Þjóðviljinn - 15.05.1966, Page 12

Þjóðviljinn - 15.05.1966, Page 12
/ Nýtt óðaverðbólgumet: Matvöruvísitalan hækkaði im 12 stig! Ný slökkvistað tekinínotkun I gær var nýja slökkvistöðin viff Reykjanesbraut tekin í notkun og var vissulega orðin þörf á því að borgin léti slökkviliðinu í té betri starfsaðstöðu en það hafði í gömlu stöðinni viff Tjarnar- götuna þar sem það hefur veriff til húsa um fjölda ára. Frá nýju slökkvistöðinni verður sagt hér í blaðinu á þriðjudaginn en með- fylgjandi myndir er sýna nýju og gömlu stöðina tók Ijósmyndari * Þjóðviljans, Ari Kárason, í fyrradag. ■ í aprílmánuði síðastliðnum hækkaði matvöruvísitalan um hvorki mera né minna en 12 stig, en það er einhver mesta hækkun á matvörum sem orðið hefur hér á landi — því veldur fyrst og fremst sú ákvörðun Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins að láta þá sem kaupa fisk og smjör- líki standa undir nýjum styrkjum til frystihúSeigenda! Er matvöruvísitalan nú komin upp í 248 stig, og hafa mat- væli hækkað meira en nokkur önnur nauðsyn í tið við- reisnarinnar, en það bitnar að sjálfsögðu þyngst á tekju- lágum barnafjölskyldum sem verða að nota mikinn hluta af tekjum sínum til matarkaupa. Sunnudiaiglur 15. maí 1966 — 31. árgangur — 108. tölublað. Útvarpsumræður unnað kvöli um borgurmál Reykjavíkur Vísitalan fyrir fatnað og álna- vöru hækkaði um 1 stig í apr{l og er nú 178 sti'g. Vísitalan fyrir ýrnsa vöru og þjónustu hækkaði um 3 stig og er nú 225 stig. Meðalvísitalan fyrir vönur og þjónustu hækkaði um sjö vísi- tölustig og er nú komin upp í 222 stig. Fjölskylda sem komst af meff 5.000 krónur þegar við- rejsn hófst þarf nú 11.100 krón- ur til nákvæmlega sömu þarfa! í>á var húsnæðisliðurinn — sem er pappírstala — hækkaður um sex stig í aprílog er nú 133 stig. Hin opinbera vísitala fram- færsjukostnaðar, þar sem m.a. er reiknað með fjölskyldubótum, hækkaðj um sex stig og er nú 191 stig. Kaupuppbót Um næstu mánaðamót kemur til framkvæmda ný kaupgjalds- vísitala og verður hún 185 stig. Það merikir í framkvæmd að verðlagsuppbótin sem nú er 9,15 prósent ofan á grunnlaun. hækk- ar upp í 13,42% — en það jafn- Seltjarnarnes ★ Kosningaskrifstofa H-listans, lista frjálslyndra kjósenda á Sel- tjarnarnesi er að Miðbraut 24, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla daga frá klukkan 18-22 nema laugardaga frá klukkan 14-22. — SlMI 2-42-10. Alþýðubandalagið, Seltjamarnesi. KVENSKÓR KVENSANDALAR •• KVENTOFFLUR Geysifjölbreytt úrval tekið upp í fyrramálið. FALLEGIR LITIR — FALLEGAR GERÐIR. Verd frá kr. 185,00 SKÓVAL, Austurstrceti 18 Eymundssonarkjallara; gildir tæplega 4% hækkun á núverandi kaupi. Til að mynda hækkar al- menni Dagsbrúnartaxtinn, sem nú er kr. 41,74 um tímann, í kr. 43,37 á Jdu'kkustund. fldele Addisson syngur á vegum Tónlistarfélagsins Eins og blaðið hefur áður skýrt frá verða útvarpsumræður í tvö kvöld um borgarmál Reykjavíkur. Umræðurnar verða á mánu- dag og' þriðjudag, 16. og 17. maí og hefjast kl. 8 bæði kvöldin. Röð flokkanna annað kvöld er þessi: Alþýðuflokkur, Framsókn- arflokkur, Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur. Tvær umferðir verða, 25 mín. og 15 mín. á flokk eða alls 40 mín. á "hvern flokk. Ræðumenn Alþýðubandalagsins annað kvöld verða Guðmundur Vigfússon, borgarfulltrúi, Guðrún Helgadóttir, menntnskólaritari, Magnús Torfi Ólafsson, form. Alþýðubandalagsins í Reykjavík og Jón Snovi'i Þorleifsson, formaður Trésnv.