Þjóðviljinn - 29.01.1966, Page 6

Þjóðviljinn - 29.01.1966, Page 6
0 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 28. janúar 1966, • Tekk, tekk og aftur tekk • Einn af blaðamönnum þessa blaðs ætlaði nýlega að kaupa sér húsgögn í stofu, sem ekki er í sjáálfu sér frásagnarvert. Sem kunnugt er. er hér í borg eigi álllítið af húsgagnaverzl- unum, allar sneisafullar af vamingi, og hefði kannski mátt ætla, að þar fengist eitthvað fyrir allra smekk. Og leggja þau hjón af stað í könnunar- leiðangur. En viti menn. Þegar til kom, tókst þeim ekki að finna eitt einasta sófaborð í einum fimm- tán verzlunum, sem ekki var úr tekki. Þau voru reyndar orðin leið á þessu eilífa tekki í stofum borgarbúa hvar sem komið er og höfðu ætlað sér þá dul, að kaupa húsgögn úr eik. Þrátt fyrir allan þann fjölda húsgagnaverzlana. sem hér er. — og sumar gríðarstórar á fleiri hæðum, reyndist úrvalið sáralítið, þetta voru sömu borðin og sófasettin eða keim- lík og allt úr sama viði — tekki. Búðarfólkið yppti öxlum þegar spurt var um eitthvað annað og sagði. að það borg- aði sig ekki að smíða úr öðr- um viðartegundum, því þetta væri það sem íólk vildi. Ekki nema von, að maður sjái ekki annað en tekk á ís- lenzkum heimilum! 9 Góð ráð dýr • Éiginmaðurinn kom heim til sín seint um nótt, með kven- mann í eftirdragi. Þegar hann mætti konu sinni, sagði hann við hana: Uss, þú ert systir min. úlvarpið • Hallir og riddaraborgir í Þýzkalandi • Félagið Germanía heldur kvikmyndasýningu í dag, þar sem sýndar verða þýzkar frétta- og fræðslumyndir. Fréttamyndimar em frá helztu viðburðum í Þýzkalandi undanfamar vikur, m.a. frá heimsókn konungsins í Mar- okkó og viðræður hans við dr. Erhard, kanzlara. Þar er einn- ig sagt frá aðstoð Vestur-Þýzka- lands við vanþróuð lönd í Afr- íku, Asíu og S-Ameríku. Fræðslumyndimar era tvær. Er önnur um Kielar-skurðinn svonefnda, sem tengir Norðui- sjóinn við Eystrasalt og mikið er notaður einnig af íslenzkum skipum. Hin fræðslumyndin er um hallir og riddaraborgir í Þýzkalandi. Hefur Þýzkaland löngum verið víðfrægt fyrir hallir, sem þar eru frá ýmsum tímum og á ýmsum stöðum, margar hverjar ótrúlega skraut- legar. Frá miðöldum era þar einnig margar riddaraborgir, sem haldið hefur verið við fram á þennan dag, þótt aðrar séu reistar. Sögusvið sumra af okk- ar skemmtilegu riddarasögum var einmitt á þessum slóðum. Sýningin er í Nýja Bíói og hefst kl. 2 e.h. öllum er heim- ill aðgangur, bömum þó ein- ungis í fylgd mel fullorðnum. Meðfylgjandi mynd er af Hallarkirkjunni í Dresden. • Monsieur Maigret • Það er í kvöld að pólski söngvarinn Paprocki, sem var víst einhverju sinni næstum því kominn til Islands, kynnir Okkur óperalög úr slavneskum heimi og munu sum næsta sjaldgæf. Svo kemur Riohard Strauss á eftir. Frakkar eiga glæpamálagátta- þef, sem víðfrægur er orðinn um öll lönd, Maigret, og er hann hugarfóstur Georges Sim- enon. Sérkennilegur maður meðal sinna starfsbræðra og jafnólíkur Sherlock Holmes og Hercule Poirot. Leikritið í kvöld segir einmitt af þessum manni og er Baldvin Halldórs- son leikstjóri en ekki vitum við hver leikur þennan skelfi glæpamanna. 