Þjóðviljinn - 01.09.1965, Qupperneq 3
Miðvikudagur 1. september 1965 — ÞJÓÐVIUINN — SlÐA J
rfYFiRN
2 00
KEPPNIS
SIGRAR
DISKAl
IEAÚAr'
Íaetsölu
| BILL
Stríðið í Suður-Vietnam
Skæruliðar eyddu
varðstöð í gær
SAIGON 31/8 — Skæruliðar
Þjóðfrelsishreyfingarinnar í S-
Vietnam gerðu snemma á þriðju-
dag árás á varðstöð Stjómar-
hersins norðaustur af Saigon
og skildu við hana í björtu báli.
Ta'lið er, að mannfall hafi orð-
ið mikið í Btjómarhernum.
Bandaríkjamenn gerðu fjórar
loftárásir til þess að hrekja
skæruliða á undanhald, en án
árangurs. Þá gerðu Bandaríkja-
menn í dag harðar loftárásir
bæði á Norður-Vietnam og
meintar stöðvar skæruliða í S-
Vietnam. Beittu Bandaríkja-
menn flugvélum af gerðinni
B-52. Einkum var sprengjum
varpað á hið svonefnda „stríðs-
svæði D“, sem er fmmskóga-
svæði skammt norður af Saig-
De Gaulle og
Ball á fundi
PARlS 31/8 — George Ball,
varautanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, átti í dag viðræður
við de Gaulle, Frakklandsfor-
seta, og stóð fundur þeirra í
nær hálfa aðra klukkustund.
Að fundi loknum sagði Bail,
að þeir hefðu átt óvanalega
innilegar og athyglisverðar sam-
ræður, en ekki kvaðst hann að
svo komnu máli geta skýrt nán-
ar frá því, sem á góma hefði
borið. Ball neitaði því einnig,
að hafa haft meðferðis bréf frá
Johnson Bandaríkjaforseta til
de Gaulle, en. orðrómur hafði
verið uppi um það áður.
on og hafa skæruliðar haldið
því lengi. — Frá No.rður-Viet-
nam berast þær fréttir, að for-
sætisráðherra landsins, Van
Dong, hafi lýst þvi yfir, að
bandarískur ósigur sé það eina,
sem skapað geti varanlegan
frið í Vietnam.
91 fórust í
skriðufall-
inu í Sviss
SION 31/8 — Ekki er enn vit-
að með vissu, hve margir menn
létu líf sitt í skriðufallinu mikla
í Sviss í gær, en gizkað er á,
að 91 maður hafi farizt. Björg-
unarmenn sögðu á þriðjudags-
kvöld, að Iitlar vonir væru til
þess að finna nokkurn mann a
lífi undir skriðunni. Björgunar-
starfinu var haldið áfram á
þriðjudag, en talin er hætta á
nýju skriðuhlaupi og var því
gert hlé á björgunarstarfinu um
hríð. Þegar siðast bárust fréttir
af björgunarstarfinu, höfðu ekki
nemg fimm lik fundizt.
Forseti SuBur-Kóreu hefur
i hótunum við háskólumenn
SEUL 31/8 — Chung II Kwon,
forsætisráðherra Suður-Kóreu,
hótaði því á þriðjudag afi loka
háskólum þeim í landinu, svo
og öðrum skólum, sem þrjózk-
‘uðust við að hegna kennurum
þeim og nemendum, er haft
hefðu forystu fyrir. stúdentaó-
eirðunum, sem beint var gegn
hinum svqnefnda vináttusamn-
ingi, sem gerður hefur verið
með Japan og Suður-Kóreu. Á
fundj með fréttamönnum í Seúl,
skýrði forsætisráðherrann frá
þeim öryggisráðstöfunum
þeim stúdentum, sem tekið
hefðu þátt í óeirðunum.
Þá hefur innanríkisráðuneyt-
ið látið 6era „svartan lista“ sem
á eru nöfn 157 stúdenta frá
20 háskólum. Enn sem komið
er, hafa tólf ' háskólar beygt
sig fyrir kröfu stjómarvald-
anna og rekið 17 stúdenta sam-
tals fyrir þessar „sakir“.
Harðir bardagar
geysa í Kasmír
KARACHI 31/8 — Harðir bar- I indverska _hluta Kasmír. í Nýju
dagar geisa nú í Haji Pir fjalla- | Delhi skýrði talsmaður ind-
skárðinu í Kasmír, að því er j versku stjómarinnar svo frá á
MOSKVU 31/8 — Anastas Mi-
kojan, forseti Sovétrikjanna,
sem I hefur sent heillaóskaskeyti til \ aðarþýðingu.
hann kvað stjóm sína ætla að j Johnsons, Bandaríkjaforseta j því fram, að þessi leið sé ein
gera til þess að hindra það, að , vegna hinnar vel heppnuðu mikilvægasta leið undirróðurs-
útvarpið í Pakistan skýrir frá.
