Þjóðviljinn - 11.05.1966, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 11. maí 1966.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
Kynslóöin sem var svo „skrít-
in og sérvitur“ að eiga hug-
sjónir, og þá helzta að skila
eftirkomendunum betra Islandi
en hún tók við, skapa hér feg-
urra og réttlátara mannlíf, og
stofnaði félög og flokka til að
vinna fyrir þær hugsjónir, kyn-
slóðin sem lifði endurheimt
sjálfstæðis árið 1918, þúsund
ára afmæli Alþingis — elztu
löggjafarsamkomu heims — ár-
ið 1930 og endurstofnun lýð-
veldis árið 1944, sú kynslóð
er nú sem óðast að týna töl-
unni. Við tekur kynslóðin sem
við sérvitringarnir höfum kom-
ið á legg, bezt alda og hávaxn-
asta íslenzka kynslóðin, — og
ber nú mest á þeim hluta henn-
ar er sæll nýtur fjölmötunar-
tækja, biður að gefa s£r Barra-
bas erlends hermannasjónvarps
lausan og leikur á fiðlu mamm-
ons meðan íslenzk þjóðmenning
brennur. Sá hiuti er þó síður
en svo öll æska íslands, — en
áður langt líður kemur þar, ef
svo heldur fram sem horfir, að
enginn man lengur það ísland
sem var, áður en það varð atað
erlendum her.
Einn hinna nýhorfnu úr fylk-
ingu þessarar kynslóðar er
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, er
lézt 4. þ.m.
Fæddur var Vilhjálmur á
Eyrarbakka 4. okt. 1904 en flutt-
ist ungur maður til Reykjavík-
ur og útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum 1925.
Haustið 1922 var stofnað i
Reykjavík Félag ungra komm-
únista. Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son var einn fremsti maður við
stofnun þess og fyrsti ritani
þess. Eigi var ég í þeim félags-
. skap og viðdvöl mín í F.U.J.
varð það skammæ, að eigihöfð-
um við samskipti þar. Þó ná
kynni mín af Vilhjálmi S. Vil-
hjálmssyni allt aftur til þess
tíma að Alþýðublaðið var lítið
en þó töluvert lesið blað í fá-
tæklegum skúr í grjóthrúgu á
horninu þar sem verkalýðsfé-
lögin byggðu síðar stórhýsið
Hverfisgötu 8—10. Það er mjög
ánægjulegt að geta nú minnzt
þess gunnreifa unga baráttu-
manns sem Vilhjálmur S. Vil-
hjálmsson var þá.
Þróun mála varð þannig að
um alllangt skeið lágu leiðir
okkar Vilhjálms lítt saman, en
eftir 1940 jukust kynni okkar
aftur sem stéttarbræðra, blaða-
manna tveggja stríðandi flokka,
flokka sem þó voru vaxnir af
sömu rót. Vilhjálmur var ekki
aðeins eldri að árum heldur
miklu eldri í því starfi. Hann
hafði nú verið blaðamaður í
40 ár, því 1. jan. 1926 gerðist
hann blaðamaður við Eyjablað-
ið sem kommúnistar gáfu þá út
í Vestmannaeyjum. Síðar sama
ár gerðist hann blaðamaður hjá
Alþýðubla'ðinu í Reykjavík og
var það æ síðan, og „hafði. . .
meira skrifað og starfað fyrir
Alþýðublaðið, meira barizt fyrir
því og málstað þess en nokkur
annar“, skrifaði ritstjóri Al-
þýðublaðsins er hann skýrði frá
láti Vilhjálms.
Að sjálfsögðu áttum við Vil-
hjálmur sitthvað saman að
sælda í daglegri blaðamennsku,
en ástæðulaust væri að viðra á
síðum blaða endurminningar
um þau samskipti, sem per-
sónulega voru alltaf mjög vin-
samleg og ánægjuleg. Þótt
flokkar okkar deildu löngum
mjög harkalega áttum við Vil-
hjálmur það sameiginlegt að
telja okkur báða málsvara hins
almenna manns, alþýðunnar, og
m. ö
Kastaðu út 25 milj. kr. lífakkerinu, Gísli. Fleytan er of hlaffin.
Slít
á blýöntum
Islendingar hafa löngum
haft mikinn áhuga á stjórn-
málum; hér hefur verið minna
um það en i flestum löndum
öðrum að mennsitji heima eða
skili auðu í kosningum, og
sú verður vafalaust einnig
raunin um aðra helgi. Engu
að siður er nú hætt við því
að býsna margir Islendingar
eyðileggi atkvæði sín jafn
gersamlega og ef þeir sætu
heima eða skiluðu auðu, enda
þótt þeir setjj kross á kjör-
seðilinn; þetta eru þeir sem
kunna að greiða Framsóknar-
flokknum atkvæði.
Því aðeins er mark takandi
á kosningaúrslitum að hægt
sé að túlka þau sem stuðn-
ing við einhverja stefnu, en
Framsóknarflokkurinn er
stefnulaus í öllum málum.
