Þjóðviljinn - 29.01.1966, Page 10

Þjóðviljinn - 29.01.1966, Page 10
Meistarasamband byggingamanna óskar eftir: Rannsókn á byggingakostnaði hér samanborið við önnur lönd Björn Ólafsson. Stjóm Meistarasambands byggingamanna í Reykja- vík hefur sent iðnaðarmálarábherra, Jóhanni Hafstein, eftirfarandi ályktun: * „í tilefni af margendurteknum fullyrðingum á opin- berum vettvangi um að byggingakostnaður hér á landi sé óhóflegur, vill stjóm Meistarasambands manna beina þeim tilmælum til hæstvirts iðnaðarmála- ráðherra, að hann láti fara fram raunhæfa rannsókn á byggingakostnaði hér á landi og að gerður verði saman- burður á honum og byggingakostnaði í nágrannalönd- unum á sambærilegum byggingum. Samanburður þessi verði gerður með tilliti til tækni, undirbúnings, skipu- lags og fjárhagsgrundvallar við byggingaframkvæmdir. Niðurstöður rannsóknarinnar verði birtar opinberlega." Björn CfefssM j heldi^ *ón!eika i Fyrstu tónleikar Tónlístarfé- j lagsins á þessu nýbyrjaða ári ■ vertSa haldnir n.k. þriðjudags : og miðvikudagskvöld kl. 7.15 i : Austurbæjarbíóf. Verða betta fiðlutónleikar : er Björn Öiafsson heldur með : aðstoð Áma Kristjánssonar. ■ Á efnisskránni eru þessi ■ verk: Geminiani — Busch: : Siciliana, Nardini: Larghetto j Veracini: Largo, Vivaldi — ■ Busch: Svíta í A-dúr, J. S. ■ Bach: Partita í d-moll fyrir : einleiksfiðiu (með hinni frægu : Chaconne), tvær Kaprísur : eftir Paganinþ Konsertpol- ■ anaesa eftir Wieniawsky og : Kaprísa, gerð eftir valsaetýðu : eftir Saint-Saens — Ysaye. : Það er óþarfi að skrifa langt ■ mál til bess að kynna bá ■ Björn Ólafsson og Árna Krist- • jánsson Þetta eru eins og j allir vita tveir af kunnustu j tónlistarmönnum okkar, sem j hafa haldið fjölda tónleika ’ bæði fyrir Tónlistarfélag;ð oe aðra. enda þótt nú séu liðio allmörg ár síðan beir hafi komið fram á vegum Tónlist. arfélagsins. Athygli skal vakin á því að tónleikarnir byrja að þessu sinni kl. 7.15 og eru haldnir fyrir styrktarfélaga Tónlistar- félagsins. ........ SafnaB fé tíf sí/tfarbræðsh Dalvík 28/1 — Nýlega var haldinn hér almennur borgara: fundur til að ræða byggingu sfldarverksmiðju á staðnum og var boðað til fundarins af stjórn Síldarbræðslunnar h.f., sem 6tofnuð var fyrir fjórum árum, en síðan hefur ekkert verið gert í þeim málum. Mikill áhugi rík- ir á þessu meðal manna hér, voru um 100 manns á fundinum og samhljóða samþykkt að vinna að framgangi þessa máls. Á- kveðið var að rannsaka mögu- leikana á söfnun meira hluta- fjár til síldarbræðslunnar og verða síðan frekari ákvarðanir teknar í næsta mánuði. Aðeins lftil beinaverksmiðja er á staðnum og er að verða ónot- hæf. Þvl þarf ný verksmiðja að komast á laggimar sem fyrst, þar sem hægt yrði að vinna bæði bein og síld. K.J. Þjóðviljanum barst í gær framangreind ályktun ásamt rækilegri greinargerð frá Meist- arasambandinu. Segir þar m.a. svo: Því er iðulega haldið fram í blöðum og útvarpi og víðar, að byggingakostnaður hér á landi sé óhóflega hár og miklu hærri en í nálægum löndum. Enda þótt þessar raddir hafi hlotið góðan hljómgrunn hefur aldrei verið talin ástæða til að gera tilraun til að kanna að hve miklu leyti hærri bygginga- kostnaður hér á landi á rætur sínar að rekja til t.d. eftirtal- inna atriða. Meiri gæða íslenzkra húsa, bæði hússkrokka og