Þjóðviljinn - 18.10.1964, Blaðsíða 5
Sunnudagur 18. október 1964
HÓÐVILIIM
NotiS frístundirnar til
hagkvæms heimanáms viB
BRÉFASKÓLA SÍS
1. Skipulag og starfshættir samvinnufélaga.
* 5 bréf. Námsgjald kr. 150,00. Kennari Eiríkur
Pálsson, lögfræðingur.
2. Fundarstjórn og fundarreglur. 3 bréf. Náms-
gjald kr. 300,00. Kennari Eiríkur Pálsson.
3. Bókfærsla I. byrjendaflokkur. 7 bréf. Náms-
gjald kr. 500,00. Kennari Þorleifur Þórðarson,
forstjóri.
\
4. Bókfærsla II. framhaldsflokkur. 6 bréf. Náms-
gjald kr. 450,00. Sami kennari.
5. Búreikningar. 7 bréf og bókin „Leiðbeiningar
um færslu búreikninga". Námsgjald kr. 250,00.
Kennari Eyvindur Jónsson. búnaðarráðunautur.
6. tslenzk réttritun. 6 bréf eftir kennarann, mag.
Sveinbjörn Sigur.iónsson, skólastjóra. Náms-
gjald kr. 500,00.
7. islenzk bragfræði. 3 bréf eftir kennaranrí, mag.
Sveinbjörn Sigurjónsson, skólastjóra. Náms-
gjald kr 250,00.
8. íslenzk málfræði. 6 bréf eftir kennarann, cand.
mag. Jónas Kristjánsson, handritavörð. Náms-
gjald kr. 500,00.
9 Enska I. byrjendaflokkur. 7 bréf og ensk les-
bók. Námsgjald kr. 500,00. Kennari Jón Magn-
ússon fil: cand.
10. Enska II. framhaldsflokkur. 7 bréf, lesbók,
orðasafn og málfræði. Námsgjald kr. 450v00.
Sami kennari.
11. Danska I., byrjendaflokkur. 5 bréí og Litla
dönskubókin eftir kennarann cand. mag. Ágúst
Sigurðsson, skólastjóra. Námsgjald kr. 351,00.
12. Danska II. 8 bréf og kennslubók í dönsku eft-
ir sama kennara. Námsgjald kr. 450,00.
13. Danska. III. 7 bréf, kennslubók, lesbók, orða-
safn og stílhefti. allt eftir sama kennara. Náms-
gjald kr. 650,00.
14. Þýzka. 5 bréf, býdd og samir. af kennaranum
Ingvari G. Brynjólfssyni, menntaskólakennara.
Námsg.jald kr 500.00.
15. Franska. 10 bréí. þýdd og samin af kennaran-
um lic és. 1. Magnúsi G. Jónssyni mennta-
skólakennara Námsgjald kr. 650,00.
16. Spænska. 10 bréf, býdd og samin af kennaran-
um lic. éc. 1. Magnúsi G. Jónssyni, menntaskóla-
kennara Námsgjald kr. 600,00.
17. Esperantó. 8 bréf. ramin af kennaranum Ólafi
S Magnússyni. Ennfremur lesbók og fram-
burðarhefti Námsgjald kr. 300,00.
18. Reikningur. 10 bréf samm af kennaranum Þor-
ieifi Þórðarsyni. forstjóra. Námsgjald kr. 600,00.
19. Algebra. 5 bréf, samin af kennaranum, Þóroddi
Oddssyni, menntaskólakennara. Námsgjald kr.
400,00.
20. Eðlísfræði. 6 bréf, eftir kennarann. dipl. ing.
Sigurð Ingimundarson, efnafræðing. Einnig
„Kennslubók í eðlisfræði'' eftir Jón Á. Bjarna-
son. Námsgjald kr. 350,00.
21. Mótorfræði I. 6 bréf, eftir Þorstein Loftsson.
Námsgjald kr. 500,00. Kennari Andrés Guð-
jónsson, vélfræðingur.
22. Mótorfræði II. Um dieselvélar. 6 bréf eftir Þor-
stein Loftsson. Námsgjald kr. 500,00. Sami
kennari.
23. Siglingafræði. 4 bréf eftir kennarann Jónas
Sigurðsson, skólastjóra. Námsgjald kr. 500,00.
24. Landbúnaðarvélar og verkfæri. 6 bréf og við-
aukar eftir Árna G. Eylands. Námsgjald kr.
250,00. Kennari Gunnar Gunnarsson, búfr.kand.
25. Sálar- og uppeldisfræði. 4 bréf þýdd og tekin
saman af frú Valborgu Sigurðardóttur upp-
eldisfræðingi og kennaranum ' dr. Brodda Jó-
hannessyni, skólastjóra. Námsgjald kr. 390,00.
26. Skák I. byrjendaflekkur. 5 bréf eftir sænska
stórmeistarann Stáhlberg í þýðingu kennarans
Sveins Kristinssonar, Námsgjald kr. 300,00.
27. Skák II. framlialdsflokkur. 4 bréf. Höfundur,
þýðandi og kennari þeir sömu. Námsgjald kr.
300,00.
