Þjóðviljinn - 08.01.1965, Síða 2
SÍÐA
HÚÐVILJINN
Föstudagur 8. janúar 19é5
Verkalýðs- og sjómannafélag
Hnífsdælinga fjörutlu ára
■ í myndarlegu jólablaði VESTFIRÐINGS er birt ýt-
arleg og fróðleg grein um Verkalýðs- og sjómannafélag
Hnífsdælinga og störf þess í 40 ár, en félagið var stofnað
26. desember 1924. Höfundur greinarinnar sem Þjóðvilj-
inn birtir hér á eftir er Guðmundur H. Ingólfsson.
llliillliiiiiiiiiillll
Verkalýðs og sjómannafélag
Hnífsdælinga er stofnað 28.
desember 1924.
Aðalhvatamaður að stofnun
þess var hinn þjóðkunni jafn-
aðarmaður Finnur Jónsson á
Isafírði.
Af fyrstu fundargerð sést, að
Finnur Jónsson hefur haldið
fyrirlestur um tilgang og stefnu
verkalýðsfélaga, svo og störf
þeirra í anda jafnaðarstefnunn-
* .
ar.
Verkafólki á Hnífsdal var
því við stofnun félagsins gerð
góð grein fyrir því starfi, og
þeirri ábyrgð, sem því fylgdi
að vera meðlimur félagsins.
Atvinnuástand i Hnífsdal á
árunum 1920—1930 var líkt og
í öðrum sjávarþorpum. Fólk
lifði eingöngu á sjósókn og
fiskverkun.
Skipastóll lítill og ófullkom-
inn.
Atvinnuöryggi því ekki nema
eins og veðurguðirnir og afla-
brögð gáfu tilefni til.
Vinnudagur verkafólks og
sjómanna lítt takmarkaður,
nema við þrek hvers einstak-
lings, og aðbúnaður á vinnu-
stað óbreyttur frá því fyrsta
að fiskverkun hófst.
Ofan á þetta bætist svo það.
að samningar um kaupgjald
---------------------------TSéMt
eru ekki til, ^n atvinnurek-
endur ákvarða það sjálfir fyrir
hvem einstakan verkamann,
Við stofnun verkalýðsfélags-
ins sjá atvinnurekendur, að
breytinga má vænta og gera
því sitt ítrasta til að hindra
félagsstofnunina', eins og síðar
mun sagt verða.
Frá stofnfundi og fjTstu
starfsárum.
Á fyrsta fundi verkalýðsfé-
lagsins er kosin bráðabirgða-
stjóm til undirbúnings næsta
fundar. Aðalmaður í þeirri
stjórn var Magnús Guðmunds-
son.
Þann 11. janúar 1925 er svo
kosin fyrsta formlega stjórn-
in og skipuðu hana eftirtald-
ir: Formaður Ingimar Bjarna-
son, ritari Magnús Guðmunds-
son, féhirðir Sigurjón Jóns-
son. Varastjóm skipuðu: For-
maður Ingimar Finnbjömsson.
ritari Gísli Hjaltason og fé-
hirðir Kristinn Bjömsson. A
atkvæðagreiðslu á þessum
fundi sést að 47 meðlimir hafa
greitt atkvæði.
Kjaramál á dagskrá.
Á þriðja fundi félagsins,
sem haldinn er 1. febrúar
m tt JP s
1925, er fyrst rætt um kjara-
mál, og gerir formaður þá
samanburð á kaupgjaldi hér
og á Isafirði. Umræðum um
málið lýkur með samþykkt um
að félagið beiti sér fyrir að ná
samningum um sama kaup-
gjald og greitt sé nú á Isa-
firði.
Þann 1. marz liggur fyrir
svar atvinnurekenda við þessu
sanngjarna erindi, en þeir sáu
ekki ástæðu til samningagerð-
ar og neituðu afdráttarlaust
öllum viðræðum.
Jafnframt boðuðu atvinnu-
rekendur verðlækkun á fiski,
ef um kauphækkun yrði að
ræða.
tw 4(pr M
-----—%
skaplegt lánleysi
Morgunblaðið kemst í gær
svo að orði í forustugrein:
„Þegar þess er gætt að við
íslendingar eigum nú betri
og fullkomnari framleiðslu-
tæki en nokkru sinni fyrr, og
að afköst þeirra eru einnig
meiri en áður þekktist, þá er
það óskaplegt lánleysi og öf-
ugstrejuni, að stór hluti
framleiðslutækjanna skuli
ýmist berjast í bökkum eða
vera rekin með tapi“.
