Þjóðviljinn - 22.02.1966, Blaðsíða 3
Í*T- Í>riðju3agur 22. febrúar 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlöA 3
De Caulle
Elramíhald af 1. síðu.
verði fluttar frá París til Lond-
on.
De Gaulle lagði áherzlu á að
breytingamar á skipulagi banda-
lagsins yrðu að fara fram smám
saman, svo að ekki byrfti að
gera neina grundvallarbreytingu
á bandalagssáttmálanum þegar
gildistími hans rennur út í apr-
Í1 1969.
Kína og Vietnam
De Gaulle ræddi einnig all-
mikið Vietnam-málið og kvað
augljóst að þar fengjust engar
sættir nema að Kínverjar yrðu
hafðir með í ráðum. Reyndar
væri óhugsandi að leysa nokkurt
mál nema með sáttum og sam-
vinnu allra stórveldanna fimm.
eins og rág værj fyrir gert í
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ben Barka
De Gaulle kom einnig inn á
Ben Barka-málið og skellti ailri
skuldinni á Oufkir innanríkis-
ráðherra Marokkós.
Sovétstjórnin hefur svipt
Tarsis sovézkum þegnrétti
MOSKVU 21/2 — Sovétstjómin
svipti í dag rithöfundinn Valerí
Tarsis sovézkum þegnrétti.
Tarsis sem nú er staddur í Lond-
on sagði að þetta kæmi sér ekki
á óvart. \
Sótti um griðastað í
Bretlandj
Hann hefur dvalizt í Bretlandi
síðasta hálfa mánuðinn. en
þangað var honum boðið til að
halda fyrirlestra við háskólann
í Leicesfer. Það þóttj sæta tíð-
indum að honum skyldi vera
veitt fararleyfi úr landi, þar
sem hann hafði birt á vestur-
löndum bækur með óvæginni
gagnrýni á sovézkt þjóðfélag.
Fyrstu tvær bækurnar voru
birtar undir dulnefnj en síðan
voru þær gefnar út undir hans
eigin nafni Engu að síður öm-
uðust sovézkt stjómarvöld kki
við honum og virtust þvj feg-
■in að hann færi úr landi.
Eru þeir upprenn-
andi söngstiörnur?
Þegar Tarsis kom til London
sagði hann blaðamönnum að
han hefði í hyggju að snúa aft-
ur heim til Moskvu, en nú hef-
ur verið sagt frá þvj að hann
hafi fyrir milligöngu forleggjara
síns í London farið fram á
griðastað í Bretlandi sem póli-
tískur flóttamaður.
Kínverjar svara ásökunum
Castrós íþeirra garð
Samþykkt um
fréttamyndatöku
PEKING 21/2 — Kínverjar gerðum samnjngum um sölu á
svöruðu í dag heiftarlegri árás hrísgrjónum til Kúbu og fyrir
Fidels Castro, forsætisráðherra að hafa hlutazt til um innan-
Kúbu, á þá í blaðagrein fyrir landsmálefni Kúbumanna og
hálfum mánuði. í greininni sem reynt að tæla foringja i Kúbu-
birtist í málgagnj Kommúnista- her til fylgis við sig.
flokks _Kubu, Granma“ hafi Kínverska fréttastofan skýrði j stjórnarskrá landsins, og þar
Castro asakað Kmverja fyrir að frá þvj ; ^ag að á morgun með einn af hornsteinnm frjálsr-
hafa reynt að beita_ Kubumenn ; myndi ver5a birt srein ; >A1.
Blaðamannafélag fslands gerði
einróma eftirfarandi samþykkt
á fundi sínum 20. þ. m.:
„Að gefnu tilefni lýsir stjórn
Blaðamannafélags íslands yfir,
að hún telur frelsi til að taka
fréttamyndir (bæði ljósmyndir
og kvikmyndir) þátt í sjálfu
prentfrelsinu, sem verndað er í
fjárkúgun með því að rifta
Skæruliðar gerðu áhiaup á
sex stöðum i S- Vietnam
A næstunni verða haldnir
6. nemendatónleikar Söng- og
óperuskóla Sigurðar Franzsonar
Demetz í Reykjavík, Keflavík
og á Akranesi. Koma þar fram
einsöngvaramir Eiður Á. Gunn-
arsson, Haukur Þórðarson og
Jóhann Pálsson. Undirleik ann-
ast Guðrún Kristinsdóttir.
