Þjóðviljinn - 26.04.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA —. ÞJÓÐVILJINN — Þriffjudagur 26. apríl 1966
J
Flugbjörgunar-
sveitin fær styrk
Fjársöfnun nokkurra Hafnfirðinga
4ff/r '<■ r«r MggttMt 'V"-'
wmm
i&'
■ 1 - V-” •* *
« «(*.»»» Wáft
íi*
Stjórn FBS vildi biðja blaðið
um að færa þakkir til þeirra
sem stóðu að fjársöfnun handa
FBS í Hafnarfirði og Keflavík
og fer hér á eftir .bréf, sem
fylgdi gjöfinni:
Flugbjörgunarsveitin Reykja-
vík, C/o Magnús Þórarinsson,
gjaldkeri.
Eins og fjölmargir aðrir Is-
lendingar höfum við hjónin
undanfarin ár fylgzt með því
fómfúsa starfi sem Flugbjörg-
unarsveitin hefur unnið með
starfi sínu í sambandi við slys-
farir og björgun hér á landi.
Það hefur vakið athygli hve
ötullega þið hafið unnið við að
þjálfa meðlimina sem bezt og
búa sveitina góðum tækjum,
þar á meðal talstöðvum, þrátt
fyrir þröngan fjárhag og annir
meðlimanna.
Vildum við því reyna aðlétta
ykkur róðurinn með því að
safna nokkurri fjárhæð sem
nota mætti til tækjakaupa og
leituðum því til vina og kunn-
ingja með söfn-unarlista sem
gaf velunnurum FJugbjörgunar-
sveitarinnar tækifæri til að
sýna hug sinn með smáum fjár- i
framlögum sem rynnu til sveit- |
arinnar.
Það er mjög takmarkað
hversu . tvær manneskjur geta !
afkastað í frístundum sínum, en '
þó viljum við hér með afhenda
yður árangur þessarar söfnun- .
ar kr. 31.200,00, sem gefin hefur
verið af 184 einstaklingum og j
fyrirtækjum, að mestu leyti í |
Hafnarfirði og á Keflavíkur- '
flugvelli.
Það er ósk gefenda að þér
fyrir hönd Flugbjörgunarsveit- ;
arinnar, veitið þessari upphæð
viðtöku, sem vott um þakklæti
og viðurkenningu á vel unnum
störfum undanfarið og meðósk i
um heillaríkt starf á komandi |
árum.
I
Hafnarfirði 17. apríl 1966.
VirðingaVfyllst, N.N., N.N.
F.h.
Flugbjörgunar-
sveitarinnar,
Sig. M. Þorsteinsson, form.,
Magnús Þórarinsson, gjaldk.
Stórhættulegur húsgrunnur
Hald-
bezta lausnin
í tvo áratugi hefur Fram-
sóknarflokkurinn iðkað þá list
að hafa tvær gagnstæðar skoð-
anir á hverju máli. Þegar
Keflavíkursamningurinn var
borinn upp á Alþingi Islend-
inga var þingflokknum skipt
í tvo hluta og greiddi annar
atkvæði með eri hinn á móti.
Þetta þótti þvílíkt snjallræði
að það hefur síðan verið gert
að almennri reglu, ekki aðfins
á Alþingi heldur og á öllum
stöðum þar sem Framsóknar-
flokkurinn lætur til sín taka:
í bæjarstjórnum og hrepps-
nófndum; í Varðbergi og
Samtökum hernámsandstæð-
inga; á síðum Tímans — það
hefur meira að segja komið
fyrir að blaðið hefur birt tvær
forustugreinar sama daginn
gagnstæðrar merkingar. Nú
síðast hefur flokkurinn skipt
sér í afstöðunni til alúmín-
málsins, og þarf það raunar
ekki að koma neinum á ó-
vart — einn af kunnustu leið-
togum flokksins, Steingrímur
Hermannsson, sem sumir telja
væntanlegt foi’mannsefni, hef-
ur frá upphafi verið einn á-
kafasti stuðningsmaður stjórn-
arvaldanna.
Þeir sem vilja að Fram-
sóknarflokkurinn hafi einhver
áhrif á þjóðmál hafa að von-
um áhyggjur af þessari þróun.
