Þjóðviljinn - 16.11.1965, Síða 7

Þjóðviljinn - 16.11.1965, Síða 7
Þriðjwiagur 16. nóvemfcer 1965 — ÞJOÐVIIaJlNN — SIÐA ^ Ární Gunnlaugsson hœstarétfarlögmaSur: OPIÐ BRÉF til dómsmála- ráBherra Jóhanns Hafsteins Hafið þökk, herra ráðherra, fyrir það hugrek'ki að hafa reynt í Mórgunblaðinu að verja embaettisveitinguna í Hafnar- firði. Fólk er nefnilega ekki vant því, að stjórnmálamenn svarj alltaf rökstuddri gagn- rýni á umdeild stjórnarstörf. Treyst er heldur á tóm þagn- arinnar og gröf gleymskunn- ar. Þar sem ég hætti mér út á þá braut ad deila á veitingu fógetaembættisins í Hafnarfirði í stuttri grein, sem ég sendi Morgunblaðinu, en ekki fékkst þar birt, og mig grunar, að sú grein, sem birtist í öðrum blöðum, hafi meðal annars valdið viðbrögðum yðar. hlýt- ur mér að leyfast að senda yð- ur nokkrar línur. Þá þess held- ur sendi ég yður þetta bréf, þar sem fram kom í téðri grein minni, að, ástæða væri fyrir yður að verja málstað yðar varðandi embættisveitinguna. Þér hafið nú skilað vörn 1 mál- inu, og langar mig því að svara: Ég fagna, að þér eruð mér sammála um hæfni Bjöms Sveinbjömssonar til að gegna embættinu áfram. Hinsvegar harma ég, að skoðanir okkar um verðleik umsækjendanna Þér verjið miklu rúmi til að verja og réttlseta gerðir yð- ar. -V-íl ' ég nú með nokkrum orðum rökstyðja efasemdir mínar gagnvart réttmæti nið- urstöðu máls yðar, þegar Þér segið: „Ég tel, að hún (emb- ættisveitingin) fáj mjög vel staðizt. ef menn gera sér rétta grein fyrir málavöxtum og meta málið af sanngirni“. — Svo mörg eru þau orð — . Hverjar eru svo forsendur yðar? Þér segið: „Setning í emb- ættj skapar hvorkf lagalegan, venjubundinn né siðferðilegan rétt til skipunar í embætti . . .“ Það er rétt að engin venja er til um svo langa embættis- setningu, og Björn Sveinbjörns- son hafði, enda er hún algert einsdæmi hér á landi. Hinsveg- ar gátuð þér elkkert fordæmi bent á til réttlætingar verkum yðar enda mun ekkert dæmi um það hérlendis, að embætt- ismanni með góðan starfsfer- il að baki hafi verið vikið úr starfi með þessum . hætti. Varðandj lagahlið málsins í bókstafstúlkun skal játað, að Bjöm var settur, en ekk; skip- Enn nýtur Selma Lagerlöf vinsælda á íslandi; í fyrra gaf Setberg út skáldsögu hennar Karlottu Löyenskjöld, o,g í ár kemur út hjá sama forlagi bók sem er framhald hennar og nefnist Anna Svárd. En áður hafa reyndar all- mörg verk skáldkonunnar komið út á íslenzku og þar á meðal tvö þeirra er hæst ber: Gösta Berlings saga og Jerú- salem. Selma Lagerlöf fæddist ár- ið 1858 í Vermalandi. Hún hlaut kennaramenntun og var um nokkurt skeið kennslukona við kvennaskóla. Jafnframt fékkst hún við ritstörf og þá fyrst ljóðagerð. Rétt fyrir aður. Hitt vil ég fullyrða, að öll réttsýni og sanngimi hlýt- ur að mæla með því, að nær 10 ára seta í slíku embætti geti í eðli sínu jafngilt skip- un. Munurinn er nánast forms- atriði. — Okkur var báðum kennt í háskólanum. að rás tímans og aðgerðarleysi aðilja gæti haff áhrif til sköpunar réttar eins aðilja og um leið réttarmissis annars. Finnst yð- ur það fráleitt eða ósanngjarnt að halda því fram, að þegjandi samþykki fjögurra dómsmála- ráðherra á svo löngum setu- tíma í embætti getj skapað rétj handa Birni Sveinbjörns- syni, siðferðilegan