Þjóðviljinn - 16.04.1966, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJ-ÖÐVIE,JINN — Laagardagur M. aprö 1966.
Dtgefar.di: Sarríeiningarflokkur aiþýðu — Sósíalistaflokk-
urinru
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jé’iannesson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 35.00 á mánuði.
Frá heimspólitísku sjónarmiði
£nda þótt leppstjórnarkerfi Bándaríkjanna í Suð-
ur-Vietnam sé enn einu sinni að hrynja til
grunna, á árásarríkið stuðningsmenn sem aldrei
hvika, rits’tjóra Morgunblaðsins, enda þurfa þeir
en’n sem komið er ekki að óttast það dag hvern
að fá sprengjur, eit'urgas og bensínhlaup verndara
sinna í höfuðið. í gær birl_r Morgunblaðið enn
eina forustugrein til.þess að fagna hryðjuverkun-
um í Víetnám, 'og í henni var að finna setningu
sem varpár einkar skýru ljósi á hugsunarhátt rit-
stjóra þessara. Þeir segja: ,,Líta verður á styrjöld-
ina í’ Suður-Víetnam frá he’imspólitísku sjónar-
miði, en ekki staðbundnu". Samkvæmf þessari
kenningu er það ekki innanlandsmál Víetnam-
manna eða nokkurrar annarrar þjóðar, hverja
s’t’jórnarhætti menn velja sér, heldur ber hinu
vestræna stórveldi að meta slík mál „frá heims-
pólitísku sjónarmiði". Og falli Bandáríkjunum
ekki við skoðanir stjómarvalda í einhverju landi
hafa þau rétf til að bægja fra hinum „staðbundnu“
sjónarmiðum með morðtækni nútímans, brjóta
sjálfsákvörðunarrétt íbúanna á bak aftur með
blóðbaði. Þessi kenning á vafalaust einnig. við um
ísland að mati ritstjóra Morgunblaðsins, svo að
ekki er örvænt um að þeir kunni síðar að fá að
njóta sömu verndar og stéttarbræður þe’írra í
Víetnam.
gnginn efi er á því að kenning Morgunblaðsins
er rétt skýring á árásarstríði Bandaríkjanna í
Víetnarq. Þegar Víetnammenn höfðu gersigrað
frönsku nýlenduherina 1954 var ákveðið með al-
bjóðlegu samkomulagi að allir erlendir herir
skyldu á brott úr landinu og það síðan sameinað
í frjálsum kosningum. Eisenhower Bandaríkjafor-
seti hefur skýrt frá því í endurm’inningum sínum
að allir kunnugir hafi talið aö þjóðfrelsishreyfing-
in undir forustu Ho Chi Minh myndi fá um 80%
atkvæða í landinu öllu í slíkum kosningum. Það
voru „staðbundin“ sjónarmið sem Bandaríkin gátu
ekki fellt sig við, og því hófu þau íhlufun sína,
korpu í veg fyrif kosningar og heyja nú einhverja
grimmilegustu tortímingarsfyrjöld mannkynssög-
unnar.
gnda þótt ritstjórar Morgunblaðsíns Ha'fi þungar
áhyggjur af því hversu illa Bandaríkjunum
helzt á stuðningsmonnum sínum, geta þeir hugg-
að sig við það að frá heimspólitísku sjónarmiði
eru vopnin voldugri en lýðræðið, dauðinn öflugri
en lífið. Frá því hefur nýlega verið skýrt í Banda-
ríkjunum að nú hafi vísindamönnum tekizt að
endurbæta bensínhlaupið til mikilla muna; hafi
flugherinn nú þegar pantað 100 miljónir punda
af þessum endurbætta lýðræðisvökva, enda sé
notkun hans nú komin upp í 25'miljónir punda
á mánuði. Endurbæturnar eru að sögn bandarískra
blaða einkum fólgnar í stóraukinni viðloðun, svo
að menn geti með engu móti hreinsað af sér þe'tta
brennandi regn. heldur eigi vísan langvínnan og
kvalafullan dauðdaga sem er einkar lofsverður
„frá heimspólitísku sjónarmiði“. — m.
