Þjóðviljinn - 03.03.1965, Síða 1

Þjóðviljinn - 03.03.1965, Síða 1
Miðvikudagur 3. marz 1965 — 30. árgangur — 51. tölublað. Sósíalistar Reykjavík Félagar í Sósíalistafélagi Reykjavíkur, Æskulýðsfylkingunni og Kvenfélagi sósíalista; munið 2. erindi í erindaflokki ÁSGEIRS BLÖNDALS MAGNÚSSONAR um MARXISMANN, sem flutt verð- ur að Tjarnargötu 20 (salnum niðri) fimmtudaginn 4. marz kl. 9. FRÆÐSLURÁÐ. Stefnt vísvitandi út á heliarþröm kjarnorkustríðs Baidarikiisljórn fæiir út strilii i Vietnam með 2 nýjum loftárásum Nú hefur hún ekki einu sinni reynt að afsaka þœr með áhlaupum skœruliða í S-Vietnam SAIGON og WASHINGTON 2/3 — Bandaríkjamenn gerðu aftur í dag tvær miklar loftárásir á Norður-Vietnam, þær mestu sem þeir hafa gert. Með þessum árásum, sem nú er ekki reynt að afsaka með því að þær séu til endurgjalds fyrir áhlaup skæruliía á stöðvar Bandaríkjamanna í Suð- ur-Vietnam, hefur stríðið þar enn verið fært út og er nú komið á nýtt stig, sagði fréttaritari brezka útvarpsins í Washington í gær. Annað sko.tmark Bandaríkjamanna, hafnarbærinn Quang Khe, var einnig all- miklu norðar en þeir hafa áður farið og er það í samræmi við þá ákvörð- un þeirra að fikra sig smám saman norður eftir landinu, allt að höfuð- borginni Hanoi. Suðurkóreskir hermenn sendir til Vietnams Fréttaritari brezka útvarpsins sagði að ákvörðun um þessar síðustu árásir hefði verið tekin fyrir hálfum mánuði, þegar ákveðið hefði verið að halda á- fram að gera loftárásir á Norð- _■■■■■■■■■■■■■•«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• LAUNA- SKATTUR ORÐINN f gær var samþykkt sem lög frá Alþingi frumvarp um launaskatt, sem er eitt af höfuðatriðum júnísam- komulagsins. — Aðalefni frumvarpsins er í því fólgið að launagreiðend- ur. nema í landbúnaði, skuli greiða 1% af greidd- um launum til launþega í Byggingasjóð ríkisins. Nánar verður greint frá þessum lögum síðar. ur-Víetnam með sívaxandi | þunga, án þess að bíða nokk- urra tilefna. Árásimar væru einnig i fullu samræmi við þá kenningu sem Baudaríkjastjóm hélt fram í „hvitbók" sinni um stríðið í Vietnam sem gefin var út á laug- ardaginn, að það sé stjórnarinn- ar í Hanoi að láta þjóðfrelsis- hreyfinguna í Suður-Vietnam hætta skæruhernaði sínum eða eiga annars yfir höfði sér sí- vaxandi árásir Bandaríkjamanna. Mestu árásirnar Meira en 160 bandarískar og suðurvietnamskar flugvélar tóku þátt í árásarferðunum í dag, sem sagðar eru þær mestu sem Bandaríkjamenn hafa farið í Vietnam. Bandaríski ofurstinn sem stjórnaði órásunum, Price að nafni, sagði að varpað hefði verið 180—190 sprengjum á skot- mörkin og að um tveir þriðju þeirra hefðu hæft í mark. Stórar sprengjuþotur af gerð- inni B-57 voru nú í fyrsta sinn notaðar til árása á Norður-Viet- nam, en þeim fylgdu bandarísk- ar orustuþotur og suðurviet- namskar sprengjuflugvélar af gerðinni Skyraider. Þessar flug- vélar réðust á hafnarbæinn Quang Khe, sem er tæplega 100 km fyrir norðan landamærin á 17. breiddarbaug. Bandaríkja- menn hafa ekki fyrr farið í árásarferð svo langt norður. Mikið tjón er sagt hafa orðið í hafnarbænum, 3—5 skipum úr flota Norður-Vietnams er sagt að hafi verið sökkt og 60 stór- hýsi lögð í rúst. Önnur árás var gerð á vopna- búr við Xom Bang, um 20 km fyrir norðan landamærin. Price ofursti sagði að miklar spreng- ingar í vopnabúrinu hefðu gefið til kynna að sprengjurnar hefðu hæft það. Nokkrar skotnar niður Eins og fyrri daginn ber ekki saman fréttum af því hve marg- ar árásarflugvélanna voru skotn- ar niður. Bandaríkjamenn við- urkenna að hafa misst tvær, auk einnar suðurvietnamskrar, en Tass-fréttastofan hélt fram í dag að a.m.k. sjö flugvélar úr árás- arliðinu hefðu verið skotnar nið- ur. Framhald á 9. síðu. Bandaríkjamenn hafa Iengi nauðað á bandamönnum sínum að senda herlið til Suður-Vietnam, en fengið dræmar undirtektir. Leppar Bandarikjanna