Þjóðviljinn - 06.07.1966, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÖ0VILJINN — Miðvikudagur 6. Júlf 1SB8.
/
| Leika á
Akureyrí
i| í kvöld
í Tvær myndir frá landslcik
# fslendinga og Dana í knatt-
f spyrnu á Laugardaisvelli í
Ifyrrakvöld. Á stærri mynd
inni sést íslenzki markvörð-
urinn, Guttormur Ólafsson,
verja eitt af markskotum
Dananna, cn Guttormur sýndi
ágætan leik í fyrrakvöld,
bjargaði oft fallcga og verð-
ur ekki sakaður um þau þrjú
* mörk sem fslendingarnir
], fengu á sig. — Á minni
á myndinni sjást tveir lelk-
/ manna berjast um háan bolta.
/ Danska liðið leikur tvo
f leiki hér á landi, þann síð
J ari á Akureyrarvelli í kvöld.
i (Ljósmynd Þjóðv. A.K.)
V
40 þátttakendur í Drengjameíst-
aramóti fslands 1966 á Akureyri
Drengjameistaramót fslands
1966 fór fram á Akureyri um
síðustu helgi og sá frjálsíþrótta-
ráð Akureyrar um mótið. Þátt-
takendur í mótinu voru um 40
víðs vegar að af landinu. Einn-
ig kepptu þeir Jón Þ. Ólafsson
og Válbjöm Þorláksson sem
gestir á mótinu. Jón stökk 2.01
m í hástökki sem er vallarmct
á Akureyri en Valbjörn hljóp
100 metra á 11.0 sek. og stökk
3.80 m á stöng við óhagstæð
voðjirskilyrði.
Úrslit i einstökum greinum
mótsins urðu sem hér segir:
Fyrrí dagur.
100 m hlaup:
Einar Þorgrímsson ÍR 11.5
Jón Benónýsson HSÞ 11.6
Jón öm Amarson Á 11.6
Kúluvarp:
Páll Dagbjartsson HSÞ 13.78
Kjartan Kolbeinsson IR 12.01
Hjálmur Sigurðsson lR 11.91
Spjótkast:
Finnbjörn Finnbjörnss. IR 49.93
(íslenzkt sveinamet).
Hjálmur Sigurðsson ÍR 45.29
Birgir Jónsson IBA 45.27
Langstökk:
Jón Benónýsson HSÞ 5.88
Einar Þorgrímsson lR 5.81
Ágúst Óskarsson HSÞ 5.72
Pex
og þvarg
Það er eitt furðulegasta
einkennið á stjórnmálaumræð-
um á fslandi að menn geta
átt það til að þvarga og pexa
dögum saman um einfaldar
staðreyndir, hluti sem unnt er
að mæla og reikna á ótvíræð-
asta hátt. Fyrir nokkrum
dögum vakti Þjóðviljinn til
að mynda athygli á einfaldri
en einkar lærdómsríkri stað-
reynd; í fyrra greiddu ein-
staklingar 81% af tekjuút-
svörunum til Reykjavíkur-
borgar en fyrirtæki 19%; í ár
greiða" ejnstaklingar nær 87%
af tekjuútsvörunum en fyrir-
tæki rúm 13%. Hlutur fyrir-
tækaj af útsvarsbyrðinni hef-
ur semsé lsékkað um þriðjung,
en borgararnir bera þeim mun
þyngri byrði.
Er hægt að deila um þessa
einföld staðreynd? Ojá, mál-
gögn Sjálfstæðisflokksins sjá
fyrir því. Þau hrópa dag eftir
dag að Þjóðviljinn fari með
rangar tölur, hann svíkist um
að reikna aðstöðugjöldin með!