Hafnarfjarðarbíé sýnir „Þögnina“
1 gærkvöld hóf Hafnarfjarðarbíó að sýna cina umtöluðustu kvik-
mynd sáðustu ára, „ÞÖGNINA‘‘ eftir sænska leikstjórann Ing-
mar Bergmann. Um þessa mynd hefur sitthvað vcrið sagt til
lofs og lasts í crlendum blöðum — hennar hefur áður verið get-
ið nckkuð hér i Þjóðviljanum og verður það ekki endurtekið
nú. Myndirnar- cru úr „Þögninni‘‘. Á þeirri efri sjiást aðalpersón-
urnar, systurnar Ester (Ingrid Thulin) og Anna (Gunnel Lindblom).
A neðri myndinni: Uppgjör systranna í herbergi ókunnugs manns
(Birgir Malmsten).
Grunnt er á því góða milli
rikis og kirkju í Póllandi
VARSJÁ 14/4 — í sambandi
vící' ^atiðáhold kaþólskra í til-
efni þúsund ára afmælis kristni-
töku í Póllandi hafa deilur rík-
is og kirkju blossað upp af nýrri
heift. Málgagn pólska kommún-
istaflokksins, Trybuna Ludu.
veitist harðlega að Wyszynski
kardínála í dag. Segir blaðið að
rikið óski ekk; eftir illdeilum
vig kirkjuna, en kardínálinn og
stuðnjngsmenn hans innan kirkj-
unn-ar vilji viðhalda miðalda-
þröngsýni í trúmálum og ekki
vjðurkenna aðskilnað ríkis ,og
kirkju, sem sé þegar staðreynd
í flestum siðmenntuðum löndum.
Þá er kirkjan minnt á. að
hún verði að fá leyfi yfirválda
til útisamkoma sem verða
margar í sambandi við hátíða-
höldin.
Ádeila stjórnarvalda á m.a.
rætur sínar að rékja tii þess,
að beim þykir að Wyszynski
kardínáli hafi brugðizt pólskum
hagsmunum með helzt til vin-
samlegum ummælum í garð V-
Þjóðverja og vafasömum sam-
skiptum við vesturþýzka kirkju-
höfðingja.
Aðalfundur Meistarasamb.
byggingamanna var haldinn í
félagsheimili méistarafélaganna
í Skipholti 70 laugardaginn 2.
apríl s.l.
Formaður sambandsins, Grím-
ur Björnsson, pípud.m. setti
fundinn og bauð fulltrúa vel-
komna. Fundarstjóri var kjör-
inn Guðmundur St. Gíslason,
múrarameistari, og fundarritari
Vilberg Guðmundsson, rafv.m.
Þá fluttu formaður cg fram-
kvæmdastjóri Meistarasamb.
Otto Schopka, skýrslur um
starfsemi sambandsins á síðast-
liðnu starfsári. Kom fram í
skýrslum þeirra, að starfsemi
sambandsins fer stöðugt vax-
andi og hefur þeið beitt sér
í ýmsum málum er varða bygg-
ingariðnaðinn í Reykjavík.
Á fundinum var síðan rætt
um ýmis hagsmúnamál bygg-
ingamanna og ýmsar ályktanir
gerðar. Aðalfundurinn fagnaði
stofnun Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins og leggur
áherzlu á að starfsemi hennar
verði efid sem mest og henni
gert fært að ráða í sína þjón-
ustu næga starfskrafta til þess
að hún. verði byggingariðnað-
inum að sem mestu gagni.
Aðalfundurinn lýsti ánægju
yfir eflingu Iðnlánasjóðs áund-
anförnum árum og fagnarfram-
komnu lagafrumvarpi á Alþingi
um stóraukið framlag ríkissjóðs
til sjóðsins. - Ennfremur lýsti
fundurinn ánægju yfir örum
vexti Iðnaðarbankans og hvatti
byggingameistara til að beina
viðskiptum sínum til bankans.
Þá harmaði fundurinn, að
nefnd sú er viðskiptamálaráð-
herra skipaði í des. 1959 til þess
að semja reglur um útboð og
tilboð hefur enn ekki lokið
störfum.
Aðalfundurinn þakkaði iðnað-
armálaráðherra fyrir góðar
undirtektir við tilmæli Meist-
arasambandsins um að fram-
kvæmd verði rannsókn á bygg-
ingarkostnaði hér á landi og
samanburður gerður við bygg-
ingarkostnað í nálægum lönd-
um.
Þá ítrekaði aðalfundurinn
fyrri ályktanir sínar um að
borgaryfirvöld Reykjavíkur-
borgar gefi fulltrúum bygginga-
meistara kost á að fylgjast með
undirbúningi að skipulagningu
nýrra borgarhverfa í Reykja-
vík.
