Þjóðviljinn - 15.05.1966, Page 5
Sunnudagur 15. mai 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA g
\
Sinfóníuhljómsveit íslands
Ríkisútvarpið
Barnatón/eikar
í Háskólabíói þriðjudaginn 17. maí kL 3.
Stjórnandi: IGOR BUKETOFF.
Kynnir: RÚRIK HARALDSSON.
Flutt verður m.a. Leikfangasinfónían eftir Haydn
og verk eftir Rossini, Strauss o.fl.
Aðgöngumiðar seldir í bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og bókabúðum Lárusar Blöndal,
Skólavörðustíg og Vesturveri.
SparísjóSur
vélstjóra
«
Bárugötu 11.
Annast öll venjulég sparisjóásvið-
skipti.
Lindarbær
Leikfélag Hveragerðis sýnir:
Óvænt heimsókn
eftir J. B. Priestley
í Lindarbæ mánudaginn 16. maí kl. 9 e.h. og þriðju-
daginn 17. maí kl. 9 e.h.
Leikstjóri: GÍSLI HALLDÓRSSON.
Aðgöngumiðasala í Lindarbæ sunnudag, mánudag
og þriðjudag frá kl. 2 e.h. alla dagana.
Leikfélrfg Hveragerðis.
Gúmmívinnustofan h.f.
Skiphoiti 35 — Símar 31055 og 30688
t
'11 . 1 ............. " ■l"—
Verkfræðingur óskast
Staða bæjarverkfræðings á ísafirði er hér með aug-
lýst til umsóknar. Krafa um launakjör og upplýs-
ingar um nám og störf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí. Staðan veitist þá
strax eða eftir samkomulagi.
ísafirði, 12. maí 1966.
Bæjarstjóri.
Fjórðungsmót Norð■
lendingafjórðungs
Fjórðungsglímumót Norð-
lendingafjórðungs var Káð á
Akureyri iaugardaginn 30. apríl
s.1. Þátttakendur voru 5, þrir
frá Ungmennasambandi Eyja-
fjarðar og tvcir frá Iþrótta-
bandalagi Akureyrar.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Fjórðungsglímumót Norðlend-
ingafjórðungs er háð. Keppt
var um fagurt glímuhorn, sem
Kaupfélag Eyfirðinga gaf til
þessarar keppni. Úrslit glímunn-
ar urðu þau, að sigurvegari
varð Þóroddur Jóhannsson frá
Ungmennasambandi Eyjafjarð-
ar.
Úrslit:
1. Þóroddur Jóhannsson, UMSE,
4 vinningar.
2. Valgeir Stefánsson, UMSE,
3 vinningar.
3. Sigurður Sigurðsson, IBA
2 vinningar.
4. Ölafur Ásgeirsson, ÍBA 1 v.
5. Einar Benediktsson, UMSE,
engan vinning.
Drengjaglíma:
Samtímis Fjórðungsglímumóti
Norðlendingafjórðungs var háð
á Akureyri drengjaglíma ÍBA.
Þátttakendur voru fjórir.
Urslit:
1. Haraldur Guðmundsson 3 v.
2. Halldór Jónsson, 2 v.
3. Áskell Jónsson, 1 v.
4. Már Vestmann 0 v.
Mótið hófst kl. 4 stundvís-
lega þann 30. apríl s.l. í í-
þi’óttasal barnaskplans á Akur-
eyri, með þvf að formaður 1-
þróttabandalags Akureyrar, Isak
Guðmann, flutti snjalla raeðu
um gildi íþrótta almennt og til-
drög þessarar fyrstu fjórðungs-
glímu Norðlendingafjórðungs.
Einnig minntist hann á þinn
fagra grip, er glíma átti um og
gefinn var af Kaupfélagi Ey-
firðinga. Er það hom eitt veg-
legt, er keppa skal um ár hvert,
og vinnst það til fullrar eign-
ar, ef sami maður vinnur það
þrjú ár í röð eða fimm sinnum
alls.
Þá hófst glíman, og var Har-
aldur H. Sigurðsson glímustjóri.
Yfirdómari var Þorsteinn Kristj-
ánsson frá Reykjavík. Meðdóm-
endur voru: Sverrir Sigurðsson
og Haukur Berg.
Að glímunni lokinni afhenti
Þorsteinn Kristjánsson, lands-
þjálfari Glímusambands Islands,
sigurvegurunum verðlaun og
sleit mótinu með nokkrum
hvatningarorðum til norð-
lenzkra glímumanna.