Hafa fulltrúar flokksins náð
þvílíkri fullkomnun að undan-
förnu í hringdansi stefnu-
leysisins að með ólíkindumer.
Þeir hafa skipt sér í hverju
einasta- stórmáli; þeir voru
bæði með og móti alúmín-
samningum og kísilgúrfram-
kvæmdum. Þeir eru ýmist
með eða móti hernámsfram-
kvæmdum. Þegar fjallað var
um málefni Atlanzhafsbanda-
lágsins á Alþingi, skiptu þeir
um skoðun á leiðinni af
nefndarfundi á þingfund. Þeg-
ar tekin var ákvörðun í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar um
Straumsvíkursamning tókst
eina bæjarfulltrúa Framsókn-
arflokksins að greiða atkvæði
með, móti og sitja hjá við
eina og sömu atkvæðagreiðslu.
Þegar f jallað var um aðild að
Vinnuveitendasambandinu í
stjórn Landsvirkjunar, var
fulltrúi Framsóknarflokksins
fyrst meðmæltur aðild, síðan
sathann hjá, og nú hefur ver-
ið tilkynnt formlega í Tíman-
um að hann ætli að greiða at-
kvæði á móti á næsta fundi.
Þeir sem grejða Framsókn-
arfiokknum atkvæði dæma sig
úr lejk; þeir næðu nákvæm-
ieiga sama árangrj með því að
sitja heima. Þátttaka þeirra í
kosningum er aðeins tjlgangs-
laust slit á biýöntum.
; I
sameiningarhug ?
Alþýðuflokkurinn íslenzki
telur sig hafa unnið mikinn
sígur — á Italíu. Sigurinn á
að vera í því fólginn aðhinn
aldurhnigni sósíalistaleiðtogi
Fietro Nenni mætti á alþjóða-
þingj sósíaldemókrata, enda er
hann að sameina hluta af
flokki sínum sósíaldemókrata-
flokki Italíu. En í hverju er
sigur íslenzka Alþýðuflokksins
fólginn? Aldrei hefur hann
talið Nenni sinn mann, heldur
lagt áherzlu á að hann hafi
verið stalínískari en Stalín
sjálfur. Þegar sósíaldemó-
kratafilokkur ítalíu samejn-
ast sósíalistaflokki Nennis er
sá fyrrnefndi að taka stórt
spor til vinstri. Hliðstæður at-
burður hér á landi væri til
dæmis sameining Alþýðu-
flokksins og Sósíalistaflokks-
ins. Ber að skilja fögnuð AI-
þýðublaðsins út af Italíu svo
að leiðtogar Alþýðuflokksins
íslenzka hafi nú loks breytt
um afstöðu til þess vandamáls
sem hefur klofið flokk þeirra
æ ofan í æ í nær þrjá ára-
tugi?
Til
umhugsunar
Fyrir nokkru birtu blöðin
orðsendingu frá lögreglunní 1
Reykjavík og Slysavarnafélag-
inu, þar sem menn'voru hvatt-
ir til ag forða börnum frá
bílslysum. 1 þessari þörfu
orðsendingu var m.a. komizt
svo að orði: „Biðjum við
hvern einstakan að sýna þá
þegnskyldu, að hafa afskipti
af börnum og koma því til
leiðar á allan hátt, að þau
verði fjarlægð af götunni.
Sérstaklega viljum við beina
þeirri ósk til foreldra og um-
ráðamanna barna, að halda
börnum frá akbrautinni cgsjá
þeim fyrir leiksvæði fjarri
umferð“.
Foreldrar og umráðamenn
barna eru beðnir að „sjá
þeim fyrir leiksvæði". Naum-
ast er hægt að hugsa sér
beinskeyttari gagnrýni ✓ en
þessa stilliiegu og raunsæju
lýsingu á. ástandinu í Reykja-
vík á því herrans kosninga-
ári 1966. — Austri.
áttum sameiginlega þá hugsjón
að íslenzk alþýða bæri sem
fyrst gæfu til þess að samein-
ast um að byggja upp þjóðfélag
jafnréttis og bræðalags, stærri
og fegurri menningu. Það var
góð sameign, — hún var það
band sem aldrei slitnaði milli
okkar, þótt sitthvað bæri á
milli. Þá minningu ber hæst
að leiðarlokum.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson
hlaut góðar gáfur í vöggugjöf
— en bæklaðan líkama. Enginn
okkar sem hlotið höfum heilan
skrokk veit raunverulega neitt
um hver byrði slíkt er. Og
enginn veit hve miklu sú byrði
hefur ráðið um örlög Viihjálms
S. Vilhjálmssonar. Blaðamennska
var hér fyrr á árum ekkert
sport né ævintýri á rósum
heldur linnulaus þrældómur, og
því mun margur hafa undrazt
það úthald sem Vilhjálmur
hafði á því starfi; það úthald
var enn ein sönnun þess að
innri glóff skilar hinum veik-
burða þar yfir sem margur
beljakinn strandar.
