Þjóðviljinn - 07.04.1966, Page 12
12 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — FiWMHtudagur 4 Bpríí Í968.
in er farin í júni, gæti ferða-
langurinn verið svo heppinn að
sjá þúsundir selkroppa sóla sig
á eyrum Jökulsár, en ef myrk-
ur skyldi vera skollið á er vís-
ast að Eyjasels-Móri liggi í
leyni bak við einhvem klettinn
og geri mönnum skráveifur.
Milli bæjanna Stóra Bakka
og Litla Bakka í Hróarstungu
liggur ágætur vegur þvert
austur yfir Tunguna í hlaðið
á hinu fomfræga prestssetri
Kirkjubæ, sem nú er reyndar
í eyði, og að Lagarfossi. Hann
er mjög sérkennilegur foss, þó
ekki sé hann hár. og skyldi
enginn vegfarandi spara sér ó-
makið að sjá hann. Frá Lagar-
fossi er svo aftur ekið inn með
fljóti að Hlöðum.
Handan Lagarfljótsbrúar er
Egilsstaðaflugvöllur og síðan
Egilsstaðakauptún. Þar er
ferðamönnum veitt nauðsynleg
fyrirgreiðsla. Þar er pósthús,
símstöð, banki og tvö bílaverk-
stæði. Þá er hótel heima á
Egilsstöðum hjá Sveini bónda
Jónssyni.
í kauptúninu er veitingastof-
an Ásbíó og væntanlega tekur
til starfa veitingastofa í hinu
nýja félagsheimili Héraðsbúa,
sem taka á til starfa 17. júní
næstkomandi. Hinir dansþyrstu
munu geta fengið sér snúning
þar um helgar í sumar. Um
Egilsstaðakauptún gildir það
fornkveðna, sem notað var um
Kóm, að þangað liggja allar
leiðir, að vísu aðeins allar leið-
ir á Austurlandi.
Frá Egilsstöðum getur hinn
ókunni ferðalangur valið ma-rg-
víslegar og ýmsar býsna fróð-
legar leiðir. Við skulum taka
þær eftir röð:
Upp Hérað
Þessi leið liggur inn Velli yf-
■ ir Grímsá- og inn Skóga að
Hallormsstað. Þann stað er
■ sjálfsagt að gista, og ef tími
er, :góður og veður líka má
■ eyða mörgum dögum á Hall-
ormsstað, ■ því að undir krónum
. bjárkar og lerkis fá. spenntar
taugar nútíma Reykvíkings
nauðsynlega slökun til þess að
geta af nýjum krafti ráðizt í
næstu íbúðarkaup eða endur-
nýjun á bílnum eða sjónvarp-
inu.
Þeir sem ekki vilja leggja á
sig spartverskt lífemi ‘tjaldbú-
anna, en kjósa að sofa í mjúku
rúmi, sitja við arineld á kvöld-
in og láta ungár og fallegar
stúlkur þjóna sér til borðs,
neyta gistingar á hinu vistlega
gistihúsi Húsmæðraskólans á
Hallormsstað. Þar er hægt að
hýsa 2tt til 30 manns, og þetta
er kjörinn staður fyrir aTlai
sem á annað borð vilja búa á
hóteli í sumarleyfum sínum.
En tjaldbúamir leita hins-
vegar að Atlavík, þar sem
Graut-Atli, landnámsmaður bjó
fyrir 1100 árum. Þama er einn
bezt skapaði tjaldstaður á Is-
landi og þar geta með góðu
móti rúmazt allt að hundrað
tjöld.
1 Atlavík hafa margir átt
skemmtilegar stundir bæði um
lengri og skemmri tíma og
geta tekið undir með Kristjáni
skáldi frá Djúpalæk: „Ennþá
lifir í minningu minni sú mynd
úr Atlavík" og raunar sungið
stefið með meiri sannfæringu
en hann. því hann kom nefni-
lega ekki í Atlavík fyrr en
mörgum árum eftir að hann
orti kvæðið.
