Þjóðviljinn - 11.11.1964, Blaðsíða 12
HÚSIÐ AÐ SILUNGAPOLLI ÓHÆFT
TIL STARFRÆKSLU YISTHEIMILIS
Á síðasta borgarstjórnarfundi flutti Adda Bára^
Sigfúsdóttir- borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins,
eftirfarandi tillögu:
„Þar sem húsið á Silungapolli má teljast óhæft
fyrir annað en sumardvalarstarfsemi og ekki eru
horfur á að nýbyggingar leysi það af hólmi á næst-
unni, ákveður borgarstjórnin að kaupa á næsta
ári nægan húsakost í Reykjavík til þess að hætta
megi starfrækslu vistheimilis á Silungapolli í árs-
byrjun 1966“.
1 framsögurseðu sinni minnti
Adda Bára á ásetlun þá um
byggingu dagheimila og vist-
heimila, sem borgaryfirvöld
hefðu samþykkt á sínum tíma,
en ýmiskonar röskun hefði þegar
á orðið. f áætluninni væri að
finna alllangan lista yfir heim-
ili, sem talið væri nauðsynlegt
að koma upp. en skoðanir væru
Vinningar í
happdrætti
henáms-
andstæðinga
Enn hafa ekki allir gert
skil í happdrætti hemáms-
andstæðinga og eru það
vinsamleg tilmæli frá Sam-
tökunum til þeirra, sem
fengu miða senda en hafa
hvorki greitt þá né endur-
sent, að hafa samband við
skrifstofuna £ Mjóstræti 3
hið bráðasta.
Skrifstöfan verður fram-
vegis opin mánudaga til
föstudaga kl. 16.30—18.30,
sími 24701.
Vinningsnúmerin í happ-
drættinu eru þessi:
Góðhestur nr. 8824
Málverk eftir
Jóhann Briem 12251
Málverk eftir
Jón Engilberts 3703
Málverk eftir
Karl Kvaran 9701
Málverk eftir
Hafstein Austmann 11721
Málverk eftir Jóhann-
es Jóhannesson 11417
Málverk eftir
Þorvald Skúlason 4915
Málverk eftir Guð
mundu Andrésd. 5391
Málverk eftir
Kjartan Guðjónsson 6606
Magnús Á. Árnason 4197
Sigurð Sigurðsson 3348
Vatnslitamynd eftir
Gunnlaug Scheving 72
Vatnslitamynd eftir
Barböru Ámason 2079
Vatnslitamynd eftir
Barböru Ámason 10299
nokkuð skiptar á því hver röð
framkvæmdanna ætti að vera.
Borgarstjórnin gæti því ekki
bundið sig við neina ákveðna
röð.
Lélegur og óhagstæður
húsakostur
Ræðumaður benti síðan á að
í umsögn bamavemdarnefndar
hafi brýnasta þörfin verið talin
vera fyrir vistheimili (upptöku
heimili) og væri æskilegt að til-
raun yrði gerð með fjölskyldu-
heimili fyrir fá börn, t.d. 5, við
fyrstu hentugleika. Síðan las
Adda Bára upp orðréttan kafla
úr álitsgerð bamaverndarnefnd-
ar:
„1 næsta áfanga mun vera
mikil nauðsyn að reisa heimili
fyrir 2-7 ára böm í stað þess,
sem nú er rekið á Silungapolli
við lélegan og óhagstasðan húsa-
kost.”
Adda Bára benti ennfremur
á að höfundur fyrrgreindrar áætl-
unar virðist einnig hafa í huga
að ekki verði unað við Silunga-
poll til lengdar, því að þeir
hefðu sagt, þegar þeir ræddu
um heimili fyrir 2ja til 7 ára
börn, að til greina kæmi að
kaupa hús á hentugum stað,
einkum með tilliti til þess að
rík þörf muni væntanlega fyr-
ú slíkt heimili á næstunni.
Ég hygg því, bætti Adda Bára
Sigfúsdóttir við, að ég þurfi
ekki að gera svo mjög grein
fyrir því að þörf sé á að flytja
vistheimilið frá Silungapolli, það
virðast allir h'afa viðurkennt,
sem um málið hafa fjallað.
