Þjóðviljinn - 16.11.1965, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 16.11.1965, Blaðsíða 12
bílsiys í Árnessýslu Tvö bílslys urðu í Ámessýslu tnn helgina, velta og harður á- rekstur. Tvennt slasaðist og tveir bílar skemmdust. Fyrra slysið varð um tvöleyt- ið á laugardag; var þar Land- roverjeppi austan úr Holtum á ferg rétt austur undir Þjórsá, er hjólbarði sprakk, en við það missti ökumaður vald á bif- reiðinni með þeim afleiðingum að hún fór hér um bil tvær velt- Ur út af veginum. f jeppanum voru tvær konur og þrjú böm og kastaðist konan, sem við stýrið sat, út úr bílnum, slas- aðist talsvert og var flutt á Landspítalann í Reykjavík. Kon- an heitir Sigurleif Sigurjóns- dóttir hjúkrunarkona frá Foss- hólum. Þá varð árekstur um fimm- leytið á sunnudag í Grímsnesi milli fól'ksbifreiðar og jeppa. Maður, sem var farþegi í fólks- bifreiðinni og sat aftur i. kast- aðist á framsætið og meiddist í öxl, en meiðsl hans munu ekki alvarleg Bílarnir voru báðir úr Ámessýslu og skemmdust báð- ir mikið Ökumaður jeppans var ölvaður. 0 Fundur var haldinn í Sósíal- istafélagi Kópavogs fimmtu- daginn 19. nóvember kl. 20,30 í Þinghól. 0 Nánar auglýst síðar. Þriðjudagur 16. nóvember 1965 — 30. árgangur — 260. tölublað. Samningarnir undirritaöir í gær. (Ljósm. P. Thomsen). ft viðskiptasamningur við Pólveria undirritaður í gær Hinn 15. nóvember var und- irritaður í Rvík samningur um viðskiptj milli Islands og Pól- Iands fyrir tímabilið 1. október 1965 til 30. september 1966. Samkvæmt vörulistum, sem samið var um, er gert ráð fyrir, að ísland selji Pólverjum eins og áður saltfisk, freðfisk, fiski- mjöl og síldarmjöl, lýsi og salt- aðar gærur auk fleiri vara. En frá Póllandi er ráðgert að kaupa járn og stálvörur, þar á meðal dráttarbrautir, timbur, kol og koks, vefnaðarvörur, efnavörur, sykur, vélar og verkfæri, búsá- höld og skófatnað auk fleiri vara. Af hálfu Islands undirritaði samkomulagið: Emil Jónsson, utanríkisráðherra, en af hálfu Pólverja: Stanislaw Stanisiawski, forstjóri í utanríkisviðskipta- ráðuneytinu, formaður pólsku samninganefndarinnar. Samninganefnd íslands skip- uðu: Þórhallur Asgeirsson, ráðu- neytisstjóri, formaður, Björn Tryggvason, skrifstofustj. Seðla- bankans, Árni Finnbjörnsson, framkv.stj. Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, Gunnar Flóvenz, framkvæmdastjóri Síldarútvegs- nefndar, Bjarni V. Magnússon, framkvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar SlS, Pétur Pétursson, forstjóri Innkaupastofnunar rík- isins, B jörgvin Guðmundsson, fulltrúi í viðskiptamálaráðuneyt- fnu. krefst flefci Frumvarp um aðstoð ríkisins við rekstur og byggingu barnaheimila Frumvarp þeirra Einars Olgeirssonar og Geirs Gunn- arssonar um aðstoð ríkisins við rekstur og byggingu al- mennra bamaheimila og um fóstruskóla kom til 1. umræðu í neðri deild alþingis i gær og hafði Einar Olgeirsson framsöguræðu fyrir því, þar sem hann minnti á hina sí- vaxandi þörf, sem hér væri fyrir bamaheimili, sem í nú- tímaþjóðfélagi væru uppeldisstofnanir á borð við skól- ana og þyrfti jafnframt að bæta stórum alla menntun fyr- ir fóstrumar og aðstöðu til náms. í frumvarpinu er ráð fyrir því gert að ríkið aðstoði þá aðila sem reka almerm bama- heimili: vöggustofur, dagheimili og vistheimili svo og sumardval- arheimili fyrir börn, sem hér segir: Ríkið greiði viðkomandi aðila amk. 600 kr. á mánuði fyrir hvert bam, sem rekstrar- styrk til bamaheimilisins, en þó að jafnaði eigi minna en þriðj- ung toostnaðar við rekstur heim- ilisins. Aðilar geta verið hvort ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■**• ■ . Karl tekur ■ sæti á þingi ] Karl Guðjónsson, kenn- l