Þjóðviljinn - 11.11.1964, Page 5

Þjóðviljinn - 11.11.1964, Page 5
Miðvik'udagur 11. nóvember 1964 ÞIOÐVILIINN Handknattleiksheimsókn til Vals: Dönsku meistaramir leika fjóra leiki hér á næstunni Handknattleikslið Vals er að fá hingað kapp- lið frá Ajax í Kaupmannahöfn, einu af forystu- félögum á sviði handknattleiksíþróttarinnar í Kaupmannahöfn. Danirnir heyja hér fjóra leiki, hinn fyrsta gegn íslandsmeisturum Fram í í- þróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli n.k. sunnudag. Idræetsforeningen AJAX frá Kaupmannahöfn, hefur sem fyrr vaí- sagt alla tíð verið í hópi forystufélaga á sviði handknattleiksíþróttarinnar frá þvi að skipulögð handknatt- leiksstarfsemi hófst í Dan- mörku. Þetta félag hefur sigr- að í Dánmerkurmeistarakeppn- inni í handknattleik oftar en nokkuð annað félag eða alls átta sinnum. Það hefur leikið í 1. deildinni dönsku öll árin frá því deildaskipting var tek- in upp eða frá árinu 1946 að undanskildu keppnistímabilinu 1960-1961. Eins og að líkum lætur hefur félagið jafnan átt góðum ieikmönnum á að skipa og oft lagt menn til í lands- liðið og úrval Kaupmannahafn- ar. Nú fyrir skömmu völdu Danir 30 menn til æfinga und- ir næstu heimsmeistarakeppni, sem fram fer i Svfþjóð árið 1967. 1 þeim 30 manna hóp, sem valin var voru 5 úr Ajax. 1 landsleik við Norðmenn í byrjun nóvember átti Ajax 2 leikmenn. Ajax var Danmerkurmeistari 1964, hlaut 28 stig í 18 leikj- um, skoruðu 382 mörk gegn 313. Urðu þeir 4 stigum á und- an höfuðkeppinautum sínum Aarhus KFUM. Ajax tekur því á þessum vetri þátt í Evrópu- EM 1VÝ.IAR BÆKIIR Síðustu daga hafa eftirtuldar bœkur homið í bókaverzlanir: Hviknl er konuást eftir Guðrúnu frá Lundi. Þessi saga Guð- rúnar hefur hvergi birzt áður. Sagan ger- ist á fyrri hluta þessarar aldar og hefst á því, er útflytjendur til Ameríku eru að yfirgefa landið. Sagan lýsir átökunum í ís- lenzku þjóðlífi, þegar einstaklingar og heil- ar fjölskyldur slitu öll tengsl við vini og ættingja, börnin yfirgáfu foreldra sína og unnustur og eiginkonur gengu frá mökum sínum. — Lfklega er þetta átakanlegasta tfmabilið í sögu íslenzku þjóðarinnar. Og Guðrún frá Lundi lýsir því látlaust og snilldarlega, enda er þetta bezta bók hennar. Heillar mig Spánn eftir Fredrik Wislöff. —• Spánn er heillandi land. Saga Spánar er stórbrotin. Spænska þjóðin er glæsileg og tignarleg í fasi. List hennar sérstæð, og margt sem vekur at- hygli ferðamannsins. Landið er brú milli tveggja heimsálfa. Þar hafa geisað upp- reisnir og styrjaldir meira en í nokkru öðru landi í Evrópu. Höfundurinn kynnir okkur þetta litríka land, sögu þess, listina og hið ólgandi líf. Bókin er falleg og ágætlega skemmtileg. Fiillimniinn Vosliiulinfs eftir Cyril Scott. — Þýðandi Steinunn Briem. — Fullnuminn Vestanhafs er fram- hald hinnar frægu bókar tónskáldsins og rithöfundarins Cyril Scott, FULLNUMINN þar sem hann segir frá kynnum sínum af dularfullum spekingi. Hér hittast þeir aft- ur í Bandaríkjunum, og lýsir Scott á fjör- legan hátt hinni amerísku útgáfu af meist- aranum. Loniling með lífid aO veði. Skáldsaga eftir J. Castle og Arthur Haily. Þýðandi Hersteinn Pálsson. — Viðburður sá, sem hér er lýst, gerist að nóttu. Stór flugvél er á leið yfir hinn ókleifa fjallgarð milli Winnipeg og Vancouver. í vélinni eru 35 farþegar, en báðir flugmennirnir eru meðvitundarlausir, höfðu fengið matareitr- un. Með eindæma snarræði bjargar flug- freyjan áhöfn og farþegum. — Sagan er byggð á sönnum viðburði. Todda frá Blágartfi eftir Margréti Jónsdóttur. — Margrét Jóns- dóttir er fyrir löngu þjóðkunn, bæði af sögum og Ijóðabókum. Síðasta Ijóðabók hennar, í VÖKULOK, kom út fyrir nokkr- um vikum og er uppseld hjá útgefanda, en nokkur eintök munu