Þjóðviljinn - 12.05.1966, Qupperneq 12
I
Sósíafístar í
Reykjavik
Munið kosningafund
Alþýðubandalagsins í
kvöld í Austurbæjar-
bíói. Takið með ykkur
kunningja og vinnu-
félaga.
Stjórn
Sósíalistafélags
Reykjavíkur.
Reykjavík vann
Akranes 3:1
Hin árlega ,bseja'keppni milli
Reykjavíkur og Akraness fór
fram í gœrkvöld á Melavelljn-
um. Sigraði Reyik j avík með 3
gegn 1; eftir fyrri hálfleik var
staðan Reykjavífc 1 •— Akranes 0.
Möhkin skoruðu fyrir Reykjavik-
Hermann Gunnarsson tvö og
Axel Axelsson eitt. Mark Akra-
ness skoraði Guðjón Guðmunds-
son.
Umsóknir um sum-
arbúðir þjóðkirkj-
unnar hef jast í dag
f sumar mun þjóðkirkjan
starfrækja sumarbúðir á lirem
stöðnm hér sunnan lands og að
Holti. í Önundarfirði os við
Vestmannsvatn í Þinseyjarsýslu.
Sumarbúðimar hér sunnan-
lands verða í Skálholti, en þær
eru í nýjum húsakynnum sem
byggð hafa verjö sérstaklega
fyrir starfsemjna Og verða vígð
26. júní n.k.. í Menntaskólasel-
jnu við Hveragerði og að Klepp-
jámsTeykjum. Umsóknum um
dvöl í þessum þrem sumarbúð-
um hér sunnanlands er veitt
móttaka hjá ses'kulýðsfulltrúa
þjóðkirkjunnar í skrjfstofu bisk-
upsembættisins að Klapparstíg
27, í dag kl. 1—3 e.h. og næstu
daiga á sama tíma. Verða bar
ennfremur veittar atlar nánari
upplýsingar um sumarbúðimar.
Þrem ávísema-
1 fyrrinótt var framið innbrot
hjá fyrirtæki einu hér i borg pg
stolið þrem tékkheftum á Útibú
Landsbanka íslands, Laugv. 77,
Númerin á tékkheftunum voru
sem hér segir: nr. 216863—216900,
nr 183965—184000 o., 21B103—
218150. Eru menn beðnir að gera
rannsóknarlögreglunni aðvart ef
þeir verða varir við ávísanir með
þessum númerum í umferð.
f Á F R A M
ÍHALD!
Ihaldið í Reykjavík vant-
aði kjörorð. Það • varð að
vera stutt. Það varð að
vera snjallt. Og þegar
gömlu mennimir höfðu
lengi brotið heilann ár-
angurslaust, var Birgir
Kjaran svo heppinn að fara
á knattspymukappleik. Og
sem vandi kjörorðsleitarinn-
ar ásótti hann einnig þar,
tók að drynja í undirvit-
undinni samstillt hróp, og
áður en hann vissi af var
vígorð íhaldsins í þessum
kosningum fundið: ÁFRAM!
ÁFRAM! AFRAM! Áfram
Valur, áfram K.R.. áfram
fliald!
Og svo fer þetta vígorð
svo dæmalaust vel í munni
baulþjálfaðra Heimdellinga.
AFRAM íhald!
Var nokkur að brosa?
V
Bandarísk söngkona syngur á
TÓNLEIKUM HJÁ
SINFÓNÍUNNI
□ Á 15. reglulegu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands sem haldnir verða í Háskólabíói í kvöld kl. 21 syng-
ur bandaríska söngkonan Adele Addison einsöng, en
stjómandi verður Igor Buketoff. — Næsta verkefni Sin-
fóníuhljómsveitarinnar eru barnatónleikar, eða fjölskyldu-
tónleikar eins og þeir eru gjarnan kallaðir sem haldnir
verða á sama stað 17. maí kl. 3 e.h. og er Igor Buketoff
einnig stjórriandi á þeim tónleikum, en Rúrik Haraldsson
leikari er kynnir.
Vatnslaust í hálfan mánui
Undanfarinn hálfan mánuð, hefur
verið vatnslaust í sameiginlegu þvotta-
húsi fyrir íbúa í 6—7 bröggum, sem
standa í þyrpingu í Camp Knox, en
reyndar er búið í fleiri bröggum á
öðru syæði í Camp Knox. Ástæðan
fyrir vatnsleysinu eru byggingarfram-
kvæmdir í nágrenninu, að því er íbú-
unum er tjáð. Kemur þetta sér vissu-
lega bagalega fyrir húsmæðumar, sem
bafa orðið að fara* með þvottinn í
þvottabús eða beita öðrum ráðum.