arij 2. varamaður lands- ■ | kjörinna þingmanna Al- ; | þýðubandalagsins tók í ; gív sæti á aiþingi í fjar- i veru Ragnars Amalds, ; sem verður frá þingstörf- ; um um hríð, vegna anna. j Kan var efsti maður á j lista Alþýðubandalagsins ■ í Suðurlandskjördæmi • við síðustu kósningar og j hefur áður setið á þingi j um tíma. 1. varamaður Al- ! þýðubandalagsins Ingi R. ■ Helgason situr nú á þingi ; í forföllum Eðvarðs Sig- j urðssonar. heldur er sveitarfélag, áhugafé- lag, opinber stofnun eða at- vinnufyrirtæki. Félagsmálaráðu- neytið skal ákveða hve mikinn hluta aðstandendur barnanna greiði og skal sú regla viðhöfð að greiðslan fari eftir efnahag og aðstæðum, al'lt frá því að vera ókeypis og upp í 2/3 rekstr- arkostnaðar. Gert er ráð fyrir því að und- ir lögin heyri dagheimili fyrir 2—6 ára börn, þar sem þau eru frá morgni til kvölds og borða á heimilinu, vistheimili fyrir böm, sem ekki geta dval- izt heima hjá sér, vöggustofur fyrir börn innan 2ja ára og sumardvalarheimili fyrir böm. 1 framsöguræðu benti Einar Olgeirsson á þær stórstígu breytingar sem átt hafa sér stað í þjóðfélaginu undanfarin ár og hefðu þær leitt af sér margvís- leg vandamál. Eitt þeirra væri bamauppeldi, vegna þeirra ger- breytinga sem orðið hefðu á fjölskyldulífinu og þjóðfélags- legri aðstöðu kvenna. Nú færð- ist það æ meira í vöxt að konur ynnu úti við, einkum ungar kon- ur, annað tveggja vegna efna- hagsins eða vegna áhugamála á ýmsum sviðum. Þessu þyrfti þjóðfélagið að mæta með því að koma á fót bamaheimilum, því nauðsyn væri á uppeldis- stofnunum fyrir börnin innan sjö ára aldurs, ekki síður en þau, sem þegar væru orðin sjö ára. Þau barnaheimili, sem nú eru til eru hvergi nærri fullnægjandi, sagði ræðumaður síðan og nauð- synlegt að ríkið grípi hér iriní, en það hefur ekki tekið neinn þátt að marki í byggingu bama- heimila. Ef ríkið vildi leggja fram fé. gætu bæjarfélögin fram- kvæmt sínar áætlanir miklu hraðar en nú er. Og einmitt nú, þegar atvinnu- rekendur barma sér yfir skorti á vinnuafli er þörfin brýn ábygg- ingu bamaheimila, en nú ætti hugsunarhátturinn að vera ann- ar en fyrir fjörutíu árum, þeg- ar talað var um að kommúnist- ar vildu taka bömin frá fjöl- skyldunum vegna þess að þeir lögðu til að gerðir yrðu barna- leikvellir! Vék Einar síðan að fóstm- skólanum, sem hann kvað ekki geta annað verkefnum sínum og vitnaði ræðumaður í orð Vil- borgar Sigurðardóttur skólastj. fóstruskólans, sem sagði við skólaslit 1963: ,,Mér telst svo til að til þeirra bamaheimila, sem byggja skal hér í borg á næstu 5 árum þurfi mínnst 50 — 60 sérmenntaðar fóstrur. Reikna ég hér eingöngu með fóstrum í stöður forstöðukvenna og deild- argæzlu. Ef fulinægja á þessum lágmarkskröfum til starfslíðs þarf að auka og efla fóstruskól- ann að miklum mun. Skoðun mín er sú, að tómt mál sé að tala um að fjölga bamaheimil- um hér á Iandi, ef fóstruskól- inn er ekki efldur að sama skapi. Framsögumaður skýrði því næst frá þvf að er frumvarp betta kom fyrst fram á þingi, fyrir tveim árum, hefðu fjöl- mörg samrtök kvenna hvatt al- þingi til að samþykkja það. Nefndi hann Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna, stjóm Kvenréttindafélags Is- lands og ennfremur hefðu ýmis önnur kvennasamtök gert sam- þykktir um þessi mál án þess sérstaklega að vitna til frum- varpsins. Lét Einar Olgeirsson að lok- um þá ósk í ljós að alþingi mætti nú samþykkja þetta frv. Málið byldi ekki lengur neina bið. Frumvarpinu var síðan vísað til 2. umræðu og menntamála- nefndar. iygging leiguhúsnæðis Umræðum um fmmvarp þing- manna Alþýðubandalagsins um byggingu leiguhúsnæðis var framhaldið í gærdag. Tók Ein- ar Ágústsson til