Þjóðviljinn - 08.01.1965, Side 3
Föstudagur 8. janúar 1965-
ÞIÚÐVILJINN
SÍÐA
Góð kirkjusókn í
Sovét um jólin
MOSKVU 7/1 — Þúsundir
kristinna Sovétborgara
héldu í kirkju í gær til
þess að hlýða jólaguðspjall-
inu og í Moskvu hlýddu
meir en tvö þúsund manns
á Alexei patríarka, yfir-
mann grísk-kaþðlsku kirkj-
unnar í Ráðstjórnarríkj-
unum. Grísk-kaþólska
kirkjan heldur jóladaginn
hátíðlegan 7. jan. samkv.
júlíanska tímatalinu, en
það var afnumið í Sovét-
ríkjunum eftir byltinguna
1917.
Öamerískir naz-
istar
WASHINGTON 7/1 — Ó-
ameríska nefndin svokall-
aða var á miðvikudag beð-
in að rannsaka starfsemi
bandaríska Nazistaflokks-
ins, sem er undir forystu
George Rockwell. Flokkur-
inn er lögleyfður í Banda-
ríkjunum og efndi síðast
til útifundar er bandaríska
þingið kom saman á mánu-
dag.
Morðingi tekinn
HELSINKI 7/1 — 17 ára
gamall piltur hefur nú ját-
að að hafa myrt tvær kon-
ur í bænum Kuopio oK
kyrkt þær með nælonsokk.
Pilturinn var handtekinn á
miðvikudag og játaði á
fimmtudag. Hið fyrra morð-
ið var framið 6. des. sl.
en hið síðara 3. jan. og
tók þá skelfing að grípa
um sig í bænum. Hér er
um kynferðisglæpi að
ræða.
Ræða um Kongó
LONDON 7/7 — Banda-
ríski varautanríkisráðherr-
ann Averell Harriman kom
á miðvikudagskvöld til
Lundúna frá París. Hann
átti á fimmtudag klukku-
stundarlangt samtal við
Harold Wilson, og er talið
sennilegt í London, að þeir
hafi rætt Kongómálið. í
París sat Harriman fund
fastaráðs NATÓ þar sem
m.a. var rætt um Kongó,
þó án þess að samkomulag
yrði um sameiginlega
stefnu Atlanzhafsbanda-
lagsins í þvi máli.
Viðskiptamál
WASHINGTON 7/1— Full-
trúar verzlunarmanna |
fyeirra. bandarískra, s©m
fyrir nokkru heimsóttu
Ráðstjórnarrikin til þess
að kynna sér möguleika á
auknum verzlunarviðskipt-
um lancfanna, gengu í dag
á fund Johnsdbs forseta
og skýrðu honum frá gangi
þessara mála. í Moskvu
ræddu verzlunarmennirn-
ir við Kosygin og aðra
sovézka leiðtoga. Þeir voru
um 90 að tölu og niður-
staða þeirra eftir förina
var sú, að Bandaríkin eigi
af samkeppnisástæðum að
létta á viðskiptahömlum
við Sovétríkin og önnur
sósíalistisk ríki.
•
Kanar vongóðir í
Suður-Víetnam!
SAIGON 7/1 — Það er haft
eftir góðum heimildum í Saigon
í dag, að áfram miði við lausn
stjórnarkreppunnar, sem ríkt
hefur í landinu síðasta hálfan
mánuð. Lausnin felst sennilega
í því, að meðlimir Þjóðarráðsins
svonefnda, sem settir voru af
og setið hafa í fangelsi frá því
20. des. sl., verði látnir lausir,
einhverskonar borgaralegri stjórn
verði komið á og kvödd verði
saman ráðgjafasamkunda, sem
komi í stað ráðsins.
Það kemur fram i skýrslum
Bandaríkjamanna í Saigon, að á
siðastliðnu ári voru sjö þúsund
hermenn stjórnarinnar felldir í
bardögum við Víetkong, 16.000
særðir og 5.800 er saknað. 132
Bandaríkjamenn féllu en 1022
særðust, 11 er saknað og 3 voru
teknir til fanga. Mannfall Víet-
kong var hinsvegar minna 1964
en 1963, 21 þúsund á móti 25
þús. 4200 hermenn Víetkong
voru teknir til fanga, samkvæmt
þessum skýrslum.
Það fylgir annars fregnum frá
Suður-Víetnam, að bærinn Hue
sem er um miðbik landsins, hafi
verið nær lamaður af allsherj-
arverkfalli á fimmtudag.
