Þjóðviljinn - 20.07.1965, Side 8
3 SlÐA ÞJÓÐVILJINN — Þriðjuðagœr a« |SB «96%
kastalinn
EFTIR HARRY
HERVEY
ef haldnir voru hljómleikar eða
fjölskyldan ætlaði að dveljast
yfir helgi hjá frændfólki —
kom það venjulega margt í hóp.
Paige piltur kom aldrei einn á
dansleik — þeir voru þar allir
sjö. Þeir gerðu allir hosur sín-
ar grænar fyrir Amöndu og
þeir voru allir mjög laglegir —
nema Ansley, en Amöndu þótti
hann viðkunnanlegur, þótt hann
væri ekki mjög skemmtilegur.
Amanda hafði ekki séð hann í
nokkur ár, þegar hún hitti hann
eitt sinn á götu skömu eftir
lát Toppýs, og eftir þennan
fund heimsótti hann hana eða
hringdi til hennar í hvert sinn
sem hann kom til borgarinnar.
Eftir því sem mánuðirnir liðu
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI: 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI- 33-9-68
D Ö M U R
HáreTeiðsla við allra haefi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10, Vonarstrætis-
megin — Simi 14-6-62
Hárgreiðs 1 ustof a
Austurbæ.iar
Maria Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 simi 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað
og hann hélt tryggð sinni við
hana, fór Amanda að líta á hann
sem notalegan en ekki sérlega
spennandi félaga. Hún varð ekki
vitund undrandi, þegar hann
spurði hana hvort hún vildi gift-
ast honum. Ansley gerði aldrei
34
neitt sem kom neinum á óvart;
áður en hann gerði eitthvað eða
tók ákvörðun, velti hann mál-
inu mjög vandlega fyrir sér, og
það var hægt að fylgjast með
gangi málsins í íhugandi og
sviplausu andlitinu. Amanda
hafði séð bónorðið nálgast, og
þegar það kom var hún viðbúin.
Mánuði fyrir brúðkaup þeirra
sá hún frétt í blaðinu, sem olli
henni óróa: Hið árlega fjölda-
kappflug átti að fara fram í
Miami, og þátttökuvélamar áttu
að hafa viðkomu næturlangt á
flugvellinum á staðnum og
flugmennirnir áttu að vera gest-
ir á dansleik í klúbbnum. Allt
sem stóð í sambandi við flug
hafði óþægileg áhrif á hana. En
þessi frétt gaf til kynna mögu-
leika sem fyllti hana enn öðrum
kenndum. Hún og Ansley ætl-
uðu nefnilega á dansleikinn og
ef nú — þótt tilhugsunin væri
að sjálfsögðu fráleit — ef nú
Jock birtist þar! En það var
auðvitað í hæsta máta ósenni-
legt, því hann tæki varla þátt í
flugkeppi leikmanna, jafnvel
þótt hann væri aftur kominn á
heimaslóðir. Samt sem áður gat
hún ekki hætt að hugsa um
þetta.
Hún var dálítið taugaóstyrk
þegar þau komu í klúbbinn og
hún starði rannsakandi á alla
sem hún sá — hvert nýtt andlit
gæti verið Jock. Hún var rétt
að byrja að róast, þegar hún sá
hann, Hún var að dansa við
einn af bræðrum Ansleys og yfir
öxlina á honum kom hún allt í
einu auga á Jock, sem stóð úti
á veröndinni og starði inn í
salinn. Andartak mættust augu
þeirra, svo sveiflaði dansherr-
ann henni í hring, og þegar hún
leit við aftur, var hann horfinn.
í fyrstu varð hún gripin magn-
leysi; svo fylltist hún skelfingu.
Á þessari stundu hrundi allt í
rúst sem hún var búin að
byggja upp. Hún varð að hitta
hann.
Þegar laginu var lokið. taut-
aði hún fáein afsökunarorð og
þaut út á veröndina — allt of
æst til að sýna varfærni. Hún
ieit í kringum sig. Hann var
þar ekki. Hún gekk niður tröpp-
urnar og út í dimman garðinn;
hún vissi ekki hvert hún ætlaði,
vissi það eitt að hún varð að
finna hann.
Allt í einu stanzaði hún —
fann hve þessi blinda leit var
heimskuleg. Þá heyrði hún hann
nefna nafn sitt.
Já, þama kom hann — út úr
dimmum skuggum trjánna.
— Jock, var hið eina sem hún
gat stunið upp.
Hann þrýsti henni að sér og
kyssti hana.
— Ég ætlaði alls. ekki að láta
þig sjá mig — ég sver það!
hvíslaði hann þétt við eyra henn-
ar. En þegar ég sá þig, varð ég
að bíða ....
— Ó, ástin mín! andvarpaði
hún.
— Ég vissi að von var á þér
hingað í kvöld, hélt hann áfram.
Mig langaði aðeins til að sjá þér
bregða fyrir — ég sver þér, að
ég ætlaði að halda loforð mitt ..
— Loforð, tautaði hún og hún
sagði það þannig að það ónýtti
öll þau loforð sem hún hafði
fengið hann til að gefa — sér-
hvert loforð sem hún hafði gef-
ið sjálfri sér og öðrum.