ðafélags Reykjavíkur. Sumarsýning opnuð / Asgrímssafnií dag Ameríska sópransöngkonan Ad- ele Addisson heldur söngskemmt- un fyrir styrktarmeðlimi Tónlist- arfélagsins n.k> mánudagskvöld kl. 7 og þriðjudagskvöld kl. 9,15. Á efnisskránni, sem er mjögfjöl- breytt, eru fimm lög eftir Sphu- bert, Ganymed, Dass sie hier gewesen, Seligkeit, Wanderer's Nachtlied, og Die junge Nonne, Lyric Poems, fjögur lög eftir Lugi Dallapiccola. Philni, fjög- ur Mignon-ljóð eftir Hugo Wolf, Trois Chansons de Bilitis, eftir Debussy og Kantata eftir John Carter. Adele Addisson er svo kunn söngkona bæði af hljómleikum og hljómplötum og einnig eftir að hafa sungið hér með Sin- fóníuhljómsveitinni að óþarfi er að kynna hana nánar. Undirleik annast ameríski pi- anóleikarinn Brooks Smith en hann er kunnur pianóleikari í Bandaríkjunum og víðar. Tónlistarfélagið hefur beðið blaðið að vekja athygli á þvi, að tónleikarnir á mánudagskvöld byrja kl. 7, en á þriðjudagskvöld kl. 9,15. Hin árlcga sumarsýning í Ás- grímssafni verður opnuð í dag Er hún 18. sýning safnsins síðan það var opnað áriff 1960. Þessi sumarsýning er með svip- uðu sniði og aðrar slíkar sýn- ingar Ásgrímssafns. Leitazt ervið sýna sem fjölþættust viðfangs- efni í listsköpun Ásgríms Jóns- sonar, frá aldamótum til síðustu æviára hans. Með slíkri tilhögun eru ekki sízt hafðir í huga hinir mörgu erlendu gestir, er jafnan skoða safnið á sumrin. 1 heimili- listamannsins eru vatnslitamyndir sýndar frá ýms- um stöðum á landinu, m.a. Lang- jökull og Jarlhettur, gerð 1904, Frá Möðrudalköræfum, 1951, Frá bernskuslóðum Ásgríms í Flóan- um, 1909, Ur Svarfaðardal, 1951. Einnig er nú sýnd mjög sérstæð vatnslitamynd, Skúraleiðingar á Hraunsásnum í Borgarfirði, mál- uð 1947. í vinnustofu Ásgríms erusýnd olíumálverk, máluð á öllum árs- tíðum, og frá ýmsum stöðum, m. a. sólsetursmyndir frá Reykjavík og Hafnarfirði og nokkrar snjó- myndir úr nágrenni borgarinnar. Hverfisstjórar H-listans í Kópavogi! Mætið á kosningaskrifstof- unni á mánudagskvöld til und- irbúnings kosningunum. Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 1 til 10. — Sími 41746. Ásgrímssafn hefur látið prenta kynningarrit á ensku, dönsku og þýzku um Ásgrím Jónsson og safn hans. Einnig kort í litum af nokkrum landslagsmyndum i eigu safnsins, og þjóðsagnateikn ingum. flrmann Snævarr áfram rektor ' Rektorskjör fór fram í Há- skólanum í gær og var prófess- or Ármann Snævarr endurkjör- jnn röktor frá 15. sept. n.'k. {il jafnlengdar 1959. Kjésendafundur Albýðubandalags ins í Hafnarfirði Alþýðubandalagið í Hafnar- firði heldur almennan kjósenda- fund í Góðtemplarahúsinu ann- að kvöld kl.y 8,30. Ræðumenn á fundinum verða: Hjörleifur Gunnarsson, forstj., Björn Bjarman, kennari, Kristján Andrésson, bæjarfulltrúi, örlyg- ur Benediktsson, vélvirki, Stefán Halldórsson gjaidkeri, Ester Klá- usdóttir, húsfrú, Kristján Jóns- son, formaður Sjómannafélags Hafnarf jarðar. Fundarstjóri verður Már Ein- arsson, úrsmiður. Alþýðubandalagsfólk er hvatt til að fjölmenna á fundinn. Fjöibreytt samkoma Alþýðu- bandalagsms s Háskólabíéi Á fimmtudaginn, uppstigningardag, efnir Alþýðubandalagið í Reykjavík til fjölbreyttrar skemmtisamkomu í Háskólabíói þar sem fram munu koma margir þjóðkunnir listamenn, rithöfundar, tónlistarme m, leikarar o.s.frv. Samkoman hefst kl. 2,15 síðdegis og eru á dagskránni ávarp, einsöngur# blásara- kvartett leikur, lesið verður upp úr nýútkomnum bókum, flutt kvæði og leik- þættir og sýnd fyrsta íslenzka breiðtjaldsmyndin. Þá verður fluttur pólitískur skopþáttur sem fjallar um fundahöld Geirs borgarstjóra að undanförnú. Nánar verður sagt frá dagskrá skemmtunarinnar í þriðjudagsblaðinu. i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.