Glíman einkenndist af dreng-
skap og góðum vilja til aðgera
sitt bezta. Framkoma öll var
góð, og auðséð, að kennarinn,
Haraldur M. Sigurðsson, hefur
lagt mikla rækt við kennslu á
grundvallaratriðum glímunnar.
Bol og níð var ekki sjáanlegt
í þessari glímu, og vonandi
tekst Norðlendingum að halda
ótrauðir áfram á sömu braut.
Er þá sennilegt, að frá þeim
komi snjallir og góðir glímu-
menn í framtíðinni.
— Þ. K.
Síldarstúlkur — Síldarstúlkur
Síldin er komin á miðin og söltun hefst væntanlega
með fyrra móti. Okkur vantar nokkrar góðar síld-
arstúlKur til Raufarhafnar og Seyðisfjarðar. Ágæt-
is húsnæði og vnnuskilyrði. Fríar ferðir, kaup-
trygging. Mötuneyti á staðnum. Nánari upplýsing-
ar veita Valtýr Þorsteinsson, sími 20055, Reykja-
vík og Hreiðar Valtýsson, sími 11439, Akureyri.
Kosningaskrifstofa mín
við prestskosningar'nar í Garðahreppi verður að
Smáraflöt 14, þar sem allar upplýsingar verða veitt-
ar ásamt bílaþjónustu. — Sími 51614.
Séra Bragi Benediktsson.
Sumar rýmingarsala
í Vinnufatakjallaranum hefst mánudag-
inn 16. maí.
Selt verður meðal annars: t
Margar gerðir af gallabuxum drengja í stærðum
2—16. Seljast allar á kr. 125.
Köflóttar drengjaskyrtur á kr. 79.
Nylon skyrtur drengja, allar stærðir, kr. 155.
Telpugallabuxur á kr 125.
Terelynebuxur telpna, kr. 175.
Kakibuxur karla, kr. 150.
Nankinbuxur karla, kr. 180.
Einlitar vinnuskyrtur, kr. 79.
Köflóttar vinnuskyrtur, kr. 110.
Terelynebuxur dreng’ja. frá kr. 198.
Terelynebuxur karla, kr. 510.
Vinnufatakjallarinn, Barónsstíg 12.
Hverfaskrífstofur fyrir
G-listann í Reykjavík
Hverfaskrifstofur G-listans i Reykjavík fram að kjördegi
eru á eftirtöldum stöðum:
Fyrir Melaskóla í Tjarnargötu 20. Opið kl. 5—7 og 8—10
e.h., sími 24357.
Fyrir Miðbæjarskóla að Laufásvegi 12. Opið kl. 5—10
e.h., sími 21129.
Fyrir Austurbæjarskóla að Laufásvegi 12. Opið kl. 5—10
e.h., sími 21127. .
Fyrir Laugarnesskóla að Laugateigi 12. Opið kl. 8—10 e.h.
Fyrir Álftamýrarskóla að Háaleitisbraut 125. Opið kl.
8—10 e.h.
Fyrir Breiðagcrðisskóla að Grensásvegi 22, II. hæð Opið
kl. 8—10 e.h., símar 38744 og 38745
Skrifstofur fyrir Langholtsskóla og Sjómannaskóla verða
auglýstar hér í blaðinu síðar.
Bazar kaffisala
Bazar og kaffisölu hafa konur í G.T.-reglunni í dag
í G.T.-húsinu til ágóða fyrir byggingu templ-
ara í Reykjavík. — Bazarinn hefst kl. 2 e.h.
Margir eigulegir munir á lágu verði. — Kaffi og
góðar kökur allan daginn.
Bazarnefndin.
Aðalfundur
Flugfélags íslands h.f. verður haldinn þriðjudag-
inn 17. maí og hefst kl. 14,00 í Átthagasal Hótel
Sögu.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Aðgóngumiðar að fundinum og átkvæðaseðlar
verða afhentir á aðalskrifstofu félagsins í Bænda-
höllinni. !'
Stjórnin.
t§> MELAVÖLLUR
í kvöld kl. 20,30 leika
Va/ur — Þróttur
í Reykjavíkurmótinu.
Dómari: Steinn Guðmundsson
MÓTANEFND K.R.R.
Listdansskóli
Þjóðleikhússins
Inntökupróf fyrir £kólaájið 1966—’67 fara fram
sem hér segir:
Mánudaginn 16. maí kl. 2,00
fyrjr nemendur 6 til 8 ára.
Miðvikudaginn 18. maí kl. 2,00
fyrir nemendur 9 til 12 ára. Æskilegt er að þeir
nemendur hafi hlotið einhverja undirstoðukennslu
áður.
Nemerdur séu í prófinu í ballettæfingafötum eða
sundbol og æfingaskóm.
- -----