máls og kvað frumvarpið vert vandlegrar at- hugunar í nefnd. Var málinu síðan vísað til 2. umræðu og heilbrigðis- og félagsmálanefnd- Fógetaembættið í Hafnarfirði: Emii Jónssoii mót- mælir veitíngunni Fyrir viku var haldinn bœjarstjórnarfundur í Hafnarfirði og bar þá Kristján Andrésson, bœjar- fulltrúi Alþýöubandalagsins fram mótmœlatillögu gegn pólitískri misbeitingu ríkisstjómarinnar við veitingu bœjarfógetaembættisins í Hafnarfirði. Eins og skýrt var frá í fréttum hér í Þjóðviljan- um sátu bæjarstjórnarfulltrúar Alþýðuflokksins hjá við atkvæðagreiðsluna og vakti þessi hjáseta slíka reiði óbreyttra flokksmanna, að áðurgreindir full- trúar máttu læðast um bakgötur næstu daga á eftir eða skutust milli húsa á kvöldin í rökkrinu. Nú hafa þau stórtíðindi gerzt í Firðinum, að bæði Félag ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði og full- trúaráð Alþýðuflokksins þar hafa leiðrétt þennan misskilning bæjarstjórnarfulltrúanna að taka ekki afstöðu til málsins og sent frá sér harðorð mótmæli. Þess má geta, að nefndir bæjarfulltrúar sitja í fulltrúaráðinu og formaður ráðsins er Emil Jónsson ráðherra og lagði hann fram tillöguna. Mótmælasamþykktimar fara hér á eftir: Mótmæli fulltrúaráðsins „Fulltrúaráð Alþýðuflókksins í Hafnarfirði mót- mœlir því harðlega, að Birni Sveinbjömssyni skyldi ekki vera veitt bæjarfógetaembættið í Hafnarfirði og sýslumannsembættið i Gullbringu- og Kjósar- sýslu. Fulltrúaráðið telur, að Björn hafi með 9—10 ára starfi í þessu embœtti, sem hann að allra dómi er til þekkja hefur rœkt með ágætum, verið allra umsækjenda sjálfsagðastur til að vera skipaður í embættið“. Mótmæli FUJ „Fundur stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði mótmælir harð- lega þeirri ákvörðun dómsmálaráðherra að ganga framhjá Birni Sveinbjörnssyni við veitingu bæjar- fógetaembœttisins í Hafnarfirði, þar sem Björn hef- ur starfað við embættið í tuttugu ár, þar af ellefu ár sem fulltrúi og níu ár sem settur sýslumaður, og hefur rekið embœttið þann tíma á fullri ábyrgð við góðan orðstír og almennar verðskuldaðar vinsældir. Stjóm og trúnaðarmannaráð FUJ í Hafnarfirði“ Fyrsta laga- frumvarpið ■ Fyrstu lög þess löggjafar- ; þings, sem nú situr voru af- ; greidd frá efri deild í gær. ■ Er þar um að ræða heimild ■ fyrfr ríkisstjórnina til þess ; aö leyfa H/f Hval innflutning ; á hvalveiðiskipi. Var frum- : varpið að Iögum og afgreitt • ágreiningslaust í báðum deild- ; um. Síidveiiin um helg- ina var 84 þús. mái Gott veður var á síldarmiðunum um helgina allt fram til miðnættis á sunnudagskvöld en þá tók að kalda og voru komin 6 vindstig á miðunum í gærmorgun og ekkert veiðiveður. Frá laugardagsmorgni til sunnudagsmorguns fengu 55 skip samtals 62.600 mál og á sunnudaginn fengu 24 skip samtals 21 þúsund mál. Fer hér á eftir skrá yfir þau skip er fengu 100 mál og þar yfir. Laugardagur Jón Garðar GK 2000 Sig. Bjarnason EA 1000 Þorsteinn RE 15(M) Sig. Jónsson SU 1150 Gullver NS 1600 Elliði GK 1150 Óskar Halldórsson RE 1500 Súlan EA 1200 Ásbjörn RE 1100 Guðbjörg GK 1100 Krossanes SU 1450 Siglfirðingur SI 1300 Heimir SU 1150 Guðm. Þórðarson RE 1000 Reykjaborg RE 1200 Hrafn Sveinbj. III GK 1050 Sigurkarfi GK 1000 Gunnar SU 1300 Ámj Magnússon GK 1000 Framhald á 9. síðu. Yfirlýsing frá Þjóðminjaverði Vegna ummæla í Mánu- dagsblaðinu, hinn 5. þm. þykir mér rétt, að fram komi opinberlega, að Kefla- víkursjónvarpið hefur aldr- ei farið fram á, að fá að taka myndir í Þjóðmfnja- safni fslands. AHir. sem bingað til hafa beðið um leyfi til að taka slikar myndir, hafa umyrðalaust feugið það. Kristján Eldjárn. þjóðminjavörður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.