Þjóðviljinn - 20.07.1965, Side 2
» 4
2 SlÐA ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 20. júlí 1965.
FISKIMÁL
eftir Jóhann J. E. Kúld
Skuttogaramir erlendu reynast stórvirk atvinnutæki.
ERLENDAR FRÉTTIR
Það eru liðin mörg ár síðan
önnur eins fiskigengd hefur
komið á grunnmiðin við Finn-
mörku sem á þessu vori. Þann-
ig er talið, að meðal-hlutur á
handfæra- og línubátum á vor-
vertíðinni hafi numið 10 þús.
norskum krónum, sða rúmlega
60 þúsundum kr. íslenzkum.
Hámeraveiðarnar á
N-Atlanzhafi
Hámeraveiðar Norðmanna
hafa verið frekar lélegar á N.-
Atlanzhafi í vor og það sem
af er sumri. Halda því ýmsir
að þessi veiði muni að stór-
um hluta bregðast í ár, nema
óvænt veiðihlaup verð' síðari
hluta sumars. Þá má geta
þess að Norðmenn hafa gert
veiðitilraunir í Suðurhöfum
síðari hluta vetrar og í vor,
og veitt þar ýmsar hákarla-
tegundir, sem ekki hafa verið
veiddar áður. Þessar veiðar
hafa borið góðan árangur, og
þykjast menn hafa þar fund-
ið tegundir sem ættu ekki að
verða lakari til átu heldur en
hámerin. Þessi hákarlsafli var
hraðfrystur og eru nú gerðar
tilraunir með að vinna hon-
um markað. Takist þessi
markaðsöflun, en um það
gera menn sér fyllilega vonir,
þá er talið að þarna geti opn-
azt nýir og áður óþekktir
möguleikar á sviði úthafs-
veiða.
Norðursjávar-
síldveiðin
í fyrrasumar og s.l. haust'
var mjög mikil síldveiði í
Norðursjó. Crtlit er nú fyrir að
Noröursjávnrsfldveiðin í ár
verði ennþá betri. Landburður
hefur verið svo að segja í allt
vor af Norðursjávarsíld til
hafna í Suður-Noregi og má
segja að síldarverksmiðjurnar
allt norður að Stat, hafi verið
mettaðar með sfld frá þessu
veiðisvæði, en umskipunar-
hafnir hafa verið Egersund og
Kristianssand. Vegna þessa
mikla síldarafla í Norðursjón-
um, þá er fjöldi norskra síld-
veiðiskipa, sem ætluðu hingað,
að veiðum þar.
Verður mikil síld-
veiði við Finnmörku?
Þá er sagt að rannsóknarskip
hafi orðið vör við mikla síld
djúpt undan ströndum Finn-
merkur, og er það hald manna,
að hún muni vera á leið að
landi. Sumir Norðmenn eru
því farnir að spá mikilli síld-
Véíði Við ' Finnmörku síðari
hluta sumars og á komandi
hausti.
Gott útlit með verð
á síldarmjöli
í norska blaðinu Fiskaren er
það haft eftir Carl Arnesen
yfirsölustjóra norsku síldar-
verksmiðjanna að útlitið með
verð á síldarmjöli sé mjög
gott, enda sé ekki annað hægt
að merkja af eftirspurninni, en
að beinlínis sé um vöntun að
ræða á mörkuðunum. Stærstu
síldarmjölsmarkaðir Norð-
manna eru á Bretlandseyjum
og í Frakklandi.
Vilja byggja
þorskeldisstöð
Samtök fiskimanna í Nord-
landsfylki í Noregi vilja láta
byggja þorskeldisstöð á Há-
logalandi. Segjast þeir í þessu
efni styðjast við álit sérfræð-
inga, svo sem Gunnars Danne-
Nýkomið
mikið og fjölbreytt úrval af flugvéla-, skipa- og
bílamódelum frá Lindberg.
Komið og skoðið meðan úrvalið er mest.
FRÍSTUNDAB0ÐIN
Hverfisgötu 59
S A L T
CEREBOS í
HANDHÆGU BLÁU DÓSUNUM
HEIMSÞEKKT GÆÐAVARA
Messrs. Kristján Ó Skagfjörð Limited.
Póst Box 411. REYKJAVÍK, Iceland.
vig haffræðings, sem telji að
tilraunir með þorskaseiði sem
sett væru í Oslófjörðinn hafi
gefið jákvæðan árangur. Sam-
tök fiskimannanna hafa skor-
að á norsku fiskimálastjórnina
(Fiskeridirektoratet) að vinna
að framgangi þessa máls.
Gildrur til . t.IO
humarveiða . - .i r.-*íi
Úti fyrir Nova Scotia á aust-
urströnd Kanada, eru mikil
humarmið. Þar er talið að
veidd séu að meðaltali kring-
um 40 miljónir punda af hum-
ar árlega, á þeim tíma sem
humarveiðar eru leyfðar.
