Þjóðviljinn - 15.12.1964, Qupperneq 12
Áðveitustöð og é-
lagsstýríngarkerfí
/ Hafnarfírði
Á laugardag minntist Rafveita Hafnarfjarðar 60 ára af-
mælis almenningsrafveitna á íslandi með því að taka í
notkun nýja aðveitustöð og álagsstýringarkerfi fyrir Hafn-
arfjörð.
Sextíu ár eru liðin frá því að
Jóhannes Reykdal lét virkja
laekinn í Hafnarfirði og kom á
fót fyrstu rafveitu á íslandi.
Rafveita Hafnarfjarðar minntist
þessa atburðar með því að taka
í notkun á laugardag nýja að-
veitustöð og álagsstýringarkerfi.
Var nokkrum gestum og
fréttamönnum boðið að vera við-
staddir vígsluathöfnina, sem
hófst með því að Gísli Jónsson
KR vann FH
1 gær lauk fyrri hluta afmæl-
ismóts FH. Á þessum fyrsta degi
voru leiknir fjórir leikir. f
meistaraflokki karla KR:F'H,
sem lauk 12:11 fyrir KR. í
meistaraflokki kvenna Valur:FH,
sem lauk 10:6 fyrir Val. f II.
fl. karla Valur:FH, sem lauk
11:7 fyrir Val. Og að lokum í
1. fl. karla FH:KR, sem lauk 7:4
fyrir FH. — Nánar verður sagt
frá leikjunum á íþróttasíðu á
morgun.
lýsti aðveitustöðinni og álags-
stýringarkerfinu stuttlega. í>ví
næst vígði Hafsteinn Baldvins-
I son bæjarstjóri aðveitustöð og
Vigfús Sigurðsson formaður raf-
veitunefndar, álagsstýringarkerf-
ið.
Að þvi loknu var gesturn bo;ð-
ið upp á hressingu í Alþýðu-
húsinu, þar fluttu ávörp og ræð-
ur Hafsteinn Baldvinsson bæj-
arstjóri, Gísli Jónsson rafveitu-
stjóri og Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri.
f ræðu sinni skýrði rafveitu-
stjóri frá því að með núverandi
útbúnaði hinnar nýju aðveitu-
stöðvar mætti gera ráð fyrir að
hún fulbiægði raforkuþörf orku-
veitusvæðis Rafveitu Hafnar-
fjarðar í 7—8 ár. Og þá yrði
væntanlega bætt við 10 mega-
vatta spenni og málraun stöðv-
arinnar þannig tvöfölduð, sem
ætti að duga næstu tíu árin þar
á eftir eða þar til ca. 1982.
Allur rafbúnaður stöðvarinn-
Vigfús Sigurðsson formaður rafveitunefndar, vígir álagsstýringar-
ar er innanhúss og þar með tald- kerfið með Því aá senda út fyrsta „programmið“. (Ljm. Þj. A.K.)
Sovézkur HAMLET
sýndur / Reykjavík
A laugardag buðu sendiherra
Sovétríkjanna, Túpitsín og sov-
ézki verzlunarfulltrúinn, Grats-
jof, til sýningar á nýrri sovézkri
stórmynd, gerðri eftir harmleik
Shakespeares, Hamlet. Sýningin
fór fram í Háskólabíó.
Margir ágætir kraftar hafa
unnið að þessari mynd. Leik-
stjóri er Grígorí Kozintséf, sem
leikurum Listaleikhússins í
Moskvu, en hann leikur konung-
inn og einhver ágætasti fulltrúi
leikhúsa í Leningrad, Tolúbééf,
sem leikur Poloníus. En stærsta
sigur vinnur ungur leikari. Inn-
okentí Smotkúnovskí, sem fer
með hlutverk Hamlets, og hefur
hlotið viðurkenningu margra
gagnrýnenda fyrir örugga og
SíldtilBÚR
Reykjavik 14/12 — Togarinn
Pétur Halldórsson kom í gær
kvöld til Reykjavíkur með 3600
tunnur af ísaðri sild og hafði
togarinn lestað þessa sild á Nes-
kaupstað fyrir helgi og var þá
að koma úr söluferð til Eng-
lands.
f morgun var þegar hafin
uppskipun á síldinni og henni
ekið inn í fiskverkunarhús Bæj-
arútgerðarinnar og þar verður
hún söltuð og fryst til helm-
inga á Rússlandsmarkað.
Þjóðviljinn átti stutt viðtal
við Martein Jónasson, forstjóra
í dag og sagði hann, að hátt á
annað hundrað manns ynnu við
þessa verkun og yrði unnið fram
eftir kvöldinu og á morgun líka.