1 Frakklandi sjálfu finnst mönnum að Maig- ret og leikarinn Jean Gabin hljóti að vera tvíburabræður. 13.00 Óskalög sjúklinga. Krist- ín Anna Þórarinsdóttir kynn- ir lögin. 14.30 I vikulokin, þáttur und- ir stjóm Jónasar Jónassonar. 16.05 Anna Sæbjömsdóttir velur sér hljómpiötur. 17.00 Ragnheiður Heiðreksdótt- ir kynnir nýjustu dægurlög- in. 17.35 Tómstundaþáttur bama og unglinga. Jón Pálsson fl. 18.00 Útvarpssaga bamanna: Á krossgötum. 18.30 Söngvar í léttum tón. 20.00 Laugardagslögin: a) Pólski söngvarinn Bohdan Paprocki syngur aríur úr ó- perum eftir Nowowiejski, Dvorák, Moniuzsko og Tjai- kovský. Wodiczko stjómar hljómsveit Ríkisleikhússins í Prag sem leiteur með b) Ffl- harmoníusveit Berlínar leik- ur Don Juan, hljómsveitar- verk op. 20 eftir Richard Strauss; Karl Böhm stjómar. 20.45 Leikrit: Gleðileg jól, Monsieur Maigret, sakamála- leikrit eftir Georges Simenon og Serge Douay. Þýðandi Óskar Ingimarsson. Leikstj.: Baldvin Halldórsson. 22.15 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. • Glettan ,,Halló er þetta hundauppeldis- skólinn? Ég hefði áhuga á að heyra meira um námskeiðið sem þið voruð að auglýsa'*. • Systrabrúðkaup Systrabrúðkaup var 29. desember s.I. í Nesldrkju, er þar vorn gefin saman af séra Jóni Thorarensen, ungfrú Freyja Haralds- dóttir og Ámi Gísiason og ungfrú Iðunn Haraldsdóttir og Jón Pálsson. — (Ljósmyndastofa Þóris, Laugavegí 20 b). Eftir STUART og ROMA GELDER 6 Það getur verið að efklaustr- ið í Kumfoum hefði verið að hröma og falla, að þá hefði okkur sýnzt ekki eins ömur- legt um að litast og okkur þótti nú. Stærsta trúarbragðastofnun í Kína er núna ljómandi leik- svið fyrir stórkostlegt sjónar- spil, en leikendumir, sem áð- ur vora 3 000 talsins, eru nú ekki nema 400 eftir, og má kalla að sviðið standi autt og flest fer í handaskolum Komi þeir fram, þessir 400, sýnast þeir eins og krækiber í ámu, og nægja hvergi nærri í hlutverk- in. Samt mátti með eftir- grennslan finna f hliðarálm- unum munka við messugerðir sem fram fóra eins og til var ætlazt. En á þetta horfði eng- inn. Fyrir framan undurfagurt altari, skreytt undir þaki úr gulli, og jaði, og rauðum lit- um, var stórvaxinn, skeggjað- ur maður að flatmaga sér til yfirbótar, en guðirnir sátu í röðum og litu niður til hans með góðlátlegu spéi í augun- um. Hann hafði handbjargir úr tré á báðum höndum, til að hlífa þeim við núningi við heita og harða mölina, og vora báðar gljáfægðar af núningn- um. Hann fleygði sér flötum á grúfu. og skreið svo áfram marflatur. Svo reis hann upp án þess að beygja kné og stóð á höndunum og gerði ýmist að hækka sig eða lækka tólf sinn- um, og fór svo 4 fæturna aft- ur. Við þetta blés hann eins og smiðjubelgur, og hálftíma síðar, foegar við fóram, var hann ekki hætbur, tveimur tímum síðar voram við á gangi ekki langt frá, og enn var hann að. Chu Cheng-chuo sagði okkur að með þessu erf- Iði væri hann að afplána mis- gerðir