Þjóðviljinn - 12.05.1966, Síða 2

Þjóðviljinn - 12.05.1966, Síða 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 12. maí 1966. Vinnuskóli Reykjavíkur Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa um mánaðamótin maí-júní og starfar til mán- aðamóta ágúst-september. í skólann verða teknir unglingar, sem hér segir: Drengir 13-15 ára incl., o'g stúlkur 14—15 ára incl., miðað við 15. júlí n.k. Einnig geta sótt um skólavist drengir, sem verða 13 ára og stúlkur, sem vérða 14 ára fyrir n.k. áramót. — Umsækjendur á þeim aldri verða þó því aðeins teknir í skólann, að nemendafjöldi og aðrar ástæður leyfi. — Umsóknareyðublöð fást í Ráðningar- stofu Reykjavíkurborgar Hafnarbúðum við Tryggvagötu, og sé umsóknum skilað þang- að fyrir 22. maí n.k. Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 1. ársfjórðung 1966, svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síð- asta lagi fyrir 15. þ.m. Dráttarvextirnir eru V/2% fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga, sem var 15. apríl s.l. Eru því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16. þ.m. Hefst þá án frekari fyrirvara stöðvun atvinnu- rekstrar þeirra, sem eigi hafa skilað gjöldunum fyrir lokun skrifstofunnar laugardaginn 14. þ.m. Tollstjóraskrifstofan, Arnarhvoli. /OGT Bazarinn og kaffisalan verður n.k. sunnudag 15. þ.m. Tekið verður á móti munum á föstudag kl. 3—6 e.h. i GT-húsinu. Þær félag^konur sem ætla að gefa kökur, komi þeim í GT-húsið kl. 10—12 á sunnudag. Bazamefndin. Frá heilsuverndarstöð Kópavogs Frá og með mánudeginum 16. maí n.k. verður ung- bamaskoðun sem hér segir: Mánudaga kl. 9—11 f.h. fyrir börn úr Vesturbæ. Þriðjudaga kl. 9—11 f.h. fyrir börn úr Austurbæ. Föstudaga kl. 14—15 e.h. fyrir böm eins árs og eldri, úr báðum bæjarhlutum. Héraðslæknir. Blaðadreifing Blaðburðarfólk óskast strax til að bera blaðið til kaupenda við Kvisthaga - Laufásveg - Hverfisgötu efri. ÞJÓÐVILJINN sími 17500. Ritst/órar þrigg/a b/aða í Peking játa á sig mistök PEKING 9/5 Þrjú blöð sem kínverski kommúnistaflokkurinn gefur út í Peking játuðu í dag að þau hefðu gert sig sek um mistök og lofuðu bót og betr- un. „Alþýðudagblaöið" í Peking birti í dag sameiginlega yfirlýs- irigu ritstjóma blaðanna þrjggja, auk þess „Kvöldblaðsins“ og „Víglínunnar". Blöðin höfðu í gær verið gagnrýnd í blaðinu „Kvangming" sem sagt er mál- gagn menntamanna fyrir að hafa birt greinar ” eftir fyrrverandi framkvæmdastjóra „Alþýðublaðs- ins“, Teng To, en Teng var sagð- ur hafa „sungið sama sönginn og Krústjof“. I yfirlýsingunni sem „Alþýðu- dagblaðið“ birti í dag er viður- kennt réttmæti þessarar ásökun- j ar og endurprentaðar greinar úr öðrum blöðum um þetta mál. I grein í málgagni kínverska hers- ins er komizt svo að orði að enginn munur sé á „andflokks- legri starfsemi“ Teng Tos og á- rásum og móðgunum Krústjofs í garð Kína. SÝNING Á MYNDUM EFTIR SKÓLABÖRN S.l. mánudag, 2. maí var opn- uð í Ameríska bókasafninu, Hagatorgi, sýning á um 30 myndum eftir barnaskólabörn, hér og í Bandaríkjunum. Sýning þessi er haldin á veg- um Rauða kross Islands í sam- vinnu við Ameríska Rauða krossinn og er liður á því al- þjóðasamstarfi á vegum sam- takanna, sem fyrst og fremst er ætlað að vera í þágu yngstu borgaranna. Myndir eftir ís- lenzk skólabörn eru þannig sendar á Vegum Rauða Kross íslands til ýmissa landa. Islenzku myndirnar á sýn- ingunni í Ameríska bókasafn- inu eru eftir nemendur í ýms- um skólum, en annars er það sameiginlegt einkenni þeirra mynda og hinna amerísku, að efni höfundanna er mjög fjöl- breytilegt, og ber vott um mik- ið hugarflug, athyglisgáfu og litagleði. Einnig eru myndirnar unnar með ýmissi tækni, allt frá collage til vaxlita. Sýningin verður opin 10—14 daglega og verður opin sem hér segir: Mánudaga, miðviku- daga og föstudaga kl. 12—21, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12—18 og laugardaga og sunnu- daga kl. 13—19. (Frá R.K.I.) Imynd Sjálfstæðisfloícksins Á ýmsum stöðum í bænum eru ruslakassar festir utan á ljósastaura til þess að auð- velda borgurunum þokkalega umgengni. Þessir ruslakassar hafa nú verið hafnir til nýrr- ar vegsemdar í borgarlífinu og gerðir að ímynd Sjálfstæð- isflokksiris með myndum, á- letrunum og áskorunum. A einni myndinni utan á sorp- íláti má til að mynda sjá hönd sem stingur kjörseðli í kassa,. og er tekið skýrt fram að á kjörseðlinum standi XD; mun þó naumast ætlunin að halda .