Þjóðviljinn - 26.04.1966, Blaðsíða 10
m
I
\
!
!
i
Sovézkur hagfræðingur flytur erindi í kvöld
Um aukið hlutverk ágóða og aðrar
breytingar í sovézku efnahagslífi
□ Hingað er kominn sovézkur hagfræðingur, dr.
Alexandr Antsjískín, sérfróður um áætlanagerð. Átti
hann fund með blaðamönnum í gær og var margs
spurður um aukið hlutverk ágóðans í sovézku efna-
hagslífi, um vöruverð og verðbólgu, samkeppni fyrir-
tækja,- ávirðingar Krúsjofs, afdrif þeirra manna sem
ekki kunna að stjórna fyrirtækjum í Sovét og margt
fleira.
□ Antsjískín heldur erindi og svarar fyrirspurnum
í kvöld kl. 8.30 í MÍR-salnum Þingholtsstræti 27 og er
öllum heimill aðgangur. Erindið er þýtt á íslenzku, og
að því loknu sýnd stutt kvikmynd.
Antsjískín hefur margt
starfað að áætlanagerð Qg rit-
að þa*- um bækur; bann hef-
ur og um ársj,skeið unnjð sem
ráðunautur vfð áætlaniagerð á
Kúbu. Hingað er hann kom-
inn til að veita hverjum sem
áhuga hefur á beinar
upplýsingar um ný viðhorf og
breytingar á sovézku efna-
hagskerfi. Auik fyrirlestrar á
vegum MÍR mun hann ræða
við nokkra hagfræðinga og
forystumenn í atvinnulífi.
Ágóði
I
!
Fyrst af öllu var Antsjískín
að sjálfsögðu spurður um
hiutverk ágóðans í Sovétríkj-
unum, en um bað mál hafa
margir spáð í kaffikorg að
undanfömu og sumir jafnvel
spurt hvort hér færi ekki
auðvaldsskipulagið endurfætt.
Antsjískín neitaði að á-
góði hefði allt i einu verið
„uppgötvaður‘‘ í Sovét, —
hann. hefði alltaf verið bÝð-
ingarmikill mælikvarðj á
starfsemi fyrirtækja, en við
þá endurskipulagningu, sem
nú gerðist, aukist hlutverk
hans að miklum mun. Mun
æ meira af hagnaðinum verða
eftir í fyrirtækjunum sjálf-
um. Þar slkiptist hann í tvo
sjóði: framleiðslusjóð sem
varið er til endurbóta og
framleiðsluaukningar og
launauppbótasjóð sem kemur
i hlut sitarfsfólksins. Annað-
hvort i beinurn launauppbót-
um ofan á kauptryggingu eða
þá í félagslegum framkvæmd-
um í þágu starfsfólksins t.d.
byggingu barnaheimila o.þl.
Þiannig verða lífskjör
manna miklu háðari en áður
hagnaði af rekstri fyrirtækja
þeirra sem þeir vinna við.
Og um leið skal hagnaði beitt
beinlínis til að örfa fyrirtæki
og starfsfólk þeirra til að
framleiða betri vöru. >
Hagnaður fyrirtækja. sagði
Antsjískín, verður háður
fyrst og fremst tvennu: við-
tökum neytenda, hvernig var-
an selst, o.g svo framileiðslu-
kostnaði hennar. Vilji neyt-
endur ekki vöruna munu
verzlanir að sjálfsögðu ekki
panta hjá því fyrirtæki sem
hana framleiðir — hagmaður
þess minnkar og þar með
laun starfsmanna þess. Viður-
kenndi hagfræðingurinn, að
fram til skamms tíma hefði
í Sovétríkjunum verið löigð
alltof einhliða áherzla á fram-
leiðslumiagn en gæðin setið
á .hafcanum. Þannjjr væru til
að myndia framleiddir árlega
200 þús. rennibekkir og aðr-
ar vélar til „kaldrar" málm-
vinnslu. Það væri miklu
meira en í Bandaríkjunum,
en gæðin væru líka þrisvar'
sinnum lafcari. Þyrftu Sovét-
menn alls ekki að auka fram-
leiðslu sína á þessu sviði,
heldur aðein-s bæta hana.
Antsjískín
Verðlag
Spurt var hvort það fyrir-
tæki sem framleiddi betri
vöru en önnur gæti noitað eft-
irspumina til að hækka verð-
ið á framleiðslu sinni
Antsjískín kvað svo ekki
vera — verðlag væri sett inn
í áætlanir ríkisins. En það
væri ákveðið með tilliti til
gæða Og svo værj líklegra
að verð á slæmri vöru væri
lækfcað. en verð á góðri vöru
hækkað — því ekki ætti neyt-
endum að blæða fyrir mis-
munandi gæði vörunnar, held-
ur þeim sem byggju til slæma
vöru.
