Þjóðviljinn - 26.04.1966, Page 1

Þjóðviljinn - 26.04.1966, Page 1
V\\VV\\\\\VVVVVVV'VVVVVVVVVVVV\'V'nv\VV\\'VVV\\V'V\\\\VVl»\\V\W\\\\\V\VVVVVV\\VWVXV''VV\WW\V\'V'WV\WWWWWWVVVWVWVVVWVVWVWVWWWWVVWVWWV\V Þriðjudagur 26. apríl 1966 — 31. árgangur — 91. tölublað. Orðsending irá Kvenfélagi sósíalista Eins og á undanfömum ár- um hefur Kvenfélag sósíal ista kaffisölu og efnir til kvöldvöku í Tjarnargötu 20 1. maí til ágóða fyrir Caro- línusjóð. Þær félagskonun og aðrir velunnarar félagsins. sem vilj,a gefa kökur eru vin- samlega beðnar að hafa sam- band við eftirtaldar konur: Margrétj Ottósdóttur. • Ný- lendugötu 13, sími 17808. Halldóru Kristjánsdóttur, Rauðalæk 57, sími 33586 Ei- ínu Guðmundsdóttur sími 15259, Valgerði Gísladóttur, Rauðalæk 24, símj 11995. Sig- ríði Þóroddsdóttur sími 36518, Sigríði Ólafsdóttur sími 40799, Agnesi Magnúsdóttur, sími 32274 Margréti Ámadóttuir, sími 16340 vwwwwwwwwvwvwvvvvwwvvwvvw HVER BORGAR BRÚSANN? ★ Borgarstjórinn í Reykja- vík, Geir Hallgrímsson, efnir um þessar mund- ir til mi'killa fundahalda í hinum ýmsu hverfum borgarinnar til þess að ræða málefni borgarinn- ar við íbúa þeirra, að því er Morgunblaðið og Vísir hafa tjáð okkur með stóru letri. Var fyrsti fundurinn haldinn í samkomuhúsinu Lídó sl. sunnudag en alls eiga fundimir að verða 6 og verða allir' haldnir í stærstu samkomuhúsum borgarinnar. ★ Fundir þessir eru að sjálfsögðu einn liðurinn í áróðri Sjálfstæðisflokks- ins fyrir borgarstjómar- kosningarnar í næsta mánuði, enda hef- ur borgarstjórinn að meðreiðarsveinum á fundina nokkra af efstu mönnunum á lista Sjálf- stæðisflokksins sem flytja ávörp á fundunum. ★ í Morgunblaðinu og Vísi hefur það rækilega ver- ið auglýst að það sé borgarstjórinn, Geir Hall- grímsson, sem haldi fundina. Hins vegar hafa þessi ágætu blöð gleymt með öllu að segja hver borgar kostnaðinn við þessi fundahöld. Er það borgarstjóri sjálfur? Hann er a.m.k. sagður halda fundina. Er það Sjálfstæðisflokkurinn? Til áróðurs fyrir hann eru fundirnir þó haldn- ir. Eða er það e.t.v. borgarsjóður, þ.e. kjós- endur sjálfir, þar sgm það er borgarstjórinn sem heldur fundina? ★ Það væri fróðlegt að fá svar við þeirri spurn- ingu: Hver borgar brús- ann? ^/VVWVWVVWVVWVWVAWVVVVVVVVVVVWVVVV Einar Kristjánsson látinn- Einar Kristjánsson óperu- söngvari" lézt í sjúkrahúsi í Reykjavík j fyrradag, 55 ára að a’dri. Hann veiktist snögglega fyrir helgina og var fluttur i sjúkrahús. þar sem hann gekk undir mikla skurðaðgerð Einar var fæddur i Reykjavík 24. nóvember 1910. Stúdentsprófj lauk hann vorið 1930, sjgldi þá um haustjð til Vinarborgar og var þar við söngnám næstu misserin en síðan við ópern- skóla Ríkisóperunnar í Dresden j Þýzkalandi Hann var ráðinn' söngvarj við áðurnefnda óperu að söngnámi loknu. og starfaði síðan við ríkisóperurnar 1 Stutt- gart, Berlín. Múnchen, Dússel- dorf og Hamborg. og konung- lega leikhúsið 'í Stokibhólmi á árunum 1933—1947 Við kon- unglega leikhúsið í Kaupmanna- höfn starfaði hann frá 1948 tjl 1962. er hann kom heim og gerðist kennarí við óperudeild Tónlistarskólans i Reykjavík. Ríkisstjérnin og þinglið hennar hefur EKKIUMBOB FRÁ ÞJÓBIHNITIL AB 6ERA ALÚMlNSAMNINCANA ■ „Algert lágmark pólitísks siðgæðis teljum við, þing-! menn Alþýðubandalagsins, það vera að alúmínsamningarn-i ir verði borriir undir kjósendur í landinu við þjóðarat- kvæðagreiðslu“, sagði Björn Jónsson er hapn lauk langri og rökfastri ræðu um alúmínsamningana á laugardag, við 1. umræðu málsins í efri deild Alþingis. ■ „Hér er um slíka grundvallarstefnubreytingu