Þjóðviljinn - 07.04.1966, Page 15

Þjóðviljinn - 07.04.1966, Page 15
Fimmtudagur 7. apríl 1966 — ÞJÖÐVILJINTST — SÍÐA Lei&ir um Suð-Austuriand Framhald af 13. síðu. ír þar þvert vestur yfir sveit- ina til Lónsheiðar. VI Um Lónsheiði liggja sýslu- mönk Suður-Múlasýslu og Aust- ur-Skaftafellssýslu. Ekki getur Hún talizt há, (389 m). Yfir , Hana liggur nú mjög góður vegur. Þegar komið er á vest- urbrún Lónsheiðar opnast út- sýn yfir Lónsveitina. Mun hún verá að lögun til ein sérkenni- iegasta sveit landsins, því um Hana lýkur skeifulaga fjalla- hringur, sem endar í sæbrött- úm fjöllum Háðum megin. Eru það Hvalneshorn að austan en Horn að vestan. Af hinu síð- ar nefnda mun nafn Horna- fjarðar komið. Samkvæmt síð- ari tíma málvenju hafa þau verið nefnd Eystra-Horn og Véstra-Horn. En sennilegt er, að ' þýðing þessara nafngifta Kafi í fornu máli verið sú, að Hóm við Homafjörð hafi þá verið hið eiginlega Eystra-Horn, eri Hom á Homströndum, Véátra-Hom. Bæði eru þessi fjöll, sem standa eins og 'út- vérðir Lónssveitar við sjóinn, mýriduð af gabbrói, sem ekki finnst nema mjög lítið annars- stáðar á landinu. Lónið eða lónin, sem sveitin di-egur nafn af, em tvö. Heitir hi'ð eystra Lón, en hið vestra Papafjörður. Hefur Lónið útfall um Bæjarós nálægt miðri sveit, eri Papafjörður hefur útfall um Papaós rétt við Vestra-Hom. Þar var verzlunarstaður á síð- ari hluta 19. aldar. 'Um Lónsveit fellur stórfljót- ið Jökulsá í Lóni og auk þess nokkrar bergvatnsár. Allar em þær nú brúaðar óg má vegur um sveitina teljast góður. ' Á Bæ f Lóni byggði land- námsmaður austursveitarinnar, Þórður Skeggi, en lönd sín seldi hann Úlfljóti, þeim er lög flutti út hingað, segir Landnáma. Bjó Úlfljótur þar síðan. En kirkju- staður sveitarinnar hefur frá öndverðu verið höfuðbólið Stafafell, er liggur í miðri sveit og stendur hátt með gott út- sýni, undir lágu felli, er Stafa- fellsnúpur heitir. Á Stafafelli er nú 100 ára gömul timbur- kirkja, og stæðileg þó, enda vel við haldið. I henni er gamall prédikunarstóll, skreyttur lista- vel gerðum myndum af Kristi og guðspjallamönnum Nýja Testamentisins. Það sem mörgum ferðamönn- um þykir mest til koma, hvað náttúmfegurð í Lóni snertir, er hinn svipmikli fjallahringur, og óvenjuleg litafjölbreyttni fjall- anna, sem kemur af því að þau em byggð af fleiri bergtegund- um, og afbrigðum þeirra. Þjóðleiðin liggur meðfram fjöllunum, þar sem aðalbæjar- röðin stendur vestur til Al- mannaskarðs. VII Þegar á Almannaskarð kem- ur, í björtu og góðu skyggni, opnast það útsýni, sem af mörgum er talið með hinu feg- ursta á landi hér. Sér þar yfir Skarðsfjörð og Hornafjörð með f jölda grænna eyja, algróið lág- lendi Nesjasveitar, víður svip- mikill fjallahringur, er blánar í fjarska, og girðir héraðið stómm boga, og lengst í vestri konungur íslenzkra fjalla, ör- æfajökull. En bak við allt þetta glitra skínandi breiður Vatna- jökuls, og senda frá sér skrið- jökla milli fjallanna niður á Iáglendið, misjafnlega breiða, eftir lögun landsins. En það er einmitt þessi feikpa jökulbreiða með skriðjöklum sínum, er gert hefur Austur-Skaftafellssýslu að í Mývatnssveit -<s> 'Framhald af 7. síðu. heit gufa streymir upp úr án afláts. Þetta er eitt heilnæm- asta bað og hefur margurgigt- veikur leitað sér þar heilsu- bótar og oft þótt gefast vel. ' ' í Námafjalli og beggja meg- iri þess, — eru brennisteins- námur, — það