Morgunblaðið segir að
þetta „óskaplega lánleysi"
stafi af þvi „að fslendingar
geri nú, eins og oft áður, of
miklar kröfur á hendur fram-
leiðslu sinni“. Ekki kemur
þessi ofmikla kröfugerð frá
verkafólki sem hefur míklu
lægra kaup i frystihúsum og
öðrum fiskvinnslustöðvum en
tíðkast til að mynda í Noregi.
Ekki kemur hún heldur frá
sjómönnum, því fiskverð i
Noregi er 50% hærra en hér.
Þannig ber það verkafólk
sem í fyrra tryggði langtum
meiri afköst í sjávarútvegi
en áður hafa þekkzt mjög
skarðan hlut frá borði ; sam-
anburði við nágrannaþjóðir
okkar og keppinauta. En
hvaðan kemur þá hin of-
mikla kröfugerð? Einar Sig-
urðsson útgerðarmaður, fyrr-
verandi þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, lýsti því í út-
varpsviðtali á mánudaginn
var lið fyrir lið ' hvernig
stjórnarvöldin sjálf ganga á
undan í arðráni á útgerðinni
og sannaði að hægt væri að
tryggja hér muo hærra fisk-
verð en í Noregi ef viðreisn-
arstefnunni í sjávarútvegi
væri aflétt. Hann.komst einn-
ig svo að orði að Gunnar
Thoroddsen fjármálaráðherra
virtist ekki hafa hugmynd
um hvernig hann mergsygi
útgerðina, en hann hirti nú
í ríkissjóð 50 aura af hverri
gjaldeyriskrónu sem * aflað
væri. Og þeir fjárplógsmenn
sem ausa tugum og hundruð-
um miljóna króna í verzlun-
arhallir og hverskynns lúx-
us, sem engin verðmæti skap-
ar, sækja fjármuni sína að
sjálfsögðu til útflutningsfram-
leiðslunnar.
Það er rétt hjá Morgun-
blaðinu að það er mikið öf-
ugstreymi að útflutningsat-
vinnuvegimir skuli berjast í
bökkum að loknu ári þegar
framleiðsla þeirra nam nærri
þúsund miljónum króna
meira en dæmi eru til áður
Það er frámunaleg uppákomr
að hafa fjármálaráðherra sem
ekkert veit hvað hann er a"
gera að sögn þess flokksbró^
ur síns sem einna jimsvifr
mestur er í sjávarútvegi. Þa'
er í sannleika óskaplegt lán
leysi að hafa í landinu við-
reisnarstjóm sem getur eyði-
lagt mesta góðæri sem lands-
menn bafa notið. — A-istri.
Það má hiklaust telja þessa
ráðstöfun atvinnurekenda í
Hnífsdal upphaf þeirrar sögu-
legu viðureignar í kaupgjalds-
baráttunni, sem þar fór fram
síðar, eða í apríl 1927.
Syrtir í álinn.
Sókn hefst á ný.
Eflaust hafa þetta verið
gagnráðstafanir atvinnurek-
enda gegn félagsstofnun-
inni. Og_.. nýstöfnuðu félaginu
verður úm“"rnegri~ að standa
gegn heiftarlegum árásum at-
vinnurekenda, því að frá 1.
maí 1925 til 24 jan. 1927 eru
engir fundir haldnir, og nokk-
ur örvænting er ríkjandi um,
að félagið nái að starfa áfram.
En 24. janúar 1927 hefst raun-
verulega starfsemi félagsins á
ýmsum sviðum félagsmála, þá
byrja afskipti þess af opinber-
•um málefnum, góðgerðarstarf-
semi og hin raúnverulega
kjarabarátta, er varð svo sögu-
leg.
Vegna þessara tímamóta i
sögu félagsins, vil ég gera stutt-
lega grein fyrir fyrstu kaup-
gjaldsbaráttu þess, en s.ú bar-
átta var háð vorið 1927, nánar
tiltekið frá 1.—12. apríl og er
ein...