Sigurður Franzson boðaði
fréttamenn á sinn fund af þessu
tilefni og gaf þeim kost á að
vera viðstaddir æfingu fyrir ón-
lcikana.
Söngvararnir þrír eru þeir
Eiður Á. Gunnarsson, bassi, sem
sungið hefur í útvarpið, Haukur
Þórðarson, tenór, er syngur nú
opinberlega í fyrsta skipti, en
hann er formaður Karlakórs
Keflavíkur. og Jóhann Pálsson,
baryton, sem hefur einu sinni
komið fram áður sem söngvari.
Sagðj Sigurður Franzson, að Jó-
hann væri eini barytoninn, sem
lært hefði hjá sér síðastliðin tíu
ár. Söngvararnir þrír eru gletti-
lega ólíkir og má segja að tón-
leikarnir verði prófraun þeirra
allra. -
Þetta verða 6. nemendatón-
leikar skólans, en hann var
stofnaður 1957 og eru nemendur
■ nú 22 talsins, auk kóra. Alls
hafa komið fram 40 nemendur
og 106 kórsöngvarar. Þessir tón-
leikar verða með nokkuð öðru
móti en þeir fyrri, söngvararnir
^uni J verk-
Rétt fyrir kl. tvö í gærdag var
^lökkviliðið kvatt að skúr á
horni Bolholts og Skipholts. Var
skúrinn alelda er komið var á
staðinn en greiðlega gekk að
siökkva eldinn Þetta var verk-
færaskúr f eigu Véltækni h.f.
os var gevmt í honum mikið af
allskonar verkfærum. tiörunanpi
og fleiri einanarunarefni. Skúr-
inn er mikið skemmdur af eldi.
Þá kom unn eldur f timbúr-
stafla við Hringbraut 121. en
slökkviliðimu tókst fljótlega að
ráða niðurlögum hans.
Talsvert harður árekstur varð
kl. 7 í gærmorgun- á mótum
Möfðatúns og Laugavegs. Annar
ökumaðurinn. Sævar Magnússon.
Heiðmörk 24 Hveragerði. meidd-
ist eitthvað og þurfti að flytja
hann á Slvsavarðstofuna. önn-
ur bifreiðin er talin gjörsamleea
ómýt eftir áreksturinn og birti
Vaka hana af árekstursstað.
sem fram koma eru færri og
gefst þeim því kostur á að
syngja fleiri lög og þá væntan-
lega að syngja sig upp.
Á efnisskránni eru verk eftir
innlend og erlend tónskáld, m.a.
S. Kaldalóns, K. O. Runólfsson,
Schumann, Schubert, Grieg, Mo-
zart og fleiri.
Nemendatónleikarnir verða
haldnir í Keflavík laugardaginn
26. febrúar kl. 5, á Akranesi
mánudaginn 28. febrúar kl. 9 og
áð lokum í Reykjavík fimmtu-
daginn 3. marz kl. 7 í Gamla
bíói.
SAIGON 21/2 — Skæruliðar
Þjóðfrelsjsfylkingarinnar gerðu
i dag . árásir með sprengjuvörp-
um á stöðvar Randaríkjamanna
og Sajgonhers á sex stöðum í
Su ðu r-V i etn am.
Harðasta árásin var gerð á að-
alstöðvar bandarískrar hersveit-
ar í nágrenni Danangs þar sem
Bandaríkjamenn hafa mestu
herstöð sína í Suður-Vietnam.
Setuliðið sem þar var fyrir til
varnar varð þó fyrir litlu mann-
tjóni, að sögn bandarískra tals-
manna.
Aðrar fjórar árásirnar voru
þýðudagblaðinu“ í Peking þar
sem gagnrýni Castros á Kin-
verja yrði hrökt lið fyrir lið.