En hér í blaðinu var ekki
verið að tala um nein að-
stöðugjöld, heldur afmarkað
svið. tekjuútsvörin ein í ár
og í fyrra. Auðvitað borga at-
vinnurekendur fjölmarga aðra
skatta en tekjuútsvörin, og
sama er að segja um borgar-
ana; auk beinu gjaldanna
greiða þeir söluskatt og tolla
á hverjum degi. Það væri ef-
laust fróðlegt að leggja öll
þessi gjöld saman, því þróun-
in undanfarin ár hefur ein-
mitt verið sú að velta áiögun-
um æ meir yfir á almenning í
formi neyzluskatta. En Þjóð-
viljinn var ekki að gera
neitt slfkt; hann bar saman
útsvörin ein. Jafnt fyrirtæki
sem einstakjingar eiga að
greiða þau af nettótekjum
sínum samkvæmt framtölum,
og því eru tölur þær sem hér
hefur verið bent á einkar
skýrt dæmi, um sívaxandi
þjóðfélagslega_ rangsleitni.
Krafa íhaldsblaðanna um
að aðstöðugjöldin skuli reikn-
ast með er þeim mun fráleit-
ari sem þau gjöld eru engan
veginn tekin af nettótekjum'
fyrirtækja, heldur af umsvif-
um þeirra. Öll fyrirtæki
leggja aðstöðugjöldin á vör-
ur sínar og þjónustu, það eru
viðskiptavinirnir sem borga.
Aðstöðugjöldin hafa að því
leyti hliðstæð áhrif og sölu-
skatturinn; skyldu málgögn
Sjálfstæðisflokksins ekki
krefjast þess næst að sölu-
skatturinn verði reiknaður
með þegar rætt ,er um byrð-
ar fyrirtækja í Reykjavík.
•— Austri.
800 m hlaup:
Ásgeir Guðmundss. ÍBA 2.12.9
Þórarinn Sigurðsson KR 2.16.8
Bjarni Guðmundarson USVH
2.17.5
200 m grindahlaup:
Jón ö Amarson Á 29.1
Halldór Jónsson IBA 29.3
Guðmundur Ölafsson IR 30.7
Hástökk:
Einar ÞOrgrímsson lR 1.70
Halldór Matthíasson IBA 1.65
Páll Dagbjartsson HSÞ 1.60
Síðari dagur.
110 m grindahlaup:
Halldór Jónsson IBA 16.7
Snorri Ásgeirsson IR 17.0
Guðmundur Ölafsson IR 17.2
Kringlukast:
Páll Dagbjartsson HSÞ 40.14
Hjálmur Sigurðsson IR 40.06
Kjartan Kolbeinsson ÍR 4 39.21
Þrístökk:
Bjami Guðmundarson USVH
13.15
Þór Konráðsson IR 12.60
Páll Dagbjartsson HSÞ 12.20
300 m hlaup:
Jón Ö. Amarson Á. 38.9
Einar Þorgrímsson IR 39.4
Halldór Jónsson IBA 40.0
1500' m hlaup:
Bergur Höskuldss. UMSE 4.50.3
Ásgeir Guðmundsson iBA 4.50.8
Þórarinn Sigurðsson KR 5.54.2
Stangarstökk:
Halldór Matthíasson iBA 2.90
Einar Þorgrímsson IR 2.70
Ásgeir Ragnarsson ÍR 2.70
4x100 m boðhlaup:
A-sveit IR 49.3
B-sveit IR 51.8
Fyrstu leikir
í þriðju deild
Eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum blaðsins verður nú í
sumar efnt í fyrsta sinn til
keppni í 3. deild Islandsmóts-
ins í knattspyrnu.
Fyrstu þriðjudeildarleikirnir
voru háðir um síðustu helgi. Þá
kepptu lið Ungmennafélags
ölfuss og Ungmennasambands
Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Aðkomumennimir. sigruðu með
1 marki gegn engu. Á Selfossi
kepptu lið Ungmennafélags
Selfoss og UMF Skallagríms.
Selfyssingar sigruðu með 3
mörkum gegn 2.
Jón Þór 0/afsson varð sigur-
vegari í Jónsmessukeppni GR
Hin árlega Jónsmessukeppni
Golfklúbbs Reykjavíkur hófst á
Grafarholtsvelli 23. júní sl.
Keppt er um bcztan árangur
með forgjöf í 18 holu höggleik
og eru verðlaunin lítill, falleg-
ur bikar, farandgripur.
Til leiks rpættu 35 kylfingar.