á mörgum sviðum að ræða að ekki er verjandi fyrir nokkra ríkisstjórn eða tæpan þingmeirihluta að láta hana koma til framkvæmda án þess að þjóðin öll fái að láta vilja sinn í ljós, né heldur að binda hendur hennar og réttra stjómarvalda hennar í hálfa öld fram í tímann þeim marg- víslegu og vanhugsuðu skuldbindingum sem samningur- inn sjálfur hefur að geyma. Til slíks hefur hvorki ríkis- stjórnin né þinglið hennar nokkurt umboð frá þ'jóðinni“. f lok ræðu sinnar sagði Björn Jónsson m.a.: Ég tel þá stefnubreytingu sem samþykkt frumvarpsins myndi boða, algert meginatriði þessa máls; meginatriði sem hlyti að ráða afstöðunni til þess jafnvel þótt um einhverja stundarhags- muni væri að ræða, sem ég þó álít ekki vera til að dreifa. Þessa stefnubreytingu í at- vinnumálum og viðskiptum við erlent fjármagn sem felur það í sér að hleypa erlendu fjár- magni í stórum stíl inn í land- ið til beinnar þátttöku í at- vinhurekstri í landinú og leyfir því síðan hömlulausan flutning þess arðs sem íslenzkt vinnuafl skapar újr íslenzkum auðlinplum Alúmínmálið var tekið til 1. umræðu í efri deild Alþingis síðdegis á laugardag, en fyrr um daginn hafði farið fram at- kvæðagreiðsla um málið við 3. umræðu í fyrri deildinni, neðri deild, og var frá henni sagt í sunnudagsblaðinu. í efri deild fylgdi Jóhann Hafstcin dómsmálaráðherra mál- inu úr hlaði, en næstur talaði Björo Jónsson og stóð ræða hans röskan hálfan annan klukku- tíma. Tók Björn ítarlega til með- ferðar helztu atriðin varðandi samningsgerðina og hætturnar af þeirri ráðstöfun að veita samningnum lagagildi. Verður síðar skýrt frá helztu köflunum í þessari gagnmerku ræðu. Björn Jónsson burt úr landinu, teljum við Al- þýðubandalagsmenn hættulega og vörum við afleiðingum hennar. ★ Við teljum það óhæfu að er- Iendúm auðhring séu veitt marg- vísleg forréttindi umfram Is- lcndinga sjálfa o.g íslenzkan at- vinnurekstur. Við vörum við þeim áhrifum sem samningar þessir hafa á efnahagslífið og vinnumarkaðinn í landinu. Við teljum þennan samning á flesta grein óhagstæðan og að því er cinstök samningsákvæði snertir beint vansæmandi fyrir íslendinga. Við teljum hann engan vanda leysa en Iíklegan til að skapa margvíslega erfið- leika og vandkvæði, auk hættu- legra fordæma. Þess vegna bcri Alþingi að fclla hann. 1. umræðu um ailúmínmálið í efri deild lauk um kl 11,30 í gærkvöld og var sambykkt með 10 atkvæðum gegn 7 að visa málinu til 2. umræðu — Nánar verður sagt frá umræðunum í næsta blaði. Dssgsbrun segir upp sumn- ingum frá og með 7. júní Lagarfoss náðist át / gær KI. 3.46 í gær náðist Lag- arfoss á flot aftur, en skipið strandaði um kl. 1 sl. laugar- dagsnótt við Nidingen á vestur- strönd Svíþjóðar. Mun björgun- arskip hafa dregið Lagarfoss á flot eftir að 80 tonnum af brcnnsluolíu hafði verið dælt úr skipinu yfir í olíupramma og um 150 tonnum af farmi skipað yfir í önnur skip til að létta skipið. Sigurlaugur Þorkelsson blaða- fulltrúi Eimskipafélagsins skýrði Þjóðviljanum svo frá síðdegis í gær að Lagarfoss myndi sigla beint til Gautaborgar þar sem kannaðar yrðu skemmdirnar á skipinu og gert við þær. Er enn ekki vitað til fulls hve miklar þær eru. J Krefst breyttrar stefnu í verðlags- og dýrtíðarmáium | ! * i Fundur var haldinn í Verkamanna- félaginu Dagsbrún sunnudaginn 24. þ.m. Var þar einróma samþykkt að segja upp samningum félagsing við atvinnu- rekendur frá og með 1. júní n.k. Einnig var á fundinum samþykkt einróma eft- irfarandi ályktun: „Fundur í Verkamannafélaginu Dags- brún, haldinn 24. apríl 