Þjóðviljinn - 21.01.1966, Side 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 21. janúar 1966.
Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar:. Ivax H. Jónsson (áb). Magnús Kjairtansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sirrii 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
AS lifa á alúmíni
því heíur verið vikið hversu almenn andstaðan
er gegn alúmínglæírum ríkisstjórnarinnar, enda
er fyrirætlun stjórnarflokkanna um alúmínmálið
gerð af algeru tillitsleysi til íslenzkra atvinnuvega
og eðlilegrar þróunar þeirra. Andstaðan gegn því að
hleypa erlendri fetóriðju inn í landið er ekki ein-
skorðuð við stjórnarandstöðuna, heldur nær hún
langt inn í raðir stjórnarflokkanna, og mun ekki
sízt áberandi meðal margra þeirra sem föstum fót-
um standa í íslenzkum atvinnvegum. Þar kemur
einnig til, auk hinnar gífurlegu hættu, sem fylgir
innrás erlendrar stóriðju í landið, það tímabundna
sjónarmið hversu örðugt muni reynast að hafa
verkafólk til þeirra- stórframkvæmda sem nú eru
fyrirhugaðar án þess að það sé beinlínis tekið til
stórskaða frá framleiðsluatvinnuvegum þjóðarinnar.
Sem svar við því eru forsvarsmenn afúmínmálsins
farnir að ympra á innflutningi erlends verkafólks.
J]innig við^ því úrræði er sterklega varað í grein
sem Jón Árnason fyrrverandi bankastjóri birtir
í Tímanum í gær og heitir „Vantar íslendinga at-
vinnu?" Hann segir þar m.a.: „Okkur vantar ekki
verkefni handa landsmönnum en okkur vantar
vinnuafl ef ráðast á í nýjar stórframkvæmdir. Þess
vegna verðum við að „flýta okkur hægt" þegar um
nýjar stórframkvæmdir er að ræða, og þess eigum
við jafnan að gæta að stilla svo í hóf um nýjar
frafnkvæmdir; að landbúnaði og sjávarútvegi sé
ekki stefnt í voða með því að svipta þessa undir-
stöðuatvinnuvegi nauðsynlegu vinnuafli. Því enn
um skeið verðum við áð lifa á fiski, mjólk og kjöti,
að mestu leyti. Alúmín fer sjálfsagt ver í maga.
ý^uðfundið er á skrifum stjórnarblaðanna að þau
finna til þess og óttast það að andstaðan gegn
alúmínglæfrum ríkisstjónarinnar geti gert stjórn-
arflokkunum örðugt fyrir að keyra þetta óþurftar-
mál gegnum Alþingi. Það mun þó ætlun ríkisstjórn-
arinnar, og því eru nú síðustu forvöð ef takast
mætti að afstýra óhappaverkum.
Ný samstaða
þegar Alþýðublaðið tekur sig til og fer að lýsa
Alþýðuflokknum sem einu stjórnmálasamtökum
sósíalista og alþýðufólks á íslandi sem líkleg séu
til lífs og þroska, virðist blaðið með öllu ganga
fram hjá því hvert álit menn hafa á Alþýðuflokkn-
um eftir langvarandi náið samstarf hans við aftur-
haldsöfl þjóðarinnar og ábyrgð a íhaldsstjorn 1
landinu um sjö ára skeið. Blaðið virðist gleyma því,
að Alþýðuflokksmenn hafa í þessu samstarfi við í-
haldið m.a. leitt það og stutt til áhrifa í verkalyðs-
félögum, sem það hefði aldrei náð nema vegna sam-
starfs við’flokk sem fólk taldi alþýðuflokk. Á kafi
í íhaldssamvinnu er Alþýðuflokkurinn ekki aðlað-
andi fyrir sósíalista og alþýðumenn, sem einhvern
skilning hafa á þjóðféíagsmálum..En einmitt vegna
þessa ástands er nú meiri þörf en nokkru sinni fyrr
að allt það alþýðufólk sem skapað hefur verkalýðs-
hreyfinguna og alþýðuflokkana finni leiðir til
samstarfs, einnig á stjórnmálasviðinu; eyði tor-
tryggni og standi saman. — s.
HM I handknattleik:
Q Sextán þjóðir keppa nú sín á milli um rétt til
þátttöku í aðalhluta heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik karla, sem háð verður í Svíþjóð að
ári liðnu.
Línurnar skýrast í forkeppni
landsliða frá sextán löndum
Tíu þessara þjóöa tryggja
sér réttinn, en auk þeirraverða
með í aðalkeppninni núverandi
heimsmeistarar, Rúmenar, og
gestgjafamir, Svíar, sem urðu
í öðru sæti á síðasta heims-
meistaramóti.
Keppa þeir í Svíþjóð?
Eftir tap Islendinga fyrir
Pólverjum í Gdansk og Dön-
um í Nyborg eru mjög litlar
líkur til að þeir keppi í Svíþjóð
í byrjun næsta árs.
Auk Rúmena og Svía eru nú
horfur á ad þessar þjóðir kom-
ist 1 aðalkeppni HM: Tékkar,
Austurríkismenn, Ve&tur-Þjóð-
verjar, Svissiendingar, Austur-
Þjóðverjar, Sovétmenn, Danir,
Pólverjar, Ungverjar og Frakk-
ar.
Úr keppninni falla þá: Norð-
menn, Hollendingar, Belgir,
Finnar, íslendingar og Spán-
verjar.