Og síðan hélt hún áfram eitt-
hvað á þessa leið:
Ég vil aðeins nefna það að
nú þegar er búið að lagfæra
flest það sem lagfært verður,
án þess að byggja hreinlega
að nýju, og samt er ekki ger-
legt að hita húsið á viðun-
antli hátt, og ófróðum at-
huganda a.m.k. gæti virzt, að
um óhugnanlega eldhættu
gæti verið að ræða, ckki sízt
þá köldu morgna, sem olian
hefur þykknað í Ieiðslum og
nota þarf blys til þess að fá
hana til að hniga.
Ekki stórátak
Þörfin er ljós og viljinn til
Framhald á 9. síðu.
Frk. Gutarp saumar á Husquarna saumavél. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Husqvarna sauma-
vélar kynntar
Um þeSsar mundir er stödd
hér á landi frk. Gutarp frá
sænska fyrirtækinu Husqvarna,
I dag og næstu daga mun frk.
Gutarp, ásamt frú Erlu Ásteirs-
dóttur og önnu Kristjánsdóttur,
kynna Húsqvarna saumavélar í
húsakynnum umboðsins Gunnar
Ásgcirsson h.f. Þar vcrða einnig
sýndir munir sem unnir eru í
Husqvarna saumavélunum.
í dag og á morgun er ætlast
til að handavinnukennarar og
nemendur handavinnukennara-
skólans njóti leiðbeininga frk.
Gutarp, en föstudag og laugar-
dag verður sýningin opin al-
menningi.
Umboð Husqvarna saumavéla
hér á landi hefur lagt ríka
áherzlu á það að gefa konum
kost á að læra á saumavél-
arnar, svo að þær geti til fulln-
ustu notfært sér alla þá mögu
leika sem vélarnar hafa uppá
að bjóða. Hefur jafnan verið
starfandi hjá fyrirtækinu kona
sem annast kennslu, þessa. Til
Jósafat jjýðir skáldsögu
Þau tíðindi hafa gerzt i
menningarmálum þjóðarinn-
ar, að Jósafat Argrímsson,
lanndskunnur fjármálamaður
o. fl., hefur staðið að útgáfu
skáhlsögu. Honum hefur
meira að segja þótt svo mik-
ið við liggja, að hann hefur
Iagt á sig það erfiði að þýða
bókina úr enskri tungu.
Skáldsága þessi heitir
Sekur eða saklaus, og nafnið
er alls ekki nein tilviljun.
Jósafat gerir sjálfur sitt til,
að útkoma þessarar bókar
tengist í vitund manna við-
skiptum hans við dómstóla og
blöð. Þannig setur hann sjálf-
ur svohljóðandi orðsendingu
framan við söguna:
Tíminn mun leiða í Ijós að
Alþýðudómstólar eru ekki
Þjóðarvilji, né sæmandi
Upphafsdögum
Frjálsrar þjóðar.
Og geta mennn síðan reynt,
ef þeir geta, að komast hjá
þv£ að skilja hvað við er
átt.
Mál það sem segir frá £
bókinni er annars gjörólfkt
málum þeirra Jósafats og svo
Lárusar Jóhannessonar. Þan
segir frá ungum lögfræðingi.
sem hefur gerzt verjandi vís-
indamanns, sem kallaður er
fyrir Öamerísku nefndina
sakaðitr um kommúnisma
Taugar prófessorssins bila
og hann fremur sjálfsmorð
Þá ákveður lögfræðingurinn.
að ljúga upp á sjálfan sig
kommúnisma og láta æsinga-
menn komast á sporið, til
að koma síðan fyrir Óamer-
fsku néfndina og fletta of-
an af þeim svivirðulegu of-
sóknum sem allskonar skugga-
baldrar fremja í nafni lýð-
ræðis.
Slikt efni virðist sjálfsagt
koma eins og skrattinn úr
sauðarleggnum úr þessum
herbúðum. En Jósafat vill
sem fyrr segir hvað sem
tautar og raular tengja þessa
sögu sfnum málum — endur-
tekur • reyndar þann ásetning
á kápusiðu.