Verkfallsmenn voru
kvaddir í herinn
ANTWERPEN 7/1 — Þúsundir |
belgískra hafnarverkamanna í
Antwerpen tóku aftur upp vinnu !
i dag eftir að ríkisstjórnin hafði
kvatt verkfallsmenn til herþjón-
ustu. Vinnustöðvunin, Sem staðif)
hefur í um það bil viku, hefur |
haft það í för með sér, að svo
gott sem öll vinna við höfnina í
Antwerpen hefur legið niðri. I
Ekki hafa þó verkamenn með
öllu látið undan. Hafnarverka-
menn þeir, sem meðlimir eru í
hinu kaþólska hafnarverka-
mannasambandi, fengu þegar er
frá herkvaðningunni var skýrt,
fyrirskipun um það frá félaginu
að fara sér hægt við vinnu, en
slíkt jafngildir beinu verkfalli.
Stríðsglæpamenn
sleppa þ®
BONN 7/1 — Vestur-þýzki
dómsmálaráðherrann ...Ewald
Bucher neitaði því í dag, að
sérhver stríðsglæpamaður, sem
áður hafi farið huldu höfði, geti
birzt í Vestur-Þýzkalandi frjáls
Sovétnjósnara náð
í Bandaríkjunum
WASHINGTON 7/1 — Maður
nokkur hefur verið handtekinn
í New York sakaður um njósn-
ir í þágu Sovétríkjanna. Það er
bandaríska ríkislögreglan ,FBI,
sem frá þessu skýrir í dag.
Bandarisk yfirvöld hafa vísað
starfsmanni sovézka sendiráðs-
ins i Bandaríkjunum úr landi
fyrir ' að vera viðriðinn mál
þetta.
í höfuðvígi lýðræðisins á vesturlöndum:
Forseti biður þing um ein-
földustu almannatryggingar
maður eftir að út rennur sá tími,
er Stríðsglæpir fýrnást í Iandinu.
1 grein £ blaðinu „Industrie-
Kurier“ ritar dómsmálaráðherr-
ann, að Martin Bormann, stað-
gengill Hitlers, Gestapóforinginn
Heinrich Múller og aðrir stór-
glæpamenn muni verða dregnir
fyrir rétt, ef þeir stingi upp
höfðinu í Vestur-Þýzkalandi.
Hinsvegar snerist dómsmála-
ráðherrann gegn þeirri kröfu, að
framlengdur verði fymingartím-
inn, en það eru einkum Israels-
menn, sem haldið hafa þeirri
kröfu fram. — I þeim málum, er
þegar hefur verið hafin réttar-
rannsókn í verður ekki tekið til-
lit til þess, að þessir glæpir séu
fyrndir, sagði dómsmálaráðherr-
ann, og lýsti því yfir um leið,
að yfirvöldin hefðu notfært sér
þennan möguleika um alla kunna
stríðsglæpamenn.
WASHINGTON 7/1 — Lyndon B. Johnson Banda-
ríkjaforseti hvatti bandaríska þingið til þess á
fimmtudag að hefja sókn til þess að bæta heilsu-
gæzlu bandarísku þjóðarinnar. — Helztu tillögur
hans eru þær, að þingið samþykki lögin um sjúkra-
tryggingu fyrir aldrað fólk og að þessi trygging
verði á vegum almannatrygginganna. Fréttamenn
telja víst, að þessar tillögur forsetans, sem eru
svipaðs eðlis og þær sem felldar voru fyrir Kenn-
edy forseta, muni hljóta harða mótspyrnu í þing-
inu.
Þá leggur forsetinn til, að
komið verði á fót stofnunum til
þess að reyna að vinna bug á
hjartasjúkdómum, krabbameini
og heilablóðfalli. í ávarpi sínu
til þingsins minntist forsetinn ekki
á það, hvað þessar nýju aðgerð-
ir í heilbrigðis- og almanna-
tryggingum mundi kosta banda-
rfska ríkið, en talið er, að það
muni nema 12.000 miljónum dala
næstu fimm árin.
KNÝJANDI VERKEFNI
Johnson leggur mikla áherzlu
á það, að komið verði á aukinni
sjúkratryggingu fyrir aldrað
fólk, en eins og kunnugt er
neitaði þingið í fyrra að fallast
á nokkuð slíkt. Porsetinn segir
þetta vera knýjandi verkefni og
biður jafnframt þingið að ræða
mæðrastyrk og barnalífeyri,
læknishjálp handa vangefnum og
það, að heilbrigðisþjónustan í
landinu yfirleitt sé færð i nú-
tímahorf, eins og það er orðað
i frétt frá NTB.