Annars lítur staðan þannig
út í hinum einstöku riðlum:
A-riðill:
Tékkar 2 2 0 0 50:23 4
Austurríki 2 1 0 1 32:47 2
Noregur 2 0 0 2 20:32 0
B-riðfll:
V-Þýzkaland
Sviss
Holland
Belgía
2 2 0 0 40:19 4
3 2 0 1 62:41 4
2101 27:27 2
3 0 0 3 39:81 0
Jörgen Petersen, snjallasti handknattleiksmaðu r Dana í dag (hann er af ýmsum talinn bezti leik-
maður heims í þessari íþróttagrein) átti ekki hv að siztan þátt í sigri danska liðsins í Nyborg á
miðvikudagskvöldið — skoraði þá 6 mörk. Hér s ést hann kominn í dauðafæri — og þá er ekki að
sökum að spyrja.
C-riðiII:
A-Þýzkaland
Sovétrikjn
Finnland
2 2 0 0 50:32 4
2101 42:53 2
2002 27:52 0
D-riðiII:
Danmörk
Pólland
Island
2200 39:28 4
2 10 1 43:41 2
2 0 0 2 31:44 0
E-riðill:
Ungverjaland
Frakkland
Spánn
1 1 0 0 24:15 2
10 10 14:14 1
2011 29:38 1
/^/'MM/'/W\/\'VW\W\/W/W\\/W\\A/W/WW\/WWW\A\/W\\A/WA/WWW\AA/WAAA/WA/W\A\A/W\W/W\/W\WW\/WW\A/W\AAA/W\/\W\A/W/W\AA/W\\A\\\\/WA/W\A/W\A/W\/WW\^^
Útför Jéns Asbjörns-
sonar gerð í dag
i...í
Hér á myndinni heldur Andcrs Nyboi^g á bæklingnum „Welcome
to Finland“, en hann er einnig gefinn út hjá Andcrs Nyborg
Nýr bæklingur f rá
Flugfélagi Islands
títför Jóns Asbjömssonar,
fyrrverandi hæstaréttardómara,
sem lézt í sjúkrahúsi í Reykja-
vík sl. föstudag, 14. janúar, á
76. aldursári, verður gerð síð-
degis í dag frá Dómkirkjunni.
Jón Ásbjörnsson
Jón Ásbjörnsson var fæddur
18. marz 1890 í Nýlendu á Sel-
tjamamesi. Foreldrar hans
vom Ásbjöm tómthúsmaður
Jónsson í Nýjabæ í Flóa Ás-
björnssonar og kona hans Guð-
björg Guðmundsdóttir í Gest-
húsum á Seltjamarnesi Þor-
steinssonar. Jón gekk mennta-
veginn og lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík vorið 1910; hóf um haustið
nám í lögfræði og lauk kandí-
datsprófi frá Háskóla íslands í
juní 1914.
Að laganámi loknu lagði Jón
Ásbjömsson stund á málflutn-
ingsstörf í Reykjavík cg varð
yfirréttarlögmaður 3. september
1914. Fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík var Jón frá 1. apríl
1918 til 1. okt. 1919, settur mál-
flutningsmaður við landsyfir-
réttinn frá 14. desember 1918
til 29. september 1919. Hann
varð hæstaréttarlögmaður 22.
nóvember 1922 og rak mál-
flutningsskrifstofu ásamt Svein-
birni Jónssyni hrl.
Hinn 23. apríl '"1945 var Jón
Asbjörnsson slypaður hæsta-
réttardómari frá 1. maí sama
ár að telja og því starfi gegndi |
hann þar til hann náði aldurs-
hámarki embættismanna fyrir i
5 árum. Á þessum tíma gegndi |
Jón um skeið störfum forseta I
Hæstaréttar og var þá jafn-
framt einn af handhöfum valds
forseta íslands í fjarveru for-
setans. Dómari var hann um
árabil í Félagsdómi.
Félagsmál lét Jón Ásbjörns-
son talsvert til sín taka og í
því sambandi verða lengst
munuð margvísleg störf hans |
fyrir Hið íslenzka-fornritafélag, j
en Jón var frumkvöðull að i
stofnun þess á árinu 1928 og j
forseti þess frá upphafi. Hann
átti og sæti ií stjórn Eimskipa-
félags íslands um langt árab:l
(1929—1945), og var um skeið
f stjóm Fomleiíafélagsins og í
stjórn Sparisjóðs Reykjavíkúr
og nágrennis um alllangt skeið.
I landskjörstjórn átti hann '
löngum sæti og bæjarfulltrúi í
Reykjavík var hann eitt kjör-:
tímabil, 1926—1930.
Nýlega var gefin út bækl-
ingurinn „Welcome to Iceland
by Icelandair“ hjá Anders Ny-
borg forlaginu í Danmöxku.
Bæklingur þessi kemur út einu
sinni á ári og er þctta 5. ár-
gangur.
Auk þess að vera bæði mjög
smekklegur og vel úr garði
gerður, er í bæklingnum að
finna ýmsar nytsamar upplýs-
ingar fyrir ferðamenn, sem
koma til Islands.
Aðalgreinarnar, sem eru 2,
skrifar Norðmaðurinn Mats
Wibe Lund jr. önnur þeirra
fjallar um „Eyjuna sem kemui
á óvart“ og hin um Mývatn.
I þessu hefti eru fáar svart-
hvítar myndir, mun fleiri stór-
ar litmyndir, en áður hefur
verið. Útlit blaðsins annast
danski teiknarinn Poul Eikers.
í fyrsta skipti er nú minnzt
á Færeyjar í bæklingnum.
Margar myr.dir eru birtar það-
an og Willy Breimholst skrifar
skemmtilegan texta. Einnig
skrifar Davíð Ölafsson fiski-
málastjóri gre n um fiskveiðar
við Island. Af öðru efni má
nefna skrá yfir Rotary- og Li-
"nsklúbba, litmyndir af nýút-
Framhald á 6. síðu.
i