Þjóðviljinn - 11.05.1966, Side 8
V
g SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Miðvikudagur 11. maí 1966.
Sumardvöl barna
Sjómannadagsráð rekur sumardvalarheimili fyrir
böm í héimavistarskólanum að Laugalandi í Holt-
um á tímabilinu frá 15. júní til 25. ágúst.
Aðeins fyrir böm á aldrinum 4—7 ára.
Gjald fyrir bömin kr. 700,00 á viku. — Skriflegar
umsóknir skulu berast skrifstofu Sjómannadags-
ráðs að Aðalstræti 6 (DAS) fyrir 20. maí n.k.
Þau sjómannsbörn munu njóta forgangsréttar sem
misst hafa föður eða móður eða búa við sérstak-
ar heimilisástæður. Nókkur slík böm munu fá ó-
keypis dvöl og skal sækja um það sérstaklega
og geta um viðkomandi stéttarfélag.
Hélmingur gjalds skal greiðast við brottför barna,
en afgangur fyrir 15. júlí.
Þær umsóknir sem ekki verður svarað fyrir 30.
maí verða ekki teknar til greina.
Nánari upplýsingar á skrifstofu ráðsins kl. 9—11
á þriðjudögum og fimmtrudögum, sími 24530.
Stjómin.
Hjúkrunarkonur óskast
Hjúkrunarkonur vantar að hinum ýmsu deildum
Landspítalans. Laun samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Hjúkrunarkonum, er ráða sig að Landspítalanum,
er gefinn kostur á bamagæzlu fyrir böm á aldrin-
um 2—6 ára. Nánari upplýsingar veitir forstöðu-
kona Landspítalans í síma 24160 og á staðnum.
Réykjavík, 9. maí 1966 • * -
Skrifstofa ríídsspitalanna.
LÆKNIR
(konsulent) óskast
í Kleppsspítalanum er laus staða fyrir lækni
(konsulent) við rannsóknarstofu spítalans. Vinnu-
tími nokkrar klst. á viku. Laun samkvæmt samn-
ingi. Nánari upplýsingar veita yfirlæknar spítal-
ans.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjómamefnd ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, fyrir 12. júní n.k.
Reykjavík, 9. maí 1966
Skrifstofa ríkisspítalanna.
TilKynning
um iðnaðargjald:
»
Samkvæmt lögum nr. 64 21. maí 1965 um rannsókn-
ir í þágu atvinnuveganna og reglugerð frá 29. apríl
1966, skulu iðnfyrirtæki, verksmiðjur og verk-
stæði greiða sérstakt gjald — iðnaðargjald — til
Rannsóknarstofnunar iðnaðarins, og skal gjald
þetta nema 2%o — tveimur af þúsundi — af út-
borguðu kaupi hvers slíks fyrirtækis til verkafólks
og fagmanna, sbr. 1. og 2. gr. reglugerðarinnar.
Um undanþágur frá g’jaldinu vísast til 3. gr. reglu-
gerðarinnar.
Skattstjórum er falið að leggja á umrætt gjald.
Við álagningu iðnaðargjalds árið 1966, skal reikna
það af launum fyrir störf, sem unnin voru eftir
30. júní 1965.
Hér með er skorað á alla gjaldskylda áðila, að
senda til viðkomandi skattstjóra, greinargerð um
greiðslu launa á síðari árshelmingi 1965, þar sem
sundurliðað sé annarsvegar gjaldskyld laun og
hinsvegar gjaldfrjáls laun.
Framangreind greinargerð þarf að berast skatt-
stjóra þess umdæmis, þar sem gjaldskyldur aðili
er heimilisfastur,' fyrir 26. maí. n.k., að öðrum
kosti verður iðnaðargjaldið áætlað.
Iðnaðarmálaráðuneytið,
9. maí 1966.
heyrt
Bragi hefur selt 20 myndir
• Stórgjöf til
Sundlaugarsjóðs
Skálatúnsheimilis
• Ein af kvennastúkum Odd-
fellowreglunnar á íslandi —
Rebekkustúkan Nr. 4, Sigríður
— hefur fært Sundlaugarsjóði
Skálatúnsheimilisins eitt hundr-
að þúsund krónur, sem verja
á til byggingar sundlaugarinn-
ar þar á staðnum. Stjóm Sund-
laugansjóðsins þakkar af alhug
Rebekkustúkan Nr. 4. Sigriður
þessa stórhöfðinglegu gjöf.