Ákvörðun verður tekin á morg-
un um áframhaldandi flutninga
á sild af Austfjarðahöfnum og
verður sú ákvörðun byggð á
gæðum síldarinnar.
ir spennarnir. Rekstrartruflanir
í aðveitustöðinni vegna sjávar-
seltu, sem verður talsverð í
Hafnarfirði i hvassri suðvestan
átt, eru því alveg útilokaðar.
Rafbúnaður aðveitustöðvarinn-
ar er framleiddur af Siemens
og Schuchert í Þýzkalandi, en
umboðsfirma þeirra hér á landi
er Smith og Norland h.f.
Um álagsstýringarkerfið sagði
rafveitustjóri, að það hefði fyrst
og fremst verið keypf til þess
að no.ta í stað rofaklukkna til
þess að rjúfa strauminn hjá
þeim, sem kaupa raforku til hit-
unar. Ennfremur verður kveikt
á eötulýsiogu bæjarins með því.
Álagsstýringarkerfið er keypt
hjá svissneska fyrirtækinu Zell-
weger en umboðsfirma þeSs hér
á landi er G. Marteinsson h.f.
í ræðu sinni skýrði rafveitu-
stjóri einnig frá því að síðan
bygging aðveitustöðvarinnar
hófst fyrir um fimm og hálfu
ári hafi byggingarkostnaður
stöðvarinnar, sem var áætlaður
upphaflega 3. milj. kr. hækkað
upp í 11 miljónir króna.
var einn þeirra er hófu sovezka
kvikmyndagerð til mikils vegs
og virðingar um og eftir 1930,
og hefur margt afrekað síðan.
Tónlistina gerði Dmítri Sjostako-
vítsj. Margir þekktir leikarar
koma fram í myndinni eins og
t.d. Nézvanof, einn af fremstu-
frumlega túlkun.
Viðstaddir sýninguna voru ma.
forseti íslands, ráðherrar og
sendiherrar erlendra ríkja.
Gengið mun hafa verið frá
samningum um að þessi kvik-
mynd verði sýnd í Laugarás-
bió.
Skip í sjávarháska
og fíóð / Bretlandi
LONDON 14/12 — Mörg skip
hafa orðið að leita aðstoðar
vegna ofsaveðurs á Norðursjó
og Eystrasalti. 1 Bretlandi hefur
orðið mikið tjón af völdum flóða
eftir úrhellisrigningar síðustu
vikurnar.
5.000 lesta skip frá Líberíu,
Navidad, strandaði á sandrifi við
eina af frísknesku eyjunum og
tvö lítil skip rak upp í land-
steina við Ijmuiden í Hollandi.
Mörg önnur skip hafa gefið frá
sér neyðarmerki.
Eldur logar í sænsku skipi í
höfninni í Le Havre og er það
að sökkva.
Einnig hefur frétzt af skipum
í sjávarháska á Eystrasalti og
Varð fyrir reiðhjóli
Laust fyrir klukkan fjögur í
gærdag varð það slys á Lauga-
vegi, við hús númer 72, að kona
varð fyrir reiðhjóli og hlaut höf-
uðáverka. Konan sem fyrir slys-
inu varð heitir Sigriður Jóns-
dóttir til heimilis að Háaleitis-
vegi 20. Hún var flutt á Slysa-
varðstofuna.
tjón hefur orðið af völdum ó-
veðurs síðustu daga í suðurhluta
Svíþjóðar og í Póllandi.
í Englandi og Wales hafa ven-
ið úrhellisrigningar undanfam-
ar vikur og meiri en dæmi eru
til á þessum tíma árs síðustu
35 árin. Hefur víða orðið mik-
ið tjón af völdum flóða, eink-
um í Wales.
Rapacki mælir
gegn MLF í SÞ
NEW YORK 14/12 — Adam
Rapacki, utanríkisráðherra Pól-
lands, gagnrýndi á þingi SÞ f
dag áformin um stofnun kjam-
orkuflota Nato, MLF, og sagði
að ef úr þeim yrði myndu við-
sjár vaxa aftur í Evrópu. Eng-
inn gæti ætlazt til að rfki Aust-
ur-Evrópu gerðu ekki sínar var-
úðarráðstafanir. Hann ítrekaði
pólsku tillöguna um bann við
staðsetningu kjarnavopna í Mið-
Evrópu og lagði til að haldinn
yrði fundur allra ríkja Evrópu,
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
til að fjalla um öryggismálin.
Jóhannesarkvöid
Sovézk-íslensska vináttufélagió
gekkst í miðjum síðasta mán-
uði fyrir samkomu ásamt Er-
lenda bókasafninu til heiðurs Jó-
hannesi úr Kötlum hálfsjötugum.
