Þjóðviljinn - 16.04.1966, Blaðsíða 2
n
2 SÍÐÁ — ÞJÓÐVrkJINN — ÉaugarÖagur 16. apríl 1966.
25. landsleikur Birgis B.
1 frásögninni hér í blaðinu í gær af landsleik Islendinga og
Frakka í handknattleik fáðist að geta þess að Birgir Björnsson,
fyrirliði FH um árabil, lék nú sinn 25. landsleik fyfir Island.
Var honum afhent, í hófi að leik loknum, guliúr frá Handknatt-
Ieikssambandinu af þessu tilefni og var mál manna að Birgir
væri vel að þessari viðurkcnningu kominn eftir langan og glæsi-
Iegan keppnisferil sinn. — Á myndinni sést Birgir Björnsson í
harðri keppni við KR-inga.
Eftir landsleikinn
vii Frakkland
Haadkaattleiksmót-
ið um þessa helgi
■ Eftir nokkurt hlé verður Handknattleiksmeist-
aramóti íslands haldið áfram nú um helgina í
íþróttahúsinu gamla að Hálogalandi.
í kvöld, laugardag, fara
fram leikir í 1. deild. kvenna
og 2. flokki og 2.. deild karla,
en aðalleikir helgarinnar verða
annað kvöld, en þá leika í 1.
deild karla Valsmenn og FH
og Haukar og Ármenningar.
Leikirnir í kvöld verða sem
hér segir: í 1. deild kvenna
milli Víkings og Ármanns og
milli Breiðabliks og Fram. í
2.' flokki karla B-riðli, leiká
FH og Þróttur og í 2. deild
karla ÍR og Víkingur.
Leikirnir hefjast bæði kvöldr
in“kL 20.15.
Allt er
geft sem gjör.ði hann
Það er háttur, stjómarvald-
anna að draga einvörðungu
upp myndir í hvítum lit eða
svörtum. Allt er gott sem
valdhafarnir • gera og allt
slæmt sem stjórnarandstaðan
aðhefst; þarna á hin gamla
rétttrúnaðarafstaða um
himnaríki og helvíti ennþá
samastað. Aldrei kemur það
fyrir að stjórnarvöldunum
mistakist neitt, og jafnvel
þótt alkunnugt sé, að ráð-
herrar hafi verið neyddir til
verka sem þeir kærðu sig
ekki um, láta þeir á al-
mannafæri eins og þeir séu
himinlifandi glaðir yfir ó-
sigri sínum.
Glöggt dæmi um þetta er
lofsöngur ráðherranna um
gerðardómsákvæðin í alú-
mínsamningnum. Það er al-
kunna að íslenzku ráðherr-
unum þóttu þessi ákvæði
mjög slæm og streyttust
lengi gegn þeim, þótt þeir
beygðu sig að lokum. Viður-
kenning á þessu atriði villt-
ist meira að segja út úr Jó-
hanni Hafstein iðnaðarmála-
ráðherra á alþingi í umræð-
um um málið. Morgunblaðið
hefur það eftir honum 6ta
apríl að hann hafi komizt
svo að orði um andstöðu
Lúðvíks Jósepssonar í þing-
mannanefndinni: „Ég efast
þó ekkert um, að honum
hefði kannski verið kærara
að taka ákvæðin um gerðar-
. dóm alveg úr, og það kann
vel að vera að hann hafi
látið í ljós skoðun sína um
það, að það væri æskilegra.
Það má segja, að við höfum
kannske allir verið á þeirri
skoðun.“
Þarna játar Jóhann að
hann hefði talið æskilegra
að sleppa við gerðardómsá-
kvæðin. Samt lætur hann sig
hafa það í hinu orðinu að
telja ákvæði þessi til fyrir-
myndar, vammlausan snilld-
arverknað, og samráðherrar
hans taka allir undir í einum
kór.
Hvað kemur til að stjórn-
arvöldin ræða aldrei við al-
menning eins og viti bornar
verur og viðurkenna aðflest-
ir hlutir eru í senn sambland
af góðum kostum og miður
góðum sem nauðsynlegt er
að vega og meta í samhengi?