Tveir urðu jafnir 1 fyrsta sæti,
þeir Hans Isebam og Jón Þór
Ólafsson (66 högg nettó — þ.
e. þegar forgjöf hefur verið
dregin frá). Urðu þeir því að
leika til úrslita 28. f.m. 18 hol-
ur. Lauk þeirri viðureign svo,
að Jón sigraði með talsverðum
yfirburðum eða 67 höggum
nettó, en Hans lék á 80 högg-^.
um nettó. Hlaut Jón Þór Ólafs-
son því bikarinn til varðveizlu
ásamt bikar til eignar.
Jón Þór hefur staðið sig af-
ar vel á mótum í sumar og m.
a. unnið Firmakeppnina og
fengið forgjöf sína marglækk-
aða.
Hér fara á eftir helztu úrslit
Jónsmessukeppninnar.
Án forgjafar.
1. Magnús Guðmundsson 75
högg (ihann keppti sem gestur).
2. Óttar Yngvason 80 högg.
3. Jóhann Eyjólfsson 83 högg.
4. Einar Guðnason 85 högg.
5. Hans ísebam 86 högg.
Með forgjöf.
1.-2. Hans Isebarn 86-20=66
högg. Jón. Þór Ólafsson
88-22=66 högg.
3. Páll Á. Tryggvason 92-
24=68.
4. Magnús Guðmundsson 75-
6=69.
5. Elías Kárason 106-36=70.
ur og skartgripir
KDRNELIUS
JÓNSSON
skólavöráustlg 8
2 érnsk unglingalið
hér í boði Víkings
Islendingar og Danir virðast unglingaliðin einnig til Akur-
ætla að heyja marga keppnina eyrar, Húsavíkur og Siglufjarð-
í knattspymu þetta sumarið, ar og keppa þar.
nýliðin er keppni landsliða ----------------——
flokki undir 24 óra, úrvalslið
frá Fjóni keppir hér í þessari
viku og á morgun, fimmtudag,
er svó von á tveim unglinga-
liðum dönskum á vegum Vík-
ings.
Það eru tvö lið frá Jótlandi
sem heimsækja Víking, Svinn-
ingen Boldklub og Avarta
Rödovre, alls 28 manns, og
endurgjalda nú þessi liðheim-
sókn Víkings í fyrra.
Unglingaliðin munu keppa
við unglingalið hér, bæði Vík-
ings og annarra og er fyrirhug-
aður hjá Víking knattspymu-
dagur 10. júní. Þá fara dönsku
Hjðnakeppni GR
Sunnudaginn 19. júní fór
fram hin vinsæla Hjónakeppni
Gólfklúbbs Reykjavíkur. Ein-
ungis sex kylfingar og frúr
þeirra tóku þátt f keppninni.
Leiknar voru tólf holur án
forgjafar.
Skilyrði voru fremur slæm.
Gunnar Þorleifsson bók-
bandsmeistari og frú Hildur
Kristinsdóttir sigmðu glæsilega
á 65 höggum. Viðar Þorsteins-
son bókbandsmeistari og frú
voru í öðru sæti á 69 höggum.
Útsölustaðir
Þjóðviljans
ísafjörður. Umboð fyrir Þjóðviljann á ísafirði annast Bók-
hlaðan h.f. Blaðið er einnig selt í lausasölu á sama stað.
Flateyri. Blaðið er selt í lausasölu hjá Bókavérzlun Jóns
Eyjólfssonar.
Búðardalur. Blaðið er selt í lausasölu hjá Söluskála Kaup- '
félags Búðardals.
Stykkishólmur. Umboðsmaður Þjóðviljans í Stykkishólmi
er Erlingur Viggósson.
Ólafsvík. Umboðsmaður Þjóðviljans í Ólafsvík er Þórunn
Magnúsdóttir.
Hellissandur. Umboðsmaður Þjóðviljans á Hellissandi er
Skúli Alexandersson.
Borgarnes. Umboðsmaður Þjóðviljans í Borgarnesi er Ol-
geir Friðfinnsson.
Akranes. Umboðsmaður Þjóðviljans á Akranesi er Arn-
mundur Gísíason, Háholti 12.
jhvert sem þér faríð ALMENNAR TRYGGINGAR f
W ferðatrygpg ( ) PÓSTHÚSSTRÆTI 9 \rr- J SÍMI 17700