og vinna sér verðleika, og mundi hann víst ekki fást til að hætta fyrr en hann gæf- Ist upp eða dytti í dá. Og fyrst þúsund rennur af þessu tagi era í augum guðanna sama sem ekki neitt, samkvæmt vönduðum útreikningum búdda- trúarmanna, mundi víst þurfa ofurmannlegt erfiði til að gera svo guðunum líkaði, og þeir yrðu ánægðir. Okkur kom nú í hug það sem síðasti ábóti, Thubten Norbu, hafði sagt okkur, að sjálfur hefði hann orðið upp- gefinn éftir fáeinar rennur, og hætt alveg. og það gerði víst ekkert til. Hann átti svo mikið inni frá fyrri jarðvistem, að hann gat leyft sér að slaka á, eins og auðkýfingur. sem á hægt með að lifa á rentunum af höfuðstól sínum. En hvað skeggjaða munkinn snerti, þá hlaut hann að hafa gert meira en lítið af sér, og eytt inn- stæðu sinni fullkomlega, fyrst hann þurfti að hafa svona ógnarlega mikið fyrir. Og lang- líklegast þótti okkur, að honum entist ekki ævin til nógu margra framfalla og flatmag- ana til að afplána það sem eft- ir stæði. Og mætti svo fara ef við kæmum aftur til Kumfo- um eftir svo sem tuttugu ár, að við mættum honum þar sem hann væri bullsveittur móður og másandi að afplána syndir. Ekki hefði farið mikið fyrir ímyndunarafli okkar né hugar- flugi, ef við hefðum ekki, þó ekki væri nema rétt í svip, fundið til saknaðar vegna þess sem horfið var, og hinn af- dankaði ábóti lýsti fyrir okkur af svo næmum og samúðarfull- um skilningi, þessum heimi þar sem hver hafði þá stöðu sem honum hæfði, og enginn öfundaði annan. Auk þess vissu þeir allir hvemig á því stóð ef þeim gekk ekki að ósk- um, ef þeir vora fátækir, sjúk- ir eða hundeltir, að það var sjálfskaparvíti, og eins vissu þeir að núverandi ástand mundi afla þeim tekna ólít- illa, og því meiri sem verr gekk. Af þessu hlauzt það að allir tóku þrengingum með langlundargerði, í von um að næsta holdtekja yrði væg. Eins gátu hinir ríku og voldugu lit- ið svo á, að auðlegð sín og veraldargengi væra laun fyr- ir rétta breytni og persónu- legt ágæti. Og kæmi það að þeim í svip að harma hlut- skipti með því að álykta sem svo, að engu væri fyrir að þakka nema ágæti sjálfra þeirra, að þeir hefðu ekki lent í því sama. Hér var það öryggi að finna, sem standast mundi allar um- breytingar þjóðfélagsins og framfarir þess. En það haggað- ist fyrir því að farið var að taka ákvarðanir upp á sitt ein- dæmi, í stað þess að fela slík- ar ráðstafanir æðri máttar- völdum. Hættuleg flugfcrð. Þegar við spurðum hvort bannað væri að taka ljósmynd- ir meðan við værum á ferða- laginu, svöraðu hin kínversku stjómarvöld því svo: ,,Ekki nema úr flugvélinni þegar Tí- bet fer að nálgast". Varla hafa þessi menn ímyndað sér að við hefðum þær röntgenfilmur í myndavélum okkar, sem ,,séð“ gætu gegn utn holt og hæðir 6600 m hæð ofar sjávarmáli, og gegnum hélaðar rúður. Annars hafa þeir verið að spotta okk- ur. Enginn maður mundi fást til að taka að sér njósnir, þetta ömurlega og illa launaða starf. ef hann ætti kost á öðra skárra. Líklega er þetta ástæð- an til þess- að þessi stétt er jafnvel