Ýmsir áhugasamir Framsókn-
armenn eru nú til áð mynda
að komast á þá skoðun að
tveir borgarfulltrúar í Reykja-
vík séu líklegir til þess að
vega hvor annan upp með
gagnstæðum skoðunum, og
því sé betra að hafa einn full-
trúa. Þetta er mjög skiljanleg
afstaða, en þó er þessi lausn
engan veginn einhlít. Nýlega
iðkuðu fulltrúar Framsóknar-
flokksins í utanríkismála-
nefnd Alþingis til dæmis þá
list að sitja hjá við afgreiðslu
máls í nefndinni en fylgja
stjómarflokkunum þegar mál-
ið kom tilkasta þingsins sjálfs. ’
Eins gæti einn borgarfulltrúi
leikið sér að því að skipta í
sífellu um skoðanir milli funda.
Haldbezta lausnin er sú að
eiga engan fulltrúa; þeir
Framsóknarmenn hljóta að
vera sælastir sem lifa í von-
inni, án þess að þurfa að
leggja drauma sína undir
harðan dóm veruleikans.
Mann-
dýrkun
Sú var tíð að það þótti
ljóður á ráði stjórnarvalda
austantjalds hversu mjög þau
voru gefin fyrir manndýrkun.
En þegar sá háttur er aflagð-
ur í Austurvegi bregður svo
undarlega við að hann er haf-
inn til nýrrar virðingar á Vest-
urlöndum. í kosningum víða
um lönd er leiðtogadýrkun
orðin ein helzta baráttuaðferð-
in; í Bandaríkjunum er allt
látið snúast um Johnson; í
seinustu þingkosningum í Bret-
landi snerist allt um Wil-
son; og í borgarstjórnarkosn-
ingunum hér ætlar Sjálfstæð-
isflokkurinn að láta allt snú-
ast um Geir. Nú er það ekki
Sjálfstæðisflokkurinn sem boð-
ar til funda heldur „Geir Hall-
grímsson borgarstjóri“ og i
auglýsingu Morgunblaðsins um
fundina var myndin af Geir
jafnvel enn flatarmálsfrekari
í samanburði við minni postul-
ana en fom bílæti af Stalín
í samjöfnuði við aðra dauð-
lega menn. Og á fundum
þessum talar auðvitað leiðtog-
inn einn; aðrir verða að láta
sér nægja að vera ávarps-
flytjendur, fyrirspyrjendur,
fundarstjórar og fundarritar-
ar, svo að hin gullvæga speki
fari ekki forgörðum.
Megum við ekki væntaþess
að senn fari að rísa mynda-
styttur af „Geir Haligrímssyni
borgarstjóra" í yfimáttúr-
legri líkamsstærð á sjö hæð-
um Reykjavíkur? — Austri.
f heilt ár hefur húsgrunnur
við Vorsabæ 8—10 í Árbæj-
arhverfj valdið mæðrum í ná-
grenninu áhyggjum. Þarna
er djúp tjörn, sem krakkarn-
ir sækja mikið í og var lítiH
strákur dreginn upp úr henni
nýl^ga, holdvotur upp að
hálsi.
Barnmargar fjölskyldur eru
í húsunum í kring; sex barna
fjölskylda býr t d j húsinu á
móti. Hefur sá háttur verið
hafður á að Mnda öll yngstu
börnin, en þau sem leika
lausum hala vilja eðlilega
Ieíka sér í tjörninni og búa
gjaman til fleka úr timbrinu
sem þarna er á víð og dreif.
Forsetaráð Sambands evr-
ópskra r%thöfunda, COMES,
kom saman til fundar í París
16. marz, undir forsæti Gui-
seppe Ungaretti, til að fjalla
um þau vandamál, sem hafa
risið af máli Sovétrithöfund-
anna Sinjavskí og Daníels.
Meirihluti forsetaráðsins lítur
svo á, og lýsir yfir þeirri skoð-
un sinni að forsendurnar fyrir
dóminum yfir þessum tveim
rithöfundum brjóti í bága við
þann anda sem frá upphafi
hafi mótað starf og athafnir
COMES og harmar ennfremur
að forsvarsmenn Sovétdeildar
COMES skuli ekki hafa gert
þær ráðstafanir sem hægt var,
né haft samráð við COMES,
svo sem var skylda þeirra. Engu
að síður treystir Forsetaráðið
enn á vinsamleg samskipti og
samvinnu við rithöfunda í hin-
um ýmsu löndum sem eru í
sambandinu og telur að óhjá-
Húsmóðir ein. sem býr við
Vorsabæ sagði Þjóðviljanum
að margoft hefði verið kvart-
að yfir þessu ástandi til iög-
reglunnar, en tveir lögreglu-
þjónar ættu húsgrunninn og
þýddi ekkert að minnast á
málið. Væru svörin hiá lög-
reglunni eitthvað á þá Ieið að
yfir stæðu málaferli um hús-
grunninn oK þvi ekkert hægt
að aðhafast.