Humarinn er eingöngu veidd-
ur þarna í gildrur, annað
veiðarfæri virðist ekki koma
til greina, ef marka má frétt-
ir þaðan að vestan um hum-
arveiðina. Það er algengt að
bátar sem stunda þarna hum-
arveiðar hafi úti 300 til 350
gildrur í einu og dragi þær þá
upp á víxl. Gildrurnar eru
beittar með margskonar fisk-
úrgangi og sækir humarinn í
ætið. Talið er, að beitueyðsl-
an sé kringum 3-4 pund á
hvert pund af hreinsuðum
humar.
Nú hafa Kanadamenn á
Nova Scotia tekið í notkun
nýja tegund af humargildrum
sem þykir gefa alveg sérstak-
lega góða raun við þessa veiði.
Gildran er hringlaga og er eins
og kúpull á hvolfi. Gildran er
sett saman á miðunum um leið
og henni er lagt og tekur hún
lítið pláss ósamansett. Inn-
ganga í þessa nýju gildru er
svo að segja allsstaðar þar
sem humarinn kemur að gildr-
unni. Þegar humarinn kemur
að henni til að ná sér í æti,
þá hreyfir hann við henni með
griptöngunum en þá gefa arm-
ar eftir og níu þumlunga
breiðar dyr myndast. En strax
þegar humarinn er kominn
inn, þá lokast gildran aftur að
baki honum. Þá þykir það
merkilegt við þessa nýju hum-
argildru, að á henni eru líka
útgöngudyr, en gegnum þær
kemst aðeins undirmálshumar
sem ekki er leyfilegt að veiða.
Þegar gildran er dregin, þá er
í henni nær undantekningar-
laust eingöngu málshumar, því
að hinn hefur forðað sér út
aftur. Þetta er talinn mikill
kostur og mikil vernd gegn
eyðingu humarstofnsins. Að
öllu þessu athuguðu er þessi
humargildra talin mjög verð-
mæt uppfinning.
Er um ofveiði að
ræða við Perú?
Fyrir stuttu ákvað ríkis-
stjórnin í Perú að hindra fyrst
um sinn byggingu fleiri fiski-
mjölsverksmiðja en þegar eru
fyrir í landinu. Sagt er að þær
umsóknir um byggingu nýrra
verksmiðja sem fyrir lágu er
bannið var sett, muni verða
teknar til yfirvegunar síðar.
Það er hræðslan við ofveiði
á ansjósustofninum, sem er
orsök þess að ríkisstjórnin
grípur til þessa banns. Tekið
er fram í lögunum sem ákveða
byggingarbannið, að eignir
þeirra sem brjóta kunna bann
þetta, verði gerðar upptækar
í ríkissjóð.
Rossfélágið smíðar
nýja gerð skuttogara
Nýlega var hleypt af stokk-
unum hjá Cochrane & Sons í
Selby á Englandi 139 feta
löngum skuttogara, sem hef-
ur 950 hestafla aðalvél. Skip
þetta hlaut nafnið Ross For-
tuna og er eigandi þess Ross
Croup Ltd. í Grimsby. Þetta
er systurskip skuttogarans
Ross Fame sem er eign sama
útgerðarfélags.
Þennan nýja skuttogara
Ross-félagsins á að vélvæða
svo, að hann verður að miklu
leyti sjálfvirkur. Skipshöfn
togarans hefur verið ákveðin
sem hámark 10 menn, enda
er sagt að vélar eigi að vinna
ÖJl helztu verkin og sé því
ekki þörf fyrir stærri skips-
höfn.
*
TRYGGINGAFÉLAGID heimirh
IINOARGATA 9 REYKJAVlK SlMI 21260 SlMNEFNI «SU RET Y
AuglýsiS í Þjóðviljanum
lilliil
VESTMANNAEYJAR
Umboðsmaður Þjóðviljans í Vestmannaeyjum er Jón
Gunnarsson, Helgafellsbraut 25. Einnig er blaðið
selt i lausasölu hjá Blaðatuminum.
GRINDAVÍK
Umboðsmaður Þjóðviljans í Grindavík er Kjartan
Kristófersson, Tröð.
SANDGERÐI
Umboðsmaðu-r Þjóðviljans í Sandgerði er Sveinn
Pálsson, Suðurgötu 16. Einnig er blaðið selt í lausá-
sölu í Axelsbúð.
KEFLAVÍK
Umboðsmaður Þjóðviljans í Keflavík er Magnea Að-
algeirsdóttir, Vatnsnesvegi 34. Einnig er blaðið selt
í lausasölu i fsbamum, Hafnargötu 29; Verzluninni
Blandan; Verzluninni Linda og Aðalstöðinni, Hafn-
argötu 13.
ytri-njarðvík
Umboðsmaður Þjóðviljans í Ytri-Njarðvík er Jó-
hann Guðmundsson. Einnig er blaðið selt i lausa-
sölu f biðsfcýli Friðriks Magnússonar
»
i
í