Vera kánn að ýmsum er
þessar línur lesa sé ekki kunn-
ugt að á yngri árum hafi Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson verið
í hópi hinná, róttækustu manna
og einhver kann að segja að
lítt hafi þess stundum séð merki
hin síðari ár, en má ég þá
minna ykkur á orðin gamal-
kunnu: Sá ykkar sem syndlaus
er kasti fyrsta steininum.
Það kann að þykja undar-
legt en kynni okkar V.S.V., en
þannig var hann oftast nefndur
í kunningjahópi, urðu mest eft-
ir að hann hætti vöktum í
ritstjórninni, fór að vinna
heima og gat gefið sig meira
að öðrum hugðarefnum. Hve
hart sem blöð okkar bárust á
banaspjót áttum við fulla sam-
leið i einu: áhuganum á ævi-
kjörum, starfi og sögu alþýð-
unnar „sem byggði þessa borg“
upp úr hálfdönsku þorpi. Á
þeim vettvangi vann Vilhjálm-
ur mjög þarft og gott starf,
sitt bezta verk. Á þessum síð-
ustu árum skrifaði hann ævi-
sögur fjögurra alþýðumanna
(ber mér að þakka þann þátt
er hann jók þar í breiðfirzka
sögu) og a.m.k. 6 bækur með
styttri frásögnum manna um
ævikjör sín og aldarfar. Jafn-
framt sá hann um ritstjórn
tveggja binda verks með slíkum
frásögnum, er bar heitið „Fólk-
ið í landinu“. Þessar bækur
Vilhjálms S. Vilhjálmssonar
vaxa að gildi því lengra sem
liður frá því tímabili sem
við lifum nú. Auk þeirra skrif-
að hann fjögurra binda skáld-
sagnabálk, barnabók og smá-
sagnabók.
□ #
Hafðu þökk fyrir allar góðu
stundirnar í sámskiptum okkar,
gamli félagi. Hvað sem kann
að verða sungið á síðustu
kveðjustundinni mun ég þá
minnast liðins tíma, sjá fyrir
mér glampa í heitum augum
bæklaðs manns undir rauðum
fána og heyra óm af:
Sjá roðann í austri, hann
brýtur sér braut.
Fram bræður! Það dagar
nú senn!
JJB.
Sölubörn
Sölubörn
MERKJASALA
Slysaval*nardeildarinnar INGÓLFS
er í dag, miðvikudaginn 11. maí — Lokadag —
Merkin eru afgreidd til sölubarna frá kl. 9,00 í
dag á eftirtöldum stöðum:
Mýrarhúsaskóla
Háskólabíói
Í.R.-húsinu, Túngötu
Skátaheimilinu, Snorrabr.
Axelsbúð, Barmahlíð
Hlíðaskóla, Hamrahlíð
Biðskýlinu, Háaleiti
Langholtsskóla
Breiðagerðisskóla
Verzl. Straumnes, Nesv'.
Slysavarnahúsinu,
Grandagarði
Hafnarbúðum
Vörubílastöðinni Þrótti
Vogaskóla
Réttarholtsskóla
Laugalækjarskóla
Álftamýrarskóla
10 prósent sölulaun — Söluverðlaun — 10 sölu-
hæstu börnin fá að verðlaunum þyrluferð yfir
borgina, og auk þess 30 söluhæstu börnin sjóferð
með björgunarskipinu Sæbjörgu.
Foreldrar, hvet'jið börnin til að selja merki.
IEDURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKHR
fyrir herra
fyrir drengi
Verð frá kr. 1690,00
[jASON
VIDGERDIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLASONAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678,
Leðurjakkar — Sjóliðajakkar
á stúlkur og drengi. — Terylenebuxur, stretch-
buxur. gallabuxur og peysur.
GÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ.
Verzlunin Ó.L.
% v
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsiíiu)'.
/ FJARVERU
Jóhönnu Hrafnfjörð yfirljósmóður, fæðingarheim-
ilinu í Kópavogi, mun ég gegna störfum á meðan.
Hermína Gísladóttir.
Auglýsing
Staða forsföðumanns (studierektor) við Lýðháskóla
Norðurlanda (Nordens folkliga akademi) í Kung-
alv er laus til umsóknar. Stofnuninni er ætlað að
halda námskeið fyrir kenna'ra og forustumenn á
sviði alþýðufræðslu, og er nauðsynlegt, að forstöðu-
maðurinn hafi aúk góðrar undirstöðumenntunar
haft náin kynni af slíkri fræðslustarfsemi á Norð-
urlöndum. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt
frá 1. júní 1967, og er þá miðað við, að stofnunin
taki til starfa haustið 1967.
Umsóknir skulu stílaðar til Styrelsen för Nordens
folkliga akademi og sendar til Ecklesiastikdeparte-
mentet, Stockholm 2, eigi síðar en 31. maí 1966.
Nánari upplýsingar eru veittar í menntamálaráðu-
neytinu, St’jómarráðshúsinu við Lækjartorg.
*