Þjóðviljinn - 15.12.1965, Síða 12

Þjóðviljinn - 15.12.1965, Síða 12
I X Irskir listamenn sýna hér eftir áramót Eftir áramótin er væntanlegur hingaff til landsins hópur listamanna á vegum hússins og mun sýna einu á sviði Þjóðleikhússins. Hér er um að ræða 20 manna hóp söngvara og dansara og nefnist flokkurinn „FEIS EIREXANN“. Á efnisskránni eru mestmegn- is írsk þjóðlög og þjóðdansar. írsk þjóðlög eru mjög fögur og sérstæð, í þeim speglast írsk menning og írskur þjóðarandi í þús.und ár. írskum skáldum hefur jafnan verið tamt að tjá tilfinningar sínar jafnt í gleði og sorg í óbrotinni og einfaldri þjóðvísu. sem varðveitzt hefur ó- breytt í einfaldleik sínum kyn- slóð eftir kynslóð. Hin. sterka ættjarðarást og ríka skopgáfa franna tvinnast þar saman og mörg þjóðvísan býr yfir djúp- um trega, sem er svo snar þátt- ur í fari írsku þjóðarinnar. Listafólkið, sem hér sýnir verður klætt írskum þjóðbúning- um, og sjálfir leika þeir á hljóð- færin í þessari sýningu, en þar ber mest á hinni ævafomu írsku hörpu. Fararstjóri og stjórnandi er Albert Morini. Hingað kemur listafólkið frá Dublin og héðan er förinni heit- ið til Bandaríkjanna og Kanada en þar mun listafólkið sýna 40—50 borgum á næstu fjórum mánuðum. Til frlands heldur flokkurinn aftur í lok apríl. Hæstíréttur staðfestí brot breiku togaraskipstjóranna Hæstiréttur kvað á mánudag | bótarrannsóknir á mælingum og upp dóma yfir tveimur brezk-1 tímaákvörðunum landhelgisgæzl- um togaraskipstjórum og staðfesti í báðum málum dóm undirréttaT um Iandhelgisbrot. Höfðu skip- stjórarnir áfrýjað þar sem þeir véfcngdu mælingar landhelgis- gæzlunnar og héldu því fram báðir tveir, að stöðvunarmerki varðskipsins hefðu ekki sézt fyrr en togararnir voru komnir út fyrir landhélgislínu og þcir ekki kastað fyrr en þá. Voru kvaddir til sérfræðingar til að gera gaumgæfilegar við- unnar og stóðust þær allar. Skipstjórarnir sem dæmdir voru eru Riohard Taylor á tog- aranum Peter Scott og Rawcliffe á Prince Philip. Hafði Taylor verið dæmdur á Akureyri í 45 daga varðhald og 350 þús. kr. sekt og var sá dómur staðfestur. Rawcliffe hafði verið dæmdur í 260 þús. kr. sekt á ísafirði og var sú upphæð hækkuð í 300 þúsund af Hæstarétti. Þá þurfa báðir að greiða málskostnað. Blaðadeild póstsins komin í Umferðarmiðstöðina nýju Eitt sýningaratriða í rska dansflokksins. Viðbúnaður bjá lögreglunni vegna jólaumferðarinnar Jólaumferðin um miðbæ Reykjavíkur er vaxandi vanda- mál ár frá ári. eins og eðlilegt er með aukinni bílaeign borg- arbúa og annarra. Þrátt fyrir stóraukna umferð hafa þó slys í desember orðið faerri en vænta mætti og má vafalaust þakka Það öryggisráðstöfunum og góðu sta,rfi lögreglunnar í umferðinni fyrir jólin undanfarin ár, f jólaumferðinni nú verða gerðar mikils til sömu öryggis- ráðstafanir og undanfarið og hefur lögreglustjórinn í Reykja- vík þegar auglýst ýmsar tak- markanir á umferð, sem fól'k er hvatt til að kynna sér vandlega. Þessar takmarkanir verða í gildi á tímabilinu 16.