• Trúlofun
• Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Sigríður Lár-
usdóttir teiknari, Skúlagötu 60
og Milan C. Bulat Cleveland,
Ohio, USA. '
• Fyrirlestur um
málaralist í USA
• Næsta kynningarkvöld í Am-
eríska bókasafninu, Bænda-
höllinni, verður í kvöld.
Frank Ponzi listfræðingur
flytur fyrirlestur um nútíma
málaralist í Bandaríkjunum,
þar sem listalíf er nú með
miklum blóma og margar nýj-
ungar hafa komið fram að
undanfömu. Ræðir Ponzi fyrst
um óhlutlægan expressíónisma
á fimmta tuá aldarinnar, rekur
stefnu og þróun síðan og lýkur
með þvi að ræða um ,,pop“ og
„op“ list, sem nú er efst á
baugi í þessum efnum. Mun
mörgum þykja fyrirlesturinn
• Agæt aðsókn hefur verið að málverkasýningu Braga Ásgeirs-
sonar í ListamannaskáJahum en hún var opnuð sl. laugardag.
Hafa 20 myndir þegar selzt og vekja upphleyptu málverkin á sýn-
ingunni mesta athyglí. Sýningin er opin daglega kl. 2—10 e.h.
en henni lýkur n.k. sunnudagskvöld. Myndin er af Braga við eitt
málvcrkanna á sýningunni, sem hann kallar „Minningu‘‘. (Ljósm.
Þjóðv. A.K.).
forvitnilegur, en til skýringar
sýnir Ponzi skuggamyndir af
verkum eftir menn eins og
Pollack, de Kooning, Kline,
Rauschenberg. Rosenquist, Old-
enburg, Albers, Anuskiewicz og
Poons.
öllum er heimill aðgangur að
kynningarkvöldinu, sem hefst
kl, 8.45.
13.00 Við vinnuna.
15.00 Miðdegisútvarp. Guðm.
Guðjónsson syngur. Bamberg-
hljómsveitin leikur SÍavnéska
rapsódíu op. 45 nr. 3 eftir
Dvorák; F. Lehmann stjóm-
ar. Norski sólistakórinn syng-
ur fjögur lög. Félagar í Vín-
ar-oktettinum leika Diverti-
mento í B-dúr (K 287) eftir
Mozart. J. Laredo leikur
Fiðlusónötu í A-dúr eftir Vi-
valdi og Aríu á g-streng eft-
ir Bach.
16.30 Síðdegisútvarp. A. Babg
H. Logés, hljómsveit Wall-
d'orffs, Cómedian kviartettinn,
New World Theatre hljóm-
sveitin. F. Chacksfield, The
Stargazers o.fl. leika.
18.00 Tony Romano og harmon-
ikuhljómsveit Charles Magn-
ante leika.
20.00 Daglegt mál.
20.05 Efst á baugi.
20.35 Raddir lækna. Ragtiar
Karlsson talar um svéfn og
svefntruflanir.
21.00 Lög unga fólksins. Gérð-
ur Guðmundsdóttir kynnir.
22.15 Mynd í spegli, saga eftir
Þóri Bergsson. Finnborg Örh-
ólfsdóttir og Amar Jónssón
lesa (2).
22.35 Kammertónleikar: a)
ewenguth-kvartettinn leikur
tvö verk: Strengjakvartétt
nr. 5 eftir Vachon og
Strengjakvartett op. 7 nr. 5
eftir D'Alayrac. b) Enskir
hljóðfæraleikarar leika Tríó-
sónötu í g-moll eftir Purcéll,
undir forustu Y. Menuhins.
23.15 Dagskrárlok.
Lo-
Myndin er tekin á því sögulega augnabliki, þegar Spasskí lék fyrsta leik í einvígi sínu við Petro-
sjan um heimsm eistaTatitiIinn.
Níunda og tíunda skák einvígisíns. (
Petrosjan eykur forskotið
NlUNDA SKÁK:
Fram að áttunda leik gekk
allt í þessari skák eins og í
þeirri þriðju, nema hvað Spasskí
lék 8. Bd3 eftir uppskipti á
miðju borði. Upp kom staða
með einangruðu miðpeði hvíts,
en fátt markvert gerðist síðan.
1 þrettánda leik bauðheims-
meistarinn upp á kaup á svart-
reitarbiskupnum. Líklegt má
telja, að hvítur hafi ekki átt
að hafná því tilboði, því að
fram hefðu getað komið nokkr-
ir jdirburðir hins virka riddara
hans fram yfir biskup svarts.
sem lítið gat færzt úr stað.