Þess má geta að íbúar þessara bragga
hafa fengið boð um að rífa eigi bragg-
ana þann 14. maí n.k. og er vissulega
tími til kominn að gera skurk í þessum
málum, en ennþá er búið í 30 skálaíbúð-
um hér í borg. Hitt er svo annað mál,
hvort þessir íbúar hafa í annað hús að
venda. Að sögn eins þeirra er erfitt
fyrir þá að fá leigt hjá bænum, hann
hefur gert ítrekaðar tilraunir en er
jafnan svarað með huggunarorðunum
„komdu seinna“. — Ljósmyndari Þjóð-
vilrjan§ A.K. tók þessa mynd af þvotta-
húsinu.
Merkar rannsóknir á beitarþoli afrétta
Hafin útgáfa gróðurkorta
af öllu hálendi landsins
B Útgáfa gróðurkorta af íslandi er nú að hefjast og
koma fyrstu sex kortin út hjá Menningarsjóði í dag, en
þeir aðilar sem unnið hafa að undirbúningi útgáfunnar,
rannsóknum og mælingum eru Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins og Landmælingar íslands. Er ætlunin að kort-
lejjgja á þennan hátt allt hálendi landsins og síðan jafn-
vel einnig láglendið.
Gils Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Menningarsjóðs
skýrði frá þessu á blaðamanna-
fundi í gær þar sem einnig voru
staddir forstöðumenn Rannsókn-
arstofnunarinnar og Landmælinga
og fleiri sem mest hafa unnið
að þessu verki.
Ingvi Þorsteinsson sem stjórn-
að hefur rannsóknunum af hálfu
Rannsóknarstofnunar landbúnað-
arins sagði að rannsóknir á gróð-
urlendi hálendisins hefðu fyrst
hafizt í smáum stíl 1955 og veitti
þá Sandgræðslan fé til þeirra,
en legið síðan niðri að mestu
þar til 1961 að þær urðu sjálf-
stætt verksvið á stofnuninni.
Hefur síðan stöðugt verið unnið
að gróðurkortagerð hjá stofnun-
inni og nú verið kortlagt allt
hálendi sunnan jökla, frá Hverf-
isfljóti að austan vestur að Faxa-
flóa. Ennfremur afréttir Borgar-
fjarðar- og Húnavatnssýslna og
afréttir Þingeyinga austur að
Jökulg.á á Fjöllum. Nær þetta
svæði yfir um 40 þús. ferkíló-
metra. Ætti samkvæmt þessu
kortlagningu allra afrétta lands-
ins að vera lokið fyrir 1970 með
sama mannafla, 6—7 manns.
Tilgangur þessara rannsókna
er öðru fremur sá að fá úr því
skorið hve mikið af hálendinu
er gróið land og hvert er nota-
gildi eða beitarþol þess, en af-
réttir hálendisins sem um alda-
raðir hafa verið undirstaða fyr-
ir sumarbeit íslenzks búfjár, hafa
verið nýttir af handahófi og
engin vitneskja verið fyrir hendi
um beitarþol þeirra. Enda mun
ofnýting gróðurs vera helzta or-
sök þess hve gífurlega hefur
gengið á íslenzk gróðurlendi síð-
ustu mannsaldra.
Lögð hefur verið áherzla á að
kortleggja fyrst Suðurlandshá-
lendið, þar sem gróðureyðing þar
er mjög ör og hagþrengsli mikil,
en síðan verður hafizt handa um
■aðra hluta landsins. Gróðurlend-
in eru flokkuð í 60 mismunandi
gróðurhverfi og við þá flokkun
byggt á rannsóknum • Steindórs
Steindórssonar yfirkennara á
Akureyri, sem lagt hefur fyrir
sig athuganir á hálendisgróðrin-
um síðan 1930. Við kortlagning-
una hafa verið notaðar loftmynd-
ir sem Landmæl ingastof nun
Framhald á 9. síðu.
Ó-edlilegf
1 viðtalinu við Guðrúnu
Helgadóttur í blaðinu í gær
varð mjög slæm prenií'illa.
Þar stóð í öðrum dálki:
„Mér finnst bað mjög eðii-
legt að menntamenn séu
mörgum Iaunaflokkum fyrir
ofan annað fólk“. Þar átti
að standa ÓEÐLILEGT, eins
og glöggur lesandi hefur
raunar séð af samhenginu.
Það er fyrir milligöngu List-
kynningardeildar utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna að Sin-
fóníuhljómsveitin kynnir nú
söngkonuna Adel^ Addison, sem
er fædd í New York en fluttist
ung til Massachusetts, þar sem
sönghæfileikum hennar var fyrst
veitt athygli.
Addison kom fyrst opinberlega
fram á einsöngstónleikum í Bost-
on og hóf þar með opinberan
söngferil sinn, sem brátt leiddi
til stærri óperuhlutverka og ein-
söngs með mörgum af hinum
stærri sinfóníuhljómsveitum
Bandaríkjanna. Að loknu fram-
haldsnámi í söng við Juillard
tónlistarskólann árið 1952, hélt
hún sína fyrstu einsöngstónleika
í N.Ý. og hlaut þar mikið lof
gagni’ýnenda og hefur verið tal-
in í fremstu röð söngkvenna í
heimalandi sínu síðan og hefur
haldið tónleika víða í Evrópu-
löndum t.d. í Sovétríkjunum fyr-
ir 3 árum. Addison mun einnig
syngja hjá Tónlistarfélaginu og
í Ríkisútvarpið.
