Þjóðviljinn - 08.01.1965, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 08.01.1965, Blaðsíða 12
I • r' Urskurður í máli stjórnar Starfsmannafélags Utvegsbankans: Stjórninni boðið að sæta áminningu Hér situr stjórn Starfsmannafélags tJtvegsbankans á sakamannab ekk í ofanverðum nóvcmbermánuði og bíður eftir yfirheyrzlu hjá sakadómara og var formaðurinn þá stundina inni í yfirheyrzlu. Sakadómaraembættið í Reykja- vík kvað upp úrskurð í gærdag yfir stjórn Starfsmannafélags Út- vegsbankans út af verkfallinu annan dag nóvembermánaðar á síðasta ári, en starfsfólk bankans hér í Reykjavik og útibúum hans út um allt land var þá að mót- mæla óhæfri mannaráðningu i stöðu útibússtjóra bankans á Ak- ureyri. Meginefni þessa úrsk-urðar er að falla frá öllum refsingum til handa starfsfólkinu samkvæmt gömlum og úreltum lögum er varða rétt opinberra starfsmanna til verkfalla og bjóða stjórninni upp á sættir með þeim skilyrðum þó að sæta áminningu fyrir verknaðinn, en það þýðir á mæltu máli, að starfsfól'k bank- ans lofi því að efna ekki aftur til verkfalla. Sakadómaraembættið fékk málið til rannsóknar á sínum tífna og yfirheyrði Halldór Þor- björnsson, settur yfirsakadómari þá stjórn starfsmannafélagsins og sendi síðan niðurstöður til Saksóknara ríkisins og hann vísaði því áfram til bankamála- ráðherrans og þannig hefur mál- ið hlaupið upp og niður emb- ættisstigann undanfarnar vik- ur með þessum meinlausa endi. Seint í gærkvöld náði Þjóð- viijinn loks tali af Adolfi Björns- syni, formanni Starfsmannafélags Útvegsbankans og viðurkenndi fcrmaðurinn, að stjórn sín hefði fengið tilkynningu þá um dag- inn um þennan úrskurð og lægi hann enn ósnertur í bréfi hjá embættinu og væri ætlunin að lesa úrskurðinn í dag yfir stjóm félagsins. Þjóðviljinn spurði Adolf, hvort hann myndi sæta áminningu og kvað hann litlar líkur á því og ekki sagðist hann kveljast af samvizkubiti. Hinsvegar vildi Adolf nota tækifærið fyrst þetta væri til umræðu og sagðist skora á Braga Sigurjónsson, settan úti- bússtjóra að hverfa þegar úr starfi eða heita minni maður ella. Um 737. þús. tn af fiski unnin hér lendis 1963,25 þús. meira en 1962 ■ Alls var 736.731 tonn af fiski tekið til hagnýtingar á íslenzkum höfnum árið 1963. Árið áður, 1962, voru alls 711.083 tonn tekin til hagnýtingar eða liðlega 25 þús. tn. minna. ■ í’rá þessu ségir í nóvemberhefti Hagtíðinda 1964- Þar er tafla um hagnýttan fisk á íslenzkum höfnum þessi tvö ár og líka tafla um ísfisk fluttan á erlendan markað þessi ár með íslenzkum fiskiskipum, flokkað eftir útgerðarhöfn skipa og sölulandi. 1 skýrslunni með töflunni um hagnýttan fisk á íslenzkum höfn- úm segir svo: „Tafla þessi er gerð eftir skýrslum Fiskifélags- ins. Humar er talinn með, en rækjur hins vegar ek'ki. Loðna er talin með síðara árið, en ekki hið fyrra. tsfiskur og ísuð síld, sem siglt er með á erlend- an markað. er ekki talið með f þessari töflu og er sérstakt yfirlit um það i annarri töflu, þ. e. um ísfisk fluttan á erlend- an markað; 4 Taflan gefur ekki að öllu leyti rétta mynd af þýðingu hafnanna sem verstöðva, því að Fiskifé- lagið skiptir aflamagninu niður eftir vinnsluhöfnum, en ekki löndunarhöfnum. Oftast nær fer þetta þó saman. I einstaka höfn- Fýrsti borerar- ársins stnttnr Borgarstjórn Reykjavíkur hélt fyrsta fund sinn á nýbyrjuðu ári í gær og stóð hann aðeins í 20 mínútur.