Segir í fréttum frá Muzaffara-
bad í Kasmír, að Indverjar tefli
nú fram nýju liði og reyni að ná
fjallaskarði þessu á sitt vald,
en það er talið hafa mikla hern-
Indverjar halda
slíkar óeirðir brytust út að nýju. J Gemini-geimferðar
Háskólayfirvöld kvað hann
múndu verða látin sæta ábyrgð
ef þau sæu ekki um að refsa
þeim prófessorum, sem hvatt
hefðu til mótmælafunda, • svo og
1 manna frá Pakistan inn í hinn
Gullflóttinn frá
USA stöóvaðnr?
WASHINGTON 30/8 — Svo virð-
ist sem gullflóttinn frá Banda-
ríkjunum hafi verið stöðvaður,
a.m.k. í bili. Gullforði þeirra
jókst í júlí um 10? miljónir
dollara, en hafði aukizt í júní
um 84 miljónir. Þetta kom ekki
á óvart þar sem greiðslujöfnuð-
urinn var hagstæður um 300
miljónir dollara á öðrum árs-
fjórðungnum.
Singupore viii endurskoðu
varnarsutnningu við Engiand
SINGAPORE 31/8
Forsætis-
ráðherra Singapore, Lee Kuan
Yew, hefur nú lýst því yfir, að
hann vilji taka til endurskoðun-
ar vamarmálasamninginn, sem
Singapore gerði við England ár-
ið 1963. Einnig lýsti hann því
yfir við þetta sama tækifæri,
að ef Englendingar fari með
herlið sitt frá Singapore, vilji
hann ekki taka við bandarísku
herliði í staðinn.
Það var á mánudagskvöld, sem
forsætisráðherrann lýsti þessu
yfir í viðtali við fimm erlenda
blaðamenn, en á þriðjudags-
kvöld var svo viðtalið allt op-
inberlega birt. Yew hélt í þessu
sama viðtali fram hlut Englend-
inga á kostnað Bandaríkja-
manna. Að vísu kvaðst hann
enginn sérstakur aðdáandi Eng-
lendinga, en þeir væru klókir
og hefðu bak við sig mikla
mannþekkingu, sem Banda-
ríkjamenn brysti, enda skildu
þeir ekki að neinu leyti Viet-
nambúa eða Kínverja, sem eru
meirihlutinn af íbúum Singa-
pore.
þriðjudagskvöld, að samtals 62
menn frá Pakistan hefðu fund-
izt félldir i útvarðstöðvum sem
indverskar hersveitir hefðu tek-
ið, ennfremur að 14 Pakistan-
hermenn, þeirra á meðal einn
liðsforingi, hefðu verið teknir
höndum.
Síðar skýrði Pakistanútvarp-
ið svo frá. að Pakistanmenn
verjist af öllum mættj gegn sí-
auknum árásum Indverja. Seg-
ir útvarpið, að Indverjar beiti
þyrlum til þess að flytja dauða
og særða frá vígvöllunum. — í
New York skýrði talsmaður SÞ
svo frá í dag, að Ú Þant muni
reyna nýjar aðgerðir ti'l þess
að koma á friði í Kasmír; ekk-
ert var þó látið uppi um það,
hverjar þær aðgerðir séu.
Skélavist
ATLANTA 31/8 — Allmargir
skólar í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna veittu nú í fyrsta skipti
böraum blökkumanna aðgang,
en nýtt skólaár hófst í Banda-
ríkjunum í gær. Ekki hefur
komið til neinna átaka ; sam-
bandi við þetta.
Hvalveiðiráð-
stefna hafin
í Tókíó
TÓKÍÓ 31/8 — Búizt er við 1
hörðum og erfiðum samningum
á hvalveiðaráðstefnunni, sem
hefst í Tókíó á miðvikudag Á
ráðstefnuna senda fulltrúa sína
Sovétríkin, Noregur, Japan, Eng-
land og Holland. Á ráðstefn-
unni verður rætt um hvalveiði-
reglugerðir almennt, en fund-
ur þessi er framhald af ráð-
stefnu, sem haldin var í Lund-
únum j júní. Þau 17 lönd, sem
eru aðilar að hinum alþjóðlega
hvalveiðasamningi, ákváðu þá,
að hvalveiðakvótinn skyld; vera
4.500 hvalir. Er það 8.000 hvöl-
um minna en á fyrra veiðitíma-
bili og er þetta gert til þess
að reyna að forða því, að hvöl-
■m í suðurhöfum verði hrein-
=ga útrýrrlt, en á því hefur
"’fnvel verið talin hætta.
Reiðubúlnn
KUALA LUMPUR 31/8 — For-
sætisráftherra Maiasíu, Abdul
Rahman, lýsti því yfir í dag, aft
Malasia sé enn sem fyrr reiðu-
búin til að hafa náift samstarf
við England og Singapore um
vamir Suðaustur-Asíu,
Rúmgóður fjölskyldubíll — Stórt farangursrými
Þess vegna er —
CORTINA kjörinn FERÐABÍLL
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
SIMINN ER
17 500
ÞJÓÐVILJINN
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Höfum opnað útsölu á KARLMANN AFOTUM og STÖKUM JÖKKUM
Útsalan stendur aðeins féadaga MIKIL VERÐLÆKKUN
GEFJUN IÐUNN Kirkjustrœti
4 t
4
\
«