eru Reykjahlíð- arnámur. Yfir Námafjall ligg- ur Austurlandsvegurinn um skarð, sem Námaskarð heitir. skarðinu er afburða góð sýn fir sveitina og fegursta út- sýn og því tilvalin sjónarhæð. Frá Reykjahlíð er skammt í jglútnes. Ein af mörgum eyjum á Mývatni og ein þeirra sér- {kennilegust og- fegurst. I Einar Benediktsson segir svo íí kvæði sínu um Slútnes. L,En Slútnes, það ljómár sem ljós yfir sveit; föll landsins blóm, sem ég fegurst veit, um þennan lága, laufgróna reit Ísem lifandi gimsteinar skína.“ Þetta er sem vænta mátti snjöll lýsiníf* og rétt. Hvergi var fuglalíf og andavarp meira við Mývatn en í Slútnesi. En nú á seinni árum er það svip- ur hjá sjón. Fyrir því hefur hið aðf-lutta villidýr minkur- inn séð. Það ættu þeir að kynna sér utan alþingis og innan, sem berjast fyrir minkarækt á nýjan leik. Fátt er það, sem fulltreysta má og á það ekki sízt við um villidýr í búrum. Norður frá Reykja- hlíð liggur vegurinn norðan Mývatns og lokar hringnum, begar komið er yfir _ brú á Laxá hjá Arnarvatni. Á þeirri leið er margtyað sjá og skoða og er auðvitað sjálfsagt, að sá sem skoðar sveitina fari um- hverfis vatnið.' Er þá tilvalið að ganga á Belgjarfjall, en bað er stakur fallegur fjalls- Hnúkrir, sem "stendur skammt frá vatninú norðan við það. Austur af Belgjarfjalli nyrzt er stöðuvatn, sem Sandvatn heitir og er þar víða mikil náttúrufegurð. Bílfært er þangað frá Grímsstöðum, en það er austasti bær norðan við vatnið. Hér hefur nú verið stiklað á stóru og fátt eitt talið. í um- hverfi Mývatnssveitar eru fjöl- margir staðir, sem lítt eru kunnir ferðafólki, en jafnast margir hverjir á við það sérkennilegasta og það feg- ursta sem nær er alfaraleið og kunnara. Mývatnssveit er einn fjöl- sóttasti staður ferðamanna, er- lendra sem innlendra og ef vel væri á málum haldið, þá gæti.hún orðið það í enn rík- ara mæli. Það er vandséð hvernig farið geti saman auk- in aðsókn ferðamanna hingað og hinsvegar umfangsmikill námurekstur, þar sem hráefn- ið er sótt í botn Mývatns og námúbær og verksmiðja stað- sett hjá Reykjahlíð þar sem ferðamannastraumurinn hefur sína endastöð og miðstöð. Virðist sem sú fyrirætlun, kísiliðjan, sé vanhuguð nokk- uð. Slæ ég nú botn í þettaspjall, þó efnivið sé eigi gerð þau skil, sem vert væri. Væri þá vel, ef þessar línur vektu á- huga einhverra á Mývatns- sveit, sem brytu heilann um það, hvar þeir ættu að eyða sumarleyfi sínu á komandi sumri. Það skal tekið fram, að ráðlegra er að ætla sér nægan tíma og flýta sér ekki um of. Ef þú ferðamaður slærð upp tjöldum þínum í skjólgóðum stað á bökkum Mývatns, ,þá skildu þrifalega við tjaldstæði þitt, þegar heim er haldið. Það hefur því miður oft orðið mis- brestur á, þó að fleiri séu þeir, sem hrós eiga skilið. Verið svo velkomin að Mvvatni. Starri í Garði. einu mesta vatnahéraði lands- ins. Liggur þá vegurinn fyrst inn með Skarðsfirði og þá gegn um Þinganesland, þar sem Land- nám ríkisins hefur stofn- að byggðahverfi, inn á svo kölluð vegamót, skammt fyrir utan höfuðbólið Hóla. Skiptist hann þar og liggur vinstri álm- an út til kauptúnsins á Höfn en hin inn sveitina, að brúnni á Hornafjarðarfljótum, en þau skipta hreppum. Er rétt að líta fyr&t á Höfn. Er þangað u.