Þjóðviljinn - 03.03.1965, Blaðsíða 9
Miövifcudagur 3. ínarz 1963
ÞIÓÐVILIINN
SlÐA 0
Útvarpsannáll Skúla
Framhald af 7. síðu.
um miðjan mánuðinn, Gunnar
Finnbogason minnir mig hann
heiti.
Hann hóf mál sitt með þvi að
átelja þann hátt, sem lengst af
hefur verið á hafður um þenn-
an þátt, að sömu menn önnuð-
ust hann, og helzt þeir, er sízt
skyldi. Var það að vísu al-
gerlega rétt aðfinnsla. Hitt var
aftur á móti hæpnara, að láta
þau orð falla að sumir þeirra,
er verk þetta önnuðust, væru
ekki tii þess færir. Raunar má
þó segja, að þetta geti í sum-
um tilvikum til sanns vegar
færzt. En nýliði er lætur sér
slík orð um munn fara, fellir
um leið á sig þá kvöð að gera
betur. Þó má segja að maður-
inn hafi sloppið allvel frá
þessu. Margt var vel sagt í er-
indi hans og sumt ágætlega.
Hins vegar spillti það nokkuð
fyrir honum, að flutningurinn
var ekki góður og yfirleitt
kenndi of mikillar ergi í hug-
leiðingum hans. Hefði honum
tekizt að ræða um viðreisnar-
stjórnina, skattpíninguna og
allt umstangið utan um Norð-
urlandaráðið í svolítið léttari
tón en raun varð á, myndu á-
hrif erindisins hafa orðið eft-
irminnilegri.
En meðai annarra orða. Værj
nú ekki ráð fyrir útvarpið að
bregða á leik og efna til sam-
keppni meðal hlustenda um
dag og veg. Hlustendur hafa
yfirleitt brugðizt vel við þegar
til þeirra hefur verið leitað
með slíkum hætti, og myndi
svo enn verða, ef þeim gæfist
kostur á að ræða hvað sem
þeim kynni að liggja á hjarta.
En hvað sem þessu líður,
þyrfti útvarpið að hafa tiltæka
menn til þessa starfa ekki
færri en vikur eru í ári hverju,
þannig að sami maður þyrfti
ekki að koma að hljóðneman-
um bessara erinda oftar en
einu sinni ár hvert.
Mikið var umleikis hjá
fréttamönnum útvarpsins í
þann tíð er þing Norðurlanda-
ráðs sat hér á rökstólum. En
þrátt fyrir allýtarlegar fregnir,
sem við höfum fengið af sam-
kundu þessari, finnst okkur
svona eftir á að ósköp hafi
þetta verið innantómt og meira
til að sýnast en vera. Það er
ef til vill mest áberandi hve
hlutur landans hefur verið
grátlega lítill og vesældarlegur
á allan hátt. Og þegar mennta-
málaráðherrann okkar segir í
skálaræðu: Það er eins með
finnskuna og konuna mína, ég
elska hana, en hef hana ekki
á valdi mínu, verður okkur
innanbrjósts. eins og þegar við
heyrðum prestinn líkja bæn-
inni við nafnastreng guðs. En
kannski er þessi fyndni ráð-
herrans einn af þeim ávöxtum
norrænnar samvinnu, sem við
skiljum ekki eða kunnum að
meta, svo sem vert væri.
Félag járniðnaðarmanna
Fréttirnar
Framhald af 12. síðu.
starfsárinu, og tókust samningar
aftur 30. september s.l. á grund-
velli samkomulags A.S.Í. og rík-
isst j órnarinnar.
Samkomulag var einnig gert
við atvinnurekendur um stofnun
nefndar til að vinna að því, að
settir verði ákvæðisvinnutaxtar
í járniðnaði. Félag járniðnaðar-
manna skipaði strax fulltrúa í
nefndina, en atvinnurekendur
hafa ennþá ekki skipað sína
fulltrúa, og hefur nefndin því
ekki tekið til starfa.
Á þessu starfsári var einnig
gerður samningur við Félag ísl.
iðnrekenda vegna félagsmanna
er vinna að viðhaldi véla og
tækja í verksmiðjum.
Félagið hélt jólatrésskemmtun
fyrir börn félagsmanna, og árs-
hátíð hélt félagið ásamt öðrum
félögum í Málm- og skipasmíða-
sambandi íslands í Reykjavík.
Við getum ekki varizt þeirri
hugsun. að einhver gloppa sé
í fréttir útvarpsins af atburð-
unum í Indókína, og þeim
stórvirku aðgerðum Banda-
ríkjamanna austur þar. Eink-1
um vantar allar fréttir af því, I
hversu almenningsálitið og ■
blöðin á • Vesturlöndum hafa j
brugðizt við hinum voveiflegu:
atburðum Það væri eða hefði j
verið fróðlegt að vita hvort j
borgaraleg blöð Vesturlanda, j
hafi sýnt jafnmikinn lágkúru-j
skap og blöð borgaraflokkanna!
hér heima, sem guldu loFárás-'
unum jákvæði strax á fyrsta
degi. !