Hvers vegna játa þeir ekki
hreinskilnislega að gerðar-
dómsákvæðin séu slæm? Hví
gera þeir ekki grein fyrir því
að þeir hafi talið rétt að fall-
ast -á þá slæmu kosti engu að
síður til þess ag ná arangri
á einhverju öðru sviði? Er
málstaður alúmínmanna ef
til vill þannig að hahn þoli
sízt af öllu málefnalegar,
Íeiðarlegar og raunsæjar um-
æður? ■— Austri.
Iþróttasíðunni barst í gær
svofellt bréf:
Eftir leik íslenzka og franska
. landsliðsins í handknattleik
14. apríl s.l. getur undirritað-
ur ekki lengur orða bundizt,
og þykir mér, ásamt sjálfsagt
mörgum öðrum, tími til kom-
inn að taka penna í hönd
og rita lítillega um íslenzkan
handknattleik.
íslenzka landsliðið sýndi
góðan og drepgilegan leik í
þessum landsleik (einkum
þó Geir Hallsteinsson sem án
efa á eftir að verða einn okk-
ar bezti handknattleiksmaður,
að öllum öðrum ólöstuðum).
íslenzka landsliðið brotnaði
ekki niður, þó hinn franski
dómari sem dæmdi síðari hálf-
leika þessa landsléiks væri
svo ótrúlega hlutdrægur að
hann hreinlega færði liði sínu
sigurinn á silfurbakka. (Hann
mætti taka sér til fyrirmyndaV
okkar góða dómara Hannes Þ.
Sigurðsson, sem dæmdi fyrri
hálfleik þessa landsleiks án
nokkurrar hlutdrægni).
En víkjum að annarri hlið
málsins.
Hversu lengi ætlar okkar á-
gæti landsliðsþjálfari að
■brenna sig á því sama að
láta okkar beztu handknatt-
leiksmenn sitja á varamanna-
bekkjum á örlagaríkustu
augnablikum leikjanna? Því
ekki að láta alla beztu menn
okkar leika síðustu 10—15
mínútur síðari hálfleiks sem
hefur yfirleitt úrslitaþýðingu
i,~í)vgrs -letþs? ,.TO,-n •
Okkar landslið í hándknatt-
leik er búið að leika marga
landsleiki undanfarið og hefur
tapað nær öllum.
Hvað veldur? Skiping leik-
manna inn á leikvang á rétt-
um augnablikum hefur mikið
að segja, en að láta beztu
menn liðsins sitja á vara-
mannabekjum þar til fimm
mínútur eru til leiksloka tel
ég útilokað. Þessvegna finnst
mér ásamt fleirum að okkar
ágæti landsliðsþjálfari í hand-
knattleik ætti að endurskoða
skiptingu leikmanna okkar inn
á leikvang á örlagaríkum
augnablikum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Jón. Þ. Steindórsson.
<S>-
Innanfélags-
mót T.B.R.
Innanfélagsmóti Tennis- og
badmintonfélagsins lauk fyrir
skömmu í Valshúsinu.
Mótið hefur staðið frá ára-
mótum og verið keppt á hverj-
um laugardegi í samæfingar-
tímum félagsins.
Sigurvegarar urðu:
Drengir, einliðaleikur: Helgi
Benediktsson.
Unglingar, einl.leikur: Har-
aldur Komelíusson.
Unglingar, tvil.leikur: Har-
aldur Kornelíusson og Finnbj.
Finnbjörnsson.
Konur, tvíl.leikur: Júlíana
Isebam og. Lovísa .Sigurðard.
Tvenndarkeppni: Jónína Ní-
eljóníusardóttir og Lárus Guð-
mundsson.
Karlar, einl.leikur: Jón Árna-
son.
Karlar, tvíl.leikur: Steinar
Petersen og Viðar Guðjónsson.
