Þjóðviljinn - 04.11.1965, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 4. nóvember 1965
ÞJÖÐVILJTrrN — SIÐA 5
A3 leik loknum í Rödovre
Við birtum þessa mynd þó síðbúin só. Bjarnleifur Bjarnlcifsson
tók hana í hófi sem haldið var að loknum síðari landslcik ís-
lenzku og dönsku stúlknann.a í handknattlcik í Kaupmannahöfn
sl. laugardag. Maðurinn á miðri myndinni er borgarstjórinn í
Rödovre, þar sem leikurinn fór fram. Til hægri á myndinni sést
Ásbjörn Sigurjónsson formaður Handknattleikssambands Islands.
Landsleikur við
Skota í körfu-
inattleik í janúar?
5. ársþing Körfuknattleiks-
sambands íslands var haldið
laugardaginn 30. október sl. í
KR-húsinu við Kapláskjólsveg.
Þingforseti var kjörinn
3enedikt G. Waage. heiðurs-
forseti ÍSÍ, en Gísli Halldórs-
son forseti ÍSÍ, flutti þinginu
kveðjur íþróttasambandsins og
árnaðaróskir í tilefni af 5 ára
afmaeli KKS. Sérstaklega þakk-
aði hann Boga Þorsteinssyni
fyrir störf hans, en hann hef-
ur verið formaður KKf frá
upphafi.
Formaður KKf, Bogi Þor-
steinsson, flutti skýrslu stjóm-
arinnar. Enginn landsleikur
var háður á árinu, en áherzla
lögð á eflingu körfuknattleiks-
ins innanlands. Haldin voru
dómaranámskeið. og samning-
ur gerður við íþróttakennara-
skóla íslands um þjálfaranám-
skeið.
Knattþrautir KKX hlutu
miklar vinsældir úti um lands-
byggðina og hafa fleiri hundr-
uð unglingar unnið til heið-
ursmerkja af ýmsum gráðum
vegna unninna afreka.
Komið var á stofn Bikar-
keppnj KKÍ og tókst hún bet-
ur en ílestif þorðu að vona.
Þykir sýnt að hún muni eiga
vaxandi vinsældum að fagna,
og hefur verið ákveðið að
halda hennj áfram í sömu
mynd á næsta ári.
Landslið KKÍ fór í mikla
keppnisför til Bandaríkjanna
3 síðastliðnum vetri og lék
alls 12 leiki aðallega við há-
skólalið. Kvað formaður, sem
var fararstjóri að þetta mundi
verið hafa eitt erfiðasta og
lengsta keppnisferðalag sem ís-
lenzkur íþróttaflokkur hefur
SKIPAUTGCRB KIKISINS
M.S. ESJA
fer vestur um land í hringferð
9. þ.m. Vörumóttaka á föstu-
dag og árdegis á laugardag til
Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals Þingeyrar Flateyrar,
Suðuréyrar, ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar, Húsavíkur
og Raufarhafnar.
farið, en mjög laerdóms- og ár-
angursríkt.
Á síðastliðnum vetri tók í.
R. i fyrsta skipti þátt í Evr-
ópubikarkeppni meistaraliða og
komst í aðra umferð. en tap-
aðj þá fyrir Frakklandsmeist-
urunum.
í lok skýr»lu sinnar þakkaði
Bogi hlýjar kveðjur til- KKÍ
og til sín persánulega vegna 5
ára afmælisins. Síðar á þing-
inu var samþykkt tillaga þess
efnis, að gengist verði fyrir
afmælisfagnadi þ. 29. janúar
1966, en þann dag var KKÍ
stofnað. Til mála getur komið
að leikinn verði landsleikur
við Skota í tilefni af afmæl-
inu. — Undirbúningsviðræður
hafa þegar hafist við Skota.
\þar að lútandi.
Tilkoma íþróttahallarinnar
nýju mun gjörbreyta aðstöðu
körfuknattleiksmanna. og hafa
m.a. nokkur amerísk lið, ósk-
að eftir að koma vig hér á
landj á leið sinni til keppni í
Evrópu næsta vetur.