þ.b. 5 km vegar- spotti. Saga fastaverzlunar á Höfn hefst árið 1897, verzlun sú er verið hafði um hríð á Papós var þangað flutt. Um verulega fólksfjölgun þar og myndun kauptúns var þó ekki að ræða, fyrr en um 1920, er vélbátaút- gerð og fiskverkun hófst þar í allstórum stíl. Síðan hefur kauptúnið vaxið jafnt og þétt og mun mann- fjöldi þess nú nema um 7Ö0. Hefur þar verið rekin mynd- arleg útgerð og fiskverkun, og mjög mikil útflutningsverðmæti sköpuð. Þá er þar og staðsett Kaupfélag Austur-Skaftfellinga og enn fremur brjár litlar ein- staklingsverzlanir. Ber kauptún- ið þess greinilegan svip, hve ungt það er, því þess vegna hefur verið auðveldara um^ skipulagningu alla á haganleg- an hátt. Hefur ungmennafélagið Sindri reist þar mjög myndarlegt fé- lagsheimili. Einnig er þar rek- ið gistihús. Þegar farið er frá Höfn er aftur haldið sömu leið til baka inn að vegamótum, og liggur þaðan vegurinn inn sveitina eins og fyrr er sagt. Ekið er yfir brú á Laxá, er aðskilur ytri hluta sveitarinnar — út- rresin — og Bjamaneshverfið svokallaða, en það er höfuðból- ið Bjarnanes með sínum mörgu hjáleigum, og koma eignir þær mjög við höfðingjadeilur mið- alda. Er t.d. vert fyrir ferða- mann að s%>ða Virkið svokall- aða á Brekkubæ, er Teitur Gunnlaugsson, ríki, í Bjarnanesi er sagður hafa reist til varnar gegn Jóni biskupi Arasyni. Land Bjamanestorfunnar nær inn að stöðuvatni er Þveit nefn- ist. 15r þetta land með afbrigð- um fallegt, og því ekki að undra þótt einhvemtíma væri um það deilt. Fjallið hér fyrir ofan heitir Ketillaugarfjall, mjög svipmikið, og kvað útsýn af því sízt gefa eftir útsýni af Almannaskarði. Liggur vegur- inn éfram inn með fjöllum, þar til kemur að brú á Hoffellsá. og þaðan þvert vestur yfir sandinn fyrir neðan stórbýlið Hoffell, að tiltölulega nýrri brú á Hornafjarðarfljótinu. Er sú brú hið mesta mann- virki, enda hafa Fljótin sjald- an verið neitt lamb við að leika. Þegar yfir Fljótin ' kemur tekur við Mýrahreppur eða Mýrar, eins og sveitin er al- mennt kölluð. Hér liggur hver skriðjökullinn af öðrum mdlli fjallanna niður ð láglendið, og jökulsámar, sem frá þeim renna hafa leikið gróðurlendi sveitarinnar mjög illa. ■ Þótt jafnan hafi farið fáum sögum af baráttu fbúanna við jökulvötnin, hefur hún samt sem áður þrotlaust verið háð. En með tækni siðustu áratuga hefur tekizt að beizla árnar. Hinir gróðurlausu sandar, er vötnin hafa búið til eru frjó- samir, og á síðustu árum hafa bæði tún og akrar bændarina verið að færast út yfir þá. Þetta er sigur núlifandi k-ynslóðar, sem þó er vitanlega einnig byggður á baráttu og þraut- seigju hinna eldri. Þessi saga gildir að vísu ekki fyrir Mýr- amar einar, heldur á einnig a.n.l. við um flestar aðrar sveit- ir sýslunnar. Frá brúnni Iiggur vegurinn út með Hornafjarðarfljótum að Holtum/ sem er raunverulega byggðahverfi.' Þar er félags- heimili sveitarinnar. Beygir hann þar til vesturs yfir miðja sveitina fram hjá kirkjustaðn- um Brunnhóli. Þegar vestar dregur liggur hann yfir brú á Hólmsá, og vestur á svokall- aða Heinabergsaura, og eru þar hreppaskil milli Mýra og Suðursveitar. Austasti bær f Suðursveit er Skálafell þar sem hinn merki maður, Jón Eiríksson, konfer- ensráð var fæddur og uppalinn. Austan við túnið rennur áin Kolgríma, og ber nafn með rentu, því hún má teljast for- aðsfljót, og þó einkum síðan Heinabergsvötn, er áður runnu fram aurana fyrir austan, féllu til vesturs og í hana. Frá Kol- grímubrú liggur vegurinn vest- ur með fjöllunum, og fram hjá hverjum, einasta bæ byggðar- innar, því bæjaröðin