Þá urðu nokkrar umræður á
fundinum um fyrirætlanir um
innflutning , verksmiðjufram-
leiddra húsa og var samþykkt
ályktun þess efnis, að innlend-
um byggingariðnaði yrði gert
kleift að byggja upp fyrirtæki
sem geti framleitt hús og hús-
hluta á sambærilegum grund-
velli og fyrirtæki í nálægum
löndum, og ennfremur að bæj-
ar- og sveitarfélög skapi fyrir-
tækjum í byggingariðnaði að-
stöðu til þess að reisa hús £
stærri stíl en áður hefur tíðk-
azt hér á landi.
Grimur Bjarnason var endur-
kjörinn formaður Meistarasam-
bandsins, en aðrir í stjórn eru:
Gíssur Sigurðsson, húsasm.m.,
Guðm. St. Gíslason, múraram.,
Kjartan Gíslason málarameist-
ari, Finnur B. Kristjánsson,
rafvirkjameistari og Einar Þór-
varðsson, veggfóðrarameistari.
Meistarasambandið hefur nú
undanfarin ár haft samstarfvið
Landssamband iðnaðarmanna
um- skrifstofuhald og fram-
kvæmdastjórn en mun flytja
slfrifstofu sína í Skipholt 70
nú f vor og hefur Marinó
Þorsteinsson, viðskiptafræðirigur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Meistarasambandsins frá þeim
tíma.
Þrjá ný lög
samþykkt
Mörg miál eru nú á dagsfcrá
Alþingis dag hvern eins og jafn-
an þegar H'ða tekur að þjnglok-
um, en gert mun ráð fyrir að
þinghaldinu verði lokig : úm
næstu mánaðamót.
Þrjú frumvörp voru afgreidd
sem lög í fyrrad. Eitt þeirra var
stór lagabálkur um fuglaveiðar
og fuglafriðun. heildarlög um
það efni. Hin voru breytingam-
ar á lögum um Atvinnuleysis-
tTyggingamar og um Iðnlána-
sjóð, /
Kjörin ný stjérn
Skáksambands
íslands
Aðalfundur Skáksambands Is-
lands var haldinn 7. apríl sl. í
Hábæ. Kjörinn var forseti sam-
bandsins Guðmundur Arason
framkvæmdastjóri úr Taflfélagi
Reykjavíkur. Aðrir í stjóm vom
kjömir Jón Ingimarsson frá
Taflfélagi Akureyrar, Hjálmar
Þorsteinsson frá Taflfélagi Akra-
ness, Guðbjartur Guðmundsson
frá Taflfélagi Hreyfils og Guð-
mundur Pálmason frá Taflfélagi
Reykjavíkur. Til vara vom kosn-
ir Páll G. Jónsson frá Taflfélagi
Reykjavíkur, Guðmundur G.
Þórarinsson frá Taflfélagi Rvík-
ur og Helgi Jónsson frá Taflfé-
lagi Akureyrar.
Hinn nýkjörni forseti og fund-
armenn allir þökkuðu fráfarandi
stjóm, þeim Asgeir Þór Ásgeirs-
syni, Baldri Pálmasyni, Þorvaldi
Jóhannessyni. Eiði Gunnarssyni
og Gísla Ísleifssyni góð störf í
þágu skákhreyfingarinnar.
Ljóðatónleikar
í tilefni af 50 ára afmæli Karlakórsins
Fóstbræðra í Austurbæjarbíói í dag, laug--
ardaginn 16. apríl 1966, kl. 15,00.
Á EFNISSKRÁ M.A.:
Lög eftir Mozart, Hándel og Hugo Wolf.
Jón Þórarinsson: Of Love and Death.
&
L.v. Beethoven: An die ferne Geliebte.
J. Brahms: Liebeslieder-valsar fyrir blandaðan kvarté'tt og tvö
píanó.
Söngvarar: Sieglinde Kahmann, sópran; Sigurveig Hjalfested,
alt; Erlingur Vigfússon, tenór; Kristinn Hallsson, baryton og
Sigurður Björnsson, tenór.
Við hljóðfærið: Guðrún Kristinsdóftir, Ólafur Vignir Albertsson
og Ragnar Björnsson.
Aðgöngumiðar í bókabúðum Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2
og Vesturveri.
KARLAKÓRim FÚSTBRÆÐUR
' Meistarasamband bygg-
Ingamanna á alaSfimi