liggja hjá bóksöl- um úti á landi. — En þetta er sagan um TODDU litlu eða Þórdísi Sveinsdóttur. — Hún á íslenzka móður en danskan föður. Og sagan segir frá ýmsum ævintýrum, sem Todda lendir í með leiksystkinum sínum í fæðingarborg sinni Kaupmannahöfn. Smáfólk, tíu sögur eftir Guðrúnu Jacobsen. — Þetta er fimmta bók Guðrúnar og tvær síðustu bækurnar hefur hún sjálf myndskreytt. í sögum Guðrúnar Jacobsen skiptist á létt gamansemi og þung alvara. Fyrri bækur hennar hafa hlotið ágæta dóma. Sumar sögurnar í þessari bók eru snilldarvel skrifaðar. Stjörnuspáin eftir R. H. Nylor. — Viltu þekkja sjálfan þig og vita hvað framtíðin ber í skauti sínu? Hefurðu gaman af að kynnast lyndis- einkennum kunningja þinna og vina? — Stjörnuspáfræðin er bezta fræðigreinin, sem hægt er að fara eftir, þegar skyggnst er eftir huldum rökum framtíðarinnar og örlögum manna. — Bókin er byggð á ævi- langri rannsókn eins mesta stjörnuspá- manns vorra tíma, Englendingsins R. N. Nylor. — í bókinni er margan fróðleik að finna og allir hafa af henni nokkra ánægju. Hörnin í Löngugöln eftir Kristján Jóhannsson. — Sagan gerist í Reykjavík. Höfundurinn er ungur kenn- ari, og hann þekkir börnin í umhverfinu. Börnin í Löngugötu eru býsna mörg, og ekki er hægt að lýsa þeim öllum. En við fáum að kynnast honum Steina, hann er 10 ára. Beint á móti eiga tvíburasysturnar heima, þær Hulda og Kristín. Þær eru 9 ára, og enginn nema mamma þekkir þær sundur. Og svo er hann Danni og fjörkálf- urinn hún Finna. liósalín eftir Johanne Spyri. — Þýðandi Freysteinn Gunnarsson. — Rósalín er orðin átta ára. Hún heitir annars Þeresía, en er alltaf köll- uð Rósalín. Nafnið fékk hún af því að hún var svo elsk að blómum. Þetta er falleg saga. Höfundinn, Johanne Spyri, þekkir fjöldi manna, sem lesið hafa Heiðu og Smaladrenginn Vinzi. Og þýðandann, Frey- stein Gunnarsson, þekkja allir landsmenn. Kim og lircnnuvargarnir. Bækurnar um Kim og félaga hans eru orðnar svo kunnar, að ekki þarf annað en minna á, þegar ný bók kemur. Og nú er ný bók komin og verður eflaust horfin ur bókaverzlunum fyrir jól. BIóð-Rcfur eftir Karl May. — Bókin um Blóð-Ref er framhald sögunnar „Andi eyðimerkurinn- ar“, og gerist á slóðum Indíána í Banda- ríkjunum. Sagan er spennandi eins og allar bækur eftir KARL MAY.— Áður eru komn- ar eftir hann: Bardaginn við Bjarkargil, Sonur veiðimannsins og Andi eyðimerkur- innar. LEIFTUR keppni meistaraliða. Mæta þeir í fyrstu umferð Finnlands- meisturunum Union frá Hels- ingfors. Það er þvi augljóst að hér er á ferð eitt sterkasta handknattleikslið, sem Danir eiga nú og er það von gest- gjafanna, að lið þetta veiti ís- lenzkum handknattleiksunn- endum nokkra skemmtun. Ajax — Fram Fyrsti leikur Ajax hérlendis verður sunnudaginn 15. nóvem- ber klukkan 16.00 og fer sá leikur fram í íþróttahúsi her- námsliðsins á Keflavíkurflug- velli. Það eru íslandsmeistar- arnir úr Fram, sem mæta Dan- ' merkurmeisturunum í þessum fyrsta leik þeirra. Fyrir Fram verður þetta nokkurskonar lokaprófraun undir leik þeirra í Evrópumeistarakeppninni gegn Svíþjóðai-meisturunum Redbergslid í Gautaborg 8. desember n.k. Verður leikur þessi án efa mjög spennandi og tvísýnn. Á undan leiknum leika A og B unglingalandslið er ung- lingalandsliðsnefnd H.S.I. hef- ur valið. Ajax — Valur Næsti leikur verður svo í í- þróttahúsinu að Hálogalandi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20.15. Þá mun lið gestgjafanna VALUR leika gegn Ajax. Verð- ur fróðlegt að sjá hvernig hinu unga efnilega liði VALS tekst upp gegn Danmerkui-meistur- unum. Áður en leikurinn hefst munu III. aldursflokkur frá Val og Víking leika. Ajax — FH Þriðji leikur Ajax verður svo fimmtudaginn 19. nóvember í íþróttahúsinu að