Mikið var, spurt um það,
hvort áætlanagerð ríkisins
hefði ekki alltof miikil af-
skiptj.af því, hvað hver verk-
smiðja framleiddi. Antsjískín
sagði að af -hundruðum þús-
unda vörutegiunda, væru að-
eins ,,lykilvörur“ þæ- þýð-
Ingarmestu teknar inn á
heildaráætlanir; helztu hrá-
efni, raforka meiriháttar vél-
ar, bílar, íbúðiarhús svo og
helztu matvörur. En að öðru
leyti hefðu fyrirtæki talsvert
svigrúm — og nytu þá einn-
ig rannsókna á markaðsþörf
á hvérju svæði. Til'g'angu,r
hinna efnahagslegu umbóta
væri einmitt sá að efla í senn
sjálfstæði fyrirtækja og treysta
vísindaleigan grundvöll áætl-
anagerða.
Spurt var hvort sovézk fyr-
irtæki gætu orðið gjaldþrota.
Hagfræðingurinn sagði að svo
hefði ekki verið — Því mið-
ur, að því er honum fannst.
því rífcið hefði að lokum
hlaupið undir bagga jafnan.
Of óft væri reynt að hressa
upp á léleg fyrirtæki með því
einfalda ráði að reka for-
stjórann. Sé ekki um
persónubundnar ástæður að
ræða er skipuð opinber rann-
sóknarnefnd sem gerir tillög-
ur um það, hvemig má bæta
hag viðkomandi fyrirtækis —
stundum væri þeim hreinlega
lokað.
Stóri bróðir
Einn blaðamanna spurði,
hvort ríki í Austur-Evrópu,
sem Sovétríkin ..ættu íiök í“
myndu nú ekki fylgja stóra
bróður og gera svipaðar end-
urbætur hjá sér. Antsjískín
kvað hér um misskilnine að
ræða — t.d. hefðu Austur-
Þjóðverjar og Tékkiar gert
svipaðar umbætur á hagstjórn
sinnj áður en Sovétmenn. og
sovézkir sérfræðingar margt
sótt til kollega sinna þar.
Spurt var, hvort hin nýja
fimm ára áætlun Sovétríkj-
anna væri ekki miklu hóg-
værari og raunsýnni en áætl-
anir Krústjofs, t.d. á sviði
landbúnaðar. . Hagfræðingur-
inn sagði, að víst hefðu verið
gefin mörg óraunhæf lcforð
um landbúnaðarframleiðslu.
og taldj hann að Krústjof
hefði verið réttilega gagn-
rýndur fyrir ýmsar yfirsjón-
ir, einkum þá að taka ekki
nægilega tillit til álits sér-
fræðinga og vísindamannia —
þannig hefði hann til að
mynda beitt sér fyrir maís-
rækt í nágrenni við Moskvu.
En hin nýja áætlun væri
að allra álitj mjög naunsæ,
enda sprottin af. samstarfi
beztu sérfræðinga á sviði hag-
vísinda.
I
!
í
\
\
ASl mun ekki eiga þátt í
nýrri sex manna nefnd
■ Við 1. umræðu frumvarpsins um framleiðsluráð land-
búnaðarins, í neðri deild Alþingis í gær, lýsti forseti Al-
þýðusambandsins Hannibal Valdintarsson yfir því að Al-
þýðusambandið hefði ekki óskað eftir fulltrúa í hina nýju
fyrirhuguðu sex manna nefnd og myndi ekki skipa í hana
fulltrúa þó frumvarpið yrði gert að lögum með þeirri
heimild. Taldi hann það fyrirkomulag að stilla verkalýðs-
hreyfingunni upp sem viðsemjendum bænda um verðlagn-
ingu landbúnaðarafurða með öllu óhæft, og mælti fyrir
því að bændasamtökin fengju fullan samningsrétt við eðli-
legan aðila sem hann taldi að væri ríkisstjórnin.