eða lagaleg- an. og um leið valdi þvi glöt- uri réttar yðar að taka af hon- um embættið og veita það öðr- um? Hvenær og hvemig stofnast þá almennt séð siðferðilegur réttur í yðar augum til réttar- sköpunar fyrir einstakling? í gildandi lögum eru engin ákvæði um lengd setningar í embætti. Hinsvegar eru í dönskum lögum, sem hafa á ýmsum sviðum verið fyrir- mynd okkar lagasmíði, ákvæði þar sem tímalengd setningar í dómaraembætti er bundín við eitt ár. sem síðan má fram- tvisvar um eitt ár í senn, þannig að hámarkstimi setningar í dómaraembætti verðux:, þrjú ár.. . Talar þetta ekki sínu máli Um réttmæti þess málstaðar, sem ég vil verja? Þá teljið þér að viðurkenn- ingin á siðferðilegum rétti Bjöms Sveinbjömsso.nar um- fram annað geti „verið mikil misbeiting réttar gagnvart mörg- um öðrum sem hvorki hefir verið gefinn kostur á að vera settur né að sækja um veit- ingu fyrir embættinu, meðan það var laust til umsóknar", eins og þér komizt að orði. Ég virði slíkar réttlætishugmynd- ir yðar. en þær verða bara blekking ein við skoðun á þejrri embættisveitingu, sem þér verjið af kappi. Haldið þér ekki, að fleiri úr hópi hinna mörgu ungu sýslumanna og bæjarfógeta úti á landi, dómarafulltrúa og starfandi lögmanna, hefðu viljað sækja um embættið. ef þeir hefðu vitað um réttlætisást yðar? En enginn af þessum mönnum sótti nema s á. sem náðina fann, og það á síðustu stundu, að því er sagt er. Það skyldi aldamót hlaut hún fyrstu verð- laun í þókmenntasamkeppni tímarits nokkurs og voru þar komnir fimm fyrstu kaflarnir úr Gösta Berlings sögu, því verki er færðj höfundi sínum heimsfrægð. Skáldkonan hiaut margvís- lega viðurkenningu fyrir rit- störf sín. Hún hlaut doktors- nafnbót í heimspeki ,árið 1907 og bókmenntaverðlaun Nóbels tveim árum síðar. Árið 1914 var hún kosin í sænsku aka- demíuna fyrst kvenna. Hún lézt árið 1940. Skáldsagan Anna Svard er 310 bls. í ís- lenzku þýðingunni. Þýðinguna gerði Arnheiður Sigurðardótt- ir. þó ekki vera. að siðgæðishug- myndir þeirra, sem ekk; sóttu um embættið, hafi verið eitt- hvað öðruvísi en þær, sem þér hafið sýnt með embættisveit- ingunni? / Sér segið ennfremuí: .,Ég hafði ekki minnstu löngun til að níðast á nokkrum“. Þótt ásetning skorti, geta gáleysis- verk oft haft sömu afleiðing- ar. Það getur ekki hafa farið framhjá yður,' að fólki finnst hafa verið níðzt á Birni Svein- björnssyni. Leiði ég sem vitni í því sambandi til dæmis alla átta hreppstjórana í Gull- bringusýslu, sem sendu yður mótmælabréf. þar sem þeir m. a. telja „ósæmilegt að vísa svo góðum dreng og ágætum emb- ættismanni burt úr starfí eft- ir svo langan og mistakalaus- an pmbættisferil“, sbr. bls. 2 í Morgunblaðinu 13. nóvember. — Sannar ekki stormur al- menningsálitsins gegn verki yð- ar að loftvog hins pólitíska siðgæðis hefur staðið lágt, þeg- ar þér í skyndi eftir lok um- sóknarfrestsins veittuð emb- ættið? Ekki batnar hlutur yðar, þegar við nú komum að með- ferð þeirri. sem eitt virðuleg- asta og merkasta yfirvald þessa lands. herra Jóhann Gunnar Ólafsson, bæjarfógeti á Isafirði. fær við embættisveit- inguna, Ég viðurkenni fúslega, að skipun hans í embættið hefði verið verjandi að vissu marki, þótt það sé skoðun mín, að Björn ■ þefði ekki