Hálogalandi klukkan 20.15. Mæta þeir þá Islandsmeisturunum (utanhúss) F.H. Verður sá leikur vafalítið tvísýnn og spennandi. F.H. hef- ur ágætu liði á aö skipa og hafa þeir verið í forystusveit íslenzkra handknattleiksliða mörg undanfarin ár. Þetta leikkvöld hefst með baráttu milli mjög efnilegra liða frá Val og K.R. í öðrum aldursflokki. Ajax — Úrval HSl Síðasti leikur Ajax verður laugardaginn 21. nóvember kl. 17.00 í íþróttahúsinu á Kefla- víkurflugvelli. Mæta Danir þá úrvali, sem landsliðsnefnd Handknattleikssambands Is- lands hefur valið. Þessi leikur verður lokaprófraun væntan- legs landsliðs gegn Spánverj- um. Meistaraflokkur kvenna frá Val og F.H. leika forleik þenn- an dag og verður án efa skemmtileg og fjörug barátta milli þessara kvennaliða. Val- ur teflir fram. Isiandsmeistur- um kvenna, bæði utanhúss og innan. Kvennalið frá F.H. hef- ur undanfarin ár annað hvort haft íslandsbikarinn undir höndum eða verið í mjög ná- inni snertingu við hann. Eftirtaldir leikmenn eru í liði AJAX: Morten Petersen (1), aðal- markvörður liðsins, reyndur leikmaður. Hefur leikið sextán landsleiki og verið 43 sinnum i Kaupmannahafnarúrvali. Var í liði Dana á síðustu HM. Peter Nielsen (5) er einn marksælasti maður liðsins og hefur undanfarin þrjú keppn- istímabil verið meðal þriggja markhæstu leikmanna í 1. Fiamrald á 9. síðu. SfÐA g Stjórn HSÍ ein- róma endurkjörin á þinginu ■ Ársþing Handknattleikssambands íslands var haldið í íþróttahúsi KR1 við Kaplaskjólsveg sl. laugardag. Formaður sambandsins, Ás- björn Sigurjónsson,' setti þingið ög bauð fulltrúa og gesti vel- komna. Viðburðaríkt starfsár. I skýrslu formanns kom fram, m.a. að þetta sjöunda starfsár Handknattleikssam- bands íslands, hefur verið hið viðburðaríkasta. Nægir þar að nefna þátttöku íslendinga í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Tékkóslóvakíu á s.l. vetri, Norðurlandameist- aramót kvenna, sem háð var hér í Reykjavík í sumar og lauk með glæsilegum sigri fs- lenzku stúlknanna, heimsóknir erlendra kappliða, auk allra mótanna. Umræður urðu fjörugar á handknattleiksþinginu og var ýmsum málum hreyft og gerð- ar um þær samþykktir. Stjóm Handknatleikssam- bands Islands var einróma endurkjörin f þinglok, en hana skipa Ásbjörn Sigurjónsson, formaður, Axel Einarsson, Björn Ólafsson og Valgeir Ár- sælsson. BLAÐBURDUR Þjóðviljann vantar nú þegar fólk til blaðburðar í þessi hverfi: VESTURBÆR: Hjarðarhagi — Melamir — Tjarn- argata. — AUSTURBÆR: — Grettisgata — Skúla- gata — Höfðahverfi — Laugateignr — Meðalholt — Lang-ahlíð — Miklabraut — Mávahlíð — Blönduhlíð. KÓPAVOGUR. Laus hverfi í Vestur- bæ: Hraunbraut — Kársnesbraut. — Hófgerði — Holtagerði. Umboðsmaður í Kópavogi sími 40-319. Þ J ÓÐVTL JINN — Sími 17-500. Bazar Verkakvennafélagsins Framsóknar, verður hald- inn í dag, miðvikudag, kl. 2 e.h. í Góðtemplarahus- inu. Mikið af góðum munum, gott verð. Kaupið og gerið góð kaup. Bazarnefndin. A ðstoðar/æknisstaða Staða aðstoðarlæknis II við handlækningadeild Landspítalans er laus til umsóknar frá 1. janúar 1985. Staðan veitist til 2ja ára. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsókn- ir með upplýsingum um aldur, námsferil og fyrri störf sendist stjómarnefnd ríkisspítalanna, Klapp- arstíg 29, Reykjavík, fyrir 1. desember næstkom- andi. Reykjavík, 30. október 1964. Skrifstofa ríkisspítalanna. Staða aðstoðarstá/ku við Náttúrugripasafn íslands er laus til umsóknar. Vélritunar- og málakunnátta nauðsyh. Laun sam- kvæmt hinu almenna launakerfi opinberra starfs- manna. Staðan veitist frá næstkomandi áramót- um eða nú þegar. Umsóknir sendist Náttúrugripa- safninu fyrir 21. nóvember næstkomandi. t /

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.