^Er fyrsti borgar- stjómarfundur hvers árs að jafnaði sá stytzti, en síðasti fundurinn nær alltaf lengstur, enda frumvarp til fjárhagsáætl- unar borgarsjóðs þá, rétt fyrir jólin. til síðari umræðu Frá þeim umræðum sem urðu á borgarstjórnarfundinúm í gær er sagt á öðrum stað í blað- inu. um er þó landað mun meira fiskmagni en taflan gefur til kynna, einkum þó f Griiídavík.“ Hér fer á eftir yfirlit um fisk tekinn til vinnslu á þeim höfn- um, sem unnu yfir 10 þús tn. árið 1963 í réttri röð og er tal- an frá 1962 í svigum fyrir aftan Reykjavík 112.236 ( 74.552) Vestmannaeyjar 75.201 ( 51.587) Seyðisfjörður 46.745 ( 20.563) Neskaupstaður 45.761 ( 35.613) Keflavík 42.fc56 ( 33.270) Raufarhöfn 41.439 ( 59.143) Hafnarfjörður 41.264 ( 30.878) Akranes 30.878 ( 32.837) Siglufjörður 27.864 (114.396) Grindavík 20.970 ( 16.190) Vopnafjörður 20.754 ( 32,129) Eskifjörður 20.158 ( 12.038) Sandgerði 15.762 ( 11.812) Búðir v. Féskrfj. 14.316 ( 11.759) Ake. og Krossan. 12.981 ( 16.927) Reyðarfiörður 12.106 ( 4.035) Olafsvík 11.512 ( 9.331) Lítið af þessum fiski er tog- arafiskur, en hann er mestur í Reýkjavík eða 24 þús. tn 1963 og 11 þús. tn árið áður. í Hafn- arfirði er togarafiskur tæp 7 þús tn. 1963, en hálft fjórða 1962. Togarafiskur unninn . á Ak- ureyri er rösk 8 þús. tn 1963 en rösk tvö þús. 1962. Annars stað- ar nær hagnýttur togarafiskur pkki þúsund tonnum. Af töflunni hér að framan sést að sveiflan milli ára hefur verið hvað mest á Siglufirði, Seyðisfirði og Reyðarfirði. Rétt er að géta þess að Hjalteyri vann 14.103 tn af fiski 1962 en aðeins rös'k 6 þús. 1962. Samkvæmt Hagtíðindunum voru 41.789 tn af ísuðum fiski flutt til V.-Þýzkalands og Bret- lands 1963 með fslenzkum fiski- skipum en 37.961 tn 1962. 1 þessum tölum er talin ísuð síld en ekki loðna. ísfiskur flutt- ur á aftnan hátt, þ. e. með er- lendum og innlendum flutninga- skipum og með flugvélum var enginn árið 1962 en 323 tn. 1963. Mestur er útflutningur ísaðs fisks með reykvískum skipum eða tæp 26 þús. tn 1963 og rösk 22 þús. tn 1962. Næst kemur Hafnarfjörðui^ með liðlega 6 þús. 1963 og um 5 þús. 1962. DUMNN Föstudagur 8. janúar 1965 — 30. árgangur — 5. tölublað. BLAÐADREIFING Þjóðviljann vantar nú þegar blaðbera í eftirtalin hverfi: VESTURBÆR: Seltjarnarnes 2. Skiólin Melarnir Tjamargata. i AUSTURBÆR: Laufásvegur Þórsgata Meðalholt Skúlagata Höfðshverfi Brúnir Miklabraut Mávahlíð KÓPAVOGUR: 2 hverfi laus í Auslurbæ. Umboðsmaður: Ásbraut 19, — Sími 40319. HAFNARFJÖRÐUR: Laus hverfi í aust- ur og vesturbæ. Umboðsmaður: Hringbrauf 70 — Sími 51-369. Sími 17-500. Drukku mjólkina úr kúnum og drápu hænsnin Hafa játaSá sig átta innbrot Tveir .piltar af Suðurnesjum voru handteknir af Sandgerðis- lögreglunni í fyrradag í Reykja- vík og voru þeir fluttir til yf- irheyrzlu á lögréglustöðina í Keflavík sama kvöld og viður- kenndu þá um kvöldið innbrot- ið í Axelsbúð í Sandgerði. En ,svo. fyjgdu. í kjölfasið raunalegar játningar og játuðu þeir á sig hvorki meira né minna en átta innbrot á Suðurnesjum 'síðan á Þorláksmessudag fram á þrettánda dag jóla og hafa þeir heldur betur látið hendur standa fram úr ermum alla jóladagana. Búizt er þó við, að þessir pilt- ar hafi jafnvel fleiri innbrot á samvizkunni og ekki sé allt kom- ið á hreint ennþá. Þannig hafa þeir játað á sig innbrot í