inpréttinga. Hærri innflutningstolla af inn- fluttu byggingarefni en eru í nálægum löndum. Hærri aðflutningskostnaðar á sömu vörum. í þessu tilefni má benda á, að tollur af langflestum innflutt- um byggingavörum er 35% og fér upp í 90% á einstökum hlut- um. Ólíklegt er að tollar af sömu vörum séu jafnháir í ná- lægum löndum, og um leið rriá benda á, að þar eru víða fram- leiddar innanlands ýmsar bygg- ingavörur, sem íslendingar verða að flytja inn, og verður því byggingakostnaður þar því lægri þar sem hvorki þarf að greiða háa tolla né flutningsgjöld af þessum vörum. Þá er í greinargerðinni bent bygginga- 5 að skortur tækniframfara í byggingariðnaðinum eigi m.a. rætur að rekja til þess að fyr- irtækjum í þessari iðngrein hafi ekki verið sköpuð aðstaða til að hagnýta sér þær og er þar fyrst og fremst kennt um fyrirkomu- lagi á lóðaúthlutun héríReykja- vík og víðar svo og ströngum verðlagsákvæðum að því er varð- ar álagningu á útselda vinnu hjá meisturum. faugardag 29. janúar 1966 — 31. árgangur 23. töluiblað. Freystelnn hlaut 6V2 vinnlsiQ oq náði markinu í lok greinarinnar segir svo: Loks má benda á, að hátt verðlag á húsnæði þarf ekki að standa í beinu sambandi við há- an byggingarkostnað. Ástæðan fyrir því’, að verðlag á húsnæði hér á landi er oft hærra en sjálfur byggingarkostnaðurinn gefur tilefni til, er hin mikla umframeftirspurn eftir húsnæði, sem hér er ríkjandi og verður varla skrifuð á reikning bygg- ingariðnaðarmanna. Um leið er rétt að taka fram, að miklu fleiri aðilar en byggingameist- arar eiga hér hlut að máli, þar sem fjölmargir aðilar standa í byggingarframkvæmdum. Loftleiðir fluttu yfir 140 þúsund farþeua á ári □ A liðnu ári íluttu ílugvélar Loftleiða fleiri farþega en nokkru sinni áður í sögu félagsins, eða alls 141.051. Vöruflutningar félagsins jukust einn- ig, en póstflutningar drógust nokkuð saman. Farþegafjöldinn jókst á árinu um 37,7% eða úr 102.444 í 141.051 sem fyrr var sagt. Er það hlútfallslega meiri aukning en varð á árinu 1964, því þá jókst farþegafjöldinn um 26,8 prósent. Sætanýting Loftleiða varff hinsvegar ekki jafngóð á sl. ári og árin þar á undan. Áriff 1963 var sætanýtingin 77,3%, áriff 1964 77,9% og á síffasta ári 75,7%. Vöruflutningar með flugvélum Loftleiða jukust á síðasta árium 43,2% en póstflutningar minnk- uðu hinsvegar um 10,1%. I gærmorgun tefldu þeir Frey- steinn Þorbergsson og Björn Þorstcfnsson biðkák sína út síff- ustu umferð Reykjavíkurmóts- ins og lyktaði henni mcð jafn- tefli. Hlaut Freysteinn þar með 6Vi vinning, en það er sú vinn- ingatala sem á að nægja hon- um í fyrri áfanga að bví marki að hljóta titilfnn alþjóðlcgur skákmefstari, ef mótið, verður metið nægilega sterkt sem rétt- indamót að dómi Alþjóðaskák- sambandsins sem líklegt má telja. Guðmundur Pálmason hlaut 7 vinninga í mótinu eins og frá var skýrt hér í blaðinu í gær og gildir því sama um hann og Freystein að því er Læknaverkfall í Belgíu í uótt BRUSSEL 28/1 — Belgískir læknar eru óánægðir með kjör sín og hafa þeir ekki sætt sig við málamiðlunartillögur ríkis- stjómarinnar. Boða þeir til verk- falls frá og með aðfaranótt laug- ardags. í Belgíu eru nú 9000 læknar og 2500 tannlæknar. þetta varðar. Myndin er tekin er Freysteinn tefldi við O’KelIy í næst síðustu umferð mótsins en sú skák varð jafntefli. