Þjóðviljinn - 16.11.1965, Blaðsíða 10
|0 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur M. nóvemiber 1965.
samt sem áður, sagði herra Sher-
win. Við þ'urfum fyrst og fremst
að koma ungfrú Dyer heim —
ná síðan í lækni og lögreglu, og
í þpssari röð.
— Við getum stanzað andar-
tak, sagði Harry. Jafnvel þótt
Jan þekki manninn ekki, þá
hefur hann ef til vill tekið eft-
ir númerinu á vagninum.
— Fyrst heim, sagði herra
Sherwin þrjózkulega.
Þótt Carólínu þætti ekki leng-
ur neitt guðdómlegt í fasi hans,
þá var hún fegin því að hann
hafði nægan viljastyrk til að
standast fortölur Harrys.
En Harry var ekki mikið fyr-
ir að láta undan. Þegar þau
komu á móts við bílaverkstæðið,
bá hrópaði hann: Fjandinn hafi
bað, það tekur ekki nema eina
mínútu
Herra Sherwin ók rakleitt á-
fram.
— Þér getið hringt að heiman,
sagði hann.
— En Carólínu stendur á
sama, þótt við stönzum anriir-
tak — er bað ekki Carólína?
sárbændi Harry.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21, SÍMI 33-9-68
D Ö M U R
Hárgreiðsla við allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 Vonarstrætis-
megin. — SÍMI 14-6-62
FfárgreiÓslustofa
Au«;turbæiar
Mana Guðmundsdóttix
-augaveg) 13. sími 14-6-58
'l'iddstofar er á sama stað
— Það er alveg eins gott að.
nota símann, svaraði Sherwin
með sömu róseminni.
En strax og hann kom þá
var það hann sem varð fyrst-
ur til að þjóta inn og leggja
undir sig símann og hann
hringdi í lækni og lögreglu, með-
an Harry tvísté við hliðina á
honum. Harry þreif að vísu ekki
tólið af honum, en allan tímann
sem herra Sherwin var í sím-
anum talaði hann líka og skeytti
Fenellu engu, en hún hafði kom-
ið þjótandi inn í stofuna og þrá-
spurði hvað komið hefði fyrir.
— Þið hljótið að sjá, sagði
Harry í æsingu, að Jan hefur á-
reiðanlega séð að maðurinn var
ölvaður. Drukkinn og hættuleg-
ur. Hann átti alls ekki með að
selja honum benzín. Það var
glæpsamlegt. Hann hafði engan
rétt til að taka af honum pen-
inga. Það var glæpur, engu
minni en glæpur hins mannsins.
Já, meira að segja verri, því
að hann vissi hvað hann var að
gera. Bíðið þið bara þangað
til ég segi honum álit mitt á
honum!
Með röddu sem varð þeim
mun hljóðlátari því æstari sem
Harry varð, lauk herra Sher-
win við að tala í símann, sagði
Harry að stilla sig og láta lög-
regluna um að fjalla um málið,
sagði Fenellu að koma Carólínu
í rúmið og sagðist sjálfur ætla
aftur á slysstaðinn og hafa eftir-
lit með bílnum þar til lögregl-
an kæmi á vettvang.
Harry gerði sig ekki líklegan
til að stilla sig, áður en herra
Sherwin var kominn útúr stof-
unni, var hann byrjaður að
hrópa í símann.
Fenella sneri sér að Carólínu.
Það var skelfingarhreimur í
rödd hennar.
— En hvað kom fyrir? Hvað
hefur Jan gert?
— Við skulum koma upp,
sagði Carólína.
— Já, auðvitað. Fenella lagði
handlegginn utanum hana. En ég
skil þetta ekki — af hverju er
Harry svona reiður út í Jan?
— Ég held það séu bara eftir-
köst eftir áfallið, sagði Carólína.
Hann var stórkostlega fljótur að
átta sig þegar slysið varð.
— En hvaða þátt átti Jan í
þessu? Var það eitthvað sem
hann gerði við h/linn? Það get-'
ur varla ^niinn ^jveg
'vr og það hefur ekkert verið
gert við hann.
Carólína minntist þess nú að
Harry hafði verið reiður út í
Jan Pullen rétt áður en slysið
vildi til. Hún mundi ekki í svip-
inn hvers vegna. Hvað svo sem
það var, virtist það of flókið til
að minnast á það núna. Auk
þess hafði Harry líka verið reið-
ur út í Fenellu og það væri frá-
leitt að fara að hafa orð á því.
— Það eru eftirköst, hann er
bara að gefa sjálfum sér útrás,
sagði hann. Hann var ótrúlega
rólegur þegar það gerðist. Hann
tapaði sér ekki eitt einasta and-
artak.
— Hann er alltaf dásamlegur
þegar eitthvað óvænt ber upp á,
sagði Fenella. Hann er svo fljót-
ur að hugsa. Hann er líka af-
skaplega hugrakkur. Ég sá hann
einu sinni stinga sér beint ofan-
af brú niður í á í öllum fötun-
um.... Já, en það var ég búin
að segja þér. Hún opnaði dym-
ar að svefnherbergi Carólínu.
Elsku reyndu nú að segja mér
hvað kom fyrir. Ég verð að fá
að vita það.
Carólínu var að byrja að verkja
í allan kroppinn og hana var
aftur farið að svima. Hún spark-
að af sér skónum og lagðist útaf
í rúmið.
— Ég get ekki mikið sagt þér,
sagði hún, nema það, að við vor-
um fyrir aftan vöruvagn og ek-
illinn gaf okkur merki um að
fara framhjá, og þegar við gerð-
um það, kom slinkur á vörubíl-
inn og hann ók á okkur. Ég held
að ekillinn hafi verið drukMnn
eins og Harry segir.