er aðeins ein. Þó breikkar undirlendið er vestar kemur en mjókkar aftur er kemur vestur yfir hinn svo- kallaða Steinasand, þar sem Steinavötn hafa herjað sveitina til mikilla erfiðleika. Nú eru þau nýlega brúuð, óg sandur- inn grær bæði fyrir náttúrunn- ar tilverknað og manna, því bændur hafa tekið hluta af honum til ræktunar. I u. þ. b. miðri sveit er prestsetrið Kálfa- fe'lsstaður, þar er einnig fé- lagsheimili sveitarinnar og heimavistarskóli, er gefið hef- ur verið nafnið Hrollaugsstað- ir, eftir landnámsmanninum Hrollaugi Rögnvaldssyni. Um hann segir Landnáma, að hann hafi numið land frá Horni til Kvíár' og fyrst búið undir Skarðsbrekku í Homafirði en síðan á Breiðabólstað í Fells- hverfi. Hefur þetta verið all mynd- arlegt landnám þar sem það nær yfir þrjár sveitir heilar þ.e. Nesja- Mýra og Suðursveit, og hluta af öræfum. Enda get- ur Landnáma einnig um fimm landnámsmenn aðra, er af hon- um þágu lönd. Þegar vestur yfir- Steinavötn kemur, er örstutt að bæ Hrol- laugs, Breiðabólstað. Þar eru nú þrjú býli. Landslag er mjög fagurt og svipmikið hér eink- vestantil í sveitinni, sem flestir munu kannast við, er lesið hafa lýsingar Þórbergs Þórðarsonar af æskustöðvum' hans. Nú liggur leiðin út á Breiða- merkursand. Brátt er komið að ánni Stemmu. Hún er brúuð og er þá skammt að stórfljótinu Jökulsá á Breiðamerkursandi, er skiptir löndum milli Suður- sveitar og Öræfa. Hér er á hægri hönd hinn geysimikli skriðjökull, Breiðamerkurjökull. Hann hefur nú eins og aðrir skriðjöklar verið að hörfa undan hlýnandi veðráttu síðustu ára- tugi, og hefur þar myndazt stórt og djúpt jökullón er áin fellur úr. Svo hefur áin grafið sig nið- ur í gegn um jökulöldumar, að þegar hásjávað er flæðir sjór inn í lónið, enda er botn þess langt undir sjávarmáli. Því miður er ekki enn þá kominn brú á Jökulsá, en ekki ættu þeir, sem tök hafa á að skoða öræfin að nema hér stað- ar. Svo mikið hefur öræfa- sveitin að bjóða af sérkenni- legri náttúrufegurð, sem í fé- um orðum verður ekki lýst að gagni. Engin sveit í Skaftafells- sýslu mun hafa orðið fyrir jafn miklum áföllum frá Landnáms- tíð, vegna eldgosa og jökul- hlaupa úr öræfajökli. Enda ber hún þess glögg merki m.a. í því að snögglega getur skipt frá fullkomnum eyðisaridi til gróðurbletta svo fagurra, að víða er leitun á slíku. Má þar- t.d. nefna Svínafell, höfuðból Flosa Þórðarsonar, Skaftafell með Bæjaretaðaskógi o. fl. Ferja er á Jökulsá og vegir allgóðir innan sveitar, þar sem allar ár, er farartálmi geta heit- ið, eru nú brúaðar. Að endingu skal þess óskað að þeir, sem á komandi sumri leggja leið sína til að kynnast Suðausturlandi megi hafa ó- blandna ánægju af ferðum sín- um. Alþjóðlegt ferðamálár □ Fjárhags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna hefur sam- þykkt að næsta ár, 1967, verði „alþjóðlegt ferðamálaár“. Al- þjóðasamtök ferðaskrifstofa IOUTU höfðu sent Sameinuðu þjóðunum áskorun um þetta. AUGLÝSING Ferðaskrifstofa ríkisins skipuleggur orlofsferðir innanlands og utan fyrir hópa ög einstaklinga. Selur farseðla með flugvélum, skipúm, lestum um heim allan. Útvegar gistingu og sér um allt annað er tryggir yður skemmtlega og árangursríka ferð. Úrval þjóðlegra minjagripa í Baðstofunni. Önnumst sendingu til allra landa. Reynið viðskiptin. Ferðaskrifstofa ríkisins Lækjargötu 3. Sími 11540.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.