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). <S>- Tveir piltar slös- uðust alvarlega Tvö alvarleg umferðarslys urðu rétt eftir hádegið í gær hér í borg. Annað slysið varð á Ægissíðunni og várð þar 15 ára piltur fyrir bíl og meiddist mikið. Hann heitir • Gunnar Bjarnason til heimilis að Ægis- síðu 64. Hitt slysið varð á Suðurgöt- unni og ók þar piltur á skelli- nöðru aftan á bíl í hálkunni og meiddist einnig mikið. Hann heitir Sigurbjörn Theodórsson til heimilis að Kaplaskjólsvegi 56. Sigurbjörn átti seýtján ár,a afmælisdag í gær. Báðir piltamir voru fluttir á Slysavarðstofuna og þaðan beint. á Landakot. Þeir eru taldir alvarlega slas- aðir. Slökkviliðsbíll með blóð til Hér eru félagarnir í VJt., sem sæmdir voru gullmerki félagsius. 75 ára afmælishóf V.R. Þ ióðleikhúsk jailaranum I Sjötíu og fimm ára afmælis Verzlunarmannafélags Reykja- víkur var minnzt meff móttöku í Þjóðleikhúskjallaranum í fyrra- dag, voru þar ýmsir mætir fé- lagar heiffraffir á þessum tíma- mótum 'í sögu félagsins. Formaður félagsins, Guðmund- ur H. Garðarsson bauð gestivél- komna og drap á nokkra púnkta í sögu félagsins. Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur var áður sameiginlegt félag kaup- manna og verzlunarmanna og á fyrstu árum félagsins tíðkaðist púnsdrykkja og sverð höfð á lofti í samkvæmum. Nú eru komnir aðrir dagar og er félagið orðið að hreinu laun- þegafélagi verzlunarfólks og skrifstofufólks og hefur þegar fengið sína fyrstu eldskirn í verkfallsátökum með verkfalls- vöktum og viðureign við verk- fallsbrjóta. Þannig hefur þessi öldungur gengið í endurnýjun lífdaganna og fetar sig nú fyrstu sporin á braut stéttabaráttunnar. í þessu hófi voru mættir full- trúar bæði gamla tímans og nýja tímans og fluttu þarna ræður Magnús Brynjólfsson, förmaður Verzlunarráðs, Sverr- ir Hermannsson, forseti L.Í.V. og yfir þessu sveif andi Hanni- bals Valdimarssonar, forseta A.S.Í. og flutti hann þarna stutta og skemmtilega ræðu. Hannibal áréttaði þarna lög- mál stéttabaráttunnar og stund- um þyrfti að sýna kjark og þor í stéttaátökum og beindi meðal annars orðum sínum að kaup- mönnum og stórkaupmönnum i þessu hófi, — ef þeir tímdu ekki að borga starfsfólki sínu kaup Framhald á 3. síðu. í gærdag varð fimm ára drengur fyrir fólksbifreið á móts við hús nr. 64 á Hringbraut í Keflavík og slasaðist drengur- inn alvarlega. í gærkvöld varð slökkviliðsbíll frá Reykjavík að aka með eldingarhraða til Keflá- víkur með fjórar flöskur af blóði, — þar eð nýra drengsins hafði sprungið við höggið frá bílnum og blæddi drengnum mikíð innvortis. Mikil hálka er á götum Keflavíkur og hafði drengurinn staðið í snjónum ut- an við götuna og verið að horfa á snjómokstursvél vinna að mokstri, — hlaupið svo skyndi- lega yfir götuna án þess að gæta að umferðinni. Wromsleifcur á Lowaveqi Það óhapp varð við Lauga- veg i gær, að reykháfurinn á húsi nr. 45 fauk i rokinu ásamt tveimur sjónvarpsloftnetum, sem á hann voru fest og hrundi hetta hvortveggia niður af þak- I inu og lenti á Skodabíl sem stóð á götunni og skemmdist á honum þakið. Var strompur- inn úr hlöðnu grjóti, Lán í óláni var að þetta gerð- ist um kvöldmatarleytið og því fátt manna á ferli. annars hefði getað orðið þarna stqrslys.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.