Og eru vegir fjármálanna
sannarlega krókóttir.
þess að benda viðskiptavinunum
a þessa ágætu þjónustu, fylgir
hverri saumavél kennslukort fyr-
ir 6 klukkustundir. Ennfremur
hefur frú Erla Ásgeirsdóttir
ferðast um landið til að kenna
á vélarnar.
Saumavélar þessar hafa náð
mjög miklum vinsældum hér og
munu hérlendis seldar fleiri
Husqvarna saumavélar en í
nokkru öðru landi, miðað við
fólksfjölda.
Þess má að lokum geta að
Husqvarna Vapenfabrik er um
300 ára gömul og hefur verk
smiðjan framleitt saumavélar í
tæpa öld, og er nú með stærstu
framleiðendum í sinni grein í
Evrópu. Vélar þessar gefa mikla
möguleika og ná ólíklegustu
merkjum og mynztrum. En nýj-
asta gerð þessara véla er reynd-
ar talin svo einföld, að barn
getur notað hana tilsagnarlítið.
Fró ÆFR
I kvöld klukkan 20.30 mun
Vernharður Linnet kynna jazz
söngvara á Jazzkvöldi í Tjamar
götu 20. Félagar eru hvattir til
að mæta stundvíslega.
Á föstudaginn kemur verður
sýnd í Tjamargötu 20 mynd
um beitiskipið Pótekín og mun
Magnús Jónsson blaðamaður
flytja skýringar með myndinni.
Þá má geta þess, að hið vin
sæla veggblað ÆFR, „Róttækir
Pennar hefur hafið göngu sína
að nýju.
Míðvikudagur 11. nóvember 1964 — 29. árgangur — 248. tölublað.
Stúdentaráð gengst
fyrír fyrírlestrum
„í 10. grein laga Stúdentaráðs íslands, þar sem talin eru
upp verkefni ráðsins segir m.a., að því beri „að stuðla að
vöku þjóðarinnar í menningarmálum, m.a. með . •. fyrir-
lestrahaldi“. Enn hefur Stúdentaráð litla ræktarsemi sýnt
þessum lið í lögum sínum, og er þröngur fjárhagur að
sjálfsögðu ein helzta orsökin.
Stúdentaráð hefur nú ákveðið að gera tilraun með slíka
starfsemi, og vonar að stúdentar og almenningur sýni
henni svo mikinn áhuga, að sjálfsagt þyki að halda henni
áfram“.
Þannig komst Vésteinn Ólafs-
son stud. mag. að orði, á blaða-
mannafundi í fyrradag er boð-
að var til af Stúdentaráði Há-
skóla íslands. Vésteinn á sæti
í Stúdentaráði og hefur séð um
allan undirbúning, að þeirri nýi-
ung í starfsemi Stúdentaráðs að
fá ýmsa mæta menn til að
halda fyrirlestra, um einhver
þau efni er frætt gætu og
menntað stúdenta og aðra þá,
er fyrirlestra þessa myndu
sækja.
Kvað hann tilgang með starf-
semi þessari vera einkum þann
að vinna gegn síaukinni sér-
hæfingu háskólaborgara og ann-
arra þjóðfélagsþegna, þeina at-
hygli manna að verðugum íhug-
unarefnum utan þeirra sérsviðs.
Stúdentaráð hefur þegar feng-
ið þrjá fræðimenn og fyrirles-
ara, til að flytja fyrirlestra. Þá
Hörð Ágústsson listmálara, fil.
lic. Svein Einarsson leikhússtjóra
og dr. Tómas Helgason prófessor.
Og mun Hörður ríða á vaðið
með þremur fyrirlestrum um
íslenzka byggingalist.
Hörður er allra manna lærð-
astur um sögu íslenzkrar bygg-
ingarlistar. Og menn minnast án
efa bráðskemmtilegra greina
hans um erlenda og innlenda
byggingalist, er birzt hafa £
tímaritinu Birting síðusta ára-
tuginn. Um skeið hefur hann
notið hæzta styrks úr Vísinda-
sjóði, til að geta helgað sig
rannsóknum á sögu íslenzkrar
byggingarlistar. Hörður hefur
safnað efni sínu á rannsóknar-
ferðum um landið og einnig á
söfnum hér heima og erlendis.