Svo ga?ti virzt sem Petrosjan
hefði með fjórtánda leik sín-
um veikt talsvert kóngsstöðuna.
en nú fær svartur nokkra fram-
rásarmöguleika á kóngsarmi.
Var nú gripið til ýmissa
herbragða. Hvitur hélt frum-
kvæði sínu, en lék heldurdauf-
legan tuttugasta leik. Það hefði
mátt athuga 20. Bf4 eða 20. h4
— með því móti hefði verið
hægt að halda frumkvæði.
Þegar mannaskipti héldu síð-
an áfram og staðan varð æ
einfaldari, stakk Petrosjan upp
á jafntefli — sem var sam-
bykkt.
Hvítt SPASSKI,
Svart PETROSJAN.
Caro-Cann vörn:
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd cxd
4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6, Rf3 Be7
7. cxd Rxd5 8. Bd3 Rc6 9. 0-0
0-0 10. Hel Bf6 11. Be4 Rce7
12. Dc2 g6 13. Bh6 Bg7 14. Bg5
f6 15. Bd2 Bd7 16. Db3 Bc6
17. Bxd5 cxd 18. Re4 Hf7 19.
Rc5 Rf5 20. h3 Bf8 21. Re6
Dd7 22. Rxf8 Hfxf8 23. Bb4
Hfe8 24. Hxe8f Hxe8 25. Hel
Hxelt 26. Bxel. Jafntcfli
TÍUNDA SKÁK:
I tíundu skák var leikin
fomindversk vöm. Með því að
velja byrjun sem leiðir til flók-
innar herfræðilegrar baráttu
lagði Spasskí áherzlu á að hann
var í víguhug.
Þegar staðan á miðborði var
komin í öruggt horf, tók Spasski
að láta til sín taka á fylkingar-
örmum. Verið getur að Pétrósj-
an hefði átt að leika 14. Bb2
þar eð sú leið sem hann valdi
gaf svörtum ástæðu til bjart-
sýni. 1 fimmtánda Jeik kom
Spasskí miðpeði sínu nokkuð
áleiðis og eftir að báðir svart-
reitarbiskuparnir féllu kom
hann riddara sínum fyrir á
þýðingarmiklum stað á miðju
borði.
Nítjándi leikur svarts varð
til þess að skerpa mjög and-
stæður. Til greina gat komið
20. — Hxf4 til að svara 21.
Hxf4 með 21. — Dg5f, én
Spasskí kaus að leika 20. — Bh3.
Þessi ákvörðun reyndist röng.
Má vera að Spasskí hafi haldið
að hann væri að herða sókn-
ina, en heimsmeistarinn gát
svarað 21. — Hxf4 með 22. Hxf4
Dg5f 23. Hg4!' Rxg4 24. Ílxg4
Bxg4 25. Bxg4 Dxg4f 26. Khl,
cg þá verður illgjörlegt að verj-
ast árás hvíts fyrir sakir hætt-
unnar á 27, Hgl. s
Þessvegna hefði Spasskí átt
að fallast á þann skiptamun sem
boðinn var í 21. leik. Hvitur
gerði sína menn virkari, fóm-
aði aftur skiptamun í 24. leik
og safnaði óveðursskýjum að
höfði kóngi .andstæðingsins.
Heimsmeistarinn fylgdi árás
sinni Jistavel eftir og sigraði,
Eftir þessa skák hefur Pet-
rosjan sex vinninga en Spasski
fjóra.
Hvítt: PETROSJAN,
Svart: SPASSKl.
Fornindversk vörn.
1. Rf3 Rf6 2. g3 g6 3. c4 Bg7
4. Bg2 0-0 5. 0-0 Rc6 6. Rc3
d6 7. d4 a6 8. d5 Ra5 9. Rd2
c5 10. Dc2 e5 11. b3 Rg4 12.
e4 f5 13. exf gxf 14. Rdl b5
15. f3 e4 16. Bb2 cxf 17. Bxf3
Bxb2 18. Dxb2 Re5 19. Be2 f4
20. gxf Bh3 21. Re3 Bxfl 22.
Hxfl Rg6 23. Bg4 Rxf4 24.
Hxf4 Hxf4 25. Bc6t Hf7 26.
Re4 Dh4 27. Rxd6 Dg5t 28. Khl
Hf8 29. Bxf7t Hxf7 30. Dh8t
Svartur gafst upp.
A. Súetín, stórmeistari. '