Þjóðviljinn - 04.11.1965, Blaðsíða 3
FiauníaSagur 4. nóvember 1965 - ÞJÓÐVU-JINN ~ SÍÐA 3
MAPAM-sósíalistar í stjórn
í ísrael eftir kosningarnar
Flokkur Ben-Gurions hlaut aðeins tíu þingsæti og
hægrimönnum varð ekki úr vonum um aukið fylgi
TEL AVIV 3/11 — Hægri öflin í ísrael sem höfðu gert
sér miklar vonir um fylgisaukningu í þingkosningunum
í gær urðu 'fyrir vonbrigðum og niðurstaða kosninganna
virðist ætla að verða sú að mynduð verði samsteypustjórn
með þátttöku flokks vinstrisósíalista, Mapam.
Kosið var hlutfallskosnmgum
um 120 þingsæti og er landið
allt eitt k.iördæmi. Endanleg úr-
slit lágu enn ekki fyrir í kvöld,
en sýnt þótti að flokkur Eshkols
forsætisráðherra, Mapai, myndi
halda þingsætatölu sinni, eða
jafnvel bæta við hana. Flokkur-
inn sem talinn er heldur lengra
til vinstri en hann var áður en
Ben-Gurion klauf sig úr honum
er talinn munu fá 43 þingsæti,
en hafði 42. Þegar 75 prósent
atkvæða höfðu verið talin hafði
Repúblikaninn John Lindsay
nú borgarstjóri í Ne w York
NEW YORK 3/11 — John Lind-; vera áfall fyrir hægriöfl flokks-
say, frambjóðandi Republikana,
sem naut stuðnings Frjálslynda
flokksins í New York; sigraði
þar í borgarstjórakosningunum í
ins, fytlgismenn Goldwaters.
Lindsay sigraði höfuöandstæð-
ing sinn, Demókratann Abra-
ham Beame, með 136.000 at-
kvæða meirihluta, og hefur ekki
munað jafn
endum við
Mapai fengið 35,9 prósent, hinn
íhaldssami Herut-flokkur 19,5,
og flokkur „þjóðlegra rétttrúar-
manna“ 9,6.
Klofningsflokkur Ben-Gurions,
fyrrv. forsætisráðherra, hafði
aðeins fengið 8,6 prósent og er
það mun minna en margir höfðu
búizt við og 10 þingsæti.
Stjórn Eshkols hefur stuðzt
við Rétttrúarmenn og annan
smáflokk, Achdut Havooda, sem
telst vinstriflokkur, auk Mapai.
Nú er talið líklegt að mynduð
verði samsteypustjórn Mapai,
Rétttrúarmanna og Mapam, sem
myndu hafa traustan meirihluta.
Ian Smith virðist vilja vera við öllu búinn.
G j al d ey r isstaða
Brefa batnar enn
LONDON 3/11 — Gjaldeyris- og
gullforði Breta jókst í síðasta
mánuði um 42 miljónir sterlings-
punda og er nú rúmlega miljarð-
ur punda, eða meiri en nann
hefur verið síðan í marz í fyrra.
litlu á frambjóD- Gjaldeyrisstaðan mun í rauninni
borgarstjórakjör i hafa batnað enn meira. vegna
Enn eru engar horfur
á lausn í Ródesíumáli
Ekkert samkomulag um starfsreglur nefndar þeirrar
sem Wilson og Smith sömdu um að setja á laggirnar
John Lindsay
gær. Sigur hans er í senn talinn
treysta mjög aðstöðu hans sem
væntanlegs forsetaefnis Repúbli-
kana í kosningunum 1968 og
New York í aldarf jótðung. Linds-
ay hlaut 1.166.015 atkvæði, en
Beame 1.030.771. Þriðji fram-
bjóðandinn, hinn íhaldssami
Republikani og Goldwatersinní,
William Buckley, hlaut 339.227
atkvæði.
Það vekur hvað mesta athygli
að svo virðist sem Buckley hafi
unnið meira fylgi frá Demókröt-
um, en frá Lindsay. Hann bauð
sig þó fram til þess eins að
spilla fyrir flokksbróður sínum,
sem hann telur of frjálslyndan.
Þótt sigur Lindsays sé áfall
fyrir Goldwater-sinna mun það
tiltölulega mikla atkvæðamagn,
sem Buckley fékk, en það var
mun meira en í fyrstu hafði
verið gert ráð fyrir, verða þeim
til uppörvunar.
þess að Englandsbanki greiddi i
mánuðinum af lánum þeim sem
hann tók til að halda uppi gengi
pundsins. Það hefur einnig tekizt
því að í dag var það skráð á
2.805 dollara eða hærra en
nokkru sinni síðan í janúar 1963.