— Ég frétti að þú ætlaðir að
gifta þig — ég varð að sjá þ:g
í síðasta sinn ....
Hún þrýsti sér fastar að hon-
um. Jock, hvað eigum við að
gera?
— Ekki neitt — það er of
seint.......
— Nei, það er ekki of seint ..
ég fer með þér .. hvert sem
er ..
— Guð minn góður, það get-
urðu ekki ....
— Jú, víst get ég það. Mér
stendur alveg á sama. Þú get-
ur fengið mig til að fylgja þér
gegnum helvíti ef með þarf —
bara ef þú kemur aftur til mín.
Ég var heimskingi — að ég,
skyldi reyna að hindra þig í að
fljúga! Það var rangt af mér!
Hann losaði sig Blíðlega úr
örmum hennar; hann titraði frá
hvirfli til ilja. Amanda — við
verðum að tala um þetta í al-
vöru — við verðum að vera skyn-
söm.
— Ég vil ekki vera skynsöm —
öll vandræðin hafa stafað af því.
Ég elska þig og það er hið eina
sem skiptir máli. 1 þetta sínn
fer ég með þér.
— Gerirðu þér ljóst hvað það
táknar? greip hann fram í.
— Hvemig sem allt fer, þá
höfum við alltaf hvort annað,
sagði hún.
— Þú sagðir einu sinni að það
væri ekki til frambúðar ....
— Það hélt ég þá — ég vissi
ekki ....
— Og heldurðu að þú vitir
það núna?
— Já — Já! Þú getur flogið
til tunglsins — eða hvert.. sem
þú vilt — ég bíð eftir þér — og
ég verð sæl yfir því að mega
bíða eftir þér! Ég er ekki móð-
ursjúk, þótt þetta láti kannski
þannig í eyrum. En ég er búin
að taka ákvörðun mína — um
tíma og eilífð ....
Hann stóð grafkyrr; hún fann
að hann starði á hana. Bara að
hann vildi segja eitthvað! Loks
tók hann til máls: Gott og vel.
Við förum af stað í fyrramálið.
Við leggjum upp á undan hinum
— um fimmleytið.
— Ég hitti þig á flugvellinum,
sagði hún í skyndi.
Hann greip um axlimar á
henni; varir hans voru mjög
nærri vörum hennar. Og þú ert
viss um að þú sérð ekki eftir
þessu — aldrei?
— Aldrei!
Aftur þrýsti hann henni að
sér; hún stóð á öndinni af koss-
um hans.
Þögul gengu þau til baka
gegnum garðinn. Þegar þau
nálguðst húsið, nam hann stað-
ar og leitaði að hendi hennar.
Klukkan fimm, sagði hann.
— Klukkan fimm, endurtók
hún.
%%%%%wwww
þórður
sjóari
4574 — Rudy grípur skjalið og les. ,,Þið eruð slægir, segir hann, skammaðir og laumast á brott, eins.og halaklipptir hundar. ,,Þetssu
ef ég skýri afa mínum frá þessum brögðum ykkar, veit ég að skjali held ég“ hrópar Rudy á eftir þeim.
hann mun hugsa sig tvisvar um að styrkja skipaútgerðina". Bræð- Juan hefur fengið slæmt höfuðsár og Rudy ætlar að flytja hann
umir verða ó svipinn eins og skólastrákar, sem hafa verið á sjúkrahús í Pontianak.
Þar sem CHERRY 5LOSSOM
kemur víö gljd skórnir
DANMÖRK
I
I NOREGUR
§ 29.7.-19-22.8.
20—24 daga fetð. - Verð kr. 14.600.00. ^
Fararstjóri: Margrét Sigurðardíöttir
Flogið verður til Osló 29. júlí og lagt af
stað í 7 daga ferð um Suður-Noreg 1.
ágúst með langferðabíl og skipum —
Verður m.a. komið
við cg gist á Arenðal, Mandal, Stavanger,
Nestflaten, Harðangri og Veringsfoss. Dvalið
verður í Oslo 1 dag í lok þessa ferðalags.
Þá hefst 7 daga hringferð um Danmörku
m.a. um Frederikshavn, Bröhderslev, Silke-
horg, Eshjerg, Ribe, Odense og Kaupmanna-
höfn, dvalið þar í 2 daga. Þaðan verður farið
til Oslo, norður eftir strönd Svíþjóðar, með
viðkomu í Gautaborg. Að lokum verður dval-
ið á kyrrlátu hó.teli rétt utan við Oslo í 3
eða 7 daga ef tir því sem menn vilja heldur
— Viðhurðarík og róleg ferð.
Þátttaka takmörkuð. — Hafið því samhand
é
I
I
I
1
við okkur sem fyrst.
íEEnmj
FERÐASKRIFSTOFA
Skólavörðustíg 16; II. hæð
I
Plast
þakrennur og
niðurfallspípur
fyrirliggjandi
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir selfu og sót
þarf aldrei að móla
Skipholti 21 simar 2T190-2I185
efvir lokun í simg 21037
Auglýsið i Þióðvilianum