Þjóðviljinn - 21.01.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.01.1966, Blaðsíða 1
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■' Föstudagur 21. janúar 1966 — 31, árgangur — 16. tölublað. Krikmyndasýning á vegum ÆFR • Kvikmyndasýning verður haldin á vegum ÆFR næstk. sunnu- dag klukkan 2 e.h. í Tjarnargötu 20. • Sýndar verða eins og jafnan áður góðar og vandaðar myndir við hæfi bama. • Öllum börnum fylkingarfélaga og flokksmanna er heimill að- gangur. — Stjórnin. ■•■•■■■■■■■■■■■■■! Leit haldið áfram í dag Snemma í g.ærkvöld var haldinn fundur hjá Flugum- ferðarstjóm á Reykjavíkur- flugvelli og kannaður þar ár- angur hinnar víðtæku leitar fyrir austan í gærdag að Beechcraft flugvélinni. Leitar- veður reyndist yfirleitt bjart víðast hvdr á leitarsvæðinu. þó hamlaði veður leit á nokkrum stöðum, — var þar snjókoma og lágskýjað. ' Þannig reyndist örðugt að leita á austurrana Vatnajök- uls og á tungu inn í miðhá- lendið austur og norður frá Eyjafjallajökli. Þá hamlaði veður einnig leit á fjallgarð- inum milli Lónsfjarðar og Álftafjarðar austan vegar. Ætlunin er að halda áfram leit í dag og verða þá fyrr- greindir staðir kannaðir með leit úr lofti og einnig verð- ur haldið áfram leit á heið- um og kringum tinda upp af öllum fjörðum frá Homa- firði til Borgarfjarðar eystra. Nær hundrað prósent leit hefur farið fram í öllum fjörðunum á þessu svæði og sennilega verður leit hætt á sjó í dag. , Þá er æfhmin að bæta við nýju leitarsvæði í dag, en það er í hálendinu í beinni línu frá Herðubreið til Eyjafjarð- ar og er björgunarsveit frá Akureyri komin á vettvang. Reykvíska flugbjörgunarsveit- in undir stjórn. Sigurðar‘Þor- steinssonar korn í gærkvöld að austan til Reykjavíkur. Víðtækasta flugbjörgunarleit fram að þessu hér á landi Um 500 manns leituðu á suðausturhluta Islands # í gærdag hélt áfram leitin að Beechcraft- flugvél Flugsýnar og reyndist ein víðtækasta flug- björgunarleit, sem gerð hefur verið hér á landi. Er talið að allt að fimm hundruð manns hafi tekið þátt í leitinni í gærdag og hefur hún enn engan árangur borið fram að þessu. Líkan að fyrirhuguðu ráðhúsi fyrir norðurc nda Tjarnarinnar, ásamt nágrannabyggingum. Framkvæmdir vii byggingu ráðhúss- ins verba ekki hafnar á þessu ári □ Geir Hallgrímsson borg- arstjóri sagði á fundi borg- arstjómar Reykjavíkur í gær, að hann byggist ekki við að hafnar verði fram- kvæmdir við fyrirhugaða byggingu ráðhúss borgar- innar í norðurenda Tjarn- arinnar á þessu ári. Borgarstjórinn gaf þessa yfir- lýsingu er hann svaraði svohljóð- andi fyrirspurn frá Alfreð Gísla- syni, borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins, um undirbúning ráðhúsbyggingar: »1. — Hvað líður störfum ráð- húsarkitekta og annarra, ei vinna að tæknilegum undirbún- íngi ráðhúsbyggingar? 2. — Gerir borgarstjóri ráð fyrir, að haffzt verði handa um byggingarframkvæmdir á þessu Borgarstjóm staðfestir stöðuráðningar Borgarstjórn Reykjavíkur stað- festi á fundi sínum í gær ráðn- ingu borgarráðs í stöður yfir- lögregluþjóna og aðstoðaryfirlög- regluþjóna sem áður hefur ver- ið skýrt frá í blaðinu. Akranes Hið áriega þorrablót Al- þýðubandalagsins á Akrancsi verður haldið að REIN næsta laugardag og hefst klukkan 8.30 um kvöldið. Þátttaka tíl- kynnist í síma 1413 eða 1948. Stjórnin. áxí, og ef svo er eklci, þá hve- nær?‘“' ' Fyrri lið fyrirspumarinnar svaraði Geir borgarstjóri efnis- lega á þann veg, að búizt væri við að séruppdrættir og útboðs- lýsing verði fullbúin eftir 4-5 mánuði, en undirbúningsverk þetta hefði dregizt vegna skorts á starfskröftum á teiknistofu ráðhúsnefndar. Sem svar við síðari fyrir- spurnarliðnum sagði borgarstjóri að hann byggist ekki við að framkvæmdir yrðu hafnar á þessu ári, en hinsvegar yrði málið lagt fyrir ráðhúsnefnd strax og séruppdrættirnir og út- boðslýsingin lægju fyrir og myndi nefndin þá taka sínar ákvarðanir. Fyrirspyrjandi, Alfreð Gísla- son, þakkaði borgarstjóra svör- in, en kvaðst um leið vi'lja taka það fram að fyrirspumin hefði ekki verið lögð fram til að reka á eftir málinu. Kyrrt hefði ver- ið um málið að undanförnu og hann fagnaði þeirri lægð af sinni hálfu og kvaðst vilja að hún stæði sem lengst. Síðan lýsti hann enn þeirri skoðun sinni að ekki ætti að reisa ráð- húsið í norðurenda Tjamarinn- ar. Sagði hann að fjöldi borg- arbúa, í öllum stjómmálaflokk- um, væri mjög andvígur áform- unum um smíði ráðhússins á þessum stað og því teldi hann eðlilegt að staðarvat væntanlegs ráðhúss yrði erm tekið til um- ræðu í borgarstjórninni á þessu ári. yfir miðhálen,dinu í gærdag og einnig var flogið meðfram ströndum allt frá Rangárvalla- sýslu austur um til Seyðisfjarð- ar. □ Fimmj.