í Asíu, Park í Suður-Kóreu og Sjang Kajsék á Formósu, hafa einir viljað verða við þeim tilmælum og nú eru suðurkóreskir hermenn komnir til Saigon. Myndin er tekin þegar fyrstu 600 þeirra af 2000 sem ætlað er að senda þangað gengu á land. ÓFÆRT FYRIR HORN Hafísinn rekur aö landi ■ Ekkert ísflug var í gær sökum veðurs og því erfitt að henda nákvæmlega reiður á ferðum hans en þó bentu allar líkur til að ísinn ræki upp að landi. Ófær ís var við Kögur í gærmorgun og búast mátti við ís til Austfjarða. ÍSINN Veður var mjög vont og því lítt hægt að fylgjast með ísnum fyrr • en hann var kominn al- veg upp að landinu. Þannig voru nokkrir jakar landfastir við Harðbak á Melrakkasléttu. ís- hrafl var við land á Hrauni á Skaga og jakar á reki úti fyrir. Þá var og íshrafl úti fyrir Eyja- firði og Skagafirði. Frá Grímsey bárust þau tíð- indi að ís þar í kring ræki hratt til suðvesturs og voru skipa- ferðir til eyjarinnar taldar ó- færar með öllu. Litlafellið, sem er á leið til Akureyrar, sá jaka út af Gjögri austan Eyjafjarðar og skammt norðvestur af Flatey á Skjálf- anda. Þegar í gærmorgun var ófær ís við Kögur og töldu varðskip að siglingaleiðin fyrir Horn væri með öllu ófær. Stapafellið sá einstaka jaka inni á ísafjarð- ardjúpi, en þaðan var ísinn tal- inn horfinn í gær, og gætu þessir jakar orðið hættulegir skipum. Allar líkur voru því á því að ísinn myndi reka upp að víða. Og sá ísfláki sem kominn var suður með Austurlandi gæti vel lagt leið sína inn á Aust- firði. Veður var hið versta, norð- austan stormur alltað tíu-ell- efu vindstigum út af Straum- nesi og á Hvallátrum og tíu vindstig voru á Hornafirði. Bú- izt var við því, að þessi átt héldist í nótt og á morgun, að því er Veðurstofan taldi er blað- ið hafði samband við hana laust eftir kl. 18 í gær. / Framhald á 9. síðu. Spurt um hinn ógnarlega leyndardóm hernámsflokkanna: Sölunefnd varnarlfðseigna ! ! ■ í gær var útbýtt á Alþingi fyrirspurnum frá Hannibal Valdimarssyni til ríkisstjórnarinnar um verzlunarstarfsemi Sölunefndar setuliðseigna. — Fyrir- spumirnar eru svohljóðandi: 1. a. Hverjir eru nú aðal- menn í svonefndri Sölunefnd setuliðseigna, sem annazt hefur nokk- uð á annan áratug sölu á hvers konar úrgangs- varningi frá herstöð- inni og varnarliðinu í Keflavík? b. Hverjir hafa átt sæti í nefndinni sl. 10 ár? 2. Hvernig er vali manna í nefndinni háttað, og hvaða stjórnarvöld ákveða menn í þessa þýðingarmiklu nefnd? 3. Starfar Sölunefnd setu- liðseigna samkvæmt lög- um, og undir hvaða ráðu- neyti heyrir starfsemi hennar? 4. Hverjar hafa tekjur orðið af sölustarfsemi nefndar- innar ár hvert, síðan hún hóf sölustarfsemi sína? 5. Hafa nefndarmenn þóknun fyrir störf sín í Sölunefnd setuliðseigna, og ef svo er, þá hverja, hvort sem vera kynni í fríðindum eða beinni launagreiðslu? 6. Hversu fjölmennt starfs- lið er í þjónustu nefndar- innar við skrifstofustörf, afgreiðslu, flutninga vör- unnar og alla dreifingu hennar? 7. Hvernig er háttað verð- lagningu og bókhaldi vegna söluvörunnar við afhend- ingu hennar í hendur nefndarinnar, svo og við endursölu varningsins til landsmanna? 8. Hvarjir annast endur- skoðun á bókhaldi, vegna þessarar víðtæku verzlun- arstarfsemi? 9. Hvar hefur nefndin geymslustaði fyrir varn- ing sinn? 10. Hefur sölunefnd setuliðs- eigna komið sér upp eig- in vöruskemmum og verzl- unarhúsnæði, eða hefur hún einungis leiguhúsnæði til afnota? Ef aðeins er um leigu- húsnæði að ræða, hverjir eru þá eigendur þess, og hve hárri upphæð hefur leigan numið ár hvert? 11. Er það rétt, að Sölunefnd setuliðseigna hafi í önd- verðu byrjað sölu sjón- varpstækja, er hentuðu Keflavíkurstöðinni, og ef svo er, hversu mörg sjón- varpstæki hefur nefndin þá selt á sínum vegum sem menningartæki til heimilis þarfa hér á landi? ! I i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.