— Sástu manninn?
— Mér finnst ég muna eftir
andlitinu á honum í glugganum.
Hann yggldi sig og gretti fram-
an i okkur. Ég héld að hann
hafi verið alveg eins hræddur
og við.
— Sástu hvaðan vagninn var?
Stóð nokkurt nafn á honum?
— Það getur vel verið. Ég
man það ekki.
— En hvað kemur Jan þessu
máli við?
— Harry vildi vita hvort
hann þekkti manninn. Við sáum
bílinn fyrst við verkstæðið hjá
honum.
— Þá hefur Jan engan þátt
átt í þessu.
— Alls engan, nema hvað
hann seldi manninum benzín.
Harry virðist álíta að hann hefði
ekki átt að gera það.
9
— Vegna þess að maðurinn
var drukkinn?
— Já.
— En það er ekfci einu sinni
víst að hann hafi tekið eftir því.
Ef hann hefur verið með hugann
við eitthvað annað.... Fenella
brosti. Áhyggjusvipurinn var því
nær horfinn af langleitu, fölu
andliti hennar. Harry róast
bráðlega. Nú held ég þú ættir að
hátta og koma þér almennilega í
rúmið.
Carólína stundi. Hún mátti
ekki til þess hugsa að leggjast
rúmföst á þessu stigi afturbat-
ans. Hermi hafði gengið svo vel
að batna. Henni var það metn-
aðarmál að vera á fótum.
Þegar hún hreyfði sig ekki,
bandaði Fenella til hennar löng-
um og dugleysislegum höndun-
um.
— Farðu að minnsta kosfi úr
þessum fötum, sagði hún. Það
er hörmung að sjá útganginn á
þér. Svona nú, ég skal hjálpa
þér.
— Þetta er allt í lagi, ég get
það sjálf, sagði Carólína. Hún
hafði rétt í þessu gert sér ljóst
að næstum allur kvíði Fenellu,
hálfbrostin röddin og fölvinn
hafði verið vegna Jans. Þegar
kvíði hennar reyndist ástæðu-
laus, þá fyrst hafði hún tíma
til að hugsa um líðan systur
sinnar.
— Svona, vertu ekki að þessu.
Fenella stafcfc handíeggnum
undir bakið á henni og reisti
hana upp. Hendur hennar voru
mifclu sterkari og traustari en
þær litu út fyrir að vera. Rétt
eins og vilji hennar, hugsaði
Carólína, meðan hún lét það við-
gangast að fötin væru dregin af
sér. Þegar Fenella vildi eitt-
hvað, þá vann hún að því að
fá því framgengt. Ekkert gat
stöðvað hana. Carólína minntist
þess ekki að neitt hefði nokkru
sinni orðið til að hindra hana.
Henni stóð nákvæmlega á sama
um afleiðingar, gat ekki einu
sinni gert sér þær í hugarlund.
— Svona, Þetta er betra, sagði
Fenella og hjálpaði Carólínu í
sloppinn hennar og breiddi dún-
sængina yfir hana. En þetta er
annars alveg hræðilegt, þú kem-
ur hingað til að láta þér batna,
og svo kemur þetta fyrir....?
Hún hallaði undir flatt og hlust-
aði. Það er að koma bíll. Senni-
lega er það læknirinn.
Hún flýtti sér út.
Carólína lokaði augunum og
hélt áfram að hugsa um Fenellu,
um Jan Pullen, sem var svo stór
og laglegur, og ef hann hefði
komið til móts við lestina í
Rudbourne hefði hún fortaks-
laust haldið að hann væri eigin-
maður Fenellu. Ojæja. ef Fenella
var orðin ástfangin af honum, ef
hún vildi fá hann, þá tækist
henni það. Harry yrði að sætta
sig við það.
En það var bara dálítið erfitt
að ímynda sér að Harry sætti sig
við eitthvað sem honum þótti
miður. Carólínu hefði þótt gam-
an að vita hvað Fenella héldi
um það.
Dymar opnuðust hljóðlega.
Carólína hélt að læknirinn hefði
verið eldfljótur upp stigann, svo
að hún opnaði augun og sá ekki
lækninn, heldur frú Dewhurst
sem læddist í áttina til hennar.
— Mér þykir leitt að ónáða
yður, vina mín, sagði hún lágri
röddu, en ég varð að fá.að.vita
hvemig yður liði. Ég heyrði þau
tala um slys, lækni og lögreglu.
Svo sá ég að frú Lyddon hjálp-
aði yður upp. Eruð þér mikið
meidd, elskan? Segið mér hvað
kom fyrir.
Carólína fann hvemig þreyt-
an lagðist að henni. Hiín sá
fram á að hún yrði að segja
lækninum hvað gerzt hafði, síð-
an lögreglunni og ef til vill
blaðamanni frá sveitablaðinu og
guð má vita hverjum....
Herbergið snerist fyrir augun-
um á henni, Það snerist kring-
5ILVO gerir silfrib spegil fagurt
BLADADREIFINC
Börn eða fullorðnir óskast til að bera blað-
ið til kaupenda í eftirtalin hverfi:
Seltjarnarnes I. — Tjarnargötu — Skipholt.
KÓPAYOGUR: — Laus hverfi:
Hlíðarvegur — Hvammar.
— Hringið í síma 40319.
Sími
17 500
FRA, ,
SOVETRIKJUNUM
REYNSLAN
HEFUR
SANNAÐ
GÆÐIN
HJOLBARÐAR
w
SKIPATRYGGINGAR
,á vörum í fflutnlngS
á eigum skipverja
Heimistrygging henfar yður
Velöapffa
Afflatryggingar
TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR”
IINDARGATA 9 REYKJAVlK SlMl 2 1 2 60 SlMNEFNI , SURETY