Þegar Þjóðviljamenn heim-
sóttu staðinn, á dögunum var
vatnið í grunninum frosið, en
nærri má geta hvort hér er
ekki um manndrápstjörn að
ræða. þegar þiðnar. —
(Ljósm. Þjóðv. A. K.)
kvæmilegt sé, að mál Sinjavskí
og Daníels verði endurskoðað
sem fyrst og rithöfundarnir
verði náðaðir. Loks hefur verið
ákveðið að aðalritari COMES,
Giancarlo Vigorelli, fari til
Moskvu til að kynna sovézk-
um yfirvöldum þessar ákvarð-
anir forsetaráðsins og kanna
hvort enn séu forsendur fyrir
að halda áfram samskiptum.
Tilkynningin er undirrituð af
Guiseppe Ungaretti (Italíu), for-
seta, J. Luis Aranguren (Spáni),
Halldóri Laxness Nóbelsverð-
launahöfundi (Islandi) John
Lehman, (Engl.) J. P. Sartre,
(Frakkl.) varafors. og Giancarlo
Vigorelli (Italíu) aðalritari.
Einn af varaforsetum COM-
ES er Halldór Laxness, og Thor
Vilhjálmsson á sæti í stjómar-
nefnd COMES.
(Frá lslandsdeild Sambands
evrópskra rithöfunda, COMES)
Dreng/uskyrtur
Köflóttar flúnelsskyrtur, stærð 4—12.
Verð frá kr. 59—87.
R. Ó. búðin
Skaftahlíð 28. — Sími 34925.
COMES f/ul/ur um dómunu
yfír sovézku rithöfundum
Kjörskrárstofn
Kjörskrárstofn til sveitastjórnarkosninga 26. júní
1966 liggur frammi almenningi til- sýnis hjá odd-
vita sveitarstjórnar Klöpp. Vogum, alla virka daga
frá 26. þ.m. til 24. maí.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til undirrit-
aðs eigi síðar en 5. júní n.k.
Vogum 24. apríl 1966.
Oddviti Vatnsleysustrandarhrepps.
Aðstoðarmatráðskona óskast
Staða aðstoðarmatráðskonu við Gæzluvistarheimilið
í Gunnarsholti, Rangárvöllum, er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspít-
alanna, Klapparstíg 29, fyrir 6. maí n.k.
Reykjavík, 23. apríl 1966.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Skrifstofustúlka
með góða menntun og vélritunarkunnáttu verður
ráðin við opinbera tæknistofnup frá 15. maí n.k.
Umsóknir sendist í pósthólf 155 fyrir 5. maí n.k.
merktar „S.B.“.
/
/
Ahaldasmiður
Staða áhaldasmiðs í áhaldadeild Veðurstofu fs-
lands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launa-
kerfi ríkisins. Allar nánari upplýsingar í áhalda-
deild Veðurstofunnar, Sjómannaskólanum, Reykja-
vík. — Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf skulu hafa borizt Veður-
stofunni fyrir 15. maí n.k.
Kópavogsbúar
Höfum opnað útibú að Kársnesbraut 49, (þar sem
áður var Efnalaug Kópavogs).
Kemisk fatahreinsun og pressun. — Önnumst
einnig allskonar fataviðgerðir.
Fljót og góð þjónusta.
Efnalaug Austurbæjar
Skipholti 1 — Kársnesbraut 49.
Sími 16346.
Eftirlitsmaður
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins óskar eftir að
ráða starfsmann til þess að hafa eftirlit með notk-
un rotvarnarefna í verksmiðjum.
Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi þekkingu í
efnafræði og næringar'fræði. Háskólapróf æskilegt.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, sendist Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, Skiilagötu 4, Reykjavík, fyrir 5. mai n.k.
Ennfremur óskar stofnunin eftir að ráða aðstoðar-
mann við ofangreint starf.
Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi ríkis-
ins.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.