Friðjónskjör í Njarð- víkum og tóku þar ófrjálsri hendi nokkrar lengjur af sígar- ettum og flugelda, þá brutust þeir inn í bifreiðaverkstæði Guð- mundar Sigurðssonar í Kefla- vík og stálu þar áhöldum til viðgerðar á eigin druslu, þá brutust þeir inn í frystihúsið í Gerðum og stálu þaðan útvarps- tæki og heimsóttu um hábjart- an dag Nýjabæ á Vatnsleysu- strönd og stálu frá heimilisfólk- inu öðru útvarpstæki og þaðan fóru þeir á hænsnabú í Garð- inum og drápu þar nolskur hænsni og báru við eggjatöku. Þá fóru þeir heim á bæinn Holt í Garðinum og tóku enn eitt útvarpstækið og forláta ávaxta- skál. Þá fóru þeir í fjósið að Meiðastöðum í Garði og mjólk- uðu kýrnar og drukku ósleitilega mjólkina úr kúnum og hélt bóndinn, að kýrnar væru allar orðnar steingeldar að morgni. Þessir piltar hafa verið á far- aldsfæti síðustu vikurnar og er annar seytján ára og dvaldi í sveit sér til upjpbyggingar í sum- ar og hinn er tuttugu og eins árs og teljast báðir Suðurnesja- menn. Framkvæmdastjórn almannavarna er aukaembætti hjá slökkviliðsstjóra □ Allir 12 borgRrfulltrúar hernámsflokkanna þriggja staðfestu á fundi borgarstjórnar Reykja- víkur í gær ráðningu eins æðsta og tekjuhæsta embættismanns borgarinnar í aukaembætti: fram- kvæmdastjórn svonefndrar almannavamanefndar. Eins og Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá, féllst borgarráð á fundi sínum rétt fyrir áramótin á tillögu almannavarnarnefndar um að Valgarð Thoroddsen slökkviliðsstjori yrði ráðinn framkvæmdastjóri nefndarinnar. Greiddu 4 borgarráðsmenn í- halds og Framsóknar atkvæði með þessari ráðningu en Guð- mundur Vigfússon, borgarráðs- maður Alþýðubandalagsins. var ándvígur embættisveitingunni og óskaði að bókað yrði eftirfar- aj.di: „Ég lít svo á, að stofnun þessa nýja embættis sé óþörf og þau útgjöld megi spara sem þvi er samfara“. Fyrsta skrefið Á. borgarstjómarfundinum í gær ítrekaði Guðmundur þessa afstöðu sína í borgarráði og flutfi tillögu til frávisunar. Minnti hánn á að síðan lögin um almannavarnir hefðu verið sett 1962 hefði ekki verið talin ástæða til að setja sérstakan framkvæmdastjóra fyrir um- rædda nefnd, enda starfsemi hennar tiltölulega lítil og' litlu eytt af því fé, sem til hennar hefði verið veitt á fjárhagsáætl- un borgarsjóðs undanfarin ár. Nú væri ekki annað að sjá en stefnubreyting ætti að verða í málinu og mætti ætla að ráðn- Valgarð Thoroddsen ing framkvæmdastjóra nefndar- innar með 70—80 þús. kr. árs- launum yrði aðeins fyrsta skref- ið á lengri braut, og. ef að lík- um léti myndi þetta fyrsta skref draga dilk á eftir sér, í kjölfar ráðningar framkvæmdastjóra mætti ætla að fylgdi skrifstofu- hald með tilheyrandi kostnaði, ráðning skrifstofufólks, bíla- kostnaður o.s.frv. Utan á þetta myndu óhjákvæmilega hlaðast kostnaðarliðir, og kvaðst Guð- mundur e'kki sjá neina ástæðu til að eyða takmörkuðu fé borg- arsjóðs í stofnun sem ekki væri meir aðkallandi en raun ber vitni, allra sízt nú er friðvæn- legar horfir í heiminum en oft- ast áður. Annað mál er það svo, sagði Guðmundur Vigfússon, að fela þetta starf einum æðsta og tekjuhæsta embættismanni Reykjavíkurborgar. Munu þó flestir borgarbúa telja að slökkviliösstjóri hafi um ærið starf að hugsa þó að aukaemb- ætti séu ekki á hann hlaðin. Geir Hallgrímsson borgarstjóri Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.