Á fundinum í fyrradag kvaðst
Hörður hafa unnið að könnun
á sögu íslenzkrar byggingarlist-
ar síðastliðin 4 ár. Og í fyrir-
lestrunum þrem myndi hann
ræða um þá gömlu byggingarlist
er hér tíðkaðist, þar til timbur-
húsið kom til sögunnar.
Fyrsti fyrirlestur Harðar verð-
ur annað kvöld kl. 9 í I. kennslu-
stofu Háskólans og hinir tveir
á sama tíma og sama stað,
fimmtudagana 19. og 26. nóv-
ember. Að fyrirlestrinum lokn-
um mun Hörður svara fyrir-
spurnum, er fram kunna að
koma. Eins og fyrr segir er
ÖHum heimill aðgangur.
Sramhald á 3. síðu.
Ásgrímssafn gef ur
út nýtt jólakort
Jólakort Ásgrímssafns þetta ár
er gert eftir eldgosmynd í
safninu. Heitir myndin „A
flótta undan eldgosi“, og sýnir
á áhrifaríkan hátt ógnir elds-
umbrota er menn og skepnur
flýja frá.
Ásgrímssafn hefur þann hátt
á. að gefa aðeins út eitt lit-
kort á ári, en vanda því betur
til prentunar þess. Myndamót er
gert í Prentmót h.f., en Vík-
ingsprent hefur annazt prentun.
Einnig hefur safnið gert það
að venju sinni, að byrja snemma
sölu jólakortanna, til hægðar-
auka fyrir þá sem langt þurfa
að senda jóla- og nýárskveðju.
Er Ásgrímur var fallinn frá,
fundust í húsi hans gömul olíu-
málverk, sem gera verður við
og hreinsa. Allur ágóði af korta-
útgáfunni gengur til þessa verks,
en Ríkislistasafnið í Kaupmanna-
höfn vinnur það með miklum á-
gætum.
Listaverkakortin eru aðeins til
sölu £ Ásgrfmssafni, Bergstaða-
stræti 74, og Baðstofunni f
BJÖRN JÓNSSON TEKUR
SÆTI Á ALÞINGE
□ Björn Jónsson, 4. þingmaður Norður-
landskjördæmis vestra fyrir Alþýðubandalag-
ið hefur nú tekið sæti á Alþingi. Fram að
þessu hefur Arnór Sigurjónsson, fyrsti vara-
maður Björns, skipað þetta sæti í hans stað.
Hafnarstræti, þar sem safnið er
ekki opið nema 3 daga £ viku>
sunnudaga, þriðju- og fimmtu-
daga frá kl. 1,30—4.
Eitt skip yfir
50 þús. mál
I gær sendi Landssam-
band fslenzkra útvegs-
manna frá sér sfðustu
aflaskýrslu sfna á sildar-
vertíðinni Norðanlands- og
austan sem nú er að
ljúka. Samkvæmt henni
fékk 41 skip einhvern afla
f sfðustu viku en eins og
skýrt var frá hér £ blaðinu
i gær eru flest skipin nú
hætt veiðum nema nokkr-
ir Austfjarðabátar.
Eitt skip var um sfð-
ustu helgi búið að afla yf-
ir 50 þúsund mál og tunn-
ur á vertfðinni, Jón Kjart-
ansson fra Eskifirði, og
fimm önnur hafa aflað yf-
ir 40 þúsund mál og tunn-
ur f sumar og haust. Er
hér um algeran metafla á
síldveiðum að ræða.
Skipin 6 sem aflað hafa
yfir 40 þús. mál og tunn-
ur eru þessi: «
Jón Kjartanss., Eskif. 50.478
Snæfell, Akureyri 44.430
Bjarmi II., Dalvík 43.656
Sig. Bjarnas., EA 42.675
Þórður Jðnass., RE 42.601
Hannes Hafstein, EA 42.022