisstjómin í
Bólivíu lýsti á sunhúdag her-
lögum um landið allt og kvað
komizt hafa upp um samsæri til
þess að steypa af stóli stjórn
landsins. Tilkynnt var, að Hem-
an Siles Zuazo, fyrrum forseti
landsins, færi huldu höfði ósamt
tveim þingmönnum stjórnarand-
stöðunnar. Á mánudag var svo
frá því skýrt, og haft eftir áreið-
anlegum heimildum, að Zuazo
hefði verið handtekinn og með
honum fjöldi manns úr and-
stöðuflokki stjórnarinnar.
Allt var svo með kyrrum kjör-
um í höfuðborg Bólivíu í nótt.
Snemma á mánudag lýsti stjórn-
in útgöngubanni frá því kl. 23
að staðartíma til sólarupprásar,
Og jafnframt eru allir stjóm-
málafundir stranglega bannaðir.
Herlög þau, er stjórnin lýsti á
sunnudag, hafa að nokkru stöðv-
að verkfallsöldu, sem hófst með
því að sex þúsund kennarar
lögðu niður vinnu. Enn halda
þó námumenn í ríkisreknum
tinnámum áfram verkfalli sínu.
Doífisrnáláráðhéf'ráhn I láh'difiti
hefur skýrt svo frá, að um átta-
tíu stjórnmálamenn og félagar
í vinstrisinnuðum flokkum og
félagasamtökum hafi verið hand-
teknir, sakaðir um þátttöku í
samsærinu. Meðal þeirra er,
auk Zuazos, Juan Leehin Oqu-
endo, fyrrum varaforseti lands-
ins.
Otto Grotewoll
lézt í gær
BERLIN 21/9 — Otto Grote-
wohl, foringi austurþýzkra jafn-
aðarmanna, lézt í dag. Grote-
wohl hefur undanfarin ár þjáðst
af blóðkrabba og lítinn þátt tek-
ið í opinberu lífi. Grotewohl
hefur gegnt ýmsum mikilvægum
embættum í Austur-Þýzkalandi
og um skeið var hann forsætis-
ráðherra landsins.
Meginkröfur opinberra starfsmanna:
Leiirétting í launamálum, réttlát-
ari skattalög, fullan samningsrétt
D Launamálin, skattamálin og samningsréttur opinberra
starfsmanna voru þau mál, sem öðru fremur settu svip á
nýafstaðið þing BSRB. Hér verður drepið á meginatriði
úr ályktunum þingsins um þessi mál, en þær verða þirtar
í heild í blaðinu á morgun.
Launamál
Þingið samþykkti að mæla
með gildandi samningi og hvatti
bandalagsfélögin til þess að
byggja kröfur sinar á eftirfar-
andi atriðum.
1. Fullar bætur fáist vegna
verðlagshækkana, scm átt hafa
sér stað frá því að launastiginn
tók gildi, jafnframt því að gong-
ið verði lengra á móts við fyrri
kröfur opinberra starfsmanna í
Iaunamálum.
2. Starfsmenn í opinbcrri
þjónustu njóti hvarvetna sam-
bæriiegra kjara og starfsbræður
þeírra á frjálsum launamarkaði.
3. Skipting í Iaunaflokka eftir
menntun taki ekki • til þeirra
sem hafa langa starfsreynslu að
baki og njóti þeir Iauna sam-
kvæmt hæsta flokki starfs síns.
4. Sé um takmarkaða hækknn-
annögulcika að ræða, verði
tcknar upp persónuuppbætur
fyrir langa þjónustu.
5. Leiðrétt verði niðurröðun
í Iaunaflokka, þar sem um van-
mat er að ræða.
6. Unnið vcrði að því að ná
fullu launajafnrétti karla og
kvenna fyrir 1. janúar 19S7.
7. ölium starfsmönnum verði
tryggður a.m.k. einn frídagur
viknlega.
8. Unnið verði að styttingu
vinnudags þeirra sem hafa yf-
ir 40 stunda vinnuviku.
Skattamál
Varðandi skattamál benti
þingið á, að bæði löggjöfin og
framkvæmd hennar væri með
þeim hætti, að launamenn bæru
óeðlilega mikinn hluta skatta-
byrðanna. Jafnframt því, sem
þingið krafðist lækkunar á
Framhald á 8. síðu.
sérstakur fulltrúi Elízabetar
drottningar við athöfnina. Ekki
hefur þó ánægjan verið óbland-
in. í gær urðu miklar róstur
þegar stjórnarandstöðuflokkur
eyjarinnar, Verkamannaflokkur-
inn, hélt mótmælafund gegn
hinni nýju stjórnarskrá eyjar-
innar. Tróðust konur undir við
það tækifæri og lögreglumaður
var stunginn svo illa að flytja
varð hann á sjúkrahús.
Eyjan Malta hefur nú verið
undir enskri stjórn í 164 ár.
Dregið eftír
14 daga
í dag birtum við umboðs-
menn okkar í Suðurlands- og
Reykjaneskjördæmi.
Selfossi: Þórmundur Guð-
mundsson,
Hveragerði: Björgvin Árna-
son.
Stokkseyri: Frímann Sig-
urðsson,
Eyrarbakki: Andrés Jónsson.
Vestmannaeyjar: Hafsteinn
Stefánsson,
Vík í Mýrdal: Guðmundur
Jóhannesson,
Hafnarfjörður: Hjörtur
Gunnarsson,
Grindavík: Kjartan Kristó-
fersson,
Ytri Njarðvík: Oddbergur
Eiríksson,
Keflavík: Sigurður Brynj-
ólfsson,
Sandgerði: Sveinn Pálsson.
Þeir sem hafa fengið miða
senda á þessum stöðum geta
gert skil til þessara umboðs-
manna okkar, en aðrir geta
sent okkur skil beint. Utaná-
skriftin er: Happdrætti
Þjóðviljans, Týsgötu 3.
Nú er aðeins réttur hálfur
mánuður til stefnu þar til
dregið verður og fara því að
verða síðustu forvöð að gera
verulegar ráðstaíanir til þess
að gera skil. Það eru ein-
dregin tilmæli okkar til allra
þeirra sem fengið hafa senda
miða að líta inn til okkar
næstu daga eða senda okkur
skil.
Tryggjum útkomu Þjóðvilj-
ans. Komum hæðinni upp!
1