Myndi greinin sem birtist i
„Granrna" verða birt í heild og
ásökunum Castros svarað Saat
var að Kúbustjórn reyndi að
ar blaðamennsku. Lítur stjórn
Blaðamannafélagsins því mjög
alvarlegum augum á allar til-
raunir til að skerða slíkt frelsi
og brýnir fyrir félagsmönnum
sínum að vera á verði í því
efni.“
Tilefni þessarar samþykktar
kenna Kínverjum um efnahags- var þa5 ag forystumenn starfs-
vandræði sín. mannafélags Sinfóníusvqitarinn-
Þá er sagt að Kínverjar séu ar meinuðu sjónvarpsmönnum
einnig gerðar * í nágrennj Dan- ■; vanir því að sæta ádeilum af að kvikmynda uppfærslu á loka-
anigs og sú sjötta var gerð á í bálfu heimsvaldasinna og endur- þætti 9. sinfóníu Beethovens i
virki Saigonhersins um 70 km | skoðunarsinna. frá lénsherrum Háskólabíói á dögunum nema
fyrir suðvestan höfuðborgina. Iog ríkum stórbændum, sjálfskip- með skilyrðum, sem forsvars-
j>aj. er vjðurkennt að margjr i nðum byltingarsinnum i utlond- ménn sjonvarpsdeildar Rikisut—
hafi látið lífið. ! ™ og spilltum öflum heima varpsins töldu sig ekki geta
,,Saigonstjómin“ hefur verið ^yrir- gengið að.
endurskipulögg og ráðherrum
fjölgað Hefur verið bætt við
einum ráðherra og á sá sérstak-
lega að annast baráttu gegn
verðbólgu, en óskapleg dýrtíð
hefur verig á þeim landsvæð-
um sem Saigonstjórn ræður.
Nkrumah kominn tii Kaíró á
leið tii Peking og Hanoi
KAÍRÓ 21/2 — Nkrumah, for-
seti Ghana, kom í dag til Kaíró
á leið sinni til Hanoi, en þang-
að hefur honum verið boðið.
Hann mun koma við í Peking
og vafalaust ræða þar við kín-
verska ráðamenn. Nasser forseti
og aðrir ráðamenn tóku á móti
honum á flugvellinum við Kaíró
og ræddust þeir Nkrumah við i
kvöld. „Daily News“ í Accra
sagði í dag að Nkrumah ætlaði
að hafa frumkvæði um lausn á
Vietnam-málinu og myndi eftir
heimsókn sína til Hanoi ræða
við stjómarleiðtoga annarra
landa sem ættu hlut að því.
Wilson í Moskvu
MOSKVU 21/2 — Harold Wilsotl
forsætisráðherra Breta, kom í
dag til Moskvu i fjögurra daga
opinbera heimsókn.
Sími
32186
32186
Sími
Miðstöðvarofnar
Frá LINDVERK A/B í Svíþjóð bjóðum við stáloína
á mjög hagstæðu verði.
Sími
32186
PRÓFÞRÝSTINGUR 7 eða 9 kg. á FERCM.
Hitatæki hí.
SkiphDlti 70.
Sími
32186
íbáð óskast
Ung hjón með eitt bam óska eftir 2ja til 3ja
herb. íbúð sem fyrst. — Upplýsingar í síma 10461.
Skrifstofufóik
Raforkumálaskrifstofan óskar eftir' starfsfólki til
starfa í stöðum fulltrúa, bókara, ritara og að-
stoðarfólks. Stúdents-, verzlunarskóla- samvinnu-
skóla eða Kvennaskólapróf æskilegt. — Umsókn-
ir með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
sendist Starfsmannadeildinni.
RAFORKUMÁLASKRIFSTOFAN
Starfsmannadeild, Laugavegi 116
Sími 17400 — Reykjavík.
iÐNNÁM
Getum bætt við nokkrum nemum í renni-
smíði og vélvirkjun.
VÉLSMIÐJAN
HEÐINN
Sími 24260.
ÚTB0Ð
Tilboð óskast í sölu á 230 rúmdýnum úr lysta-
dún, gúmfrauði, eða hliðstæðum efnum, fyrir
Borgarsjúkrahúsið í Fossvogi.
Útboðsskilmálar eru afhentir í skrifstofu vorri
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Vonarstræti 8.
Bendix hraðhreinsun — Bendix hraðhreinsun
HÖFUM 0PNAÐ FATAHREINSUN AÐ STARMÝRI 2 MEÐ RENDIX H HRADHREINSUNARVELUM.
HREINSUM FJÖGUR KÍLÓ AF FATNAÐI FYRIR 120 KR.
í'vrir 1—4 ko. kr. 30.00 pr. kiló og 20 kr. fyrir hvert kíló þar vfir
ALGJÖLEGA LYKTARLAUST
BENDIX hro^reinsun
STSBMÝRI 2.