enn kjánalegri í reynd- inni en 1 skáldsögum, og enn- fremur fyrir því, að stjómar- völd þau, sem hafa þá í þjón- ustu sinni, og væntanlega þurfa að gera grein fyrir því fé sem varið er til leyniþjón- ustu, vilja ekkert við þá kann- ast, þegar þeir hafa verið gripnir. Þau skammast sín fyr- ir að láta það komast upp, að þeir hafi sóað fé í slik vesal- menni, einkum þegar þeiss er gætt, að þær upplýsingar, sem máli skipta, fást oftast fyrir ekkert. ' Það er enginn hörgull á vís- indamönnum sem geta sagt til um það með mestu nákvæmni, hvemig farið skuli að þvi að sprengja jörðina í ótal parta, og láte sér svo ekki fyrir unum'1 í té þessa vitneskju, svo nú má bráðum vænta þess, að allar þjóðir eigi þess kost brjósti brenna að láta „óvin- að styðja á þann hnapp, sem enginn þorir að styðja á, og því síður sem fleiri eiga hann, og fara þannig vaxandi líkum- ar fyrir því að veröldin sleppi við það að farast. En valdhaf- ar, hverjir sem era, fá aldrei talið mann, sem gert hefur slíkt starf að atvinnuvegi sín- um, á það að gera það fyrir ekki neitt. Þetta mundi spilla fyrir stéttinni. Þessvegna kemst nærri því alltaf upp um þá, en svo mundi varla vera, ef þeir væru ekki neydd- ir til að hegða sér eins og ætlazt er til að njósnarar geri. Vanalega fá þeir lítið í einu hjá húsbændum sínuln eða svo sem rétt mátulega til að hafa til vikunnar á hóteli eða baðstað. Ef Kínverjar væra jafn kæn- ir og þeir eru sagðir vera. mundu þeir vera afbragðs njósnarar. Þeir eru það ekki. Við öndum að okkur súrefni úr geymi, og störum á fsþok- una umhverfis hreyflana, sem þyrlast í þessu þunna lofti yf- ir fjöllunum, en um þau stóð það f skólabókunum, sem við lærðum fyrir 40 árum, af landabréfum að þama væra þau, og kom nú til okkar embættismaður að líta eftir. ,,Þeir“ mundu verða okkur skuldbundnir, segði hann, ef þið segðuð ekki til nafnsins á þessum stað þar sem við er- um nú í þann veginn að lenda. Og vegna þess, að enginn get- ur þagað yfir leyndarmáli, sem honum er ókunnugt um, spurð- um við hvað staðurinn héti. Hann sagði okkur það. En ekki getum við brugðið heitinu og gert uppskátt um nafn staðar- ins, því við höfum gleymt því. Við lentum á saltri eyðimörk sem var álíka gróðurlaus og tunglið, og umkringd egg- hvössum háfjöllum þöktum snævi. Þeir sem þama hafast við og verða að þola heljar- kulda á vetrum, steikjandi hita á sumrin, búa í óhituðum timhurtiúsum við endimörk flugvallarins. Illvættir fjallanna höfðu gert hið versta gemingaveður á móti okkur yfir Teagla-fjall- garði, svo ekki var viðlit að fljúga til Lhasa, og Roma, sem skalf og nötraði í þessum pál- þykku stoppuðu ferðafötum, var skipað að hátta. Það gerði Iæknirinn. Flugstjórinn hélt að líklega yrði ekkl flogið fyrr en hermi vt'ri batnað, því standum k*-!mi það fyrir að fólk væri þ|r veðurteppt svo vikum cipti. Gat það verið að við haðum i— þrátt fyrir alla okk- ar aðgæzlu — snúið baki ótil- hlýðilega við einhverjum af guðunum í Kumbum, og að sá

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.