án bátar og skip leituðu á hafinu fyrir Austfjörð- um undir stjórn skipherrans á varðskipinu Óðni og margir leit- arflokkar þræddu ströndina á landi aðallega frá Fáskniðsfirði til Hornafjarðar og einnig upp af hverjum firði. Meginþungi leitarinnar beind- ist að suöaustur hluta Islands og var hver fjörður þræddur frá Fáskrúðsfirði til Hornafjarð- ar og úr lofti var leitað yfir Vatnajökli og norðan megin við jökulinn í miðhálendinu. Þá fór einnig fram leit á Fljótsdalshéraði og í Borgarfirði eystra og var leitinni stjómað á landi af Sigurði Þorsteinssyrf, varðstjóra, sem h'áfði aðalbæki- stöð á Egilsstöðum í gærdag og 'hafði hann farið með flokk sinn frá Neskaupstað í fyrrak'völd á bílum til Egilsstaða. Þá fóru, reykvískir byörgunar- menn úr Ingólfi til Hornafjarð- ar í gærdag og björgunarsveit frá Akureyri var á leiðinni í gærdag í Heröubreiðarskála og ætlar að leita ásamt bændum á Jökuldal í óbyggðunum þar i kring. En megnið af leitarmönnum í gærdag er frá suðurfjörðum Austfjarða al'lt til Hornafjarðar og munu allt að fimm hundmð manns hafa tekið þátt í leitinni í gær án árangurs. Þá fór einnig fram leit i Borg- arfirði eystra í gærdag og leit- arflokkar frá Neskaupstað leit- uðu aðallega í Mjóafirði í gær- dag. Aðalleitin í fyrradag fór hinsvegar fram á svæðinu frá Seyðisfirði til Fáskrúðsfjarðar og ætla menn, að þeir séu búnir að leita af sér allan grun á því svæði. Friðrik og Vasgúkof eru efstir Þrem mikilvægum skákum var lokið á alþjóðlega skákmót- inu sem háð er í Lídó þessa dagana, er blaðið leitaði frétta þaðan á tólfta tímanum í gær. Wade hafði unnið Jón Hálfdán- arson, Vasjúkof vann Böök og Friðrik Ólafsson og O’Kelly gerðu jafntefli. Þessi úrslit breyta þannig röð keppenda, að nú eru þeir jafnir og efstir Vasjúkof og Friðrik, eru með fimm vinninga hvor og eina biðskák og hafa báðir betri stöðu en andstæðingurinn. I dag eiga keppendur frí, en á morgun ljúka þeir þeim bið- skákum sem fyrir eru. Hávaði og læti á fundi borgár- stjórnar Fundur borgarstjóxnar Reykjavíkur í gær gekk ó- venju rólega fyrir sig allt þar til upp hófst mikill djöfulgangur í þann mund sem forseti, Auður Auðuns, tók að Iýsa tillögu í Iok fundarins. Þa5 scm hávað- anum olli var loftbor sem byrjað var að vinna með við veggjaniðurrif í næsta húsi við Skúlatún 2, þar sem borgarstjórnin heldur fundi sína. Svo mikill var skarkalinn að ckki heyrð- ist mannsins mál x fundar- salnum og varð að gera hlé á fundinum um stund og borgarstjóri að senda skutilsvein sinn út í ná- grannahúsið til að skakka leikinn svo unnt yrði að Ijúka fundi. — Þess má geta að borgarsjóður het- ur keypt umrætt nábýlis- hús og er unnið að breyt- ingum þess svo að betur nýtist borgarskrifstofum sem þangað munu flytjast. Á því sviði eykst liörfin jafnt og þétt, því að alltaf er skrifstofubákn borgar- inrtar að þenjast út. Skipbrotsmenn í hófí hjá Slysavarnafélaginu L*J Þjóðviljinn haföi í dag samband við Gunnar Berg- stcinsson, fulltrúa hjá Land- helgisgæzlunni og spurði hann, hvort líkur væru á, að unnt yrði að bjarga brezka togaranum Wyre Conqueror. 3rl Sagði Gunnar að menn frá Landhelgisgæzlunni væru á strandstað ásamt Mecklen- burgh skipstjóra, stýrimanni og fyrsta vélstjóra. Það væri þó allsendis óvíst, hvort björgun tækist. Landhelgis- gæzlan hefði ekkert skip til þess að reyna að draga tog- arann út, nú sem stendur. Forstöðumenn Slysavama- félagsins héldu í dag kaffi- samsæti með skipbrotsmönn- um og fréttamönnum. Með- fylgjandi mynd tók ljósm. Þjóðviljans, AK við það tæki- færi. Sýnir hún 15 skipverja af Wyre Conqueror, þar af 7, sem voru á Imperialist, þegar áhöfninni af Strák var bjarg- að fyrir þremur mánuðum. 3 skipverja vantar á myndina, en þeir eru á strandstað eins og fyrr segir. ★J Skipbrotsmennimir halda flugleiðis heim á föstudag- inn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.