Eitt sinn var gefin út bók á
Islandi sem hét „Sá guðlega
þenkjandi náttúruskoðari“.
Sjálfsagt eru margir í hópi
þeirra, sem gista Hallormsstað,
en sumir miður guðlega þenkj-
andi. Fyrir alla guðlega jafnt
sem ekki guðlega þenkjandi er
Hallormsstaðarskógur hreinasta
draumaland. Þar eru ekki bara
hæst og gildust tré á Islandi.
Þar er víðlendastur skógur. Þar
er bezt sýnishom enn sem
komið er af því, hvemig tré
af fjörrum löndum jafnt úr
austri sem vestri geta ekki ein-
asta fest rætur og ,.teygað jarð-
armjöð" eins og Þorsteinn
skáld Valdimarsspn orðaði það,
heldur einnig borið þroskuð
aldin og orðið fullgildur nytja-
gróður í þessu norðlæga landi.
En á Hallormsstað er líka
margt fagurt skaparans verk,
klettar, lækir, fossar og fjörur
meðfram Lagarfljóti. Um allt
þetta veita forsjármenn Skóg-
ræktar ríkisins á staðnum leið-
sögu eftir föngum. Ferðamenn-
imir geri bara svo vel og snúi
sér til þeirra.
Frá Hallormsstað er kjörin
Ieið að aka inn í Fljótsdal,
sem er ein vinalegasta sveit
á landi hér og ömgglega sú
veðursælasta. Þar er norðan
Jökulsár í Fljótsdal hið foma
munkaklaustur Skriða, þar sem
Gunnar skáld Gunnarsson sat
síðar og lét reisa eitt ramm-
byggilegasta hús á íslandi og
sérkennilegasta. Minjasafn
Austurlands er þar til húsa í
einu litlu herbergi. — er það
opið almenningi til sýnis og
þarha er rekin nú ein af til-
raunastöðvum landbúnaðarins.
Skammt utan við Skriðu-
klaustur er Hengifcssá, sem fell-
ur í ótal fossum eftir hrika-
legu gili niður af Fljótsdals-
heiði. í hennl ©r aimat hæstj
foss á Islandij Hengifoss, 128
metra háTj og fellur grannur
og tígulegur í gili, sem er
fagurskapaðra en önnur íslenzk
árgil, sem ég hef séð. Annar
foss neðar í ánni heitir Litla-
nesfoss og er umgirtur hæstu
stuðlabergssúlum á landinu.
Allir sannir náttúruskoðarar
verða að gefa sér tíma til þess
að skoða þetta árgil og fossana
tvo. Það er þess virði að ætla
sér heilan dag til þess. en hægt
er að skoða undrið á tveimur
klukkutímum ef tíminn er
naumur.
Leiðin út með Lagarfljóti er
mjög skemmtileg, sérstaklega
gegnt Hallormsstað, því að
notalegt er að horfa yfir til
skógarins.
Yzt í Fljótsdal milli Am-
heiðarstaða og Droplaugarstaða
eru lágreist beitarhús fast neð-
an við veginn, Þetta eru Part-
hús, þar sem draugur reif Part-
húsa-Jón í tætlur. Vissast er að
spýta í bílinn þama framhjá
eftir að skyggja tekur.
Uthérað og Borgarf jörður.
Ef veðrið er gott má ekki
láta undir höfuð leggjast að
fara niður á Borgarfjörð, —
sveitina, sem fóstraði Kjarval.
Skammt utan við Egilsstaði, á
þeirri leið, er bærinn Mýnes,
neðan við veginn. undir all-
hárri hæð, sem vegurinn ligg-
ur eftir. Þama er ómaksins
vert að stanza og fara út úr
bílnum ekki bara vegna þess
að frá 'þessum bæ er Mýnes-
hreyfingin runnin og Einar
bónöi gæti verið að snúa í hey-
inu, heldur einnig vegna þes,s,
að af þessari hæð er framúr-
skarandi fagurt útsýni inn til
Héraðsins.