Þó skýrði útvarpið frá því,
að páfinn í Róm hrökk við og
bað stjórnarherra stórveldanna
að fara að öllu með gát og út-
hella ekki að ófyrirsynju blóði
og tárum
Þá hefur útvarpið okkar var-
izt allra, frétta um það, hvert
manntjón hafi orðið í loftárás-
unum. Má slíkt furðulegt heita
og vekur margvíslegar grun-
semdir. Ef til vill hefur páfinn
vitað betur en þeir á frétta-
stofu útvarpsins, þegar hann
sendi út boðskapinn, þann er
áður er nefndur.
Hins vegar hafa engar fregn-
ir af því borizt, að atburðimir
í Indókína hafi valdið hérlend-
um kirkjuleiðtogum andvökum,
né áhyggjum.
En undarlegast af öllu er þó
það, að enginn hefur enn get-
að upplýst hver hinn eiginle.gi
tilgangur Ioftárásanna hafi
verið. Þeir í þættinum „Efst
á baugi" gátu sér þess til, að
þær hofðu verið gerðar til bess
að auðvelda Bandaríkjamönn-
um setu v’-a mmniogaborð með
fullum heiðri.
Hvað myndi prófsssor Jóhann
Hannesson segja um slíkan
siðalærdóm.
Skúlj Guðjónsson.
ÓFÆRT FYRIR HORM
TIL SÖLU:
Einbýlishús. Tvíbýlis-
hús og íbúðir af
ýmsum stærðum í
Reykjavík, Kópavogi
og nágrenni.
FASTEIGNASALAN
Hús og eknir
BANKASTRÆTI 6
SÍMI 16637.
S I M I
24113
Sendibílastöðin
Borgartúni 21
Framhald af 1. síðu.
Hræsnj í Washington
Blaðafulltrúi Johnsons forseta,
George Reedy, sagði í Washing-
tO;n í dag að engin stefnubreyt-
ing væri fólgin í þessum síðustu
árásum Bandaríkjamanna á
Norður-Vietnam. Þær væru í
samræmi við yfirlýsingar forset-
ans um að Bandaríkin vildu
forðast að færa út stríðið, en
myndu gera allar nauðsynlegar
ráðstafanir til vemdar frelsinu
í Suðaustur-Asíu. Aðspurður
kvað hann ákvörðunina um árás-
irnar hafa verið teknar af for-
setanum sjálfum.
Þjóðfélag
Johnsons
Framhald af 6. síðu.
setinn flutti innsetningarræðu
sína og talaði um „Hið mikla
þjóðfélag" voru á þeirri sömu
stundu 150 blökkumenn teknir
höndum í Selma í Alabama,
fyrir það eitt að krefjast kosn-
ingaréttar.
Of lítið,
of seint
Fleira mætti telja, en þetta
látið nægja. Um fyrirhugaðar
umbætur forsetans gildir að
þær koma seint og eru of litl-
ar. Séu tillögur Johnsons
grandskoðaðar kemur nefnilega
í ljós, að þær eru einkar hóg-
værar tillögur um smávægileg-
ar lagfæringar — ef þær kom-
ast þá í gegn um þingið. Og
það er enda vafamál, að
Bandaríkjamenn geti nokkur
þjóðfélagsvandamál leyst ef
þeir halda áfram að kasta
þrem fimmtu hlutum ríkistekn-
anna í striðsundirbúning.
Og þrátt fyrir alla frasa-
kvoðu forsetans eru Bandarík-
in þjóðfélag með djúpstæðar
stéttaandstæður þar sem fram-
leiðslutækin eru í höndum fá-
einna auðhringa. „Mikið þjóð-
félag" er ekki þyggt á slíkum
grundvelli.
CótlMll
ferðaritvélar
Fyrirliggjandi.
HANNES ÞORSTEINSSON
Heildverzlun — Sími 2á455.
SjóSir félagsins
Fjárhagur félagsins er góður.
Sjúkrasjóður félagsins festi
kaup á þrem sumarhúsum hjá
Orlofsheimili ASÍ við Hvera-
gerði, og hefur þegar greitt %
af kaupverði húsanna, en þau
verða væntanlega tilþúin næsta
sumar.
Úr styrktarsjóðum félagsins
var greitt til félagsmanna um
250 þúsund krónur.
Eignaaukning á árinu var um
730 þúsund krónur.
Bókfærðar eignir félagsins eru
nú um fimm miljónir króna.
Stjómarkjör
Skýrt var frá stjórnarkjöri.
Auglýst hafði verið allsherjar-
atkvæðagreiðsla við stjórnar-
kjör, en aðeins einn framboðs-
listi kom fram, listi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs og varð
hann sjálfkjörinn. Snorri Jóns-
son, sem verið hefir formaður
Félags járniðnaðarmanna í 18
ár, baðst undan formannsstarfi
vegna mikilla annarra starfa á
vegum verkalýðshreyfingarinn-
ar.