Samþykkt var tillaga frá út-
breiðslunefnd KKí þess efnis
að tekin verði upp svæðaskipt-
ing í íslandsmótinu í körfu-
knattleik í 1.. 2., 3. og 4. fl.
karla og í kvennaflokkum. —
Með samþykkt þessari er
stefnt að Því að auðvelda og
auka þátttöku yngri flokkanna
á landsbyggðinni.
Einnig var samþykkt tillaga,
þar sem mælzt er til þess við
háttvirt Alþingi að íþrótta-
flokkar verði undanþegnir
væntanlegum farseðlaskatti.
Eftirtaldir menn hlutu kosn-
ingu í stjórn KKÍ:
Bogi Þorsteinsson, formað-
ur og meðstjómendur Magnús
Björasson. GunnaT Pedersen,
Þráinn Scheving, Ásgeir Guð-
mundsson. Helgi Sigurðsson
og Guðjón Magnússon, Vara-
menn: Eiríkur Skarphéðinsson,
Jóhannes Sigmundsson og Ein-
ar Ólafsson.
Að lokum sleit þingforseti,
Benediikt G. Waage, þinginu
með árnaðaróskum til sam-
bandsins og körfuknattleiksí-
þróttarínnar, sem hann kveðst
telia að verða muni höfuðíþrótt
á fslandi í framtíðinni. Körfu-
knattleikurinn vaeri prúðmann-
leg og falleg íþrótt sem ekki
væri síður heppileg fyirlr stúlk-
ur en piita.
Evrópubikarkeppni í körfuknattleik:
KR-ingar leika við sæasku
meistarana Alvik á sunnud.
183 cm. Skrifstofumaður. Leik-
ur bakvörð.
Bo Lundmark. 22 ára 188
cm. Stud phil. Leikur fram-
vörð.
Þjálfari liðsins er Rolf Ny-
gren, lærður í U.S.A. og þjálf-
ari sænska landsliðsins.
Alvik er án efa mjög sterkt
lið og býr yfir miklum hraða.
og má geta þess, að á síðasta
ári unnu þeir alla sína leiki
og flesta með yfirburðum. í
liðinu eru 7 leikmenn sem
hafa leikið annaðhvort í lands-
liði eða unglingajandsliði, og
þeir áttu 4 af 10 stigahæstu
leikmönnum siðasta keppnis-
tímabils. þá Jörgen Hanson,
sem leikur ekki með í ár. Kaj
Hákonson, Anders Grönlund
og Örjan Sviden.
Alvik tók þátt í Evrópu-
keppninni á síðasta ári og sigr-
aði þá hollenzku meistarana
Wolwe, en tapaði siðan fyrir
júgóslavnesku meisturunum
OKF Beograd sem komust í
undanúrslit keppninnar.
Svíarnir munu koma til
landsins nk. laugardagskvöld
og munu þeir dveljast á Loft-
leiðahótelinu á Keflavíkurvelli.
Héðan halda þeir svo aftur
þriðjudaginn 9. nóvember. KR-
ingar fara síðan utan fimmtu-
daginn 11. nóvember og leika
þann 13. í Bromma.
Forsala aðgöngumiða hefst
fimmtudaginn 4. nóv. í tjaldi
við Útvegsbankann og einnig
í Bókabúð Lárusar Blöndal í
Vesturveri. Einnig verða seld-
ir miðar í hliðinu á Keflavítíí-0
urflugvelli. Miðaupplag er
m'jog takmarkað aðeins 500
sæti.
★
KR hefur gefið út mjög
vandaða leikskrá með mörgum
gullkoraum um ísl. körfuknatt-
leiik, og upplýsingum um leik-
menn beggja liða.
□ Næstkomandi sunnudag, 7. nóvember, mun
KR leika gegn Svíþjóðarmeisturunum Alvik í
Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik. —
Leikurinn hefst kl. 16.
f liði Alviks leika eftirtald-
ir menn;
Kaj Iiákonson, fyrirl. nr. 5 24
ára. Hæð 181 cm. Stud. Odont.
Hefur leikið 20 landsleiki og
einn unglingalandsleik. leikur
bakvörð, geysimikill uppbyggj-
ari og frábær skytta.
Kent Gunná. Nr. 4. 20 ára
nemi, 192 cm. Hefur leikið 1
landsleik og 2 unglingalands-
leiki. læikur framvörð. og er
hættuleg skytta og mjög snögg-
ur af framverði að vera.