Við 2. umræðu máls þessa í
efri deild flutti Björn Jónsson
eftirfarandi frávísunártillögu:
„I trausti þess að ríkisstjórn-
in undirbúi fyrir næsta reglulegt
Alþingi, í samráði við samtök
bænda, lagafrumvarp, cr tryggi
bændastéttinni fullan samnings
rétt gagnvart ríkisvaldinu um
kaup og kjör sín og án nokkurra
gerðardóms ákvæða, — og leiti
samninga við framleiðsluráð
landbúnaðarins. og Stéttarsam-
band bænda um verðlagningu
landbúnaðarvara, þar til Alþingi
hefur fjallgð um nýja löggjöf,
tekur dcildin fyrir næsta mál á
dagskrá".
Þessi rökstudda dagskrá var
felld og málinu skilað á skömm-
um tíma gegnum allar umræður
í efri deild af þingmönnum
stjórnarflokkanna og Framsókn-
ar.
★
í nefndarálitf Björns Jónsson-
ar er lýst helztu breytingunum
sem frumvarpið felur í sér og
afstaða hans skýrð. Þar segir
m.a.:
„Meginefni frv. er það að
breyta svo gildandi löggjöf um
verðlagningu búvöru, að hið svo-
nefnda „sexmannanefndar-fyrir-
komulag“ verði virkt. enda þótt
einhverjir þeir aðilar, sem sam-
kvæmt því eiga að ákveða verð-
lag landbúnaðarafurða, tilnefni
ekki fulltrúa í nefndina. Komi
þá til tilnefning af hálfu land-
búnaðarráðherra, ef framleiðend-
ur nota ekki tilnefningarrétt sinn,
en tilnefning af hálfu félags-
málaráðherra, ef neytendur ekki
tilnefna sína fulltrúa. Aðrar
breytingar eru minni háttar.
★
Tilefni þessara breytinga er
það, að hið fyrra sexmanna-
nefndarkerfi hrundi til grunna á
sl. sumri, er miðstjóm Alþýðu-
sambands íslands sá sép ekki
lengur fært að tilnefna fulltrúa
í nefndina og sagði upp aðild
sinni að kerfi þessu. Leiddi þetta
svo til útgáfu brbl. um verð-
lagningu búvöru á sl. hausti.
Ástæður fyrir ákvörðun AÍ-
þýðusambandsins um að segja
upp aðild sinni að starfi sex-
mannanefndar voru þær helztar:
1) Að hinar stöðugu hækkanir
á búvöruverði væru að mestu
afleiðing af verðbólgustefnu
stjórnarvalda og að á þá þróun
mála gæti sexmannanefndin eng-
in áhrif haft.
2) Að fleira yröi að koma til
en verðlagning búvöru, ef leysa
ætti brýnustu vandamál bænda-
stéttarinnar og þá ekki sízt
smærri bænda.
3) Að ógerlegt væri fyrir full-
trúa neytenda að bera ábyrgð á
söluverði landbúnaðarvara, nema
rannsakaður væri rækilega sá
stórfelldi munur, sem orðinn er
á söluverði landbúnaðarvara og
því verði, sem bændur fá fyrir
framleiðsluna“.
★
Telur Bjöm „að þessi rök mið-
stjórnar A.S.I. og önnur, sem
fram voru færð fyrir aðgerðum
þess á sl. sumri, séu fullgild og
að hvorki bændastéttinni né
verkalýðsstéttinni hefði verið
greiði gerður með því að halda
áfram starfsemi sexmannanefnd-
ar. Á hinn bóginn er þó - aug-
ljóst, að ný frambúðarskipan
þessara mála varð að koma til
í stað hins hrunda kerfis. Frá
sjónarmiði verkalýðssamtakanna,
sem sjálf búa við fullan samn-
ingsrétt um laun og kjör, er
s‘ú skipan eðlileg og raunar sjálf-
sögð, að bændastéttin njóti sama
réttar, eftir því sem við á. Kraf-
an um fullan samningsrétt hefur
og verið uppi hjá bændasamtök-
unum. Þannig fól aukafundur
Stéttarsambands bænda, er hald-
inn var 14. og 15. des sl., full-
trúum sínum í sjö mann nefnd
ríkisstjórnarinnar að „athuga
jöfnum höndum möguleika á
samningum um verðiagsmálin við
fulltrúa frá ríkisstjóminni ser \
og fulltrúa frá öðrum aðilum". Og
enn fremur lagði . fundurinn á-
herzlu á það, „að við væntan-
legar breytingar á löggjöfinni ....
verði bændum tryggður að fullu
samningsréttur um kjör sín“.
★
Það kann að geta virzt álita-
mál, hver mótaðili bændastétt-
Framhald á 3. síðu.