Nokkru utar á þessari leið
eru Eiðar, mest menntasetur á
Austurlandi. Þar er nú rekið
sumargistihús með miklum
myndarbrag og rúmar allt að
hundrað manns. Þama er sund-
laug, ef menn kjósa að stinga
sér í heitt vatn.
Ennfremur er hægt að fara
á báti á Eiðavatnið og sigla út
j Eiðahólma, þar sem hjnn
forni Eiðaskógur varðveittist
fram á vora daga fyrir ágangi
öxar og sauðatannar. En Eiða-
skógur hinn nýi er þegar tek-
inn að prýða ásana norðan við
staðinn svo um munar. Þegar
Eiðaskógur verður aftur búinn
að umlykja vatnið og klæða
ásana, verður á Eiðum einn
fegursti sumardvalarstaður á
Islandi.
En nokkra áratugi þarf að
bíða enn, þar til það verður.
Skömmu utan við Eiða tekur
SAMEINAÐA
GUFUSKIPAFÉLAGIÐ
ÁÆTLUN
um ferðir milli Reykjavíkur,
Færeyja og Kaupmannahafn-
ar, júní — september 1966.
M.s. „Kronprins Olav“
M/s „K RÓNPRINS O L A V“ farþegaskip.
Frá Kaupmannahöfn: 4. júní — 15. júní — 25. júní — 7. júlí — 16. júlí — 27. júlí
6. ágúst — 17. ágúst — 27. ágúst — 7. september.
Frá Reykjavík: 9. júní — 20. júní — 30 júní — 11. júlí — 21. júli — 1. ágúst
11. ágúst — 22. ágúst — 1. september — 12. september.
Skipið kemur við í Færeyjum í báðum leiðum.
Skipaafgreiðsla JES ZIMSEN,
Símar: 13025, 23985 og 14025.
við hín foma Utmannasveit,
sem heitir nú Hjaltastaðaþing-
há. Fremst í þeirri sveit, þar
sem Selfljót bugðast austan við
veginn, en Dyrfjöll gnæfa í
austri, stendur lítið hvitt hús
í brekku norðan vegarins.
Þama á Kjarval sumarbústað,
þar sem hann málar stundum
nokkra daga í senn, en skrepp-
ur stundum þangað aðeins dag-
stund frá Reykjavík til þess
að hleypa út flugunum, sem
lokast þar inni.
Þegar komið er yzt á ásana
í Útmannasveit blasir við til
austurs hið kunna motív Ás-
gríms Jónssonar, Hjaltastaða-
bláin. Af Vatnsskarði er útsýn
um Úthérað sérstaklega fögur.
Ef fjallgöngumenn eru á ferð
skal þeim eindregið ráðlagt að
yfirgefa bílinn á Vatnsskarði
og ganga inn að Dyrfjöllum.
Þau eru einstök í sinni röð sak-
ir formfegurðar, líkast því
sem myndhöggvari hafi verið
að verki. I námunda við Dyr-,
fjöll er heill dagur í góðu veðri
fljótur að líða. Svo liggur leið-
in niður í Njarðvík yfir hinar
hrikalegu Njarðvíkurskriður og
til Borgarfjarðar.
Þar er sjálfsagt hvað mest
litagleði í fjöllum á Islandi.
Eitt fjallið ber með rentu nafn-
ið Hvítserkur. Ég kom einn
septemþerdag til Borgarfjarðar
í mjö'g einkennilegri birtu. Þá
hef ég komizt næst því að
finnast ég staddur í álfheimi.