þurft að víkja fyrir honum. En með því að ganga einnig framhjá Jó- hanni Gunnari finnst mér ranglætið í þessu máli full- komnað. Hann hefur að baki 22 ára starfsaldur sem bæjar- fógeti á ísafirði auk þess að hafa verið hátt á fjórða ár fulltrúi við bæjarfógetaemb- ættið í Hafnarfirði. og því kunnugur í umdæminu. o.g sett- ur bæjarfógeti um tíma við það embætti og víðar. Það eru ekki frambærileg rök fyrir mann í yðar stöðu að réttlæta höfnun svo góðs embættis- manns með því einu, að þér teljið hann „helzt til fullorð- inn“. Hann er nú 62 ára að aldri. Þér fáið ekki breytt þeim lögbundna rétti hans að mega sitja í embætti í rúm 7 ár til viðbótar eða allt til 70 ára aldurs. Fyrst þér látið við- gangast, að hann starfi sem bæjarfógeti á ísafirði gátuð þér rökrétt ályktað hann hæf- an til að flytjast milli emb- ætta. — Það hefur aldrei þótt til vegs- eða virðingarauka að tala tungum tveim. Því segi ég þetta hér. þar sem ég man ekki betur en þér hafið áður tálið háan aldur ekki gildandi rök fyrir höfnun manns í virðingarstððu, og ekki ætti virðing yðar fyrir ellinni að minnka með árunum. Eða er það ekki rétt, að Þér voruð fremstur í flokkj þeirra, sem vilvlu gera séra Bjama Jóns- son á áttræðisaldri að forseta þjóðarinnar? — Finnst yður annars ekki. ef vel er að gáð, einhver eðlisskyldleiki vera á milli forsetakosninganna árið 1952 og embættisveitingarinn- ar í Hafnarfirði? Er það ekki rétt munað. að fjöldi fólks vildi ekki hlíta forsjá yðar í þeim sögufrægu kosningum? Þá höfðu flokksforingjar löng- un til að veljn fyrir fólkið. En fjöldinn sagði; Þetta lát- um við ekki bjóða okkur. Sama segir almenningur í dac gagn- vart embættisveitingunni í Hafnarfirði. Það hljótið þér að hafa fundið. Málstaður yðar veikist enn, þegar þér svarið þessari spum- ingu Morgunblaðsins: „Hvert er þá viðhorf yðar til Einars og Bjöms?“ „Ég tel báða hæfa til starfans“, svarið þér, og ennfremur; ,,... valdí ég Ein- ar Ingimundarson en ekki Björn Sveinbjömsson. þar sem Einar Ingimundarson hefur verið skipaður bæjarfógeti í 13 ár, en Björn settur í rúm 9 ár.“. Þessj samanburður yð- ar á starfsaldri er bæði rang- ur og villandi. Við nánari at- hugun kemur nefnilega í ljós, að Einar var þingmaður Sjálf- stæðisflokksins fyrir Siglu- fjörð 1953—1956 og fyrir Sama flokk í Norðurlandskjör- dæmi vestra frá 1959 og síðan. Vægt áætlað hefur Einar því verið fjarverandi úr embætti sínu vegna þingmennskunnar suður í Rey-kjavik í þágu Sjálf- stæðisflokksins í a.m.k. 4—5 ár. Sé samanburðinum haldið áfram. kemur í ljós, að Einar byrjaði hjá tollstjóranum í Reykjavík 1. nóv. 1944. unz hann hóf starf hjá sakadómar- anum í Reykjavík 1. jan. 1946, en þar var hann, unz hann var skipaður bæjarfógeti á Siglufirði. Björn Sveinbjömsson byrj- aði hinsvegar við embættið í Hafnarfirði sama árið og hann lauk lögfræðiprófi eða haustið 1945, og hefur starfað hér i Hafnarfirðj við embættið alla tíð siðan eða rúm 20 ár. Munurinn á heildarstarfs- aldri Björns Og Einars er því svo til enginn. Það er drengilegt af yður að feta ekki í fótspor staksteina Morgunblaðsins og reyna að verja embættisveitinguna með því. „að öðrum hafi tekizt miður“, eins og þér komizt að orði, enda var okkur báðum kennt í fræðum