—24. desember. Má nefna til dæmis, að ein- stefnuakstur hefur verig settur á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs og á Frakkastig frá Hverfisgötu að Hndargötu. og hægri beygja bönnuð úr Tryggvagötu í Kalkofnsveg, úr Snorrabraut í Laugaveg, ur Snorrabraut { Njálsgötu og úr r,aufásvegi í Hringbraut. Þá eru bifreiðastöður bannaðar oða takmarkaðar víða um miðbæ- inn ' og nágrenni hans, öku- kennsla bönnuð á þessu svæði og fleiri takmarkanir á umferð um ýmsar götur suma dagana. Pétur Sveinbjörnsson fulltrúi Umferðarnefndar borgarinnar og lögregluvarðstjórarnir Óskar Ólafsson °g Sverrir Guðmunds- son skýrðu blaðamönnum frá þessum ráðstöfunum í gær. Sögðu þeir, að nú væru í bæjar- landinu skráðar um 13 þúsund bifreiðar, en óhætt myndi að telja á götunum um 20 þúsund þegar utanbæjarmenn bætast vig til að gera innkaupin fyrir jólin. Mesta vandamálið eru bíla- stæðin. Það er mikil töf í um- ferðinni þegar fólk er að far^ á bílum milli verzlana í kannski 30—50 metra fjarlægð og þarf að finna bílastæði á hverjum stað Óskar lögreglan eftir Því, að fólk reyni eftir þvi sem mögulegt er að koma bíiunum fyrir á stæðum utan við mestu verzlunargöturnar og gang; síð- an milli búðanna. Gæzla verð- ur á fimm stærstu bifreiðastæð- unum í nágrenni miðborgarinn- Framhald á 8. síðu. Veður spilltist á miðunum Veður spilltist á síldarmiðun- um í fyrrinótt og var ekki veiðiveður síðari hluta nœtur. Samtals fengu þá 19 skip 18.600 mál og tunnur. Eftirtalin skip tilk. sildarleitarskipinu Pétri Thorsteinssyni um afla sinn: Jón Kjartansson SU 150o> mál, Skagfirðingur OF 12000, Sigurður Bjarnason EA 500, Búðaklettur GK 1500 tunnur, GuUfaxi NK 800 tunnur, Krossanes SU 1300 mál. Lómur KE 1200, Itisjvar Guðjónsson GK 1100, Gullberg NS 700, Helga RE 700, Ásbjörn RE 700, Margrét SI 750, Guðm. Péturs SI 550, Sólfari AK 500, Guðbjörg GK 1000 Snæfugl SU 900, Jprundur III. RE 800, Þórður Jónasson EA 1500, Ell- iði GK 1400, Blaðadcfid pósthússins hefur nú verið flutt í kjallarann á byggingu Umferðarmisstöðvar- innar við Hringbraut og voru nýju vistarvcrumar teknar í notkun um síðustu helgi. Hingað til hefur blaðadeildin verið til húsa í kjallara pósthússins við Austurstræti við mjög erfiðax aðstæður, ekki sízt vegna skorts á bílastæðum. Or þessu hefur nú verið bætt og þægilegt er að komast með bílum að nýja húsnæðinu. Það er einnig rýmra en í pósthús- inu, þótt það sé ekki alveg eins og við hefðum óskað, sagði Matthías póstmeistari er hann sýndi blaðmönnum deildina á mánudag. Um blaðadeildina fer allur svokallaður innritaður póstur, prentað mál, en skilyrði fyrir blað til !tð vera innritað, er að það komi út í a.m.k. þúsund eintökum ein.u sinni á ári eða oftar. Nýtur það þá sérstakra kjara við sendingu til kaupenda sinna. Fjöldi innritaðra blaða er nú um 250 og tekur deiidin ár- lega á móti um fimm milj. ein- taka. Mikill kostur er að hafa blaða- deildina í húsi Umferðarmið- stöðvarinnar, því þaðan fara sérleyfisbifreiðarnar út á land og þá hæg heimatökin að koma blöðunum með þeim. Við blaðadeild póstsins starfa