Seyðisf jörður
Þegar ég þarf að sýna er-
lendum ferðamönnum einhvem
Austfjarða vel ég alltaf Seyðis-
fjörð. Ástæður eru augljósar:
a) Þangað er stytzt frá Egils-
stöðum. b) Leiðin liggur yfir
Fjarðarheiði, sem er einn af
hæstu fjallvegtim okkar og út-
sýn af norðurbrún hennar yfir
Fljótsdalshérað með Snæfell í
baksýn er einhver hin glæsi-
legasta, sem fundin verður á
íslandi. c) Útsýn af neðri stað
austan í heiðinni yfir Seyðis-
fjörð er mjög sérstæð. d) Á
Seyðisfirði eru þessi árin sam-^
ankomnar á sumrin flestar
síldarstúlkur á einum stað á ís-
landi. e) Þar er eina útsala
Á.T.V.R. á Austurlandi.
Reyðarfjörður, Eskifjörður
cg Norðfjörður
Leiðin liggur frá Egilsstöðum
yfir fjallaskarðið Fagradal. sem
mér hefur aldrei fundizt bera
nafn með rentu. Kom'ið er nið-
ur í Reyðarfjörð, sem er mest-
ur Austfjarða og mjög fallegur
fjörður, þar sem jarðsagan
stendur skrifuð skýru letri í
hverju klettabelti. Reyðarfjörð-
ur hefur einn af fáum Aust-
fjörðum svo mikið undirlendi
við fjarðarbotninn, að rúmað
gæti stóra borg og vissulega
er þama vaxandi staður. En
fyrir einhverja einkennilega
tilvi’ljun hefur samt Eskifjörð-
ur alltaf verið stóri bróðirinn
í samskiptum þessara þorpa,
þó að þar sé í rauninni ekkert
pláss fyrir þéttbýli. En • Esk-
firðingar eiga langa hefð í sjó-
mennsku. Þar eru duglegustu
sjómenn á Austurlandi. Þaðan
er gert út síldarmetskipið Jón
Kjartanssbn, en hann er flagg-
skipið í glæsilégum bátaflota
Alla ríka og þeirra bræðra.
Á Eskifirði er ekkert hótel, að
því er viðskiptaskráin segir.
Á Reyðarfirði hefur hinsvegar
Kaupfélag Héraðsbúa lengi rek-
ið hótel og veitingasölu við
góðan orðstír, eins og þessi
litla saga sannar bezt: Eitt
6inn spurði séra Pétur í Valla-
nesi Kjarval þessarar spum-
ingar: „Segið mér, Kjarvál.
Hvað er eiginlega list?“ Kjar-
val svaraði: „Hvemig spyr
presturinn! Hefur hann virki-
lega aldrei borðað á gistihúsi
kaupfélagsins á Reyðarfirði?“
Af Eskifirði er haldið upp á
Oddsskarð, sem er hæsti fjall-
vegur á landinu, 660 metra
yfir sjávarmál. Oftast er þoka
á skarðinu, en ef heppnin er
með er útsýn tilkomumikil
þaðan til beggja handa. Af
Oddsskarði er svo hæg leið nið-
ur í Norðfjörð til Neskaup-
staðar; sem er Mekka íslenzkra
6ósíalista og hefur fyrir löngu
erft tignarheitið „rauði bær-
inn“ af ísafirði. .
Þar er stærstur kaupstaður á
Austurlandi. Ibúar 1500 talsins.
:Fyrir þremur árum var Johaft
Kappelen, þáverandi ambassa-
dor Norðmanna, á ferð hér
eystra og hafði farið með Esju
í strandsiglingu. Hann trúði
mér fyrir því, að Neskaupstað-
ur væri langmestur framfara-
bær á Austurlandi. Það dyldist
ekkj gestsau’ganu. ag þar væru
framkvæmdir í sérflokki mest-
ar af hálfu bæjaryfirvalda.