réttvísinnar, að misgjörð eins verði ekki af- sökuð með annarra misgjörð- um. Þó endurtek ég. að jafn- vel þótt þér vilduð þannig réttlæta gerðir yðar. er það ekki hægt, þar sem embættis- veitingin á sér alls ekkert for- dæmi. í lýðræðisþjóðfélagi verða ráðherrar að sætta sig við, að gerðir þeirra sæti rökstuddri gagnrýni, og henni geta þeir ekkj svarað með því einu að segja: Það er ég, sem valdið hef. Þessvegna tel ég ekki rétt hjá yður að tala um að verið sé ,,að svívirða" yður með skrifum um þetta mál. Þér hafið vafalaust lesið Reykjavíkurbréf Morgunblaðs- Jóhann Hafstcin. ins sunnudaginn 14. nóvember, en höfundur þess er sagður vera forsætisráðherra Bjarni Benediktsson. og er hér gengið út frá því. Hann segir þar m. a. um gagnrýnina: „Eðlileg gagnrýni er öllum holl“. Þessu til áréttingar segi ég við yð- ur: Því aðeins þjónar iýð- ræðið og frelsið tilgangi sínum að hvort tveggja sé virt í verki. Þvi aðeins eigum við skilið að njóta mannréttinda, að við virðum annarra rétt. Það er því ekki sæmandi kollega yðar, Bjama Bene- diktssyni, að óvirða rétt al- mennings til að gagnrýna í verki brottrekstur Björns Svinbjömssonar með því að skrifa eftirfarandi í Reykja- víkurbréfinu; „Siðleysið lýsir sér í því að hafa uppi ósannar ásakanir oe beita óhæfilegum þvingunarráðstöfunum“. Vill forsætisráðherra bera ábyrgð á slíkum skrifum? Er ekki of langt gengið, þegar æðstu menn þjóðarinnar lýsa þegnum sínum sem iðkendpm siðleysis fyrir það eitt að hafa haft manndóm til að sýna þá sterk- ustu gagnrýni gagnvart rang- læti yðar, sem það gat. með því að fórna starfi sínu? Lög- leg viðbrögð þessa fólks í þágu réttlætisins verða ekki flokkuð undir „siðleysi", hvað sem líður skoðunum st.jóm- lagafræðingsins Bjarna Bene- diktssonar. Skoðanir ykkar Bjama Benediktssonar virðast stang- ast nokkuð á, þegar þið metið hinn siðferðilega rétt Björns Sveinbjörnssonar til embættis- ins. og hæfir það málstað ykk- ar. Af ummælum Bjarna í Reykjavíkurbréfinu verður ráð- ið, að hann telji, að setning í embætti getí aldrei skapað þeim. sem settur er, siðferðis- legan rétt til stöðunnar, ef hún losnar. Hinsvegar hafið þér, herra dómsmálaráðherra, að því er virðist, viðurkennt- sið- ferðilegan rétt Bjöms Sveins- björnssonar til að geta komið til mála í vali yðar á manni í stöðuna, sbr. fyrrgreind um- mæli yðar hér að framan í þættinum um starfsaldur Björns og Elnars. Þegar svo er komið málstað ykka-r, að þið eruð ósammála um, hvemig ranglætið skuli varið, er ekki að furða, þótt málgagn yðar hafi talið þann kost vænstan að kalla á heim- ilislækni sinn til hjálpar, Pál V. G. Kolka. Eins og góðs læknis er von og vísa. brá hann skjótt við, og kemst að sjúklegu ástandi hjá einum málspartinum. og kallar það „andlegt kölduflog". Hann sál- greinir á síðum Morgunblaðs- ins sunnudaginn 14. nóv. rjúk- linga sína á sýsluskrifstofunni í Hafnarfirði og úrskurðar þá standa á svipuðu þroskastigi og vökukona nokkur norður á Blönduósi, sem sinnaðist við lækninn á sínum tíma. Svo að jaínræði málsaðilja sé full- nægt. finnst mér, herra ráð- herra, nú vanta í málskjölin úrskurði um sálarástand fleiri aðilja, t.d. yðar og Bjama Benediktssonar. Kannske Kolka læknir eða einhver annar vilji bæta úr því? Annars talar