Á efnisskrá tónleikanna er
Sinfónía nr. 100 eftir Haydn,
„Exsultate, Jubilate“ K. 165 eftir
Mozart, Knoxville eftir Barber
og önnur sinfónía Tsjaíkovskís,
sem er flutt hér á landi í fyrsta
skipti.
Hljómsveitarstjórann, Igor
Buketoff, er óþarfi að kynna
Á Sauðárkróki er 5 éra gam-
alt stúlkubarn haldið meðfædd-
um alvarlegum hjartasjúkdómi.
Að dómi lækna er henni nauðsyn
á umfangsmeiri rannsóknum og
aðgerðum en framkvæmdar eru
hér' á landi, og það sem fyrst.
Er í ráði að senda hana til
Bandaríkjanna. Slíkt kostar mik-
ið fé, opinber framlög takmörk-
uð og ættingjar efnalitlir. Hafa
því fjölmenn samtök á Sauðár-
krókj hafjzt handa um fjársöfn-
un til sjóðstofnunar til að standa
hér, en hann var aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsvéitarinnar á síð-
asta ári og einnig 1963—’64.
Á fundi með blaðamönnum gat
Gunnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit-
arinnar þess að nýlega hefði
verið gefin út i Bandaríkjunum
þriðja hljómplata Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, á henni er 3.
sinfónía Roberts Wards og er Igor
Buketoff hljómsveitarstjóri, en
verk þetta var flutt á regluleg-
um tónleikum hér í fyrra og
hljóðritað eftir á.
Framhald á 9. síðu.
Adele Addison
straum af slíkum kostnaði.
Kvenfélfegin á Sauðárkróki og
í Skagafirði munu annast söfn-
un hvort á sínu svæði, en í
kaupstöðunum og Reykjavík
munu stjómir átthagafélaga
Skagfirðinga veita framlögum
viðtöku.
Aðalféhirðir söfnunarinnar er
Guttormur Öskarsson, gjaldkeri
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og
geta þeir, sem vilja leggja þessu
máli lið einnig sent framlög sín
beint til hans.
Frá kasningastjárn Alþýðuhandalagsins
□ UTANKJÖRFUNDAR-
KOSNING stendur yfir. I
Reykjavík er kosið í gamla
Búnaðarfélagshúsinu við Lækj-
argötu, opið alla virka daga
kl. 10—12 f.h., 2—6 e.h., en á
sunnudögum kl. 2—6 e.h.
Úti á landi er kosið hjá
öilum bæjarfógetum og hrepp-
stjórum. Skiá yfir kjörstaði
erlendis og LISTABÓKSTAFI
Alþýðubandalagsins er birt á
öðrum stað í blaðinu. Þeir.
sem dvelja fjarri heimilum
sínum á kjördag þurfa að
kjósa strax, og eru allir
stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins beðnir að gefa kosn-
ingaskrifstofum okkar allar
nauðsynlegax upplýsingar um
þá, sem fjarverandi eru.
n KOSNINGASKRIFSTOF-
UR Aiþýðubandalagsins í
Reykjavík sem þegar hafa
verið opnaðar, cru í Tjarnar-
götu 20, opið kl. 9 f.h. tii 22
e.h. alla daga, símar 17512,
17511 og 24357 og að Laufás-
vegi 12 opið kl. 9—19, símar
' 2ÍÍ27 og 21128. Báðar skrif-
stofurnar veita allar almenn-
ar upplýsingar varðandi
kosningarnar. Að Laufásvegi
12 er einnig hverfisskrifstofa
fyrir Vesturbæ innan Hring-
brautar og Þingholt. .
□ HAPPDRÆTTI og
KÖNNUNARLISTAR. AIHr
þeir, sem fengið hafa senda
könnunarlista eða miða i
kosningahappdrætti Alþýðu-
bandalagsins eru beðnir að
gera skil nú þegar. A kosn-
ingaskrifstofunum er einnig
tekið við framlögum í kosn-
ingasjóð og seldir miðar í
kosningahappdrættinu, en í
því verður dregið daginn eft-
ir kjördag.
□ sjAlfboðaliðar,
sem starfa vilja fyrir Alþýðu-
bandalagið fyrir Icjördág og á
kjördag eru beðnir að láta
skrá sig á kosningaskrifstof-
unum.
BANDMAGIÐ
□ BÍLAU, A kjördag þarf
Aiþýðubandalagið á að halda
öllum þeim bílakosti, sem
stuðningsmenn þess hafa yfir
að ráða. Eru bíieigendur
sérstaklega beðnir að vera
viðbúnir og iáta skrá sig nú
þegar til starfs á kjördag.
Fjársöfnun ti/ að styrkja
barn ti! lækninga er/endis
Fimmtudagur 12. maí 1966 — 31. árgangur — 105, tölublað.