Sögulegasta og harðasta
kaupgjaldsbarátta sem sög-
ur fara af.
í stjórn félagsins eru þegar
þessi þátfcur sögu þess gerist:
Ingimar Bjarnason, formaður,
Helgi Hannesson, ritari, Gunn-
laugur Gunnlaugsson, féhirðir
og meðstjórnendur Þóra Guð-
mundsdóttir og Jakobína Guð-
mundsdóttir.
Síðarihluta vetrar 1927 ger-
ir félagið stöðugar tilraunir til
samningagerðar um kaupgjald
og vinnutíma við atvinnurek-
endur á Hnífsdal.
Allar slíkar tilraunir bera
engan árangur, og endirinn
verður sá, að félagið samþybk-
ir að auglýsa kauptaxta, sem
á að taka gildi 1. apríl.
Algjör eining var í félaginu
um kauptaxtann, en hann fól
í sér nokkra kauphækkun og
stvttingu vinnudagsins úr 14
i-i,,ifi<nst""J.iim í 12, og var
4 almannafæri svo-
Kaunf axti „Vcrkalýðsfélags
’in'fsrlælinira".
Kaupgjald karla:
Virka daga frá kl. 6 árd. Kr.
til kl, 6 síðdegis ...... 0.90
Eftirvinna frá kl. 6 síðd.
til kl. 10 síðdegis ...... 1.20
Næturvinna frá kl. 10 síðd.
til kl. 6 árd........... 1.50
Helgidagavinna allan
sólarhringinn .......... 1.50
Upp-og frams'kipun allan
sólarhringinn ........... 1.50
Kaupgjald kvenna:
Virka daga frá kl. 6 árd.
til kl. 6 síðdegis ..... 0.65
Nætur- og eftirvinna frá
kl. 6 síðd. til 6 árd. .. 0.80
Helgidagavinna allan
sólarhringinn .......... 0.80
Upp- og framskipun allan
sólarhringinn ........... 0.80
Ákvæðisvinna (akkord):
greiðist jafnt og yfir ár 1926,
en það var: Á málfisk kr. 1.60
pr. skpt. Á Labrador kr. 1.25
skpt.
Framanritaður kauptaxti
gengur í gildi 1. apríl 1927 og
gildir á meðan ekki er öðruvísi
ákveðið. Allir þeir, sem hugsa
sér að stunda vinnu í Hnífsdal
á komandi vori og sumri, eru
alvarlega áminntir um að víkja
ekki í neinu, er þeir ráða sig,
frá kaupi þvi, sem ofangreind-
ur taxti sýnir.
Hnífsdal í marz 1927.
Stjórmn.
Tilboð atvinnurekenda.
Atvinnurekendur voru ek'ki
til viðtals um kauptaxtann, en
sendu félaginu eftirfarandi til-
boð um kaupgjald:
Karla:
Dagvinna frá kl. 6 árd. .Kr,
til kl. 8 síðd.......... 0.60
Eftirvinna frá kl. 8 síðd..
til 6 árd.............. 0.90
Sunnudagsvinna greiðist .'.
með sáma kauþi óg’ éftirv'.....
Konur:
Dagvinna frá kl. 6 árd.
til kl. 8 síðd.......... 0.40
Eftirvinna frá kl. 8 síðd.
til kl. 6 síðd.......... 0.60
Sunnudagavinna greiðist
með sama kaupi og eftirv.
Ákvæðlsvinna:
Á málfiski kr. 1.00 pr. skpt.
Á Labra, keilu, ýsu, ufsa o.fl.
kr. 0.80 pr. skpt.
Framanritaður kauptaxti®-
gengur í gildi 1. apríl 1927 og
gildir til 1. október sama ár.
Kauptaxti þessi miðast við
það, að við viljum 'reyna að
halda því verði á blautfiski,
sem nú er, yfir komandi vor-
vertíð.
Aftur á móti, verður . við
neyddir til þess að víkja frá
framangreindum kauptaxta, er
miði • til hækkunar á honum,
læklcum við fiskinn að því
skapi, sem kauptáxtinn kynni
að hækka frá því sem hann er
hér með ákveðinn af okkar
hálfu.