1966, mótmælir harðlega þeim verðhækkunum, sem nú hafa orðið á brýnustu lífsnauðsvnjum almennings vegna ráðstafana ríkis- stjórnarinnar/ Fundurinn mótmælir þessum verðhækkunum því fremur sem þær koma í kjölfar mikilla hækkana, sem orðið hafa á vörum og þjónustu, frá þvi er almennir kjarasamningar voru síðast gerðir þrátt fyrir bein og óbein fyrirheit um, að þeir yrðu ekki notaðir sem átylla til verðhækkana. Þessi þróun magnar stöðugt verðbólg- una, sem vitandi vits er notuð til að færa til f jármuni í þjóðfélaginu verka- fólki í óhag og raskar sífellt öllum kj arasamningum. Fundurinn mótmælir þessari stefnu -í verðlags- og dýrtíðar- málum og krefst aðgerða til að stöðva hana, meðal annars með stórauknu verðlagseftirliti, er tryggi, að kjara- bætur verkafólks séu ekki notaðar sem skálkaskjól fyrir nýjum verðhækkun- um“. Lokið samningu tíu ára framkvæmdaáætlunar fyrir Kópavogskaupstað □ Framkvæmdaáætlun Kópavogs 1966 til 1975 var lögð fram í bæjarstjórn kaupstaðarins sl. föstudag en að henni hefur verið unnið sl. fjögur ár. Er þetta fyrsta slík áætl- un, sem bæjarfélag hér á landi lætur gera. f málefnasamn- ingi núverandi bæjarstjórnarmeirihluta í Kópavogi, sem félag óháðra kjósenda og Framsóknarmenn gerðu með sér úm stjórn kaupstaðarins eftir kosningarnar 1962 var á- kveðið að vinna þetta verk og var málið fyrst rætt á fundi í bæjarráði 10. jújí 1962. í nóvember sama ár flutti svo Bjarni Bragi Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til- lögu í bæ'jarstjórn um áætlunargerð fyrir bæinn og var þar með fengin samstaða í bæjarstjórninni um málið og framkvæmd þess. I árslok 1962 fól bæjarráð Hjálmari Ölafssyni bæjarstjóra um heimilað að kveðja sér til aðstoðar sérfræðinga eftir þörf- að hafa forgöngu um framkvæmd um. Þá þegar höfðu tveir starfs- áætlunargerðarinnar og var hon-1 menn Hagstofunnar, Hrólfur Ás- valdsson og Jón Erlingur Þor- láksson, safnað allmiklum gögn- ujn fyrir bæjarráð til undirbún- ings verkinu.og fékk bæjarstjóri þá til þess að taka sæti í nefnd ásamt Bjarna Braga Jónssyni til þess að vinna að áætlunargerð- inni. Vegna anna nefndarmanna við önnur störf og sökum skorts á verkfræðilegri undirbúningsvinnu hjá bænum dróst samning fram- kvæmdaáætlunarinnar allmjög á langinn. Bæjarráð ákvað þvf í fyrra sumar að ráða Guðmund Ágústsson hagfræðing til þess að vinna að gerð áætlunarinnar íafnframt bví að Ölafur Jensson bæjarverkfræðjngur tók að sér að gera áætlun um endurbyggingu gatna- og holræsakerfis kaupstað- arins sem er einn liður heild- aráætlunarinnar. Var gatnagerð- aráætlunin lögð fyrir bæjarstjórn í janúar sl. en heildaráætlunin nú sl. föstudag. 1 formála fyrir framkvæmda- áætluninni sem hefur verið gef- in út í bókarformi, segir m.a. að tilgangurinn með samningu henn- ar sé að auðvelda stjórnendum bæjarins störf sín og bæjarbúum virkari þátttöku í bæjarmálum með því að veita þeim yfirsýn yfir þróun bæjarins tiltekið ára- bil, en eins og áður segir nær áætlunin yfir 10 ára tíma. Meginkaflar áætlunarinnar eru 5 og nefnist hinn fyrsti Spá um íbúafjölda bæjarins. Er í þeim kafla gerð áætlun um vöxt bæj- arins næsta áratug og er fram- kvæmdaþörf bæjarins síðan hyggð á, þeirri spá um fólks- fjölgunina að verulegu leyti. Þar sem erfitt er að reikna út fólks- fjölgun i bænum svo langt fram Framhaíd á 3. síðu. Sósíalistafélagsfundur ■ Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur félagsfund í kvöld kl. 8.30 í Tjarnargötu 20. Til umræðu: 1. maí. — Félagsmál. — Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.