nú sjö manns og hefur póstur- inn þarna húsnæði, sem nem- ur 200 fermetra gólffleti. Auk blaðadeildarinnar er í ráði að setja á stofn almenna póstaf- greiðslu á sama stað og áætlað að hún taki til starfa næsta vor. Er nú afgreiðsla pósts af einhverju tagi komin á sex staði í bænum; auk Pósthúss- ins í miðbænum starfar Toll- póststofan í Hafnarhúsinu. Bögglapóststofan í Hafnarhvoh. útibú við Langholtsveg og Laugaveg og Blaðadeild póstsins í Umferðarmiðstöðinni. Kjaradómur átti að fella í dag úrskurð í þeim málum bæj- arstarfsmanna sem fyr;r dóm- inn voru lögð. Nú hefur upp- kvaðningu dómsins verið frest- að um eina viku eða til 22. des- ember að ósk dómenda er ekki treysta sér til þess að Ijúka úr- vinnslu allra þeirra gagna er fyrir lágu á tilsettum tíma. B;örn Jónsson leggur fil að Frumv. um hækkun benzín- og þungaskatts verði fellt Frumvarp ríkisstjórnarinnar um að hækka benzín- og þun.ga- skatt kom til 2. umræðu í efri deild í gær. Mælti Björn Jóns- son fyrir áliti fyrsta minni hluta samgöngumálanefndar og fer nefndarálitið hér á eftir: „Með frv. þessu er lagt til að hækka benzínskatt um 90 aura á lítra og þungaskatt á dísil- bifreiðar nokkru meira hlutfalls- lega. Árleg upphæð þessarar skattahækkunar er áætluð um Fjárlög óafgreidd Fjárlagafrumvarpið var af- greitt, sem Iög frá alþingf í gær. Voru allar tillögur Alþýðubantla- lagsins um breytingar á frum- varpinu felldar, og verður nán- ar skýrt frá efni breytingartil- lagna síðar. Þó að frumvarpið sjálft sé nú afgreitt, er enn eftir að afgreiða fylgifrumvörp þess t.d. um benzínskattshækkun og hækkun aukatekna ríltissjóðs. 64 milj. kr., en á næsta ári munu tekjur þær, sem koma til skila vegna hækkunarinnar nema rösklega 56 milj. kr. Sam- tímis flutningi þessa frv. er svo lagt til að fella niður áður lög- tekið framlag ríkissjóðs til vega- málanna að upphæð 47 milj. kr. Ef tillit er tekið til síhækkandi framkvæmdakostnaðar við vega- gerð og beinna hækkunaráhrifa. sem þetta frv., ef samþykkt verður, hefur á bennan fram- kvæmdakostnað, er auðsætt að hér er s.fður en svo um að ræða, að aukið sé framkvæmdafjár- magn til vegamálanna. Hér er bví einvörðungu um það að ræða að skattleggja umferðina í þágu ’'',kissjóðs um nokkrar tugmilj- Anir króna til viðbótar þeim á- 'sniim, sem þegar eru á hana 'noðar til almennra þarfa ríkis- sjóðs. Er hér á ferðinni einn þáttur þeirrar margþættu handa- hófsskattlagningar sem ríkis- stjórnin hyggst fleyta ríkissjóði á yfir nœsta fjárlagaár og enn er ekki séð fyrir enda á, hve fjölskrúðugt verður. Enginn vafi er á geysilegri þörf á mikilli aukningu f jár- veitingu til vegaframkvæmda í landinu. Á því sviði þarf að koma til gerbylting á næstu ár- um, ef hið úrelta og ófullkomna vegakerfi á ekki að verða bein hindrun fyrir eðlilega þróun at- vinnulífs, framfarir á fjölmörg- um sviðum og verndun byggða- jafnvægis. Eðlilegasta leiðin til þess, að mögulegt reynist að gera það átak, sem hér þarf að koma til, virðist sú, að ríkissjóð- ur afsali sér verulegum hluta af þeim