Málið á fiskinum höfum við
ákveðið eins og það nú er.
Hnífsdal 22. marz 1927.
Valdimar Þorvarðsson
Hálfdán Hálfdanarson
Jónas Þorvarðsson
Helgi Kristjánsson
F.h. Verzl Guðm. Sveins-
sonar Einar Steindórsson.
Svar verkafólks —
vinnustöövun boðuð.
Þetta ákveðna tilboð at-
vinnurekenda er rætt á fundi
í félaginu 29. marz 1927. Og
því er svarað á þann veg, að
samþykkt er í einu hljóði að
halda fast við auglýstan taxta
lélagsins, og boðuð vinnustöðv-
un 1. apríl hafi samningar ekki
tekizt.
Atvinnurekendur töldu sér
þó fært að ráða niðurlögum
félagsins og neituðu samning-
,um jafnframt því, sem þeir
Ingimar Bjarnason, fyrsti formaður félagsins, 1925—1936. Með-
stjórnandi árin 1936—1948.
gerðu ítrekaðar tilraunir til að
sundra félagssamtökunum.
En nú var félagið undirbúið,
og samtökin stóðust raunina.
Vinnustöðvun varð 1. apríl og
þátttaka mjög almenn. — Því
til sönnunar er rétt að nefna
það, að á fundi í verkfallsbyrj-
un gengu 13 karlar og 6 konur
í félagið.
Á þeim sama fundi mætti
Finnur Jónsson og hélt ræðu.
Hann talaði um einingu fé-
lagsmanna og... kraXt.-..fé)ag.t«:t5.
gegn. kúgun atvinnurékenda,
sem með aðstoð bankavalds-
ins á Isafirði höfðu lokað sölu-
b'úðum 'óg fshúsi ..fyrsta vgrk:-{
'fálls'dáginn. Vár neitað að af-
henda matvæli til fólks, sem
óskaði þess og átti þau geymd
í íshúsinu. Jafnframt settu at-
vinnurekendur verkbann á sjó-
menn og hættu öllum fisk-
kaupum.
Stríðsyfirlýsing.
Atvinnurekendur gáfu út op-
inbera stríðsyfirlýsingu, —
sem fræg varð, og er rétt að
Hún fylgi hér með. Hún var
svohljóðandi:
„Með því að lánastofnanirn-
ar á Isafirði hafa tilkynnt oss,
að allar útborganir frá bönk-
um okkar vegna verði stöðvað-
ar, og jafnframt fyrirskipað að
loka sölubúðum og íshúsum, þá
leyfum vér oss ’ að tilkynna, að
sölubúðum okkar og íshúsi
verður lokað fyrst um sinn.
Hnífsdal, 1. apríl 1927.
Jónas Þorvarðsson,
Hálfdán Hálfdánsson,
f.- Valdimar Þorvarðsson
’ V. B. Valdem.
F.h. db. Guðm Sveinssonar
Einar Steindórsson.”
Kaupgjaldsbaráttan komst
því strax 1. apríl á það stig,
að atvínnurekendur beittu ein-
dæma ráðstöfunum, gerðu m.
a. beina tilraun til að svelta
verkafólk til hlýðni.
Þeir gáfu engan kost á að
kaupa nauðsynleg matvæli í
þeim sölubúðum, sem þeir réðu
yfir, og neituðu fólki að ná
eigin matvælum úr íshúsinu.
Þessum ráðstöfunum var
engu síður skellt á verkafólk
og sjómenn, þó að verkalýðs-
Framhald á 9. síðu.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur
Kennsla hefst aftur mánudaginn 11. janúar.
Nýtt námskeið fyrir byrjendur í gömlu dönsunum
kl’ 8. — Klukkan 9 og 10 veþða framhaldsflokkar í
gömlu dönsunum.
Innritun daglega frá kl. 5—7 í síma 12 5 07 og í
Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu á mánudaginn frá
klukkan 7.
Kennsla í öðrum flokkum er á sama tíma og var
fyrir jól.
Þjóðdansafélagið.
CONSUL CORTINA
bllalelga
magnúsai*
slclpholtl 21
slmapj 21190-21185
^laukur (^u&mundóaon
HEIMASÍMI 21037 i
t