Formaður félagsins, Nikolaj
Gontsjarof, flutti ávarp og ræddi
einkum um þýðingar á íslenzk-
um bókmenntum í Sovétríkjun-
um og áhuga á þeim. Hann gat
þess meðal annars, að bækur
eítir íslenzka höfunda hefðu nú
komið út i tæplega hálfri ann-
ari miljón eintaka þar austurfrá.
Nemandi við Heimsbókmennta-
■ stofnunina, Alexei Kítlof, flutti
! ræðu um Jóhannes úr Kötlum,
j líf hans og starf. Hann las og
; upp úr eigin þýðingum á kvæð-
um skáldsins og svo kvæði sem
hann hefur sjálfur ort til Jó-
hannesar.
Fundi þessum lauk með því að
sýndar voru tvær stuttar kvik-
myndir frá fslandi.
ætur afmælisfundur
Trésmiiafélais Rvíkur
Hátíðafundur Trésmiðafélags
Reykjavíkur I tilefni af sextíu
og fimm ára afmæli félagsins
var hinn virðulegasti og vel til
hans vandað. Var fundurinn
haldinn í Gamla bíói s. I. laug-
ardag og um kvöldið héldu tré-
smiðir afmælishóf í Sigtúni.
Sviðið í Gamla bíói var fall-
ega skreytt, nafn Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur með stórum
stöfum yfir sviðinu, baksviðs
fánaborg úr íslenzkum fánum
og hinum rauða fána verkalýðs-
hreyfingarinnar, en ræðustóll
skreyttur íslenzkum fána, en
sinn hvoru megin sviðsins
fremst voru fánar félagsins,
gamli fáninn frá 1908 og nýi
fáninn, hvor um sig einkenn-
andi fyrir sinn tima. Og fremst
á sviðinu fagrar blómakörfur.
sem félaginu hafði borizt að
gjöf og framan á sviðsþilinu
blasti við merki félagsins.
Benedikt Davíðsson stjórnaði
fundinum. Fyrst lék Lúðrasveit
verkalýðsins undir stjórn Sig-
ursteins D. Kristinssonar nokk-
ur lög og þakkaði Sigursveinn
Trésmiðafélaginu stuðning við
rrenningarviðleitni verkalýðs-
samtakanna og árnaði félaginu
allra heilla.
-ir Heillaóskir og gjafir.
Benedikt Davíðsson skýrði því
næst í fáum orðum frá tilhög-
un afmælisins og minnti á sögu
félagsins, sem Gils Guðmunds-
son hefur skráð og út kom á
afmælisdag félagsins. Heillaósk-
ir bárust frá fyrrverandi for-
mönnum félagsins, sem ekki
gátu verið viðstaddir og frá
Ragnari Þórarinssyni hinum
mikilsvirta starfsmanni félag-;-
ins um áratugaskeið.
Minnti Benedikt á afmælis-
gjafir sem félaginu hefðu borizt,
m. a. frá Meistarafélagi húsa-
smiða. Málarafélagi Reykjavík-
ur, Sambandi byggingamanna,
Vinnuveitendasambandinu og
Múrarafél. Reykjavíkur. Finnur
O. Thorlacius hafði gefið fé-
inu silfurbikar sem á að vera
farandgripur til verðlauna fyrir
sveina sem smíða óvenjugott
sveinsstykki og hafa líka gott
próf úr Iðnskólanum.
Vcrkefnin næg.
Þá tók Jón Snorri Þorleifsson
formaður Trésmiðafélags Reykja-
víkur til máls og flutti aðal-
ræðu fundarins. Rakti hann til-
drögin að stofnun félagsins og
minnti á nokkur atriði úr ævi-
ferli þess. Meginkafli ræðunnar
fjallaði þó um félagið eins og
það er nú og verkefni þess, og
skýrði ræðumaður loks frá til-
drögum að stofnun Sambands
byggingamanna. Lagði Jón
Snorri áherzlu á að ráða yrði
bót á skipulagsleysinu í bygg-
ingarmálum landsmanna og úti-
loka að hægt yrði að gera hús-
næðisþörf manna að gróðalind.
Hvatti hann trésmiði til að
fylgjast vel með í tækniþróun á
sínu sviði og vera reiðubúna að
leita nýrra leiða, jafnframt því
Framhald á 9. síðu.
Frá hátíðafundi Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur í Gamla
bíói, Iaugardaginn 12. desem-
ber 1964. — Lúðrasveit verka-
lýðsins, stjómandi Sigursveinn
D. Kristinsson, á sviðinu, sem
er fagurlega skreytt.
Séð yfir nokkurn hluta af
fundi trésmiðaima í Gamla
bíói. — Ljósm., A.K..