Anders Grönlund. Nr. 6. 22
ára, 183 cm. Stud phil. Hefur
leikið 19 landsleiki og 3 ung-
lingaleiki. Leikur bakvörð og
er einn bezti maður liðsins,
geysifljótur og góður skot-
maður. Fékk mikið lof fyrir
leiki sína í síðustu Evrópu-
keppni.
Kjell Gunná. Nr. 7. 18 ára
nemi. 186 cm. Hefur leikið 3
unglingalandsleiki.
Egon Hákonson. Nr. 8. 25
ára, 192 cm. Stud techn. Hefur
leikið 24 landsleiki Leikur bak-
vörð og er ásamt bróður sín-
umKaj helzti uppbyggjari liðs-
ins og traustur leikmaður.
Lennart Preutz. Nr. 9. 19
ára nemi. 190 cm. Hefur leik-
ið 5 unglingalandsleiki.
Örjan Sviden. Nr. 10. 23 ára.
197 cm. Stud arch. Leikur
framvörð og miðherja og er
án efa hættulegasti maður
liðsins. Hann er góð skytta.
fljótur og mjög harður, enda
öðlastmikla reynslu í 30 lands-
leikjum. Lék gegn íslandi í
Stokkhólmi 1962 og í Helsing-
fors 1964.
Peter Adler. Nr. 11. 28 ára.
185 cm. Arkitekt. Leikur bak-
vörð.
Leif Björn. Nr. 12. 25 ára,
Sænsku meistararnir í körfuknattleik. Alviks B.K.
Þing norrænna frjálsíþrótta-
leiðtoga haldið í Reykjavík
□ Dagana 6. og 7. nóvember, þ.e. á laugar-
dag og sunnudag, fer fram hér í Reykjavík
norrænt þing frjálsíþróttaleiðtoga, hið 22. í röð-
mm.
Þing þessi eru haldin árlega
í höfuðborgum Norðurlandanna
til skiptis — síðasta þing í Rvik
var háð árið 1960.
Þáttakendur eru að þessu
sinni 2 frá Danmörku. einn frá
Finnlandi, 2 frá Noregi, einn
frá Svíþjóð og 6 frá íslandi.
Meðal mála sem liggja fyrir
XXII. þingi norrænna frjáls-
íþróttaleiðtoga eru m.a. þessi: <$>
1) Uppgjör og skýrsla jm
Norðurlandameistaramótið 1965,
sem fram fór í Helsinki í sum-
ar. (Framsögumaður frá Finn-
landi).
2) Norðuriandameistaramótið
og framtíð þess. (Framsögumað-
ur frá Islandi).
3) Norrænt unglingameistara-
mót (Framsögumaður frá ís-
landi).
4) Sjónvarpið og frjálsíþrótta-
mót (Framsögumaður frá Finn-
5) Á að taka upp skrásetningu
á norrænum metum fyrir twgl-
ingsstúlkur? (Fn. msögumaöur
frá Danmörku).
6) Tillögur Norðurlandanna
til I.A.A.F. (alþjóðafrjálsiþrótta-
sambandsins) um breytingar á
alþjóðlegum keppnisreglum
(Framsögumaður frá Noregi).
7) Sameiginleg tillaga Norð-
urlanda um staðarval Evrópu-
meistaramótsins 1970 (Fram-
sögumaður frá Svíþjóð).
8) Keppnin: Norðurlönd —
maður frá Svíþjóð).
9) Ákveðnir dagar meistara-
móta Norðurlanda og landsleik-
10) Staðfesting nýrra nor-
rænna meta fullorðinna, ungl-
inga og kvenna.
Útlendu gestirnir koma til
landsins í dag og á morgun og
fara aftur utan n.k. mánudag,
8. nóvember.
Fundarstaður er fundarsalur
ISÍ í fþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal.
Þingið verður sett á laugar-
daginn kl. 10 árdegis og lýfcur
sem fyrr segir á sunnudag.
HAPPDRÆTT! HÁSKÓLA ÍSIANDS
Aðalskrifstofan '/erður lokuð
vegiia jarðarfarar.
frá hádegi í dag,
HAPPDRÆTTT HÁSKÓLA ÍSIANDS