þessi læknisvitjun á Morgun- blaðið skýru máli um ástand- ið í herbúðum yðar þessa dag- ana og hvemg eigin menn virða málstað yðar í embætt- isveitingunni, Að lokum leyfi ég mér að draga ályktanir af þvi, sem fram hefur komið í málinu. Ég tel ómaksins vert fyrir yð- ur. ráðherra dómsmála, eða aðra, að kanna fræðilega þann lögmætisgrundvöll, sem þér viljið bygg.ia á embættisveit- inguna til Einars Ingimundar- sonar. Sú stjórnvaldsráðstöfun vðar verkar þannig á mig og fleiri, að það hafj verið póli- tískar og persónulegar ástæð- ur. sem réðu því, að hann hlaut embættið. Verð; svo tal- ið. er að mínum dómi um vald- niðslu að ræða í l^galegum skilningi. Vegna þ‘-'rra les- enda, sem eru ólögfróðir, skal upplýst. að valdníðsla er ein ástæða fyrir ógildi stjómvalds- ráðstafana. en í flokki þeirra teljast embættisveitingar. Fræðilega skilgreint telst það valdníðsla, þegar stjómvald lætur gerðir sínar ráðast af ólögmætum sjónarmiðum. t.d, pólitiskum eða persónulegum. Dómstólar hér á landi hafa ekki til þessa dæmt um tilvik, þar sem reynt hefur á lögmæti • embættisveitinga sem stjóm- val dsráðstöfunar. Hvað sem Hður lögmæti hinnar umdeildu embættisveit- ingar. tel ég dóm almennings í málinu vera afdráttarlausan. Hann vitið þér um, og við hann verðið þér að sætta yður, hvort sem yður líkar betur eða verr. Hafnarfirði 14. nóv. 1965. Árni Gunnlaugsson. Bréf þetta var sent öllum dagblöðunum samdægurs til birtingar. >---- ------------—------------ Ný skáldsaga Kristmznns Þótt Kristmann Guðmundsson hafi að sögn sett púnktinn aftt an við ævisöguna. er ekki þar með sagt að ritferli hans sé með öllu lokið. Það sannar ný skáld- saga eftir hann sem Bókfellsútt Framhald á 9. síðu. Flugmálastarfsmenn mótmæla tlllögum ríkisstjórnarinnar Almennur fundur var hald- inn í Félagi flugmálastarfs- manna ríkisins. þriðjudaginn 9. nóv. s.l. um launamál. Frrmsögumcnn voru Kristj- án Einarsson, Guðni Ólafsson og Valdimar ólafsson. — f fundarlok var eftirfarandi á- lyktun samþykkt með at- kvæðum alHa fundarmanna; ,,AImcrnur fundur haldinn í Félaei flugmálastarfsmanna ríkisins 9. nóv 1965, mót- mælir harðlega framkomnum tillögum samninganefndar rik- isstjórnarinnar til Kjaradóms um 1 launalækkun alls vakta- vinnufólks. Enda Þótt tillaga sé gerð til dómsins um 3% hækk- un grunnlauna ríkisstarfs- manna, fela aðrar tillögur í sér miklu stórfelldari launa- lækkun. Yfirgnæfandi meirihluti flugmálastarfsmanna leysir störf sín af hendi í vakta- vinnu. en í tillögum samn- inganefndar rikisstjómarinn- ar felst allt að 37% LÆKK- UN á veigamiklum hluta Iauna vaktavinnufólks, sem mundi orsaka stórfellda skerðingu heildarlaunanna. Kjaradómur viðurkenndi, með dómi sínum frá 1963, sérstöðu vaktavinnufólks, vegna stórfelldra og marg- víslegra óþæginda sem af ó- reglulegsm vinnutima skai>- ast. Fundurinn treystir Kjara- dómi til að virða að vettugi þessa árás samninganefndar rikisstjómarinnar á vissan hluta ríkisstarfsmanna. Enn fremur skorar fund- urinn á hið háa Alþingi að veita ríkisstarfsmönnum sem fyrst fullan samningsrétt til jafnréttis við aðra launþega Iandsins.“ til stöðunnaf' fara ekkj saman. lengja Skáfdsaga eftir Selmu Lagerlöf i » . i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.