tekjum sem hann nú hef- ur af umferðinni með aðflutn- ingsgjöldum, leyfísgjöldum o.fl., og að þeim verði ráðstafað til vegamálanna. Að því leyti sem þessi leið kjmni að reynast ó- fullnægjandi kæmu síðan til greina aukin gjöld á umferðiha í einhverju formi. Meðan éstand vegamála er slíkt sem það nú er, virðist fá skattheimta óeðlilegri en sú að hækka álögur á umferðina í þágu annarra þarfa en hennar. En það er einmitt sú aðferð, sem ríkisstjórnin nú hyggst beita í ráðleysi sínu við að ráða fram úr fjárhagsvanda ríkissjóðs, sem skapazt hefur fyrir verðbólgu- stefnu hennar. Undirritaður er þeirrar skoð- unar, að sú hækkun benzínverðs, sem hér er um að ræða gæti komið til álita, ef um væri að ræða fjáröflun til myndarlegra átaka í vegamálunum, en telur hana fráleita, eins og nú er að málum staðið, og leggur því til, að frv. verði fellt. SScref í átt til gengisfellingar Frumvai-pið um 0,5% gjaldeyr- isskatt kom til 2. umræðu í neðri deild í gær og urðu umræður litlar. Fjárhagnefnd þríklofnaði um málið, lagði meiri hlutinn, stjómarliðið, til að það yrði samþykkt, Framsókn skilaði sér- áliti, og 1. minni hluti nefndar- innar, Lúðvík Jós.epsson, lagði til að frumvarpið yrði fellt. I ræðu sinni benti Lúðvík Jósepsson á að þó að skatturinn væri aðeins ¥2% nú mætti búast við hækk- unum á honum í framtíðinni, þegar tekið væri tillit til þess að þeim, sem greiða bönkunum gjaldeyrinn, eru greiddar sér- stakar bætur. Þessi þróun væri stórkostlega varhugaverð og hætt við að hún leiddi af sér gengisfellingu. Frumvarpinu var vísað til 3. umræðu, með mótatkvæðum stjómarandstöðunnar. Tollfrumvarp Frumvarp um breytingu á lögum um tollskrá, sem skýrt var frá hér í blaðinu í gær kom til 1. umræðu í efri deild í gær og mælti fjármálaráðhérra fyrir frumvarpinu, og lagði á það á- herzlu að það yrði afgreitt sem lög fyrir áramót. Tillaga um aS vísitölubinda ekki lón til var felld í 2. umræða um frumvarp til laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins fór fram í neðri deild í gærdag. Hannibal' Valdimars- son mælti við umræðuna fyrir breytingartillögu við frumvarp- ið svohljóðandi: „Láglaunafólk í verkalýðsfélögum skal hafa for- kaupsrétt að íbúðum þefm, sem byggöar eru skv. 3. málsgrein 3. gr. laga þessara, og elga með- limir verkalýðsfclaga rétt á Ián- j um til kaupa á íbúðum., og skal | upphæð þeirra nema % hlutum af verðmæti íbúða og sé gatna- gerðargjald þá talið með verð- mæti íbúðanna. Lánin séu ekki vísitölu'jundin". Hannibal benti 1 ræðu sinni á að ein helzta krafa samninganefndarmanna . verkalýðshreyfingarinnar í sum- j ar í þessu sambandi hefði ver' ' . að hið sama gilti um lán til I meðlima verklýðsfélaganna og til | húsabygginga í sveitum og ; íbúða, sem byggðar væru skv. ' verkamannabústaðalögunum, þ.e. i að lánin yrðu ekki vísitölubund- Við atkvæðagreiðslu var til- lagan felld með 19 aikvæðum gegn 14. Var frumvarpi þessu síðan vísað til 3. umræðu, að felldum tillögum stjórnarand- stöðunnar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.