"lijnbot Kegn SCína
DJAKARTA 3/11 — Frá .Medan
á Norður-Súmötru berst. að mik-
ill mannfjöldi, í einni frétt er tal-
að um 100.000 manns, hafi ruðzt
að bústað kínverska ræðismanns-
ins, hrópað ..niður með Kína“ og
rifið niður kínverska fánann. Skól
um borgarinnar hafði verið lok-
að til að bömin gætu látið í -jós
andúð sína á Kínverjum.
LONDON og SALISBURY 33/11 — í dag, aðeins tveim-
ur dögum eftir að Harold Wilson forsætisráðherra skýrði
brezka þinginu frá ferð sinni til Ródesíu og taldi ástæðu
til bjartsýni á farsæla lausn deilunnar við stjórn Ians
Smiths, varð hann á sama stað að viðurkenna að hann
hefði farið erindisleysu.
Hann hafði talið sig hafa
komið því til leiðar í viðræð-
unum við Ian Smith að sett
yrði á laggirnar nefnd til að
kanna lausn málsins og átti hún
að vera skipuð fulltrúa frá
hvorri ríkisstjórn, en forseti
hæstaréttar Ródesíu átti að vera
oddamaður. Tveir ráðherrar
brezku stjórnarinnar urðu eftir
í Salisbury, höfuðborg Ródesíu,
til að ganga endanlega frá starfs-
reglum nefndarinnar. Þeir hafa
nú gefið honum skýrslu um við-
ræður sínar við Smith og kom
á daginn þegar Wilson ávarpaði
brezka þingið í dag að ekkert
samkomulag tókst um starfs-
reglur nefndarinnar. Bilið milli
London og Salisbury er því jafn
Hernaði Bandaríkjanna mótmœlf
1
Ungur friðarsinni kveikti
sér við anddyrið í Pentagon
Framdi sjáifsmorð með lífið barn sitf í fanginu fil
að vekja afhygli á hörmungum stríðsins í Viefnam
breitt og áður, sagði þingmála-
fréttaritari brezka útvarpsins.
Engar horfur
Wilson kvað nú engar horfur
vera á því að samkomulag gæti
tekizt um starfsreglur nefndar-
innar. Forsætisráðherra Ródesíu
héldi því fram að allir íbúar
landsins vildu sjálfstæði á
grundvelli stjórnarskrárinnar
frá 1961, sem sviptir meirihluta
landsmanna, fjórar miljóair
Afríkumanna, öllum áhrifum á
stjórn landsins, en felur hana
217.000 evrópskum landnemum.
Wilson sagði að brezka stjórn-
in gæti ekki fallizt á þetta nema
hún fengi óyggjandi sannanir
fyrir því. Hún hefði því viljað
að tillögur nefndarinnar yrðu
lagðar undir dóm þjóðar Ródes-
íu. Nefndin ætti fyrst að skila
bráðabirgðaálitti og síðan ein-
róma tillögum þegar íbúar Ród-
esíu hefðu verið spurðir. Brezka
stjómin vildi þó ekki skuld-
binda sig fyrirfram til að fara
að þeim ráðum sem nefndin
kynni að gefa henni. Hann hefði
gert Smith það ljóst að ef í
ljós kæmi að „þjóðin í Ródesíu
í heild“ gæti ekki fallizt á til-
lögur nefndarinnar, myndi
brezka stjórnin áskilja sér rétt
til hverra þeirra aðgerða sem
hún teldi nauðsynlegar.
Brezka þingsins að ákveða
í umræðunum að lokinni
skýrslu Wilsons ítrekaði hann
svo hvað eftir annað að það
væri brezka þingsins að taka
endanlega ákvörðun í Ródesíu-
málinu.
Einn af þingmönnum Verka-
mannaflokksins sagði að hann
og ýmsir flokksbræður hans
hefðu þungar áhyggjur af því
hvernig málum væri komið 1
Framhald á 9. síöu.
Inægja í París
með för Couve
PARÍS 3/11 — Peyrefitte
upplýsingamálaráðherra
sagði fréttamönnum í Par-
ís í dag að de Gaulle for-
seti væri mjög ánægður
með þær ágætu viðtökur
sem Couve de Murville ut-
anríkisráðherra hefði fengið
í Sovétríkjunum. Þær hefðu
verið ljós vottur um þá vin-
áttu sem einkenndi sam-
band Frakklands og Sovét-
ríkjanna. sagði hann.
De Gaulle lætur i dag uppi
hvort hunn gefur kost ú sér
WASHINGTON 3/11 — 31 árs, gamall bandarískur friðar-
sinni og kvekari svipti sig lífi í gærkvöld á tröppunum
við anddyri Pentagons í Washingtön, þar sem landvarna-
ráðuneytið er til h'úsa. Hann hellti yfir sig benzíni, bar
eld að og stóð brátt í ljósum logum, sem lifandi kyndill.
Maðurinn sem hét Norman R.