því að borgarbúum að þvílíkir kjorseðlar séu rusl og óþrifnaður og dugi aðeins sem efniviður í Skama. Eflaust er það Þórir Kr. Þórðarson prófessor, sá guð- fróði borgarfulltrúi, sem á hugmyndina að þessum tákn- ræna áróðri. Hann hefur haft í huga hinn sigursæla.borgar- stjórnarmeirihluta í Jerúsal- em er líktist kölkuðum gröf- um, sem að utan lítajagurlega út en eru að innan fullar af hvers konar óhreinindum. Fullt samræmi Framsóknarflokkurinn lætur sér tíðrætt um verðhækkan- ir um þessar mundir fram- bjóðendur flokksins hafa um þær stór orð og Tíminn út- málar þær með útreikningum og línuritum. Er vissulega af nægu að ta;ka á því sviði og naumast unnt að ofsegja í þeim umræðum. En á sama tíma og þessi málflutningur er réttilega hafður uppi opinberlega situr fulltrúi Framsóknarflokksins í verðlagsnefnd og tekur á- kvarðanir í kyrrþey. Þangað koma umsóknir frá kaup- sýslumönnum um endalausar hækkanir á vöruverðí, rýmri verðlagsákvæði eða algert frjálsræði í álagningu. Og_ það er ekkert hik á fulltrúa Framsóknarflokksins. Hann hefur fylgt hverri einustu hækkunartillögu sem fram hefur verið borin árum sam- an og ekki látið þar við sitja, heldur flutt sjálfur tillögur um verðhækkanir sem ekki hafa náð fram að ganga. Eina gagnrýnin sem hann hefur borið fram í verki á verð- bólgustefnu ríkisstjórnarinnap er sú að ekki sé nóg að gert. Finnist mönnum þetta ó- venjulegt ósamræmi milli orða og gerða er það sprottið af misskilningi. Þannig hegðar Framsóknarflokkurinn sér í öllum málum. Ekki ólíklegt Framsóknarflokkurinn seg- ist um þessar mundir vera málsvari launafólks. Þegar kjaradeilurnar stóðu á síðasta ári hegðaði flokkurinn sér þó á annan veg. Hann undirbjó kjaradeilurnar með því að láta Mjólkurbú Flóamanna og Mjólkursamsöluna ganga í Vinnuveitendasamband Is- lands. Vinnumálasamband samvinnufélaganna hegðaði sér síðan eins og deild í Vinnuveitendasambandinu og sendi m.a. kaupfélögum á Austfjörðum skeyti með hót- unum um hörðustu viðurlög ef samið yrði við verklýðs- félögin. Nú síðast hefur full- trúi flokksins í stjórn Lands- virkjunar verið því hlynntur að það almenningsfyrirtæki gengi í atvinnurekendasamtök íhaldsins. Engum þyrfti að koma á óvart þótt Framsókn- arflokkurinn verði sjálfur. inn- limaður í Vinnuveitendasam- band Islands að afloknum kosningum. — Austri. AWWWAAAAAAAAAAA/WWWVWAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAWVWWWVWWWWAAA Utankjörfundar- kósningin Alþýðubandalagig hvetuT alla stuðnjngsmenn sína. sem ekki verða hejma á kjördag tjl að kjósa strax í Reykjavílk fer utankjör- fundarkosnjng fram i gamla Búnaðarfélagshúsinu við Lækjargötu. opig kl 10—12 * f.h.. 2—6 og 8—10 e.h alla virka daga en á helgidö'gum kl 2—6 Utan Reykjavikur fer kosn- jng fram hjá bæjarfógetum og hreppstjórum um land „111 Erlendis geta menn kosið hjá sendjráðipn fslands og hjá ræðismönnum, sem , tala ís- lenzku Utankjörfundarat- kvæðj verða að hafa borizt viðkomandi kjörstjórn í sið- asta lagi á kjördag 22 maí n k Þejr listar. sem Alþýðu- bandalagig ber fram eða styð- uT í hinum ýmsu bæjar- og sveitarfélögum eru eftirfar- andi: Reykjavík G Kópavogur H Hafnarfjörður G Akranes - H ísafjörður G Sauðárkrókur G Siglufjörður G Ólafsfjörður H Akureyrj G Húsavík G Seyðisfjörður G Neskaupstaður G Vestmannaeyjar G Sandgerði H (Miðneshreppur) Njarðvíkur C Garðahreppur G Seltjarnarnes H Borgarnes G Hellissandur H (Neshreppur) Grafarnes G (Eyrarsveit) Stykkishólmur G Þingeyrj H Suðureyri B Hnífsdalur A (Eyrarhreppur) Hólmavík H Blönduós H Skagaströnd G (Höfðahreppur) Dalvík E Egilsstaðir G Eskifjörður G Reyðarfjörður G HornafjörðuP G (Hafnarhreppur) Stokkseyri I Selfoss H Hvcragerði H tVWAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAð Skrifstofustá/ka óskást við vélritún o^ 'önnur almenn skríf-" stofustörf. — Enskukunnátta nauðsynleg. Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins Lækjarteig 2 — sími 38720. Frá bamaskólum Hafnarfjarðar Innritun barna, sem fædd eru á árinu 1959, fer fram fimmtudaginn 12. maí. Lækjarskóli: Böm búsett vestan lækjar við Lækjargötu og í Börðunum. mæti kl. 3 síðdegis. Öldutúnsskóli: Önnur börn búsett sunnan lækjar, mæti kl. 3—4 síðdegis. Skólastjórar. Aða/fundur Aðalfundur Sambands íslenzkra byggingafélaga verður haldinn föstudaginn 27. maí n.k. kl. 5 e.h. í Félagsheimili Húnvetninga, Laufásvegi 25 (geng- ið inn frá Þingholtsstræti). Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.