Eg Ijóstra þessu leyndarmáli
upp nú, af því að Kappelen er
löngu farinn af landi brott, en
'gagnlegt fyrir Norðfirðinga að
frétta þessi ummæli, þegar
bæjarstjórnarkosningar eru í
nánd. Ef ferðamaður skyldi
véikjast, er í Neskaupstað full-
komið sjúkrahús. Þar er feg-
ursta félagsheimili á landinu,\
Egilsbúð, og þar er opin veit-
ingasala og nokkur gistiher-
bergi. Þar eru líka góðar verzl-
anir og bílaverkstæði, en viss-
ast er að láta fara yfir brems-
umar áður en lagt er aftur
upo á Oddsskarð.
1 Neskaupstað er flugvöllur
og daglegar flugsamgöngur við
Reykjavík á sumrin. Þangað
koma Reykjavíkurblöðin fyrst
til Austurlands. Þar er hægt að
fá þau strax eftir hádegi.
5. Fáskrúðsf.iörður, Stöðvar-
fjörður og Breiðdalur:
Frá Reyðarfirði er farið til
Fáskrúðsfjarðar. Er þá haldið
út með firðinum að sunnan og
yfir Staðarskarð. Það er alltaf
heldur hljótt um firðina sunn-
an Reyðarfjarðar. En þar býr
samt dugnaðarfólk, og á Fá-
skrúðsfirði stendur atvinnulíf
með blóma. Ekki er mér kunn-
ugt um, hvort hótel er starf-
rækt þar nú, en stundum hef-
ur það verið. Leiðin liggur fyr-
ir fjarðarbotninn út með hon-
um ag sunnan yfir Hafnames
og til Stöðvarfjarðar, en hann
er einn minnsti Austfjarðanna.
Landslag við Stöðvarfjörð er
ákaflega tignarlegt. og þótt
þorpið sé lítið, er yfir því meiri
menningarbragur en þeim sem
stærri eru.
Og nú er komið i Breiðdal.
Hann ber með sóma réttnefn-
ið, breið sveit og fögur og skipt-
ist í norður bg suðurdal eins
og flestir dalir á Austurlandi.
Á Breiðdalsvik ér lítið þorp,
en vaxandi með tilkomu síldar-
innar.
Úr Breiðdal má svo halda
suður til Hornafjarðar, Beru-
fjörð, Hamarsfjörð og Álfta-
fjörð, ógnar fögur ferðamanna-
leið, eða inn Suðurdal upp á
Breiðdalsheiði yfir í Skiriðdal á
Héraði. en sá dalur er beint
inn af Völlum, ■ sem fyrr em
nefndir. Yzt í Skriðdal er
Grímsárvirkjun, aðalraforkuver
Austurlands, fallegt mannvirki
í sérkennilegu umhverfi og
þess virði að skoða það. En
þar fyrir ofan gnæfir líparít-
fjallið Sandfell, sem er líkt og
Baula í laginu. Fremst af Völl-
unum gengur þröng dalskóra
inn í Austfjarðafjallgarð milli
fjallanna Sandfells bg Hatt-
ar. Dalur sá nefnist Hjálp-
leysa. Vaskir menn og konur
ættu að gefa sér tíma til þess
að ganga inn í Hjálpleysu, ef
veður er gott.
Þar er hrikaleg náttúmfeg-
urð, sléttar gmndir og allstórt
stöðuvatn milli himinhárra
fjallanna. Þama inn við vatn-
ið er Hellisá. Þar hélzt Valtýr
á grænni treyju við vetrarlangt
eins og þjóðsagan greinir frá
Ef Hjálpleysa væri í Sviss
W)a Noregi, væri komið þar há-
fjallahótel fyrir löngu. Við höf-
um þegar verið lengur á ferð.
en rúm Þjóðviljans leyfiir með
góðu móti. Ég vona að ferða-
maður hafi haft einhverja á-
nægju af öllum krókaleiðunum
síðan við hittumst í Biskups-
hálsi. Ég óska honum góðrar
ferðar áleiðis suður í Austur-
Skaftafellssýslu, en þangáð
verður hann endilega að kom-
ast.
sibl.