28. Áfengismál I. 3 bréf frá fræðilegu sjónarmiði,
eftir kennarann Baldur Johnsen, lækni. Náms-
gjald kr. 200,09.
29. Áfengismál II. 2 bréf frá félagslegu sjónarmiði
eftir séra Eirík J. Eiríksson, sambandsstj.
Námsgjald kr. 150,00.
30. Starfsfræðsla. Bókin „Hvað viltu verða“, eftir
kennarann Ólaf Gunnarsson sálfræðing, sem
gefur upplýsingar um framhaldsnám og störf
og svarar fyrirspumum nemenda. Námsgjald
kr. 200,00.
TAKÍÐ EFTIR. — Bréfaskóli SÍS veitir konum og körlum á öllum aldri og í hvaða stétt og stöðu
sem er, tækifæri til að nota frístundirnar til að afla sér fróðleiks, sem allir hafa gaman af. Með
bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri námsára, aukið þekkingu yðar og möguleika til að
komast áfram i lífinu. Þér getið gerzt nemandi hvenær ársins, sem er, og eruð ekki bundinn náms-
hraða annarra nemenda.
★ INNRITUN ALLT ÁRIÐ * KOMIÐ, SKRIFIÐ EÐA HRINGIÐ í SÍMA 17080
* BRÉFASKÓLI SÍS BÝÐUR YÐUR VELKOMIN. BRÉFASKÓLI SÍS, REYKJAVÍK
Undirritaður óskar að gerast nem. í eftirt. námsgr.:
■ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu.
■ Greiðsla hjálögð kr
(Nafn)
(Heimilisfang)
Bréfaskóli SÍS, Sambandshúsinu. Reykjavík.
--------------------SÍÐA g
Rafvirkjameist-
arar á fundi
15. aðalfundur Landsambands
rafvirkjameistara var haldinn
hér í Reykjavík dagana 25. og
26. september sl. Sóttu hann
fulltrúar víðsvegar að af land-
inu. Voru þar rædd ýmis mál
rafvirkjameistara og gerð um
þau ályktanir.
Þau mál, sem sérstaklega
voru til umræðu voru: löggild-
ingarskilyrðin og samning nýrr-
ar reglugerðar um raforkuvirki,
sem rafvirkjameistarar telja að
alls ekki megi lengur fresta.
Þá var samþykkt áskorun til
stjórnskipaðrar nefndar, er
semja á reglur um útboð og
tilboð um að ljúka störfum sem
allra fyrst. þar eð vöntun á
slíkum reglum er mjög tilfinn-
anleg og veldur töfum á heil-
brigðri þróun á þessum vett-
vangi.
Nú í sumar var haldið nor-
rænt rafvirkjameistara- og raf-
virkjaverktakamót á vegum
L.I.R., hið fyrsta hér á landi.
Sóttu fulltrúar frá öllum hinum
Norðurlöndunum mót þetta
Gísli Jóhann Sigurðsson sem
verið hefur formaður L.I.R. sl.
9 ár baðst eindregið undan end-
urkjöri og var honum við fund-
arlok þakkað mikið og gott
starf í þágu samtakanna.
Núverandi stjórn L.Í.R. skipa:
Gunnar Guðmundsson, Reykja-
vík, formaður. Aðalsteinn Gísla-
son. Sandgerði, varaformaður,
Gissur Pálsson, gjaldkeri, Rvik,
Hannes Sigurðsson. ritari, Rvík
og Sigurjón Guðmundsson,
Hafnarfirði, meðstjói'nandi.
Sýning á eftir-
prentunum
1 ameríska bókasafninu við
Hagatorg eru til sýnis um þess-
ar mundir eftirprentanir
(prints) af myndum eftir tíu
bandaríska listmálara Sýndar
eru svartlistarmyndir og önn-
ur verk, og er útfærsla og við-
fangsefni listamannanna hin
margbreytilegustu.
Listaverkin munu verða til
sýnis í bókasafninu um óá-
kveðinn tíma.
Listamennirnir, sem verkin
eru eftir, eru:
Josef Alberts, Leonard Bask-
in, Edmund Cassarella, Lee
Chesney, Arthur Deshaies,
Chaim Koppeiman, Michael
Mázur, Boris Margo, John
Paul Jones, Vincent Longo.
(Frá Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna).
FRÍMERK J A-
VERÐLISTI
Islenzk frímerki, verðlisti yfir
íslenzk frímerki frá ýmsum
tímum, er kominn út í áttundu
útgáfu. Höfundur er Sigurður
H. Þorsteinsson, en útgefandi
Isafoldarprentsmiðja h7f. Bókin
er 113 blaðsíður i sama broti
og áður.
Munið sprungufylli og fleiri
þéttiefni til notkunar eftir
aðstæðum.
BETON-GLASUR á gólf, þök
og veggi, mikið slitþol, ónæmt
fyrir vatni, frosti, hita, ver
steypu gegn vatni og slaga
oe a« frost sprengi pússningu
eða veggi.
Oll venjuleg málning og
rúðugler.
Málningar-
vörur s.f,
Bergstaðastræti 19.
Sími 15166.