Morrison hafði 18 mánaða gamalt
stúlkubam í fanginu þegar hann
kveikti í sér, en sleppti því þegar
sjónarvottar að sjálfsmorði hans
hrópuðu til hans og varð bam-
24 m eldflaug
MOSKVU 3/11 — Fréttaritari
Reuters í Moskvu segir að búizt
sé við því að við hátíðahöldin á
Rauða torginu 7. nóvember muni
sýnd ,,risaeldflaug“. Þessi nýja
eldflaug sé 24 metra löng og hafi
hún sézt við æfingamar sem
jafnan fara á undan hersýning-
unni.
inu ekki meint af. Morrison æzt
skömmu eftir að komið var með
hann til sjúkrahússins.
Mótmæli gegn Vietnamstríði
í fyrstu var sagt að ekki /æri
vitað hvemig á því stóð að
Morrison stytti sér aldur með
þessum hroðalega hætti — sjálf-
sagt að dæmi vietnömsku búdda-
munkanna sem eins hafa farið
að — en sagt að það væri al-
mennt talið í Washington að
hann hefði viljað mótmæla hem-
aði Bandaríkjamanna í Vietnam,
sem kvekarar séu andvígir, ;ins
og þeir eru reyndar á móti hvers
konar ofbeldi.
Eiginkona hans sem nú stend-
ur ein uppi með þrjú börn stað-
festi þetta í nótt. Hún sagði að
maður hennar hefði gefið líf sitt
til að vekja athygli á mann-
drápum og hörmungum sem
leiddu af stríðinu í Vietnam.
Hann vildi með þessu móti mót-
mæla hemaði Bandaríkjanna í
Vietnam, sagði frú Morrison.
Fjöldi sjónarvotta
Þetta hroðalega atvik átti sér
stað rétt um það leyti þegar þús-
undir starfsmanna ráðuneytisins
voru að halda heim að loknu
dagsverki. Það fékk svo á áhorf-
endur að þeir gátu hvorki hreyft
legg né lið. enda var Morrison
logandi kyndill á einu andartaki.
En þeir hrópuðu til hans að
sleppa barninu og hann geröi
það rétt áður en hann féll
sjálfur um koll.
Sjúkrabíll kom þegar á vett-
vang og var farið með bæði í
sjúkrahús. Þar lézt hihn ungi
kvekari rétt eftir komuna, en
baminu hafði ekki orðið neitt
meint af.
PARlS 3/11 — De Gaulle for-
seti mun í sjónvarpsræðu á
morgun loks gera uppskátt hvort
hann ætlar að gefa kost á sér
við forsetakosningarnar sem
fram eiga að fara í Frakklandi
5. desember.
Ávarpið verður stutt, aðeins
tíu mínútur og hefst kl. 18,
Hemaður Bandaríkjamanna
1.627 Vietnamur drepnir,
23 Bandaríkjamenn féllu
SAIGON 3/11 — Birt var í Saigon í dag skrá yfir mann-
fall í stríðinu í Suður#Victnam í síðustu viku. Sámkvæmt
henni voru í vikunni drepnir 1.264 „vietkongar“ en sem
kunnugt er nefna Bandarikjamenn alla því nafni sem falla
fyrir morðvopnum þeirra. Þá féllu 363 hermenn Saigon-
hersins, en 773 særðust. 23 bandarískir hermenn féllu og
114 særðust. Stríð Bandaríkjamanna í Vietnam kostaði
þannig í þessari viku um áttatiu Vietnambúa Iífið fyrir
hvem Bandaríkjamann sem féll.
að íslenzkum tíma. Enginn veit
með neinni vissu hvort de Gaulle
mun bjóða sig fram, þótt þeir
séu nú fleiri sem eru á því.
Kemur margt til. Spurzt hef-
ur að heilsa forsetans sé miklu
skárri en talið var í sumar, þó
að sjóndepra hái honum og
ýmis hrörleiki, enda verður
hann hálfáttræður 22. þ.m. Hann
myndi gera fylgjendum sínum,
gaullistaflokknum UNR, mjög
erfitt fyrir ef hann drægi sig
i hlé á síðustu stundu, þar sem
flokkurinn hefði þá nauman
tíma til að afla eftirmanni hans
fylgis og vinsælda. En mestu
máli skiptir þó að hæpið þyk-
ir að de Gaulle muni afsala sér
stjómartaumunum á þeim ör-
lagaríku tímamótum oem Frakk-
ar standa nú frammi fyrir að
hans tilhlutan. Annars vegar
eru þau lokaátök um framtíð-
arskipan Efnahagsbandalags
Evrópu og hins vegar staða
Frakka innan AtlanzhafS-
bandalagsins. Víst er að de
Gaulle mun engum treysta öðr-
um en sjálfum sér til að ráða
fram úr þeim málum.
t
*
\
t
1