Var honum þakkað á aðal-
fundinum mikið og gott starf í
þágu félagsins.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna fyrir næsta starfsár er
þannig skipuð:
Formaður: Guðjón Jónsson,
sem jafnframt er starfsmaður
félagsins.
Varaformaður: Tryggvi Bene-
diktsson.
Ritari: Theódór Óskarsson.
Vararitari: Karl Finnbogason.
Fjármálaritari: Gunnar Gutt-
ormsson.
Gjaldkeri: Ingimar Sigurðsson.
Meðstjórnandi: Snorri Jónsson.
Framhald af 1. síðu.
Nokkru áður var spurt eftir
skipaferðum og fengust þær
upplýsingar er hér skal greint
frá.
SKIPAFERÐIR
Guðjón Teitsson hjá Skipaút-
gerðinni hafði í gækvöld er
blaðið hafði samband við hann,
þungar áhyggjur af þeirri norð-
anátt sem nú hefur tekið hönd-
um saman við hafísinn um að
’pilla samgöngum landsmanna.
Hann sagði að nú hefðu allar
áætlanir Skipaútgerðar ríkisins
raskazt mikið. Og þar eð þú-
skaparhættir margra væru mjög
háðir þeim prentuðu áætlunum
sem fyrirtækið dreifir út, þá
hefði gildi þjónustunnar, sem
það veitir, minnkað töluvert.
Guðjón Teitsson sagði að ýms-
ar tafir hefðu orðið. Þó myndi
Herðubreið fara austur í gær-
kvöld samkvæmt áætlun, en
auðvitað mætti búast við því
að áætlunin raskaðist þegar
norðar dregur. Esjuna kvað
hann vera' á Akureyri og óráð-
ið enn hvenær og hvert hún
beindi för sinni næst. Þó væri
ólíklegt að hún yrði látin fara
vesturfyrir, því horfur væru
slæmar út af Horni um þessar
mundir.
Þá vissi Guðjón það og tíð-
inda af Þyrli, að hann hefði
átti að koma til Raufarhafnar
í gærkvöld einhverntíma milli
kl. 6 og 8 en væri enn látinn
bíða á Seyðisfirði vegna storms
og dimmviðris. Þyrill er ný-
kominn frá útlöndum.
Guðjón kvaðst óttast að svo
gæti farið að norðanáttin hrekti
rekís inn á firði og ef þessum
gestum báðum fylgdi mikið
frost, þá gæti hann orðið sam-
fastur, myndað eina hellu. Ekki
kvaðst hann vita af skipi sem
gæti tekið að sér hlutverk ís-
brjóts í slíku tilviki, og grunaði
sig reyndar, að venjulegur ís-
brjótur myndi varla ráða við
þykkan ís, rekinn norðan úr
Dumbshafi.
En, bætti hann við, spádómar
eru allir erfiðir um þessi mál,
og við verðum með hverjum
nýjum degi að taka ákvarðan-
ir um það hvernig mæta beri
nýjum vanda.
Kjartan Iijartansson hjáSkipa-
deild Sambandsins sagði, að á
siglingaleiðum þeirra Sambands-
manna hefði allt gengið þolan-
lega fram að þessu. Litlafellið
væri nú á leið til Akureyrar
og færi austurfyrir með olíu, en
óttazt hefði verið, að nú færi
mjög að ganga á olíubirgðir þar
nyrðra. Stapafellið var á norð-
urleið í gær, en seinni hluta
dags var ákveðið að snúa því
við og átti það að losa sinn
farm á Vestfjörðum. Jökulfellið
var þá einnig að sigla upp með
Vestfjörðum, og átti að reyna
að koma því austurfyrir Horn í
björtu, en um kl. 5 í gær var
þegar talið vafasamt að sú til-
raun yrði gerð, og yrði skip-
inu þá snúið aftur til Reykja-
víkur og þá reynd austurleið-
in. Jökulfellið flytur meðal
annars fóðurblöndu handa
bændum og sagði Kjartan að
þeir Sambandsmenn hefðu vilj-
að hafa vaðið fyrir neðan sig
og birgja bændur upp af slík-
um nauðsynjum til að firra
vandræðum ef ísinn gerði fulla
alvöru úr framsókn sinni.
ABÁLFnmm
Félags íslenzkra bifreiðaeigenda
verður haldinn í Skátaheimilinu við Snorrabraut
í kvöld, 3. marz, kl. 20,45.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
Reikningar félagsins liggja frammi í skrifstof-
unni Bolholti 4.
Stjórnin.
B-deíld SKEIFUNNAR
Sófasett, stakir stólar, símaborg, borðstofuborð, radíófónar o.m.fl.
á tækifærisverði.
B-deild SKEIFUNNAR Kjörgarði
i
4