J. Newman fyrsti
skemmtikraftur á
Hótel Loftleiðum
■ Aðfaranótt laugardags-
ins 30. apríl kemur hingað
til lands bandaríski trompett-
leikarinn Joe Newman ásamt
kvartett og söngkonunni
Sandie Brown. Verða þau
fyrstu skemmtikraftar Hótel
Loftleiða, sem opnað verður
með mikilli viðhöfn sunnu-
daginn 1. maí.
Friðrik Theódórsson, sölustjóri
nýja hótelsins' sagði í gær á
fundi með blaðamönnum að flug-
vélar Loftleiða færu nú 14 ferð-
ir í viku frá Bandaríkjunum til
Evrópu með viðkomu í Reykja-
vík.
Yrði þvi tekin upp sú leið að
reyna að fá skemmtikrafta sem
eru á þessari leið til þess að
hafa hér viðkomu og skemmta
gestum á Hótel Loftleiðum.
Eins og fyrr segir urðu fyrst
fyrir valinu Joe Newman, þekkt-
ur jazzleikari, og hljómsveit, en
í henni eru bassa- trommu- og
píanóleikari.
Unga stúlkan látin
Unga stúlkan, Sigríður Kol-
brún Ragnarsdóttir, Stórholti 12
í Reykjavík sem slasaðist lífs-
hættulega £ umferðarslysinu í
Vestmannaeyjum aðfaranótt sl.
föstudags, er nú látin í sjúkra-
húsi hér í Reykjavík. Áður höfðu
tveir piltar úr Vestmannaeyjum,
17 og 18 ára að aldri, látizt
af afleiðingum slyssins. Sigríð-
ur var 15 ára að aldri.
„Freyfaxi"
til landsins
Enn er eitt nýtt skip í eigu
Islendinga komið til landsins,
Freyfaxi, flutningaskip Sements-
verksmiðju ríkisins. Stjóm og
forstjóri verksmiðjunnar hefur
boðið allmörgum gestum til Akra-
ness í dag, að skoða skipið.
Jazzleikarinn Joe Newman.
Söngkonan Sandie Brown, hef-
ur m.a. sungið með Sammy Davis
jr., Teddy Wilson, Clark Terry,
í sjónvarpsþáttum Ed Sullivans
og Jerry Lewis og á Copa-Copana
í New York. Virðist hún kunna
sitt fag, syngur jafnt jazz, rock’n
roll og lög úr söngleikjum.
Joe Newman og hljómsveit
hans skemmta á Hótel Loftleið-
um í eina viku, í fyrsta skipti
að kvöldi 1. maí. Þau munu
koma nokkrum sinnum fram yf-
ir kvöldið með hálftíma dagskrá
í einu og verður ekki dansað á
meðan.
Hljómsveit Karls Lilliendahls
ásamt söngkonunni Hjórdísi
Geirsdóttur verður hljómsveit
hússins framvegis, en hún hefur
undanfarið komið fram í Klúbbn-
um.
Nánar verður sagt frá opnun
Hótel Loftleiða í Þjóðviljanum
síðar.
FRÁ KOSNÍNCASTJÓRN
ALÞ ÝÐUBANDALA CSINS
★ Kosningaskrifstofa Aiþýðu-
bandalagsins er í Tjarnargötu
20 Opin alla virka daga kl.
10—12 f.h., 1—7 e.h. og 8—10
e. h. Símar 17512 og 17511.
Fleiri kosningaskrifstofur
yerða auglýstar síðar.
★ Allir stuðningsmenn Al-
þýðubandalagsins, sem vita
um einhverja kjósendur okk-
ar, er ekki verða heiitia á kjör-
dag eru beðnir að gefa kosn-
ingaskrifstotfunni slíkar upp-
lýsingar strax.
i
★ I Reykjavík fer utankjör-
fundarkosning fram í gamla
Búnaðarfélagshúsinu við
Lækjargötu, opið kl. 10—12
f. h., 2—6 og 8—10 e.h. alla
virka daga, en á helgidögum
kl. 2—6. Utan Reykjavíkur fer
kosning fram hjá bæjarfó-
getum og hreppstjórum um
land allt. Erlendis geta menn
kosið hjá sendirá’öum Islands
og hjá ræðismönnum sem tala
íslenzku.
★ Þjóðviljinn mun á morgun
og næstu daga birta skrá yfir
þá lista,- sem Alþýðubanda-
lagið ber fram og styður í
hinum ýmsu bæjar- og sveit-
arfélögum.
★ Sjálfboðaliðar til starfa á
kjördag og fyrir kjördag eru
einnig beðnir að láta skrá sig
nú þegar á kosningaskrifstof-
unni.
%
J
9