Drengjahlaup
Árm. 24. apríl
Drengjahlaup Ármanns fer
fram að venju fyrsta sunnu-
dag í sumri, þann 24. apríl n.
k. Þetta er sveitakeppni, 3ja
og 5 manna. Þátttöku skal til-
kynna til Jóhanns Jóhannes-
sonar, Blönduhlíð 12, sími
19171. <
Sundmót Árm.
á, miðvikudaginn
Sundmót Ármanns verður
haldið í Sundhöll Reykjavíkur
miðvikudaginn 27. apríl 1966.
Keppt verður í eftirtöldum
greinúm:
100 m skriðsund karla
(bikarsund)
200 m bringusund karla
(bikarsund)
100 m baksund karla
200 m fjórsund kvenna
(bikarsund)
200 m bringusund kvenna
100 m skriðsund stúlkna
50 m skriðsund drengja
(bikarsund)
50 m flugsund sveina
3x100 m þrísund kvenna
4x50 m fjórsund karla.
(bikarsund)
Reykjavíkurmót-
ið í badminton
Reykjavíkurmótið I badmin-
ton verður háð í íþróttahúsi
Vals nú um helgina.
Mótið hefst kl. 3 síðdegis í
dag, laugardag, en úrslitin
fara fram á morgun og hefst
keppnin kl. 2 síðdegis.
Keppendur verða 40 og í
þeirra hópi allir snjöllustu
badminton-spilarar bæj arins.
Handknattleiksdeild FH
Aðalfundur handknattleiks-
deildar FH verður haldinn
mánudaginn 18. apríl kl, 8.30
í Sjálfstæðishúsinu.
Fermingargjafír
Svefnbekkir — Svefnstólar
Skrifborð — Skrifborðsstólar
Snyrtiborð — Gærukollar
Gærustólar — Vegghúsgögn
Sent heim meðan á fermingu stendur.
Husgagnaverzl. Búslóð
við Nóatún — Sím.i 18520.
Úrval af nýjum
Vorkápum — drögtum
Terelynekápum og sjóliðabuxum
; " "' . : ■
Bernharð Laxdal
Kjörgarði,
Tilkynning frá bifreiða-
eftirliti ríkisins
Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur gefið út leið-
beiningar um bifreiðalýsingu og stillingu
aðalljóskera, sbr. reglugerð nr. 51, 15. maí
1964 um gerð og búnað ökutækja o.fl.
Bifreiðainnflytjendur og bifreiðaverkstæði
sem annast stillingu ljóskera, geta fengið
leiðbeiningar þessar hjá bifreiðaeftirlitinu.
Athygli bifreiðaeigenda skal vakin á því, að
ökutæki fá eigi fullnaðarskoðun, nema ljós
hafi verið stillt samkvæmt framangreind-
um reglum.
Bifreiðaeftirlitið mun taka gild vottorð um
ljósastillingu frá aðilum, sem nota stilling-
arspjöld og stillingartæki, sem viðurkennd
eru af því.
I
Reykjavík, 13. apríl 1966
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Auglýsing
Ráðsmann vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Um-
sóknarfrestur til 5. maí næstkomaridi.
Launakjör: 19. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar
Áskels Einarssonar bæjarstjóra Húsavík.
Stjóm Sjúkrahúss Húsavíkur.
Auglýsing
Ráðskonu vantar við Sjúkrahús Húsavíkur. Um-
sóknarfrestur til 5. maí næstkomandi.
Launakjör: 13. launaflokkur.
Umsóknir sendist til formanns sjúkrahússtjórnar
Áskels Einarssonar bæjarstjóra Húsavik.
Stjóm Sjúkrahúss Húsavíkur.
Kassagerð Reykjavíkur h.f.
Tilkynning tii
viðskiptavina
Verksmiðja vor verður lokuð vegna sumarleyfa,
frá og með laugardeginum 25. júní til mánudags-
ins 25. júlí 1966.
Pantanir sem afgreiðast éiga fyrir sumarleyfi
verða að hafa borizt verksmiðjunni eigi síðar en
15. maí n.k.
KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR h.f.