Lyndon B. Johnson
MIKIÐ ÓUNNIÐi
Þá leggur forsetinn mikla á-
herzlu á menntun lækna og tann-
lækna. Hann biður þingið herða
eftirlit með róandi lyfjum, svo-
nefndum, og öðrum eiturefnum,
sem nú séu í umferð. Hann
bætir því við, að enn sé mikið
óunnið í því að frasða fólk um
heilbrigðismál yfirleitt, og hvet-
ur til þess, að vísindalegar lækn-
isfræðirannsóknir séu stóraukn-
ar. v
LJÓTAR TÖLUR
í tilkynningu forsetans segir
ennfremur:
Enginn getur sætt sig við það,
að 48 miljónir manns fái krabba,
15 miljónir þjáist af hjartasjúk-
dómum og 126.000 bandarískir
borgarar reynist vangefnir. Hér
getur ekkert kraftaverk hjálpað
okkur, segir Johnson forseti, við
vcrðum að gera kraftaverkið
sjálfir.
Ný stjórn í
Nígeríu
LAGOS 7/1 — Forsætisráðherr-
ann í Nígeríu, Sir Abnkar
Tafawa Laewa Laewa, tilkynnti
það á fimmtudag að hann hefði.
myndað nýja 17 manna stjóm
og er þá leyst stjómarkreppa
i sú, sem ríkt hefur í landinu
: eftir kosningamar síðustu viku.
: Framsóknarsambandið, sem er
stærsti andstöðuflokkurinn í
landinu, neitaði að taka þátt í
kosningunum, forseti landsins,
Azikiwe, tók undir gagnrýnina
en fól þó Abukar að mynda
stjórn.
>■■■■■«(» ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• miHm,,
JÖN L0FTSS0N H.F.
\ Kynnir og sýnir hinn
óviðjafnanlega
RAMBLER '65
Mikil snjóþyngsli
eru nú í Moskvu
MOSKVU 7/1 — Moskvuborg
er nú hulin snjó, og eftir fjög-
urra daga samfellda hríð er öll
umferð borgarinnar lömuð. Göt-
urnar eru þaktar bílum og al-
menningsvögnum, sem snjóað
hefur £ kaf eða þá að þeir hafa
ekki komizt leiðar sinnar. Yfir-
völdin skýra svo frá, að ein
miljón lesta af snjó hafi hlaðizt
á götur borgaripnar, og það muni
taka að minnsta kosti tíu daga
að ryðja göturnar. Ástæðan fyr-
ir þessum snjóþyngslum eru tvær
lægðir yfir hinum evrópska hluta
Ráðstjórnarríkjanna, en þær
hafa í för með sér þíðviðri og
mikla úrkomu.
AMBASSADOR „880“ C „990“ glæsilegustu amerísku bílarnir
fyrir íslenzka staðhætti.
CLASSIC „770“ frá A.M.C. í Belgíu.
Beztu amerísku bílakaupin í dag.
Englendingar ræða við EBE
BRtlSSEL 7/1 — Það var til-
kynnt í Brússel í dag, að næsta
fimmtudag muni enska Verka-
mannaflokksstjómin taka upp
viðræður við Efnahagsbandalag
Evrópu. Það er verzlunarmála-
ráðherrann, Douglas Jay, sem
verður fulltrúi ensku stjórnar-
innar. Hann mun ræða við Walt-
her Hallstein, formann í Fram-
kvæmdanefnd EBE, og þá vara-
formennina Robert Marjolin og
Jean Rey.
Svo er frá skýrt í Brússel, að
ræddd verði „sameiginleg áhuga-
mál“ eins og það er orðað, en
ekki sé búizt við neinum mikil-
vægum ákvörðunum. Ekki búast
fréttamenn í Brússel við þvf,
að þessar viðræður leiði til auk-
ins samstarfs með Englendingum
og EBE og minna í því samþ.
á, að Verkamannaflokksstjórnin
enska hafi enn ekki fastmótað
endanlega stefnu sína gagnvart
Efnahagsbandalaginu.
AMERICAN „220“, „320“ og „440” mest
selda ameríska bílategundin á íslandi í dag.
RAMBLER: Verksíæðið
RAMBLER: Umboðið
RAMBLER: Varahlutir
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — Sími 10600.
illlllllBIIUHHIIIIIBaaHUHIIIIIIIVMIIIRRIIIIIllllllliiiiii,
!■■■■■■■■■■■■■■■